Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. 29 HinMðin • Guólaugur Tryggvi Karlsson segist stefna að því að fara í megrun á árinu. ...og spranga um nærbuxunum sóley)iinum“ - segir Guðlaugur Tiyggvi Karlsson hagfræðingur Guðlaugur Tryggvi Karlsson, hagfræðingur; politíkus, hestamað- ur, blaðamaður og ég veit ekki hvað fékkst til að sýna lesendum DVá sér hina hliðina að þessu sinni en Guð- laugur er hress maður og skemmti- legur og hefur gjaman frá mörgu skemmtilegu að segja. Guðlaugur Tryggvi er mikill hestamaður og varla líður sá dagur að hann viðri ekkihesta sína ogríði útí Víðidaln- um og þá gjarnan með einum sona sinna, Karli sem er þekktur körfu- knattleiksmaður í ÍR. Svör Guðlaugs Tryggva fara hér á eftir: Fullt nafn: Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Aldur: 43 ára. Fæðingarstaður: Reykjavík. Maki: Vigdís Bjamadóttir. Böm: Valdimar Karl, 25 ára, Karl Höskuldur, 20 ára, Bjarni Karl, 13 ára, og Guðný Marta sem er 3 ára. Bifreið: BMW árgerð 1984. Starf: Ég er menntaður hagfræðing- ur og starfa sem fulltrúi á aðalskrif- stofu Háskóla íslands og einnig við blaðamennsku. Laun: Æði misjöfh. Helsti veikleiki: Smámunasamur. Helsti kostur: Samviskusamur. Hefur þú einhvem tímann unnið í happdrætti eða þvílíku? Nei, aldrei. Uppáhaldsmatur: Utigrillaður dilk- ur. Uppáhaldsdrykkur: Kók og sóda- vatn með smáappelsínudjús út í. U ppáhaldsveitingastaður: Þórskaffi. Uppáhaldstegund tónlistar: Ópem- tónlist. Uppáhaldshljómsveit: Sinfóníu- hljómssveit íslands. Uppáhaldssöngvari: Pavarotti og Tito Gobbi. Umsjón: Stefán Kristjánsson Uppáhaldsdagblað: Öll dagblöðin. Ég get hreinlega ekki gert upp á milli þeirra. Uppáhaldstímai-it: Hesturinn okkar, Eiðfaxi og Sportveiðiblaðið. Uppáhaldsíþróttamaður: Jón Páll Sigmarsson. Uppáhaldsstjómmálamaður: Jón Baldvin Hannibalsson. Uppáhaldsleikari: Bessi Bjamason og Gunnar Eyjólfsson. Uppáhaldsrithöfimdur: Shakespe- are. Besta bók sem þú hefur lesið: Egils saga og Njála. Þetta eru hvort tveggja bækur sem ég hef margoft lesið og fæ aldrei leið á að lesa. Hvort er í meira uppáhaldi hjá þér sjóinvarpið eða Stöð 2? Get ekki gert upp á milli þessara stöðva því báðar gera þær mjög góða hluti. Ég er alger fréttafrík og hlusta á alla þá fréttatíma sem í boði em á báðum stöðvunum. Hver útvarpsrásanna fmnst þér best: Ég verð að segja að ég er voðalega mikið á Bylgjunni en sleppi aldrei fréttunum klukkan sjö á rás eitt. Uppáhaldssjónvarpsmaðui-: Ómar Ragnarsson og Bjarni Felixson. Hvar kynntist þú eiginkonunni? í Amarhvoli. Helstu áhugamál: Hestar, íþróttir og stjómmál. Fallegasta kona sem þú hefur séð: Guðný Marta Guðlaugsdóttir. Fallegasta hross sem þú hefur séð: Gamla merin mín, hún Snörp, sem nú er fallin. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Elísabetu Englandsdrottn- ingu. Fallegasti staður á íslandi: Land- sveitin. Hvað ætlai' þú að gera i sumarfrí- inu? Ég vonast til að geta komist í almennilegan reiðtúr og þá meina . ég einn með öllu. Þá vil ég ríða í 5-6 tíma á dag og hafa fastan náttstað ásamt kryddlegnum lambakótilett- um og útigrilli. Svo vil ég geta sprangað um í nærbuxunum í sóleyj- unum og andað að mér fersku ijalla- lofti. Eitthvað sérstakt sem þú stefnir að á þessu ári: Fara í megrun. -SK Lukas D. Karlsson, heildverslun ■hfubcríuémöbei Garðhúsgögn til sýnis og sölu að Ásbúð 96, Garðabæ. simi 43702 og 83485. *********************# i BÚÐARKOT X SIMI 22340 * PAULINA 'wmœ ? * Jarnrúmin vinsælu komin aftur, * nýjar gerðir. Opið alla daga kl. 9.00-21.00. Búðarkot, Hringbraut 119 (við JL-húsið) * * * Nauðungaruppboð annað og siðara á eigninni Fjóluhvammi 3, Hafnarfirði, þingl. eign Þorsteins Sveinssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnar- firði, mánudaginn 1. júní 1987 kl. 13.30. Bæjarfógetinn i Hafnðrfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst var i 149., 154. og 157. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1985 á eigninni Breiðvangi 20, 4. hæð B, Hafnarfirði, þingl. eign Gunnlaugs Sigfús- sonar og Jóhönnu Möller, fer fram eftir kröfu Búnaðarbanka Islands, Veðdeildar Landsbanka íslands, Útvegsbanka íslands, Ólafs Axelssonar hrl„ Steingrims Þormóðssonar hdl. og Kópavogskaupstaðar á skrifstofu embættis- ins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudaginn 1. júní 1987 kl. 14.30. Bæjarfógetinn i Hafnarfirði. Nauðungaruppboð á eigninni Skólabraut 19, n.h., Seltjarnarnesi, þingl. eign Lúðvíks Jónsson- ar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, mánudag- inn 1. júni 1987 kl. 16.15._Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð þriðja og siðasta á eigninni Lindarbraut 15, Seltjarnarnesi, þingl eign Guð- rúnar Haraldsdóttur o.fl. en talin eign Smiðs hf, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 3. júni 1987 kl. 17.30. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð annað og síðara á eigninni Sólbraut 5, Seltjarnarnesi, þingl. eign Sverris Þóroddssonar, fer fram á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnar- firði, miðvikudaginn 3. júni 1987 kl. 17.00. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Brekkubyggð 35, 2. hæð, Garðakaupstað, þingl. eign Sigriðar Guðjónsdóttur, fer fram á eigninni sjálfri mánudaginn 1. júní 1987 kl. 17.30. Bæjarfógetinn i Garðakaupstað. Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Laufási 3, efri hæð, Garðakaupstað, þingl. eign Agnars Guðmundssonar, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn 2. júni 1987 kl. 13.15. ______________________Bæjarfógetinn i Garðakaupstað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.