Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1987, Page 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987.
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ 1987.
17
íþróttir
íþróttir
• Fyrirliðar sex af tiu félögum sem leika i 1. deiidinni í sumar. Talið frá vinstri: Sigurður Lárusson, Akranesi, Gunnar
Oddsson, Keflavík, Guðmundur Hilmarsson, FH, Þorgrímur Þráinsson, Val, Guðjón Guðmundsson, Viði, og Ágúst Már
Jónsson, KR. DV-mynd Brynjar Gauti
Allir eru bjartsýnir
- fyrir komandi íslandsmót í knattspymu
1. deild íslandsmótsins í knatt-
spymu, SL mótið, hefst fimmtudaginn
21. maí með heilli umferð. Þá mætast
eftirfarandi lið:
Víðir - Valur...............kl. 20.00
KA - KR......
FH - ÍA.....
Fram - Þór...
Völsungur - ÍBK
Á sameiginlegum
..kl. 20.00
..kl. 20.00
..kl. 20.00
..kl. 20.00
blaðamannafundi
forráðamanna 1. deildar liðanna vom
hlutaðeigendur almennt bjartsýnir á
að keppni íslandsmótsins yrði spenn-
andi og skemmtileg.
„Mótið verður án efa spennandi og
skemmtilegt," sagði Ellert B. Schram,
formaður KSI, „og þótt eitt lið standi
uppi sem sigurvegari er það vitanlega
knattspyman sjálf sem sigrar í raun.“
Leikið á möl á Húsavík
Völsungar fá ÍBK í heimsókn í fyrsta
leik og er nærri víst að leikið verður
á möl. Grasvöllur þeirra Völsunga er
þó að koma til. „Mér líst persónulega
vel á íslandsmótið en vil þó engu spá
um úrslit. Það er hlutur sem verður
að koma í ljós,“ sagði Bjöm Olgeirs-
son, leikmaður með Völsungi.
„Ég vona að við verðum á meðal
fimm cfstu þegar upp verður staðið,“
sagði Keeling, þjálfari Keflvíkinga.
Að öðm leyti vildi hann ekki tjá sig
um framgang sinna manna á íslands-
mótinu. Keflvíkingar leggja þessa
dagana mestan þunga á veg liðsins á
komandi misserum en horfa ekki til
eins árs í senn.
Stefnum uppá við
„Mótið leggst vel í okkur FH-inga.
Við höfum nú nýjan þjálfara sem við
væntum mikils af. Við höfúm á und-
anfomum íslandsmótum verið í neðri
þrepum deildarinnar en ætlum nú að
leggja á brattann," sagði Jón R. Hall-
dórsson, formaður FH-inga. Þeir
Hafhfirðingar mæta Skagamönnum í
Kaplakrikanum í fyrstu viðureign.
„Mótið leggst vel í okkur Skaga-
menn,“ sagði hins vegar Sigurður
Lárusson, fyrirliði Akumesinga. „Við
höfúm grimman þjálfara, eins og
margir þekkja til af leikvellinum, og
hann ætlast til sigurs í hverjum leik.
Við mætum FH-ingum til að vinna
eins og endranær."
„Leikum allavega á KA svæð-
inu“
KA mætir KR fyrir norðan í fyrsta
leik og er ekki enn ljóst á hvaða yfir-
borði verður barist, gras eða möl. „Við
vitum ekki enn sem komið er hvort
grasið verði fyrir valinu, en eitt er
víst að leikið verður á KA-svæðinu.
KR-ingum hefur gengið miður hér á
Akureyri og við ætlum að hafa þann
hátt á áfram,“ sagði Stefán Gunn-
laugsson, formaður knattspymudeild-
ar KA.
„Ég játa að velgengnin hefur ekki
fylgt okkur norður á síðustu árum en
þó varð breyting á í fvrra er við lögð-
um Þór að vellisagði hins vegar
Ágúst Már Jónsson, fyrirliði KR. „Við
beittum nýni leikaðferð í fyrra og
höfúm sama hátt á nú. Við ætlum
okkur að taka Þór og KA á Akureyri
„Gerum betur en í fyrra“
„Við förum í Garðinn fullir bjart-
sýni. Við Valsmenn hlökkum til að
takast á við þetta tímabil. Við erum
með mjög sterkan hóp og góðan þjálf-
ara. Við ætlum að gera betur en i
fyrra,“ sagði Þorgrímur Þráinsson,
fyrirliði Valsmanna. Þeir Hlíðarenda-
piltar hafa leikið tvo leiki í Garðinum
þar sem þeir hafa sigrað og gert jafn-
tefli.
„Við erum staðráðnir í að vinna Val,“
sagði Einvarður Albertsson, formaður
knattspyrnudeildar Víðis. Víðismenn
hafa nú ráðið til sín nýjan þjálfara,
Hilmar Hafsteinsson. Hann er þó öllu
kunnugur í Garðinum, kom nefnilega
liðinu úr þriðju deild í aðra á sínum
tíma.
„Ætlum að breyta til“
„Við höfúm tapað síðustu þremur
leikjum fyrir Fram í Reykjavík og
ætlum að breyta til núna,“ sagði Nói
Bjömsson, fyrirliði Þórs frá Akureyri.
Þórsarar hafa fengið Jóhannes Atla-
son til starfa á nýjan leik, en hann
stýrði liðinu 1985. Þá varð félagið í
3. sæti og hefur það aldrei stigið hærra
í stigatöflunni.
„Framliðið hefur misst marga skæða
kappa en það kemur ávallt maður í
manns stað,“ sagði fyrirliði Framliðs-
ins, Pétur Ormslev, um viðureignina
á fimmtudag. „Við stefnum að því að
gera fleiri mörk en andstæðingarnir í
sumar. Leikir Fram og Þórs hafa verið
tvísýnir á síðustu árum en við leikum
ávallt til sigurs, við breytmn því ekk-
ert.“ -JÖG/SMJ
Kominn heim
til að deyja“
Hannes Leifsson genginn í Fram og endar ferilinn þar. Pálmi í Fram
• Hannes Leifsson fékk ekki dónategar móttökur
hjá Sigurði Tómassyni, formanni handknattleiks-
deildar Fram, seint i gærkvöldi er Ijóst var að
Hannes væri genginn i Fram. Formaðurinn sterki
hóf Hannes á loft í Frampeysunni og fögnuður
jjeirra beggja leyndi sér ekki.
„Þetta var í sjálfú sér ekki
erfið ákvörðun. Gunnar
Einarsson ætlar sér að
byggja upp nýtt lið hjá
Stjörnunni og ég held að ég
haíi ekki passað inn í þetta
hjá honum. Aftur á móti eru
margii' leikmanna Fram á
svipuðu reki og ég og maður
hlakkai- svo sannarlega til
að leika í Frambúningnum
í framtíðinni eða þar tU ferli
minum lýkur. Þess vegna
má segja að ég sé kominn
heim til að deyja,“ sagði
Hannes Leifsson handknatt-
leiksmaður í samtali við DV
í gærkvöldi en hann hefur
ákveðið að hætta að leika
með Stjömunni og hefúr til-
kynnt félagaskipti yfir í
FVam þar sem hann hefur
reyndar lengstum leikið.
„Ég held að ég hafi aldrei
á mínum ferli verið í betra
formi en einmitt nú. Síðasta
tímabil var það besta sem
ég hef átt að mínu mati og
vonandi verður framhald á
þessu hjá mér. Það verður
ákaflega gaman að leika
með Atla Hilmarssyni og
strákunum í Fram í framtíð-
inni og við ætlum okkur að
gera stóra hluti næsta vet-
ur,“ sagði Hannes sem er
þrítugur að aldri. Hann lék
ákaflega vel með Stjömunni
í vetur og vai’ fyrirliði hðsins
sem varð sem kunnugt er
bikarmeistari á dögunum
eftir að hafa sigrað Fram í
úrslitaleik.
Pálmi Jónsson í Fram
Homamaðurinn Pálmi Jóns-
son hefur ákveðið að leika með
Fram næsta vetur samkvæmt
heimildum DV. Pálmi fékk lítið
sem ekkert að spreyta sig á hjá
Val á síðasta keppnistímabili en
hann mun væntanlega styrkja
Framliðið enda er hann afar
lunkinn homamaður.
-SK
PálltilHK
- og Steinar líklega líka
ekki útiloka þann möguleika. Þó er
stefnan hjá mér að byggja á þeim
kjarna sem fyrir er í herbúðum fé-
lagsins. Það em mjög efnilegir
strákar í liðinu. 2. flokkur félagsins
náði að komast í úrslit í bikarkeppni
þannig að efnviður virðist nógur.
Eldri leikmenn em líka tilbúnir að
koma aftur," sagði Páll Björgvins-
„Það er mikill hugur og vilji hjá
strákunum að gera stóra hluti. Þeir
hlutir gerast ekki hjá þjálfamnum
einum, leikmennimir verða að fylgja
því eftir einnig," sagði Páll Björg-
vinsson í samtali við DV í gærkvöldi
en hann hefúr ákveðið að þjálfa HK
úr Kópavogi á næsta keppnistíma-
bili.
Eins og kunnugt er þjálfaði Páll
og lék með Stjömunni á nýafstöðnu
keppnistímabili með góðum árangri.
Hann stýrði liðinu meðal annars til
sigurs í bikarkeppni HSI.
„Mér gekk vel á síðasta keppnis-
tímabili og vonandi verður framhald
á því. Það er aldrei að vita hvort ég
spila með HK-liðinu, en ég vil alls
Er það rétt sem heyrst hefur að
Steinar Birgisson sé á leiðinni í HK?
„Ég get ekki neitað því að það em
talsverðar líkur á að Steinar komi í
HK. Þau mál em þó ekki komin í
ömgga höfn en vonandi verða mála-
lok þannig að hann komi,“ sagði
Páll Björgvinsson að lokum. -JKS
• Páll Björgvinsson mun þjálfa 2. deildar liö
HK næsta keppnistímabil og ef til vill leikur
hann einnig með liðinu.
??Hætti í landsliðinu
eftir ólympíuleikana‘
- Einar Þorvarðarson á heimleið. Þarf líklega að gangast undir uppskurð
„Látumverkintala
- er svar lan Ross við öllum spádómum
„Ég vil nú frekar láta verkin tala
heldur en að trúa á svona spádóma.
• lan Ross, þjálfari Vals.
En auðvitað vona ég að þeir hafi rétt
fyrir sér,“ sagði Ian Ross, þjálfari Vals-
manna, þegar hann var spurður út í
spá forráðamanna 1. deildar liðanna
en þar var Valsmönnum spáð sigri.
Ross er nú að hefja sitt fjórða tímabil
hjá Val og á einn íslandsmeistaratitil
að baki með liðinu.
„Við reynum nú að taka hvem leik
fyrir í einu og Islandsmótið er heilar
18. umferðir. Við vorum nálægt titlin-
um í fyrra eftir að hafa byijað heldur
slaklega. Ég er þokkalega bjartsýnn
núna en við höfum fengið góðan liðs-
auka. Við Valsmenn höfum haft
gaman af æfingunum undanfarið og
við hlökkum til tímabilsins," sagði
Ross. Hann taldi að íslensk knatt-
spyma væri í stöðugri framför og hann
kvaðst hafa séð miklar breytingar síð-
an hann kom hér fyrir fiórum árum.
-SMJ
• Erlendu þjálfararnir i 1. deild: Frá vinstri: Peter Keeling, ÍBK, Gordon Lee, KR, lan
Fleming, FH, og lan Ross, Val. DV-mynd Brynjar Gauti
Víði og Vólsungi spáð falli í 2. deild I
Á blaðamannafúndi sem 1. deildar fé-
lögin efndu til í gær, spáðu forráðamenn
félaganna um niðurröðinna í deildinni
sumar. í þessari spá var notuð stigagjöf
og var mest hægt að fá 300 stig. Spá
forráðamanna liðanna lítur þannig út:
• l.Valur.................. 274,5stig
• 2. Fram....................247,5stig
• 3. lA........................238stig
• 4. KR......................211,5 stig
• 5. ÍBK.....................164,5stig
• 6. Þór.....................150,5stig
• 7. KA........................119stig
• 8. FH.........................87 stig
• 9. Víðir.................. 79,5stig
• 10. Völsungur................78stig
-JKS
„Það bendir allt til þess að ég komi
aftur heim og leiki á íslandi næsta
vetur. Ég get ekki leynt því að ég er
mjög óánægður hér og þá alveg sérs-
taklega með þjálfarann sem að mínu
mati er alveg glataður og alger kjáni,“
sagði Einar Þorvarðarson landsliðs-
markvörður í samtali við DV í
gærkvöldi.
„Ég kem heim í bvrjun júní og mun
að öllum líkindum taka þátt í undir-
búningi landsliðsins fyrir stórmótið í
Júgóslavíu í lok júní. Annars getur
svo farið að ég verði að gangast undir
uppskurð. Ég hef verið mjög slæmur
í öklanum frá því ég meiddist í upphit-
un fyrir Jeikinn gegn Spánverjum
heima á íslandi fyrir rúmu ári. Ég
verð greinilega að gera eitthvað i
þessu. Ég ætla að sjá hvað læknar
segja þegar ég kem beim en vonandi
tekst mér að þrauka fram yfir mótið
í Júgóslavíu.“
„Hef ekki enn ákveðið í hvaða
félag ég fer“
- Þú segir að það sé svo að segja
öruggt að þú komir alkominn heim í
sumar. I hvaða félag ætlar þú?
„Ég get ekki svarað því á þessari
stundu því ég hef einfaldlega ekki gert
upp hug minn. Það hafa nokkur félög
haft samband við mig en ég hef ekki
ákveðið mig.“
- Heyrst hefur að Valur, Fram og
HK komi einna helst til greina. Hvað
vilt þú segja um það?
„Það hafa nokkur félög talað við
mig. Það er hins vegar öruggt að ég
leik ekki í 2. deild og það er greinilega
bjart framundan hjá Frarn."
„Hætti í landsliðinu eftir OL“
- Er það rétt að þú sért að hætta
að leika með landsliðinu?
„Ég er búinn að ákveða að æfa virki-
lega vel næsta vetur og komast í mjög
góða æfingu og hlakka til að æfa und-
ir stjóm góðs þjálfai'a. Ég mun
auðvitað gera mitt albesta í undirbún-
ingi landsliðsins fyrir ólvmpíuleikana
en svo hætti ég að leika með landslið-
inu. Þá mun ég snúa mér að öðrum
hlutum og ef til vill þjálfun." sagði
Einar Þorvarðarson. -SK
Islending-
arnir unnu
allir í USA
Þrír íslenskir fijálsíþrótta-
menn kepptu á móti í Alabama
í Bandan'kjunum um síðustu
helgi og náðu þeir allir góðum
árangii.
• Eggert Bogason keppti í
kringlukasti og sigraði. kast-
aði 59.38 metra og virðist vera
í hörkuformi urn þessar mund-
ir.
• Ragnheiður Ólafsdóttir
keppti í tveimur greinum.
Fyi-st keppti hún í 1500 metra
hlaupi og hafhaði í 2. sæti á
4:15.95 mín. sem er aðeins einni
sekúndu frá Islandsmetinu.
Klukkustund síðar hljóp
Ragnheiðm- 3000 metra á
9:15.51 mín. og sigraði.
-SK
Andrés tekur
við Haukunum
• Einar Þorvarðarson sést hér skömmu eftir að hann meiddi sig í upphitun
fyrir leik íslands og Spánar um jólin 1985. Nú þarf Einar liklega að gangast
undir uppskurð vegna meiðslanna. DV-mynd Brynjar Gauti
[~3 dýrmæt stig tilBreiðabliks!
i
i
„Ég er mjög ánægður með þrjú stig
úr þessari viðvu-eign. Við eru óvanir nð
Ispila á þessum velli en ásigkomulag
haas var ekki gott. hann var allt of þurr.
IEn vena gat þetta verið. Þróttarar vmn
mjög ákveðnir í seinni hiilfleik en við
Isluppum fyrir horn. Keppnin í 2. deikl
kemur til með að verða erfiðari en
Inokkru sinni fyrr, 6 7 lið koma til með
að berjast um fj-rstu deildar sæti að
ári," sagði Ólafiu Bjömsson, fyrirliði
IBreiðabliks, í samtali við I)V eftir að
Breiðablik hafði sigrað Þrótt, 0-1. í 2.
j^teild fslandsmótsins í knattspymu á
gervigrasvellinum í Laugardal í gær-
kvöldi.
Leikur liðanna í gærkvöldi bnuð ekki
upp á mikla knattspymu en þó vom það
Blikar sem héldu knettinum öUu meira.
A 13. minútu leiksins varð misskilningur
á miUi eins vamannanna Þróttar og
markvarðarins sem varð Jk>ss valdandi
að Ingvaldtu Gústafsson. bakvörður
Breiðabliks, átti ekki í miklum vandiæð-
imi með að skora af stuttu færi.
í seinni hálfleik sóttu Þróttarar án
afláts og hefðu með smáheppni átt að
skora. -JKS
„Það er frágengið að Andrés Krist-
jánsson taki að sér þjálfún Hauka-
liðsins og leiki jafnframt með liðinu á
næsta keppnistímabili," sagði Þorgeir
Haraldsson. talsmaður í handknatt-
leiksdeild Hauka. í samtali við DV í
gærkvöldi. Andrés Kristjánsson hefur
undanfarin ár dvalist í Svíþjóð þar sem
hann hefúr leikið handknattleik, með-
al annars með úrvalsdeilarliðinu Guif.
Andrés er ekki ókunnugur í herbúðum
Hauka þvi hann lék lengi með liðinu
áður en hann hélt utan til Svíþjóðar.
„Ráðning Andrésar hefur verið lengi
í vinnslu hjá okkur. Drög að samningi
voru send utan til hans og núna nýver-
ið komu þeir til baka, undirskrifaðir.
Við erum mjög ánægðir með að Andr-
és skuli koma heim til að taka við
Hauka-liðinu. Okkar markmið er að
byggja upp gott lið og komast sem
fyrst upp í 1. deild á nýjan leik og er
Andrési falið að taka það verkefrii að
sér,“ hélt Þorgeir áfram.
„Þess má og geta að gamlir Hauka-
menn eru á leiðinni til félagsins að
nýju en það eru þeir Ámi Hermanns-
son og Lárus Karl Ingason sem hafa
dvalist erlendis um nokkurt skeið. Það
em jafrivel fleiri á leiðinni til okkar
en ég vil að svo stöddu ekki tjá mig
um það,“ sagði Þorgeir Haraldsson að
lokum. -JKS
• Andrés Kristjánsson i leik með
Haukum fyrir nokkrum árum.