Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. ^ Ný plata Rokktríóið Gildran sendi frá sér sína fyrstu plötu 29. maí og ber hún heitið Huldumenn. Gildran, sem áður hét Pass, er skipuð þremur stofnendum þess- ara hljómsveita en það eru þeir Birgir Haraldsson, söngur og gítar, Þórhallur Árnason, bassi, og Karl Tómasson, tromm- ur, bakraddir og munnharpa. Þeir félagar hafa starfað saman í átta ár. Huldumenn inniheldur 9 lög sem öll eru eftir liðsmenn Gildrunnar. Plata þessi var tekin upp í Stúdío Stemmu í apríl sem leið. Um upp- tökur sáu Gunnar Smári Helgason og Sigurður Rúnar Jónsson. Bækur „í húsinu okkar er þoka...“ í-.VUt er komin ljóðabókin í húsinu okkar er þoka... eftir Kristínu Ómarsdóttur. Bók- in inniheldur stór og lítil ljóð, ljóðabálk og ljóðaleik. Bókin er 100 tölusettar síður og myndskreytt af Lars Emil Árnasyni sem einnig hannaði kápu. Þetta er fyrsta bók höfundar en áður hafa birst ljóð eftir Kristínu í blöðum og tímaritum auk þess sem Þjóðleikhúsið frumsýndi einþáttung hennar. Draum á hvolfí, á litla sviðinu sl. vetur. Bókin er til sölu í bókabúð Máls og menningar og hjá höfundi sem gefur hana út. Litríkt land - lifandi skóli Komið er út hjá Iðunni afmælisritið Lit- ríkt land - lifandi skóli til heiðurs HUSEIGANDI GÖÐUR! ERTU ÞRETTTUR A VWHALDINO? Eru eftirfarandi vandamál að angra þig? • Alkalí-skemmdir • Vaneinangrun • Frost-skemmdir • Sprunguviðgerðir • Lekirveggir • Síendurtekin málningarvinna Ef svo er, skaltu kynna þér kosti Stö-utanhúss-klæðningarinnar: Sto-klæðningin er samskeytalaus. sto-klæðningin er veðurþolin. Sto-klæðningin er litekta og fæst í yfir 300 litum. sto-klæðningin er teygjanleg og viðnám gegn sprungumyndun er mjög gott. Sto-klæðningin leyfir öndun frá vegg. Sto-klæðningin gefur ótal möguleika í þykkt, áferð og mynstri. 5to-klæðninguna er unnt að setja beint á vegg, plasteinangrun eða steinulf SÍD-klæðninguna er hægt að setja á nær hvaða byggingu sem er, án tillits til aldurs eða lögunar. sfc-klæðningin endist — Vestur-þýsk gæðavara Opið laugardag og sunnudag RYDIf. Bíldshöfða 18 — 112 Reykjavík Sími 673320 Guðmundi Magnússyni fræðslustjóra sem varð sextugur á sl. ári. Hann hefur gegnt embætti fræðslustjóra Austurlands frá ár- inu 1977. í bókina skrifa ýmsir höfundar um uppeldis- og kennslufræðileg efni og í formála segir m.a.: „Aðstendendur ritsins vænta þess að það hafi notagildi sem um- ræðugrundvöllur meðal kennara, foreldra, stjórnmálamanna og annarra sem láta sig skólamál varða auk þess sem einstakar greinar nýtast sem námsefni í kennara- menntuninni og í endurmenntun kennara. I ritnefnd voru Berit Johnsen, Gerður G. Óskarsdóttir og Sigurður Magnússon. Prenttæki prentaði. Tilkyiiiungar Hjálpartæki til að velja lottótölur Fyrirtækið S&B Ólafsson hefur hafið út- gáfu og sett á markað hjálpartæki ætlað til að auðvelda fólki að velja handhófstöl- ur á lottóseðilinn. Hér er um að ræða spilastokk með 32 spilum í og er hvert spil merkt með einni tölu frá 1 upp í 32. Þannig getur fólk nú dregið út sínar eigin happatölur heima hjá sér og flýtt þannig fyrir afgreiðslu við lottókassana. Lottó- spilin eru framleidd hér á íslandi og er frágangur allur hinn vandaðasti. Stærðin á spilunum er heldur minni er á venjuleg- um spilum eða 5x7 cm. Spilin eru innpökk- uð í hentuga pappaöskju, þau eru plasthúðuð og auðvelt að stokka. Lottó- spilin koma til með að fást á öllum útsölu- stöðum Lottósins, og síðar e.t.v. einnig í bókabúðum, þau eru hentug, ódýr og auð- veld í notkun. Tilkynning til prófasta, sókn- arpresta og safnaðarstjóra Prófastar, sóknarprestar og safnaðarstjór- ar eru minntir á að samkvæmt lögum um Þjóðskjalasaíh íslands nr. 66/1985, 6. grein, skal afhenta safninu skilaskyld skjöl að jafnaði eigi síðar en þegar þau hafa náð 30 ára aldri. Minnt er á 3. grein laga nr. 3/1945, þar sem segir að kirkjubækur sóknarpresta skuli sendar Þjóðskjalasafninu til varðveislu áður en 50 ár eru liðin frá löggildingu þeirra og má aldrei halda þeim lengur en 15 ár frá því að þær eru fullritaðar. Þá eru allir sem hafa undir höndum eða vita um embættis- bækur og skjöl prófasta, presta og kirkna, er engin skil hafa verið gerð á eindregið beðnir að gera Þjóðskjalasafni íslands aðvart. Seglbrettamót Seglbrettasamband íslands stendur fyrir fyrsta seglbrettamóti sumarsins og jafn- framt því fyrsta sem SBÍ stendur fyrir því sambandið er nýstofnað. Keppnin verður haldin nk. sunnudag, þann 31. maí. Keppt verður á Fossvogi og skulu keppendur mæta kl. 10.00 við sigl- ingaklúbbinn Ými í Kópavogi. Þátttökugjald verður 300 kr. á mann. Veitt verða verðlaun fyrir fvrstu þrjú sætin. Samtök eigenda íbúða í verkamannabústöðum Hinn 1. maí 1987 voru stofnuð í Reykjavík „Samtök eigenda íbúða í verkamannabú- stöðum". Tilgangur samtakanna er að gæta hags- muna félagsmanna sem forsvarsaðili gagnvart löggjafar- og framkvæmdavaldi og veita félagsmönnum sínum ráðgjöf. Samtökin eru landssamtök. Aðildarrétt á sérhver eigandi íbúðar í verkamannabú- stað og umsækjendur slíkra íbúða. Framhaldsstofnfundur samtakanna verð- ur haldinn í sumar, þegar fyrir liggur félagaskrá og drög að lögum samtakanna hefur verið kynnt félagsmönnum. Stjórn samtakanna hefur opnað skrifstofu að Smiðjustíg 13, Revkjavík, sími 623420. Skrifstofan er opin mánudaga -til föstu- daga kl. 10 12 og 14-17. Lögfræðingur samtakanna hefur símaviðtalstíma alla virka daga kl. 13 16 í síma 15408. Hlaðvarpinn Kvennaráðgjöfin, Hlaðvarpanum, Vestur- götu 3. Ópin þriðjudaga kl. 20 22. Sími: 21500, símsvari. Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa fyrir siíjaspellum. Sími: 21500, símsvari. Nýir minjagripir Glit hefur hafið framleiðslu á nýjum minjagripum fyrir ferðamenn. Hvítt keramik og steinleir er brennt með mynd- um frá helstu ferðamanna- og sögustöðum Islendinga. Hér eru myndir frá Reykjavík, Gullfossi, Geysi, Mývatni. Þingvöllum, Akureyri og fleiri stöðum. Myndirnar eru brenndar í skemmtilegar drykkjarkönnur, vasa, platta, skartgripaskrín og fleiri eigu- lega muni. Myndefni er m.a. unnið af Eydísi Lúðvíks- dóttur myndlistarkonu sem starfað hefur sem listráðunautur hjá Gliti hf. í nokkur ár. Einnig býður Glit upp á nýja þjónustu við félög, ferðamannastaði og fyrirtæki: að sérmerkja myndirá listmuni og nytjamuni úr leir. Gripir af þessari gerð hafa verið fluttir til landsins um árabil, en Glit er nú að leita á þennan markað í því skyni að flytja atvinnu til landsins. En sjón er sögu ríkari. Nýju gripirnir eru fáanlegir í öllum helstu minjagripaverslunum í Reykjavík, hjá íslenskum markaði hf„ í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkur- flugvelli og víða um landið. Tjaldsvæðin lokuð á Þingvöllum Eins og að vanda lætur á þessum tíma árs verða tjaldstæði innan þjóðgarðsins á Þingvöllum lokuð enn um sinn. Vorið hefur verið fremur svalt í Bláskógum og þrátt fyrir nokkra góðviðrisdaga að und- anförnu er gróður skammt á veg kominn. Ekki telst rétt að heimila tjaldvist í Þjóð- garðinum fyrr en útjörð er gróin og sumar gengið í garð að fullu. Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hefur nú í vor gefið út mynd- skreyttan upplýsingabækling á fjórum tungumálum, íslensku, ensku, dönsku og frönsku. Höfundur texta er Þórhallur Heimisson. Myndir gerði Snorri Snorra- son. Hönnun, setning og umbrot voru í höndum GBB auglýsingastofunnar hf. en prentun annaðist Steindórsprent. Rit hf. þýddi textann. Bæklingurinn hefur að geyma uppdrætti af svæðinu í heild og ætti því að gera gestum hægara um vik í öllum efnum. Uppdrættirnir eru gerðir af Landmælingum Islands. Bæklingurinn kostar kr. 50 og er m.a. til sölu í Þjónustu- miðstöðinni á Leirum. Fréttatilkynning Um þessar mundir sýnir Jón Axel Björns- son í gallerí Ganginum og þarf ekki að kynna hann náið þar sem hann hefur sýnt mikið um dagana við góða athygli gesta. Hann sýnir eitt fjögurra metra langt mál- verk. Mánar á Selfossi Hljómsveitin Mánar verður með kveðju- tónleika í Inghóli, Selfossi. í kvöld. laugardagskvöld. Dansleikurinn er öllum þeim opinn sem rifja vilja upp árin 1965-75. Árbæjarsafn í sumarbúningi Árbæjarsafn verður opnað á sunnudaginn. 31. maí, og verður það opið í sumar alla daga nema mánudaga frá 10 18. Meðal þeirra nýjunga sem verða í sumar er sýning á gömlum slökkviðliðsbifreiðum og það sem komið hefur upp við fornleifa- gröftinn í Reykjavík að undanförnu. Einnig er þar nú sýning á Reykjavíkurlík- önum. Frá Menntaskólanum við Hamrahlíð Við skólauppsögn laugardaginn 23. maí brautskráðust frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 98 nýstúdentar, 27 þeirra út öldungadeild. Af nýstúdentum eru 62 kon- ur og 36 karlar. Alls hafa á skólaárinu brautskráðst 160 stúdentar frá skólanum, eða allmiklu færri en mörg undanfarin skólaár. Hæstu einkunnir á stúdentspróíí hlaut Örnólfur E. Rögnvaldsson, stúdent afnátt- úrufræða- og eðlisfræðibraut. Næst honum komu Berglind Björnsdóttir og Örn Bald- ursson. Við skólauppsögn söng Kór Menntaskól- ans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur stúdentasöngva og lög eftir íslenska tónsmiði, m.a. lög sem samin hafa verið fyrir kórinn. Hallæristenór (allra síðasta sinn) Á laugardagskvöldið gefst allra síðasta tækifærið til að sjá hinn bráðskemmtilega bandaríska gamanleik, Hallæristenór, eft- ir Ken Ludwig, í þýðingu Flosa Ólafssonar og leikstjórn Benedikts Árnnsonar. Leik- mynd er eftir Karl Aspelund. Sem kunnugt er er hér á ferðinni mikið og skemmtilegt óperugrín þar sem þeir Örn.Árnason og Aðalsteinn Bergdal fara á kostum sem óperusöngvarar og syngja eins og englar annar í hlutverki hetjutenórs og hinn í hlutverki hallæristenórs. Spurningin er bara-hvor er hvor? Með önnur stór hlut- verk fara Erlingur Gíslason, Tinna Gunnlaugsdóttir, Lilja Þórisdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Herdís Þorvaldsdóttir og Árni Tryggvason. Yerma (6. sýning) Á sunnudagskvöld verður 6. sýning á spánska snilldarverkinu Yermu, eftir Fed- erico García Lorca, í leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Karl Guðmundsson þýddi leikinn, tónlist er eftir Hjálmar H. Ragn- arsson og Sigurjón Jóhannsson gerði leikmynd og búninga. Tinna Gunnlaugs- dóttir leikur titilhlutverkið og hefur fengið mikið lof fyrir, eins og reyndar sýn- ingin í heild sinni. Fleiri en einn og fleiri en tveir hafa kallað þessa uppfærslu á Yermu fallegustu leiksýningu leikársins, víst er um það að hér er stórvirki á ferð- inni. Skólagarðar Reykjavíkur hefja starfsemi sína nú eftir helgina. Þeir starfa á sex stöðum í Reykjavík: Skerja- firði, við Ásenda, í Laugardal, við Stekkj- arbakka, við Jaðarsel í Breiðholti og á Ártúnsholti í Árbæ. Innritun hefst mánu- daginn 2. júní kl. 8 og stendur til kl. 16. Þátttökugjald er kr. 300. Öllum börnum á aldrinum 9-12 ára er heimil þátttaka. I skólagörðum Reykjavíkur fá börn leið- sögn við ræktun á grænmeti og plöntum, auk þess að fara í leiki og stuttar göngu- ferðir í nágrenni við garðana til náttúru- skoðunar og fræðslu um borgina. Kvenfélag Óháða safnaðarins Farið verður í kvöldferðalagið nk. mánu- dag, 1. júní. Lagt verður af stað frá Kirkjubæ kl. 20, Fríkirkjan í Hafnarfírði verður skoðuð og drukkið kaffi I veitinga- húsinu Hansen. Sumaráætlun SVR tekur gildi mánudaginn 1. júní nk. með breyttum tímaáætlunum á leiðum 02-12. Ný leiðabók er til sölu á Lækjartorgi, Hlemmi og Grensási. Farþegar eru hvattir til að kynna sér sumaráætlunina í tæka tíð. Ferðir á vegum starfs aldr- aðra Hallgrímskirkju Farin verður 4 daga ferð í Húnavatnssýslu dagana 13.-16. júlí. Lagt verður af stað mánudaginn 13. júlí kl. 9.30 frá Hallgríms- kirkju. Gist verður á Húnavöllum allar næturnar. Áætlað verð fyrir ferðina er kr. 10.000 fyrir þá sem gista í tveggja manna herbergjum en kr. 11.200 fyrir þá sem velja eins manns. Fararstjóri verður Dómhildur Jónsdóttir en leiðsögumaður sr. Pétur Þ. Ingjaldsson, fyrrverandi prófastur Húna- vatnsprófastsdæmis. Ferð til Ilanmerkur á vegum „Ældre pá höjskole" verður dag- ana 5.-21. ágúst. 20 manns 60 ára og eldri verða í hópnum. Vegna forfalla eru 3 sæti laus. Fararstjóri verður sr. Lárus Hall- dórsson. Þeir sem áhuga hafa á þessum ferðum eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við Dómhildi Jónsdóttur sem fyrst, í síma 39965. Allir lífeyrisþegar geta tekið þátt í þessum ferðum. Bókvarðan flytur sig um set Bókvarðan, sem margir telja með skemmtilegustu og forvitnilegustu búðum landsins, er nú flutt að Vatnsstíg 4 í Reykjavík. I Bókhlöðunni fást bæði yngri og eldri bækur og gömul amerísk blöð frá stríðsárunum, Life, Look, Esquire o.m.fl. Hræódýrar pocket-bækur fást í þúsunda- vís, auk þess hvers kyns skáldskapur og fræði eftir íslenska höfunda frá öllum tím- um prentsögunnar. En líka gamlar og fágætar bækur og tímarit. 44. bókasölu- skrá þeirra er nú komin út, hún inniheldur á 13. hundrað titla bóka og ritverka úr mörgum greinum: íslensk fræði og norræn, saga lands og heims og menningar, bundið mál, rímur, atómkveðskapur, náttúrufræði tímarit og blöð, byggðasaga, ættfræði, þjóðlegt efni og margt fleira. Auk þess hefur nýlega borist í búðina mikið safn af heimsbókmenntum eldri höfunda. Bók- söluskráin er send ókeypis til allra sem þess óska utan höfuðborgarsvteðisins, en afhent innfæddum í búðinni að Vatnsstíg 4. Sýriingar Anna Fugaro í Menningar- stofnun Bandaríkjanna Sýning Önnu Fugaro á „Collage" verkum í Menningarstofnun Bandaríkjanna að Neshaga 16 verður framlengd þannig að opið verður.um helgina nk„ 30. og 31. maí milli kl. 14.00 og 22.00 háða dagana. Listunnendur ættu ekki að missa af þess- ari einstöku, litríku hugmyndafantasíu. Nánari upplýsingar veitir Friðrik Ás- mundsson Brekkan blaðafulltrúi í síma 62 1020 Menningarstofnun Bandaríkjanna. Kjarvalsstaðir - leiðrétting I föstudagsblaöi DV kom fram að sýning 5 listamanna á Kjarvalsstöðum stæði til 10. júní. Þetta er. rangt, sýningum lýkur þessa helgi. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Gallerí Gangskör Síðasta sýningarhelgi Þórdísar A. Sig- mundardóttir. Þórdís sýnir skúlptúra sem flestir eru gerðir á þessu ári, þeir eru unnir úr marm- arasteypu, járni, pappa og lit. Gangskör er opin virka daga frá 12—18 og um helgar 14-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.