Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987.
Fréttir
Gudmundur Baldursson, sölumaður hjá Bílaborg h(., stendur hér við nýjan Mazda 626, sams
konar bíl og verður í boði i úrslitakeppninni i haust.
Einar Guöjónsson, frá Fálkanum hf., við hjólið sem í boði verður ásamt utanlandsferðum í hjól-
reiðakeppninni í sumar. 1
Okuleikni BFÖ - DV10 ára
Okuleiknin hefst í kvöld
Hefst með pressukeppni
Bindindisfélag ökumanna og DV
munu í sumar. eins og undanfarin
sumur. vera með keppni í ökuleikni viðs
vegar um landið. Mikið verður um að
vera því ökuleiknin heldur upp á 10 ára
afmæli sitt I sumar.
Mikil aukning hefur verið I þátttöku
undanfarin tvö ár og hafa nú i allt 2975
ökumenn tekið þátt I ökuleikninni.
Fyrirkomulag keppninnar
Nokkui' §ölgun verður á keppnisstöð-
um í ár. Keppt verður á 33 stöðum um
landið að Islandsmeistarakeppninni
meðtalinni. í ökuleikninni verðui-
keppt í karlariðli og kvennariðli og
munu sigurvegarar í hvorum riðli
komast í úrslit. Auk þess verður á
hverjum stað einnig hjólreiðakeppni
og keppt þar í tveim riðlum, annars
vegar á aldrinum 9-11 ára og hins
vegar á aldrinum 12 ára og eldri. Þá
mun ný keppnisgrein bætast við á
stöku stað. I sumar verður boðið upp
á ökuleiknikeppni á fjórhjólum á
nokkrum stöðum á landinu. Þegar
heflir verið óskað eftir slíkri keppni á
Höfn í Hornafirði. Akurevri og jafnvel
ísafirði og hver veit nema fleiri staðir
bætist við.
Bindindisfélag ökumanna og DV
hafa fengið til liðs við sig í ökuleikn-
inni MAZDA umboðiö Bílaborg hf. sem
mun gefa vegleg verðlaun í islands-
meistarakeppninni, MAZDA 626 árgerð
1988, auk bikarverðlauna. Einnig mun
umboðið lána bíla til úrslitakeppninnar
ásamt því að veita fjárhagslegan stuðn-
ing. Þá mun ferðaskrifstofan TERRA
gefa sigurvegara íslandsmeistarakeppn-
innar tvær sólarlandaferðir .
Hjólreiðakeppnin
í hjólreiðakeppninni fengu BFÖ og
DV hins vegar Reiðhjólaverslunina
FÁLKANN HF. til liðs við sig. Mun Fálk-
inn meðal annars gefa öll verðlaun I
hverri hinna 32 keppna og auk þess sem
Fálkinn gefur utanlandsferð í yngri riðl-
inum, 9-11 ára. Islendingum gefst
nefnilega kostur á að senda tvo kepp-
endur á aldrinum 9-11 ára til Svíþjóðar
í haust í norræna hjólreiðakeppni og
munu 10 efstu keppendur landsins í
yngri riðli keppa til úrslita um tvær ferð-
ir til Svíþjóðar. Fálkinn hf. mun hins
vegar gefa gullfallegt reiðhjól sem hepp-
inn keppandi í eldri riðlinum fær í haust
en allir keppendur í eldri riðlinum I hjól-
reiðakeppninni fá happdrættismiða og
úr þeim verður dreginn einn keppandi
er hlýtur reiðhjólið. Þá lét Fálkinn hf. í
té reiðhjól sem notað verður við hjól-
reiðakeppnina I sumar.
Pressukeppnin
Ökuleiknin mun fara af stað mið-
vikudaginn 10. júní við Hús verslunar-
innar I Reykjavík kl. 20 og verður sú
keppni svokölluð Pressukeppni, en þar
mæta fulltrúar allra fjölmiðla og spreyta
sig.
Formlega hefst ökuleiknin í Reykjavík
laugardaginn 13. júní nk. kl. 14, einnig
við Hús verslunarinnar og þar gefst
mönnum kostur á að reyna sig. Öku-
leiknin byggist á tveimur þáttum aðal-
lega, annars vegar á umferðarspuning-
um og hins vegar á þrautaakstri þar sem
hæfnin skiptir máli en hraðinn ekki. All-
ir er hafa ökuleyfi og skoðunarhæfan
bíl geta tekið þátt í keppnmni gegn
vægu þátttökugjaldi og ekki er nein
hætta á að bílar skemmist í keppninni.
í pressukeppninni, sem og fyrstu al-
mennu keppninni sem haldin verður
einnig við Hús verslunarinnar nk. laugar-
dag, mun CASIO-umboðið gefa
vönduð úr þeim keppendum sem bestan
tíma hafa bæði í reiðhjólakeppninni og
Ökuleikninni. Um er að ræða vönduð
Casioúr sem hafa innbyggða dagbók
og ýmislegt annað.
Hringferð ökuleikninnar
Fimmtudaginn 18. júní hefst hring-
ferð ökuleikninnar og verður byrjað á
því að fara austur um og keppt á
Hellu. Auglýsingar verða hengdar upp
á hverjum stað þegar þar að kemur.
Einnig mun DV segja jafnóðum frá
keppnisstöðum í sumar og greina frá
úrslitum hverrar keppni og birta
myndir og viðtöl við keppendur.
Sigurvegarar úr hvorum riðli munu
fara i úrslitakeppnina þann 5. sept-
ember næstkomandi og eins og fyrr
sagði verða vegleg verðlaun. Sigurveg-
arar fá sólarlandaferð með feröaskrif-
stofunni TERRU auk bikarverðlauna. Sá
er aka mun villulaust i gegn um þrauta-
planið i keppninni hlýtur MAZDA bílinn
að launum sem MAZDA umboðið Bíla-
borg gefur til keppninnar.
Úrslit hjólreiðakeppninnar munu einn-
ig fara fram þann 5. september í tengsl-
um við íslandsmeistarakeppni ökuleikn-
innar.
Nýir staðir bætast við
Tveir nýir staðir bætast í hóp þeirra
staða þar sem ökuleikni verður haldin.
Það eru Bolungarvík og Þorlákshöfh.
Þá verður einnig keppt á Siglufirði
eftir 5 ára hlé á keppni þar. Nánar
um það í DV þegar nær dregur keppni.
I dag mælir Dagfari
i Ki ro p ipasýningi in
í hvert skipti sem íslensk fegurðar-
drottning er valin upphefst sami
söngurinn um fánýti slíkrar keppni.
Hæst hafa þeir eða þær sem ekkert
erindi eiga í fegurðarsamkeppni
hvort sem er og öfunda stúlkumar
sem þar taka þátt. Má það heita
merkilegt hugarfar að fetta fingur
út í annarra manna afþreyingu eins
og þeim komi það eitthvað við þótt
örfáar stúlkur taki sig til og sýni sig
upp á senu fyrir ekki neitt. Þar að
auki hefúr þjóðin haft af því margf-
alt gagn af að geta sent stúlkurnar
um allan heim eins og hvem annan
útflutning.
Fegurðaramkeppnin um helgina
var glæsileg eins og jafnan áður. Það
eina sem skyggði á gleðina var að
þær skyldu ekki allar geta sigrað,
enda hefði það verið útlátalaust þar
sem Dagfari sá ekki betur en þær
væru allar eins. Eða svona nokkurn
veginn eins í útliti úr sjónvarpinu
séð. En auðvitað hefur dómnefodin
haft tækifæri til að kynna sér það
betur í hverju mismunurinn var fólg-
inn. Sumar hafa sjálfsagt verið
brjóstameiri, betur tenntar eða hold-
meiri á lendunum, þótt það komi
ekki fyrir almenningssjónir þótt vel
sé að gáð.
Annars er það miklu merkilegra
rannsóknarefoi hvers konar fólk er
valið í dómnefodir í svona keppni
heldur en hitt hver velst fegursta
stúlkan. Hvað hefur það fólk til
bmnns að bera sem situr í dómnefod
og dæmir fegurðina? Hefur það lög-
giltan smekk þegar fegurð er annars
vegar? Dagfari vekur á því athygli
að Hannes Hólmsteinn Gissurason
hefúr nýlega kært til háskólaráðs
dómnefnd sem á að dæma um það
hvort hann sé hæfur umsækjandi
um lektorsstöðu í félagsvísindadeild.
Þar er að vísu ekki verið að dæma
um fegurð Hannesar, enda eins gott.
En Hannes heldur því hins vegar
fram að sumir dómnefodarmenn séu
vinir annarra umsækjenda og svo
telur hann sannað að öðrum sé illa
við sig.
Getur ekki það sama gilt um dóm-
nefodina í Broadway? Við skulum
nú segja að það komi í ljós að ein-
hverjir dómnefodarmenn séu í
vinfengi við sumar stúlkumar. Jafo-
vel mjög nánu. Hver veit um það
hver er vinur hvers? Sérstaklega
þegar keu-lmenn sitja í dómnefodinni
og kvenfólk er annars vegar. Svo
má líka vel vera að slest hafi upp á
vinskapinn og þá eru dómnefndar-
menn orðnir að óvinum stúlknanna
og hvers eiga þær þá gjalda? Þetta
hefðu keppendur í fegurðarsam-
keppninni átt að athuga eins og
Hannes Hólmsteinn. Eða foreldrar
stúlknanna eða kærastar. Það eru
ólíklegustu menn sem dúkka upp
sem kærastar og þó aldrei fyrr en
keppninni er lokið. Að vísu mun sú
skýring vera á þessu að fegurðardís-
unum er bannað að hafa átt börn
eða vera giftar til að vera hlutgeng-
ar í svona keppni. Það getur enginn
verið fegurðardís sem er orðin
mamma eða er á föstu í hjónabandi.
Þess vegna eru fallegar stúlkur á
Islandi hættar að gifta sig fyrr en
fullreynt er að þær komist ekki í
keppnina. Mun þetta vera liður í því
að varðveita meydóminn í fegurð-
inni og þess vegna er það hálfgert
svindl þegar í ljós kemur eftir krýn-
inguna að fegurðardrottningin er á
föstu.
Þeir hafa það fyrir sið í fegurðar-
samkeppnunum að velja ungfrú
Reykjavík, vinsælustu stúlkuna,
bestu ljósmyndafyrirsætuna og svo
framvegis. Þetta er ágætt ráð til að
allir fái verðlaun. Dagfara kemur til
hugar að þessa aðferð megi þróa með
þeim hætti að næst verði valin stúlk-
an sem er sætust, önnur sem er
fallegust fyrir ofan mitti og sú þriðja
sem er best fyrir neðan mitti. Allt
hlýtur þetta að vera sárasaklaust,
enda er tilgangur sá einn að velja
fegurðina sem fyrir augum blasir og
hvers vegna þá ekki hina ýmsa lík-
amsparta til að auka fjölbreytnina?
Enginn vafi er á því að það er mik-
ill munur á fegurð eftir því hvort
hún er fólgin í andliti, brjóstum,
lendum eða einhverju öðru. Það eru
til að mynda margar stúlkur heil-
miklir kroppar þótt andlitsfegurð sé
ekki fyrir fara. Af hverju mega þær
ekki vera með eins og hinar? Þetta
er jú fyrst og fremst kroppasýning,
ekki satt?
Dagfari