Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 10. JUNI 1987. 9 Utlönd Leita Asíumanns vegna sprenginganna Lögreglan á Ítalíu leitar nú Asíu- manns sem ferðast á kanadískum og thailenskum vegabréfum, vegna sprenginganna við sendiráð Banda- ríkjanna og Bretlands í Rómarborg í gær. Engann sakaði í sprengingunum sem annars vegar voru bílsprengja og hins vegar handsprengjuárás á sendi- ráðin en miklar skemmdir urðu á bifreiðum og byggingum. Maðurinn sem leitað er að er sagður heita Hsu Kao Yen, vera á fertugs- aldri og sagt er að hann hafi dvalist í hótelherbergi rétt við bandaríska sendiráðið en tveimur heimatilbúnum handsprengjum var skotið á sendi- ráðsbygginguna úr glugga herbergis hans. Bílsprengjan sprakk við bandaríska sendiráðið í Róm, auk þess sem skotið var tveimur heimatilbúnum hand- sprengjum á það. Á breska sendiráðið var skotið einni handsprengju sem einnig var heimatilbúin. Sprengingarnar við sendiráð Bandarikjanna og Breta i Rómaborg í gær eru taldar tengjast leiðtogafundinum i Feneyj- um. Engan sakaði í sprengingunum en eins og sjá má af meðfylgjandi mynd voru þær kraftmiklar. Simamyrtd Reuter Stuðningsmenn Samstöðu héldu uppi spjöidum sinum við messu páfa i Lublin í Póllandi í gær. Simamynd Reuter Milljón hlýddi á ræðu páfa Rúmlega milljón manns tóku þátt í fyrstu guðsþjónustunni sem Jóhannes Páll páfi II hélt undir berum himni í Póllandsheimsókn sinni. í messunni sem haldin var í Lublin, vígði páfi fjörutíu og sex presta. Þegar hann hvatti þá til að taka sér til fyrir- myndar heilaga og hugrakka menn eins og til dæmis Jerzy Popieluszko sem fórnaði lifi sínu, brutust út gífur- leg fagnaðarlæti. Popieluszko sem var hlynntur Samstöðu, var myrtur af ör- yggissveitum. 1984. Er búist við að páfi heimsæki gröf hans í Varsjá í vikulokin. Páfi minntist á Samstöðu í ræðu sinni en í almennu orðalagi og án þess að minnast á verkalýðssamtökin. Árásum á tamíla hætt Herinn á Sri Lanka hefúr hætt hem- aðaraðgerðum gegn skæruliðum tamíla á Jaffnaskaganum og kveðst stjórnin reiðubúin til friðarviðræðna. Þann l.júní síðastliðinn lauk viku- langri samfelldri sókn hersins en síðan hefur herinn gert árásir öðm hverju þrátt fyrir mótmæli Indverja. Að sögn þeirra létust himdmð óbreyttra tamíla í aðalárásinni. Margir tamílar á Jaffiiaskaganum vom einnig sagðir svelta. Herinn vísar þeim fulfyTðingum á bug en dreifir nú matvælum til íbúa á herteknum svæðum. Indverjar hafa áður re\mt að miðla málum milli stjómarinnar á Sri Lanka og aðskilnaðarsinna tamíla en án ár- angui-s. Embættismenn óttast nú að erfitt verði að sætta sig við Indverja sem milligöngulið eftir að þeir rufú lofthelgi Sri Lanka og flugu yfir Jaffnaskagann með matvæli handa tamílum. ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS HF ÖFLUGUR BANKI \ING MEÐ ABOT TRYGGING FRJÁLS ÚTTEKT HVENÆR SEM ER KOSTNAÐUR ABOT A VEXTI GULLS ÍGILDI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.