Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1987, Síða 21
LAUGARDAGUR 30. MAI 1987.
21
Danirvermdu botnsætið
Danir fláðu ekki feitan gölt á nýaf-
stöðnu Evrópubandalagsmóti þvi að
þrátt íyrir að þeir sendu sitt besta
lið þá höfnuðu þeir í neðsta sæti
mótsins. Hér sjáum við ensku
bridgemeistarana Kirby og Armstr-
ong taka Kock og Möller í kennslu-
stund í hindranasögnum.
A/N-S
532
ÁD873
KD953
D874 G9
KG10643 8
10 G96542
82 10764
ÁK106
ÁD9752
K
ÁG
Með Kock og Möller í n-s, gengu
sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Norður
3T! dobl 4T!! pass
pass 4H pass 5L
pass pass pass
Það verður að segjast eins og er,
að þriggja opnun austurs í fyrstu
Bridge
Stefán Guðjohnsen
hönd, er einhver sú versta sem ég
hef séð í alþjóðlegu bridgemóti. Fjög-
urra tígla sögn vesturs er hins vegar
þaulhugsuð og afvopnaði n-s algjör-
lega. Dobl hjá norðri hefði boðið upp
á hina litina og þess vegna passaði
hann í von um dobl frá suðri. Suður
átti hins vegar einu hjarta of mikið
og einu laufí of lítið og doblaði því
ekki. Stundum saknar maður gömlu
góðu sektardoblanna.
Kock vann sitt spil og fékk 600.
Allt í lagi? Nei, því á hinu borðinu
opnaði Werdelin líka á þremur tigl-
um, suður doblaði og norður sat í
því. Það voru sjö niður og 1300 til n-s.
Nú veit maður hvernig spil stór-
meistaramir eiga þegar þeir opna á
þremur.
Urslit mótsins urðu þessi:
1. Holland B-sveit 152,5
2. Holland A-sveit 147
3. Frakkland 142
4. Belgía 139
5. England 135
6. írland 131
Sumarspilamennska Bridgesambands Reykjavikur er nú i fullum gangi
og er spilað tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum, í husnæði
BSÍ við Sigtún.
7. Þýskaland 130
8. Ítalía 128,5
9. Danmörk 122
Töluvert áfall fyrir Dani sem
væntu mikils af landsliði sínu á Evr-
ópumótinu í Brighton í sumar.
Bridge
Frá Bridgefélagi Akraness
Vetrarstarfí Bridgefélags Akraness
er nú lokið. Síðustu mót vetrarins
voru meistaramót í sveitakeppni og
bikarkeppni Akraness. Tiu sveitir
tóku þátt í Akranesmóti i sveita-
keppni. Sveit Alfreðs Viktorssonar
tók snemma forystu í mótinu og hélt
henni til loka og varð Akranesmeist-
ari. Með Alfreð spiluðu Eiríkur
Jónsson, Karl Alfreðsson, Bjarni
Guðmundsson og Guðmundur
Bjarnason.
Röð efstu sveita var þannig:
Sveit stig
1. Alfreðs Viktorssonar 182
2. Inga Steinars Gunnlaugss. 165
3. Harðar Pálssonar 162
4. Árna Bragasonar 160
5. Halldórs Hallgrímss. 158
Um síðustu helgi var úrslitaleikur
í bikarkeppni Akraness spilaður.
Attust þar við sveitir Harðar Páls-
sonar og Inga Steinars Gunnlaugs-
sonar. Var leikurinn jafn og tvísýnn
en lauk með sigri sveitar Inga Stein-
ars. Með Inga Steinari spiluðu Einar
Guðmundsson, Ólafur Grétar Ólafs-
son og Guðjón Guðmundsson.
Stjórn Bridgefélagsins þakkar fé-
lögum ánægjulegan vetur og óskar
þeim gleðilegs sumars.
Berðu ekki við
tímaleysi
í umferðinni.
Þaö ert fií sem
situr undir stýri.
ÚUMFERÐAR
ráð %$!sAr
KENNARAR -
SKÓLASTJÓRASTAÐA
Laus er til umsóknar skólastjórastaða við Brekkubæj-
arskóla, Akranesi. Upplýsingar veita skólastjóri, Viktor
Guðlaugsson, vinnusími 93-1388, heimasími
93-2820, yfirkennari Ingvar Ingvarsson, vinnusími
93-2012, heimasími 93-3090 og formaður skóla-
nefndar, Elísabet Jóhannesdóttir, sími 93-2304.
Umsóknarfrestur er til 10. júní.
Skólanefnd.
tr
Islandsmót 1. deild.
Stórleikur á Hlíðarenda
sunnudaginn 31. maí kl. 20.00.
VALUR - IBK
Allir leikir á
Hlíðarenda
eru
stórleikir.
Ath.
Bílastæði
sunnanmegin
við
Loftleiðaveg.