Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1987. Úflönd____________________ Sprengju- tilræði í Suður-Týról Snoni Valsson, DV, Vín; Mikill órói ríkir nú í Suður-Týról vegna komandi þingkosninga á ítaiiu. Héraðið liggur á landamær- um Itelíu og Austurríkis. Tilheyrir það Ítalíu en stór hluti íbúanna er þýskumælandi. Nú síðustu dagana hafa þar ve- rið framin fimm sprengjutilræði og skotárásir en hingað til hafa ein- göngu orðið skemmdir á eignum. Aðfaranótt fimmtudags sprakk sprengja við íbúðarblokk í borg- inni Meran þar í héraði. Tvö hundruð og fimmtíu grömmum af dýnamíti hafði verið komið fyrir við blokk un flestir íbúar hennar eru ítölskumælandi. Olli sprengjan töluverðum skemmdum. Eftir sprenginguna var einnig skotið á húsið úr hríðskotabyssu. Ekki er enn ljóst hverjir standa að baki þessum tilræðum en tveir aðilar eru sterklega grunaðir. Annars vegar eru það nýnasistar sem vonast til að auka fylgi sitt með aukinni spennu nú fyrir kosn- ingar en þeir berjast fyrir auknum ítölskum áhrifiim í Suður-Týról. Hins vegar eru það þýskumælandi hægrisinnar sem eru óánægðir með að ítalska stjórnin stendur ekki við loforð sín. Meðal annars hefur verið boðuð kennsla á þýsku fyrir böm þýskumælandi íbúa en hingað til hefur verið lítið um efnd- ir. Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækur 10-12 Ib.Lb óbund. Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1115 Sb 6 mán. uppsögn 12-20 Ib 12 mán. uppsögn 14-25,5 Sp.vél. 18mán. uppsögn 22 24,5 Bb Ávisanareikningar 4-10 Ab Hlaupareikningar 4-7 Sp Innlán verötryggo Sparireikningar 3jamán. uppsögn 1.5-2 Ab.Bb, 6 mán. uppsögn Innlán með sérkjörum 2.5-4 Lb.Sb, Úb.Vb Ab.Úb 10-22 Innlán gengistryggð Bandaríkjadalur 5,5-6,5 Ib Sterlingspund 7,5-10 Vb Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Ab,Vb Danskar krónur 9-9,5 Ab.Sb. ÚTLÁNSVEXTIR (%) Sp.Úb lægst Útlán óverðtryggð Almennir vixlar(forv.) 20,5-24 Lb Viöskiptavixlar(forv.)(1) 24-26 eða kge Almenn skuldabréf(2) 21,5-25 Úb Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir Hlaupareikningartyfirdr.) IJtlán verðtryggð 21-24,5 Bb.Sb Skuldabréf Að 2.5árum 6.5-7,5 Lb Til lengritíma 6.75-7.5 SD.Úb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 18,5-24 Ab SDR 7,75-8 Bb.Lb, Úb Bandaríkjadalir 8-9 Sb Sterlingspund 10,25-11,5 Lb Vestur-þýsk mörk 5,25-5,75 Bb.Lb Húsnæðislán 3.5 Lifeyrissjóðslán 5-6.75 Dráttarvextir 30 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitala maí 1662 stig Byggingavísitala 305 stig Húsaleiguvísitala Hækkaði 3% 1. april HLUTABREF Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Almennar tryggingar 110kr. Eimskip 246 kr. Flugleiöir 170kr. Hampiðjan 114 kr lönaöarbankinn 124 kr. Verslunarbankinn 114 kr. (1) Við kaup á viðskiptavixlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Búnaðarbanki og sparisjóðir kaupa þó viðskiptavíxla gegn 21 % ársvöxtum. (2) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskil- alána er 2% bæði á verðtryggð og óverð- tryggð lán, nema ! Alþýðubanka og Verslunarbanka. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank- inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu- bankinn, Úb= Útvegsbankinn, Vb = Versl- unarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir. Nánari upplýsingar um penlngamarkaöinn birtast i DV á fimmtudögum. DV Rauða torgið með viðkomu í Reykjavík I gær lenti nítján ára vestur-þýskur piltur. Mathias Rust, flugvél sinni, af gerðinni Cessna 172, við Rauða torgið í Moskvu, skammt frá múrum Kreml- ar, aðseturs ríkisstjómar Sovétríkj- anna. Þar með lauk ferðalagi frá Hamborg til Færeyja, Islands, Dan- merkur, Noregs, Finnlands og nú loks Sovétríkjanna. Yfirvöld í Sovétríkjun- um létu lítið eftir sér hafa um málið í gær annað en að pilturinn væri í yfirheyrslum og mál hans yrði ranns- akað af þeim aðilum sem sjá um mál þeirra er rjúfa lofthelgi Sovétríkjanna. Mathias Rust lagði upp í ferð sína frá flugvelli í Hamborg þann þrettánda maí, í Cessna 127 vél sem hann tók á leigu. Hann fiaug þá sem leið liggur til eyjarinnar Sylt, undan strönd V- Þýskalands, og þaðan til Shetlands- eyja. Næsta dag hélt hann svo áleiðist til Færeyja þar sem hann dvaldi næt- urlangt í Vogi. Þann ftmmtánda hélt hann til ís- lands þar sem hann eyddi tveim dögum í ferðir um landið. Vakti hann hér athygli lögreglu og fuglavemdar- manna sem héldu að þama væri eggjaþjófur á ferð. Var meðal annars leitað að fálkaeggjum í flugvél hans áður en hann fékk að halda af landi brott. Rust dvaldist svo í Reykjavík þar til 23. mai að hann hélt til Shetlandseyja að nýju og svo til Bergen í Noregi. Þaðan hélt hann svo til Helsinki. Frá Helsinki flaug Rust svo inn yfir Sovétríkin, alla leið til Moskvu, þar sem hann lenti skammt frá Rauða torginu, eins og fyrr segir. Þegar þang- að kom reyndist kvenmaður vera á ferð með honum en ekki er ljóst hven- ær honum bættist sá félagsskapur. Sovétmenn fullyrða að Rust hljóti að hafa skoðað kort vandlega og skipulagt leið sína í smáatriðum því án þess hefði hann aldrei komist fram hjá radarvömum þeirra. Einn embætt- ismaður segir þó mögulegt að til hans hafi sést þótt ákveðið hafi verið að láta hann afskiptalausan. Að sögn sjónarvotta flykktist margt fólk að flugvél Rust í Moskvu og var hann önnum kafinn við að gefa áhorf- endum eiginhandaráritun þegar lögreglan kom á staðinn. Munu marg- ir hafa talið hann vera kvikmynda- stjömu og að lending hans væri atriði í kvikmynd. Þes&i mynd var tekin af Mathias Rust þar sem hann gekk frá flugvél sinni i Reykjavík, þann 17. mai síðastliðinn, í fyigd með íslenskum embættismanni. símamynd Reuier Laus úr prísund mannræningja Breska sendifulltrúanum, sem harðlega og kreíjast skýringar af rænt var í Teheran í fyrradag, hefur írönskum yfirvöldum. verið sleppt. Að sögn talsmanns Mannránið var framið aðeins bresku utanríkisþjónustunnar var nokkrum klukkkustundum eftir að sendifulltrúinn í haldi byltingar- íranir mótmæltu handtöku íransks varða. ræðismanns í Manchester en hann var handtekinn fyrr í mánuðinum Það var síðdegis í fyrradag sem sex sakaður um búðarhnupl. vopnaðir menn stöðvuðu bifreið íraninn var látinn laus gegn trygg- sendifulltrúans og rændu honum. ingu og segja Iranir það vera vegna Bretar hafa mótmælt mannráninu mótmæla þeirra. Danskeppni í Moskvu Alþjóðleg keppni í samkvæmis- dönsum verður haldin í Moskvu í Sovétríkjunum í fyrsta sinn í næsta mánuði, að því er sovéska fréttastofan Tass greinir frá. Gert er ráð fyrir að dansarar frá Vestur-Þýskalandi, Bretlandi og Nor- egi, auk dansara frá Austur-Evrópul- öridum, sýni hæfrii sína í meðal annars vals og cha-cha-cha. Tveir létust í jaröskjálfta Tveir létust og fimmtíu særðust í jarðskjálfta í Iran í gær. Atti jarð- skjálftinn upptök sín rúmlega þrjú hundruð kílómetra fyrir suðvestan Teheran. I skjálftanum, sem mældist 5,2 á Richterskvarða, skemmdust tugir húsa í þorpum nálægt borginni Nahavand. Hjálparsveitir hafa verið sendar til jarðskjálftasvæðanna. Tillaga, samþykkt í öldungadeild Bandaríkjaþings, hefur valdið Oliver Tambo, leiðtoga Afriska þjóðarráðsins, mikilli gremju. Vilja þingmenn öld- ungadeildarinnar refsa þeim þjóðum er veita skæruliðum aðstöðu til árása inn í Suður-Afríku. Slmamynd Reuter Samkomulag um aðgerðir gegn hiyðjuverkastarfisemi Frakkland og Spánn hafa undirritað samkomulag um sameiginlegar að- gerðir gegn hryðjuverkum, skipu- lagðri glæpastarísemi og eiturlyfja- sölu. Áður hafa Frakkar gert svipað sam- komulag við Vestur-Þjóðverja og ítali um sams konar aðgerðir. Frakkar vísuðu í fyrradag tveimur Böskum úr landi. Þar með eru aðskiln- aðarsinnar Baska, sem vísað hefur verið úr Frakklandi, orðnir sextíu og þrír talsins írá þvi að Jacques Chirac forsætisráðherra tók við völdum í fyrra. Hafa Baskar svarað með fjölda sprengjutilræða gegn frönskum fyrir- tækjum á Spáni. Fordæmir tillögu um refsiaðgerðir Leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, Oli- ver Tambo, fordæmdi í gær tillögu öldungadeildar Bandaríkjaþings um bann við stuðningi við þær þjóðir í suðurhluta Afríku sem styðja skæru- liða Suður-Afríku. Samkvæmt tillögunni verður þjóð- um ekki veittur stuðningur nema þær hafrii hryðjuverkum og meini skæru- liðum afriot af landi þeirra. Tillagan á eftir að fara fyrir fulltrúadeildina. Yfirvöld í Zimbabwe hafa lýst yfir vanþóknun sinni á tillögunni og yfir- völd i Zambíu, þar sem Afríska þjóðarráðið hefur aðalbækistöðvar sínar, hafa margítrekað stuðning sinn við skæruliða. Embættismenn í Washington létu hafa eftir sér í gær að stjómin væri að reyna að koma í veg fyrir að tillag- an yrði endanlega samþykkt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.