Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. Skák DV Hannes varð heimsmeistari eftir spennandi lokaskák Hannes Hlifar brosir breitt eftir vel heppnaða ferð til Austurríkis. Guðmundur Sigurjónsson, stór- meistari og aðstoðarmaður Hannes- ar Hlífars í Innsbruck, átti erfiðar stundir á áhorfendabekknum fyrir réttri viku er Hannes stóð í ströngu í lokaskákinni. Mótherji Hannesar lét heldur ófnðlega og er heims- meistaratitill er í húfi er óskemmti- legt að hafa ótrygga kóngsstöðu skjólstæðingsins fyrir augunum. En allt fór vel að lokum. Hannes náði að snúa á’ann með því að etja báðum hrókum sínum beint út í dauðann og eftir 38 leiki var sigurinn í höfn. Englendingurinn Adams, sem kom í humátt á eftir Hannesi, vann sína skák í síðustu umferðinni og fékk 9 vinninga. Hannes fékk 9!ú v. með sigri í lokaskákinni. Ef hann hefði aðeins gert jafntefli þá hefðu þeir félagar orðið jafnir og óvíst hvor hefði hreppt titilinn. Þá hefðu stig verið látin ráða. Hannes varð því að tefla til vinnings en „hafa þó jafh- teflið innan seilingar," eins og Guðmundur orðaði það, því að betri er einn fúgl í hendi en tveir í skógi. Þessi hemaðaráætlun þeirra fé- laga virtist þó ekki ætla að takast þvf að Hannes rataði í ógöngur snemma tafls eftir að hafa víxlað leikjum í byrjuninni. Þeir höfðu undirbúið langa leikjaröð gegn svo- nefhdu Lasker-Sveshnikov afbrigði af Sikileyjarvörn, sem var eftirlætis- byijun mótheijans, Frakkans Degraeve. Guðmundur er öllum hnútum kunnugur í þessu afbrigði eftir að hann var aðstoðarmaður papímsfræðingsins Húbners í ein- vígi við Adorjan fyrir sjö árum. En í 17. leik lék Hannes ekki leik- ina í réttri röð og skyndilega var hann staddur á ókunnum slóðum. Þar fetaði hann óvart í fótspor Bents Larsens sem lýsti þvi yfir í tímarits- grein nýlega að hann hefði fundið nýja aðferð við að læra skákbyijan- ir: Tefla byrjunina fyrst og fletta svo upp í bókunum! Að sögn Larsens fær þá ímyndunaraflið lausan tauminn, auk þess sem byijanabækur eru þungar til burðar. Larsen segir að það sé miklu þægilegra að skoða bækumar í góðu tómi heima að mótinu loknu. Nýjung Hannesar gaf andstæð- ingnum nokkuð lausar hendur kóngsmegin en menn Hannesar stóðu þó vel til varnar og taflið var óljóst. Eftir sviptingar og vinnings- tilraunir á báða bóga, jafhaðist taflið, þar til Frakkinn gætti sín ekki sem skyldi. Hannes eygði óvæntan möguleika og vann peð. Frakkinn átti samt góða jafhteflis- Endastöð' flyst að Lækjar- torgi. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA möguleika en í 35. leik lék hann skákinni endanlega af sér. Gafst upp þrem leikjum síðar og óskaði Hann- esi jafhframt til hamingju með heimsmeistaratitilinn. Hvítt: Hannes Hlífar Stefánsson Svart: de Graeve (Frakklandi) Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4.Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Rd5 Be7 10. BxfB BxfB 11. c3 0-0 12. Rc2 Bg5 Skák Jón L. Árnason Nú væri réttast að vikja sögunni tíu ár aftur í tímann er sá er þetta ritar var að berjast um heimsmeist- aratitilinn. I næstsíðustu umferð átti ég í höggi við franskan andstæðing, rétt eins og Hannes nú, og hann beitti þessu sama afbrigði. Mér tókst að vinna og svo gott sem tryggja mér titilinn - þurfti aðeins jafntefli í síðustu umferðinni. Var einhver að tala um að sagan endurtæki sig? Andstæðingur minn, Santo Ro- man, lék 12. - Hb8, til þess að spoma við framrás hvíta a-peðsins. Til gam- ans kemur hér ffamhald skákarinn- ar: 13. Be2 Bg5 14. 0-0 Be6 15. Dd3 f5 16. Bf3 Dc8 17. Hadl f4? 18. De2 Bd8 19. h3 Hb7 20. Hd3 g5 21. Bg4! Bxg4 22. Dxg4 Dxg4 23. hxg4 Rb8 24. b4 Kf7 25. Hfdl Kg6 26. c4! bxc4 27. Hc3 a5 28. a3 axb4 29. axb4 h5 30. gxh5+ Kxh5 31. Ra3 Bb6 32. Rxc4 Bd4 33. Hh3+ Kg6 34. Rxd6 Ha7 35. Rf5 g4 36. Rde7+ Kg5 37. Hhd3 Hf7 38. Rc8 Hal 39. Hxd4 exd4 40. Hxal og svartur gaf. 13. a4 bxa4 14. Hxa4 a5 15. Bc4 Hb8 16. b3 Kh8 17. Rce3?! í stað 17. 0-0 f5 18. exf5 Bxf5 19. Rce3, eins og þeir höfðu undirbúið fyrir skákina. Hannes víxlar leikjum alveg óvart en um leið tekur hann andstæðinginn náttúrlega „út úr teóríunni". 17. - g618.0-0 f519. exf5 gxf5 20. Hel f4 Þessi og næsti leikur liggja beint við en 20. - e4 kemur einnig til greina til að fá góðan reit á e5 fyrir riddarann og þá kæmi f5—f4 með meiri þrótti. 21. Rfl f3 22. Rg3 Kóngsstaða hvíts riðlast en á móti kemur að menn hans standa betur og hann hefur góð tök á miðborð- inu. Hættuleg sókn af svarts hálfu er enn mjög langt undan. Það er samt skiljanlegt að Guðmundi hafi ekki liðið of vel. 22. - Re7 23. Rxe7 Dxe7 24. Hxa5 Peðsfóm svarts má gagnrýna því að nú getur hvítur ávallt reitt sig á gagnfæri eftir a-línunni og hliðar- sókn að opinni svörtu stöðunni. 24. - fxg2 25. Bd5! Hf6 26. Dd3 Bf4 Hótar 27. - Hh6 og 28. - Dh4 með sókn að kónginum. En nú var kannski betra að víxla leikjum. 26. Hh6 fyrst og svara þá 27. Rf5 með 27. - Bxf5 28. Dxf5 Bd2 29. Heal Dh4 eða 27. De4 með 27. - Hh4 (en ekki 27. - Bd2 28. Heal Bxc3 29. Ha8 Bxal 30. Hxb8 Dc7 31. Dg4! og vinn- ur). 27. Dc4 Hindrar 27. - Hh6 vegna 28. Dxf4! Mögulegt var 27. Heal Bf4 28. Ha8 Dh4 29. Bg2 Dxh2 + 30. Kfl og svart- ur er þvingaður til þess að fóma drottningunni með 30. - Dxg2+ 31. Kxg2 Bb7 + 32. Kfl Bxa8. Kannski líkaði Hannesi ekki þetta framhald, enda gætu biskuparnir orðið óþægi- legir í tímahraki. 27. - Bg4 28. Heal Bxg3 29. hxg3 BÍ3 30. Dh4! Bxd5 31. Hxd5 Df7? Afleikur. Betra er 31. - De6 og staðan er í jafnvægi. Sumaráætlun SVR 1987 1. júní - 28. ágúst LEIÐIR 02-12 Ferðatíðni á leiðum 02-12 verður 20 mín. frá kl. 07-19 mánud. - föstud. Tíðni verður óbreytt kvöld og helgar og á öðrum leiðum. Nánari upplýsingar í leiðabók og á viðkomustöðum vagnanna. LEIÐ FRÁ: MÍN. YFIR HEILA KLST. 02 GRANDAGARÐI 13 33 53 02 SKEIÐARVOGI 35 55 15 03 SUÐURSTRÖND ■ 17 37 57 03 HÁALEITISBRAUT 09 29 49 04 ÆGISÍÐU 05 25 45 04 HOLTAVEGI 42 02 22 05 SKELJANESI 03 23 43 05 LANGHOLTSVEGI 28 48 08 06 LÆKJARTORGl 15 35 55 06 ÓSIANDI 36 56 16 07 LÆKJARTORGI 05 25 45 07 ÓSLANDI 19 39 59 08 HLEMMI 13 33 53 08 GRENSÁSI 28 48 08 09 HLEMMI 13 33 53 09 GRENSÁSI 28 48 08 10 HLEMMI 05 25 45 10 ÞINGÁSI 28 48 08 11 HLEMMI 00 20 40 11 SKÓGARSELI 22 40 02 12 HLEMMI 05 25 45 12 ÁLFTAHÓLUM 27 47 07 Aðrar breytingar: LEIÐ Kvöld og helgar verður LEIÐ vögnúnum flýtt frá Öldu- gránda að Lækjartorgi, LEIÐ Er flýtt um 2 mínútur. LEIDIR 08/09 Hætta akstri um Stakkahlíð. Aka á 20 mín. fresti. Vagninn ekur um Borga mýri á leið í Grafarvog árdegis, en síðdégis á leið frá Grafarv'ogi. LEIÐ EID Ekur í öllum ferðum að l np Þingási. ------------------------SVR I Endastöð flyst á Kalkofnsveg.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.