Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. Fréttir Þorsteinn lagði ekki í viðræður með Alþýðuflokki og Framsóknarflokki: Ekki nægjanlegur áhugi hjá Framsóknarflokki „Mat mitt var það, eftir að hafa kynnt mér viðhorf Framsóknar- llokksin.5, að þar væri ekki nægjan- legur áhugi á að taka þátt í viðræðum um slíka stjóm til þess að það gæfi okkur ástæðu lil þess að halda áframsagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfetæðisfiokks- ins, þegar hann skýrði frá ástæðum þess að hann ákvað að skila umboði sínu til stjórnarmyndunar frekar en að reyna myndun stjómar Sjálfetæð- isflokks, Framsóknarflokks og Ekki nægur vilji hjá Framsókn sagði Þorsteinn á fundi með blaðamönnum í gaer. Með Þorsteini á myndinni er Óiafur G. Einarsson, formaður þing- fiokks Sjálfstæðisflokksins. DV-mynd Brynjar Alþýðuflokks. „Eg tel að það þurfi að vera fyrir hendi verulegur vilji allra þessara aðila áður en alvörutilraun til þess að reyna að mynda slíka stjóm hefst Og eftir viðræður við formann Fram- sóknarflokk8Íns í gær var það mitt mat að þessi vilji væri ekki nægjan- legur.“ Þorsteinn sagði að sér sýndist að það sem raunverulega væri uppi á teningunum væri að Framsóknar- flokkurinn hefði ekki áhuga á að fara í stjóm með Alþýðuflokki. „Ég hefði séð þennan kost helstan og líklegastan að mynda þriggja flokka stjóm Sjálfstæðisfiokks, Al- þýðuflokks og Frarasóknarflokks. En, eins og ég er búinn að rekja, sé ég ekki ástæðu til að reyna það á þessu stigi málsins. Kannski kann það að breytast en þetta er sá eini kostur um myndun þríggja flokka stjórnar sem ég sé að sé fyrir hendi,“ sagði Þorsteinn. -KMU Oljós staða í stjómmálunum Óljós staða var í stjórnmálunum hérlendis í gærkvöldi. Forseti Islands, Vigdís Finnbogadóttir, ræður fram- haldinu. Tvennt var helst talið koma til greina; að forsetinn fæli formanni Al- þýðuflokksins, Jóni Baldvini Hanni balssyni, næst umboð til stjórnar- myndunar; eða að forsetinn léti nokkra daga líða til að gefa stjórn- málaforingjum tækifæri á að fá fram skýrari línur. Tveir stjómarmyndunarkostir vom taldir líklegri en aðrir til að verða reyndir næst: Alþýðuflokkur, Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur. Þorsteinn Pálsson lýsti þessu mynstri í gær sem því skásta í stöðunni og þingflokkur Framsóknarflokks setti þennan kost efstan á blað ásamt öðrum. Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar- flokkur, Borgaraflokkur. Þetta mynstur líst Steingrími Hermannssyni og Albert Guðmundssyni best á. Sjálf- stæðismenn gætu viljað kanna það en þá einungis undir forystu Þorsteins Pálssonar. -KMU Móðgaðir út í Jón Baldvin og Þorstein Framsóknarmenn em móðgaðir út í Jón Baldvin Hannibalsson og Þorstein Pálsson. Það mátti greina á ummælum Steingríms Hermanns- sonar, formanns Framsóknarflokks- ins, eftir þingflokksfund síðdegis í gær: „Hefur ekki Jón Baldvin sagt aftur og aftur að það væri ekkert við okk- ur að gera heldur en að ýta okkur úr stjóm? Hann hefur farið þannig orðum um Framsóknarflokkinn að framsóknarmenn almennt em ekk- ert ginnkeyptir fyrir samstarfi,“ sagði Steingrimur. „Það náttúrlega vekur líka undrun hjá ýmsum framsóknarmönnum eftir fjögurra ára gott samstarf og eftir þann stuðning sem þjóðin hefur sýnt þessu stjórnarmynstri að okkar sam- starfsflokkur skuli velja alla aðra kosti fyrr. Svo það er ekkert undar- legt þó að við teljum okkur ekki skylt að hlaupa til.“ Er Steingrímur var spurður hvaða kost hann teldi nú vænlegastan svaraði hann: „Við vitum um stuðning Borgara- flokksins við stjóm sem ég leiði. Þorsteinn reeddi við Borgaraflokl;- inn á sínum tíma. Það mætti þá kannski varpa fram þeirri spumingu fyrst: Er útilokað að mynda slíka ríkisstjóm; Framsóknarflokks, Sjálf- stæðisflokks og Borgaraflokks?“ Steingrímur sagði að lögbinding lægstu launa væri ófær leið. Ef það væri ófrávíkjanlegt skilyrði Kvennalista yrði hann því miður að svara játandi spumingu um að sam- starf við Kvennalista væri útilokað. -KMU Voruskiptin við útlónd: Hagstæð í apríl Vöruskiptajöfnuður landsmanna var hagstæður í aprílmánuði um 2.167 milljónir en í sama mánuði í fyrra var vöruskiptajöfnuðurinn hagstæður um 1.388 milljónir á sama gengi. Þetta kemur fram í frétt frá Hagstofu Islands. I apríl vom fluttar út vörur fyrir 5.764 milljónir króna en inn vom fluttar vömr að andvirði 3.597 millj- ónir. Fyrstu fjóra mánuði ársins nam útflutningurinn 15.514 milljónum en á sama tíma var andvirði innflutn- ingsins 14.600 milljónir fob. Á þessum tíma var því vöruskiptajöfn- uðurinn hagstæður um 914 milljónir en á sama tímabili í fyrra var hann hagstæður um 1.833 milljónir á sama gengi. -ój Verðbólgan yrði 91% Ef lágmarkslaun yrðu hækkuð úr 27.500 krónum upp í 33-36 þúsund krónur og sú hækkun gengi upp allan launastigann kæmi það verðbólgunni upp í 91% í árslok 1987. Hækkun lán- skjaravísitölu yrði 94%. Þessa niðurstöðu er að finna í út- reikningum sem Þjóðhagsstofnun gerði fyrir Þorstein Pálsson vegna kröfu Kvennalistans um hækkun lægstu launa. Þessi þróun hefði jafnframt haft í fór með sér 3-5 milljarða króna útgjalda- auka ríkissjóðs og 25-30 milljarða króna viðbótarlaunakostnað hins op- inbera og atvinnuvega miðað við heilt ár. „Það væri fróðlegt að láta reikna út hvað það hefði tekið verðbólguna margar vikur að éta upp þessar sjö þúsund krónur,“ sagði einn stjóm- málaforingi í gær. -KMU Leyniplagg landbúnaðarráðherra: Er kvótakeifi á grænmetisinnflutning í augsýn? „Það er verið að reyna að herða tökin á nýjan leik á sölumálum grænmetis og þar er landbúnaðar- ráðherra landsins í fararbroddi. Ráðuneytið tekur þarna eindregna afstöðu með framleiðendum og neyt- endasjónarmið eru látin lönd og leið. Það er verið að endurreisa einokun- arfyrirkomulagið sem ríkti á meðan Grænmetisverslun landbúnaðarins var og hét, nema nú heitir það Sölu- félag garðyrkjumanna." Eitthvað á þessa leið mælti Jó- hannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, á blaða- mannafundi í gær. I sama streng tók Jónas Bjarnason, stjórnarmaður samtakanna. Nýlega hafa Neytendasamtökin komist yfir svokallaðar „starfsregl- ur“ sem settar voru í landbúnaðar- ráðuneytinu í febrúar. í því plaggi er innflutningsnefnd falið að stjórna innflutningi á grænmeti til landsins. Þar segir m.a. að nefnd undir forystu landbúnaðarráðherra eigi að skil- greina og ákveða hver eftirspurn er eftir grænmeti á íslandi. Með þessum reglum á að tryggja að íslensk fram- leiðsla hafi forgang á markaðinum Þeir voru ósparir á stóru orðin, forráðamenn neytendamálanna, Jóhannes Gunnarsson og Jónas Bjarnason, enda full ástæða til að þeirra dómi; sjón- armið neytenda að.engu höfð. DV-mynd S og það með þeim hætti sem umrædd nefnd telur hæfilegt. Nefndinni er skylt að taka tillit til þess ef ein tegund innflutts græn- metis hamlar sölu á annarri tegund sem ræktuð er á Islandi. Þetta þýðir í raun að hægt er að banna innflutn- ing á kínakáli og íssalati ef nefndin telur að sala á því hafi truflandi áhrif á sölu hvítkáls sem ræktað er á íslandi. Þá mætti alveg éins gera því skóna að bannaður yrði innflutningur á hrísgrjónum því margir kjósa að nota hrísgrjón í staðinn fyrir kartöfl- ur. Með reglunum á að byggja upp kvótakerfi fyrir innflutning á græn- meti og garðávöxtum. Kvótinn er bundinn við þá sem dreifa íslenskri framleiðslu. Með því að neita inn- flytjendum um viðskipti með inn- lenda framleiðslu, sem þegar er orðin raunin, er unnt að taka innflutning af rótgrónum innflytjendum og færa hann allan yfir á hendur samtaka innlendra framleiðenda. Sjönarmið Neytendasamtakanna eru að með þessu plaggi landbúnað- arráðuneytisins sé öllum helstu neytendasjónarmiðum stillt á hvolf. Samtök framleiðenda muni reyna að hámarka tekjur sínar miðað við hið takmarkaða framboð sem skapast af íslenskri framleiðslu. Neytendasam- tökunum er ekki kunnugt um að slíkt fyrirkomulag tíðkist neins stað- ar í heiminum annars staðar. Þeir Jóhannes og Jónas sögðu að reynt hefði verið að ná sambandi við Steingrím Hermannsson forsætis- ráðherra vegna þessa máls en fundur væri fyrirhugaður eftir helgina. Neytendasamtökin skora á ríkis- stjórnina að nema þessar umræddu „starfsreglur“ úr gildi þegar í stað. Þau telja málaleitan við landbúnað- arráðherra tilgangslausa f Ijósi reynslunnar. Neytendasamtökin munu grípa til allra tiltækra ráða til þess að brjóta þessar reglur á bak aftur ef ekki verður orðið við áskor- un þessari. Það er von samtakanna að ríkis- stjórnin sjái að með umræddri aðför að hagsmunum neytenda er stofnað til styrjaldar sem getur skaðað hags- muni íslenskra neytenda og fram- leiðenda. -A.BJ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.