Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Síða 15
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987.
15
Lesendur
„Af hverju sér borgarstjóri ekki sóma sinn í því aö kaupa sér ódýrari bil en þennan Cadillac sinn svo hann geti gert meira
fyrir þá er minna mega sín?“
„Óforsvaranleg bílakaup"
Ellilífeyrisþegi hringdi:
Ég er alveg ævareið og í senn stór-
hneyksluð yfir bílakaupum borgar-
stjórans, Davíðs Oddssonar, að borgin
skuli greiða tæpar 3 milljónir fyrir bíl
honum til handa.
Það hljóta nú að vera til ódýrari
bílar sem þjóna alveg sama tilgangi
og þessi Cadillac Fleetwood 60 Special
- ekki vantar nafnið.
Af hveiju sér borgarstjóri ekki sóma
sinn í því að kaupa sér ódýrari bíl svo
hann geti gert meira fyrir þá er minna
mega sín?
Alltaf er það svo að þegar kemur
að okkur, litilmögnunum í þjóðfélag-
inu, er sagt: því miður, það eru bara
ekki til peningar í ríkiskassanum. En
þegar ráðamennimir þurfa að kaupa
sér fínan bíl til að vera nú „fínir“ karl-
ar er allt í einu af nógu að taka.
Ég vil mótmæla þessum bílakaupum
og vona að lesendur taki í sama streng
og tjái sig um þessi óforsvaranlegu
bílakaup.
Hringið í síma
27022
milli kl 13 og 15, eða skrifið.
BLAÐAUKI
ALLA LAUGARDAGA
BÍLAMARKAÐUR DV
er nú á fullrí ferð
Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði.
Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum-
boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt
úrval bíla.
Auglýsendur athugið!
Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00
fimmtudaga.
Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga.
Síminn er 27022.
BLAÐBERAR ÓSKAST Á
NESKAUPSTAÐ
Uppl. hjá umboðsmanni í síma 7229.
KENNARAR -
NÝR SKÓLI
Kennara vantar að Fellaskóla á Fljótsdalshéraði næsta
skólaár. Kennsla í 1.-6. bekk og í forskóladeild. Fella-
hreppur er á Fljótsdalshéraði miðju. Skólinn er í
Fellabæ við Lagarfljótsbrú. Skólahúsið er nýtt og er
vinnuaðstaða mjög góð.
Við bjóðum lifandi starf við mótun kennslu og starfs-
hátta í nýjum skóla. Húsnæði er í boði á góðum
kjörum. Flutningsstyrkur er hugsanlegur.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 97-1015,
heimasími 97-1326, og formaður skólanefndar í síma
97-1582.
Skólanefnd.
Bóklegt atvinnuflugnám
Skipulag atvinnuflugnáms er nú í gagngerri endur-
skoðun og þess vegna var um sinn frestað fyrri önn
hinnar bóklegu kennslu í fjölbrautaskólakerfinu.
Fyrirhugað er að kenna enn einum árgangi eftir gamla
kerfinu áður en hið endurskoðaða kerfi tekur við. Þá
er miðað við að fyrri önnin hefjist í haust og hin síð-
ari verði eftir áramótin.
Inntökuskilyrðin verða óbreytt, en þau eru að viðkom-
andi skuli hafa lokið a.m.k.:
• bóklegu prófi einkaflugmanns,
• tveggja ára almennu námi að loknum grunn-
skóla og
• þremur einingum í hverri eftirtaldra greina:
ensku, stærðfræði og eðlisfræði.
Þeir sem hafa áhuga á að stunda þetta nám og
munu uppfylla áðurnefnd inntökuskilyrði hinn 1.
september nk. geta sent skriflegar umsóknir sínar,
ásamt staðfestum gögnum, til skírteinadeildar loft-
ferðaeftirlits Flugmálastjórnar eða Fjölbrautaskóla
Suðurnesja fyrir 1. júlí nk.
Flugmálastjórn.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Bugðutanga 38, Mosfellshreppi, þingl. eign Ást-
mars Arnar Arnarsonar o.fl., fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu
31, Hafnarfirði, föstudaginn 22. maí 1987 kl. 16.00.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
Nauðungaruppboð
annað og síðara á eigninni Byggðarholti 1 C, Mosfellshreppi, þingl. eign
Sigurðar Péturssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31,
Hafnarfirði, föstudaginn 22. maí 1987 kl. 17.00.
________________________Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu.