Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 7
7 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. Útlönd Umdeildir flokkar í framboði á Spáni Samkvæmt skoðanakönnunum er ekki útilokað að sósíaldemókratar á Spáni tapi fylgi i ýmsum stærri borgum landsins. Þetta yrði þá ef til vill síðasti tangó borgarstjórans i Madrid sem hann stigur þarna við poppsöng- konu á kosningafundi um helgina. Símamynd Reuter Pétur Pétuissan, DV, Barœlona; í dag ganga Spánverjar að kjör- borðinu og kjósa þrefalt. Kosið verður til sveitarstjóma og Evrópu- þings en að auki verður kosið til fylkisstjóma í þrettán fylkjum. Að vanda er kosningabaráttan lit- rík. Einna umdeildasti flokkurinn í framboði er baskneski öfgaflokkur- inn Herri Batasuna. Flokkur þessi er stjómmálaarmur ETA og em helsu stefnumál hans þau að eyði- leggja sem mest fyrir spönsku ríkis- heildinni. Það er því ekki að furða þó eitt helsta loforðið sé að sem minnst verði á þá hlustað verði þeir kosnir á Evrópuþingið. Flokkur þessi hefur þegar boðið tvisvar fram til þjóðþings Spánar. I bæði skiptin hefur hann fengið menn kjöma en þeir hafa ekki getað setið á þingi því þeir neita alfarið að sverja stjómarskránni hollustu. Nái þeir kjöri til Evrópuþingsins munu þeir þó brjóta odd af oflæti sínu og leggja hönd á stjómarskrána. Mar- goft hefur verið reynt að banna þennan flokk en lítt hefur gengið því stjórnarskráin gerir ekki ráð fyr- ir að hægt sé að útiloka stjóm- málahreyfingar frá setu á þingi. Annar flokkur, sem býður nú fram til Evrópuþings, er flokkur falang- ista. Hafa þeir átt um sárt að binda allt frá dauða Francos. í fyrstu neit- uðu þejr alfarið að taka þátt í þvílíkum skrípaleik sem þeir telja kosningar en hafa nú boðið fram nokkrum sinnum. Þeim hefur þó ekki tekist að vekja tiltrú fólks og hefur aldrei orðið neitt ágengt. Sérríkóngur í framboö Mesta furðu vakti þó framboð fyrr- um sérríkóngs frá Andalúsíu, José Maria Ruiz Mateos. Hann var áður ríkasti maður Spánar, eigandi auð- hringsins Rumasa. Er sósíaldemó- kratar unnu meirihluta sigur í þingkosningunum 1982 létu þeir verða sitt fyrsta verk að taka fyrir- tækið eignamámi. Hringurinn rambaði á barmi gjaldþrots og hefði það haft mjög slæmar afleiðingar fyrir efnahag landsins ef hann hefði hrunið. Eigandinn sætti sig ekki við þjóð- nýtingu þessa viðskiptastórveldis og hugði á hefndir. Hann flæktist í sam- særi um byltingu og slapp úr landi með falskt vegabréf frá Panama. Þannig hófst eltingaleikm- sem stóð í rúmt ár allt þar til kauði var hand- tekinn í Frankfurt 1984 fyrir vopna- burð. Spænska ríkisstjómin fór fram á að hann yrði framseldur og eftir þó nokkum umþóttunartíma urðu vest- ur-þýsk yfirvöld við beiðninni. Ruiz Mateos var settur í stofufangelsi á setri sinu nálægt Madrid og upphóf- ust réttarhöld sem enn verður ekki séð fyrir endann á. Auk áðumefndra em einnig í framboði litríkir persónuleikar úr stjómmálasögunni. Má þar helstan nefria Manuel Fraga, fyrrum leið- toga alþýðubandalags hægri manna. Hann er einn fárra stjómmála- manna frá Francotímanum sem hefúr tekist að aðlaga sig lýðræðinu. Baráttan milli stórflokkanna Samkvæmt skoðanakönnunum virðist það tveggja flokka kerfi, sem komin er hefð fyrir í hinni stuttu sögu konungsbundins lýðræðis, ætla að haldast. Báðir stóm flokkarnir munu þó tapa nokkuð og er það miðflokkur Suarez sem tekur til sín fylgi. Baráttan stendur þó fýnst og ffernst um valdahlutfóll stórflok- kanna tveggja, sósíaldemókrata og kristilegra demókrata. sem bjóða fram undir nafni alþýðubandalags. Talið er nokkuð víst að sósíal- demókratar, sem nú fara með meiri- hluta- völd í flestum fylkjum landsins. tapi nokkuð stórt þó ekki verði það til þess að skerða hlut- fóllin vemlega. Menn varast þó að spá um of því hér á Spáni er mikill hluti kjósenda óákveðinn í afstöðu sinni og revnslan hefur sýnt að oft em kosningaúrslit hér mjög frá- bmgðin öllum skoðanakönnunum sem að auki em viku gamlar því stjómarskrá landsins heimilar ekki að þær séu framkvæmdar sfðai’ en viku fyrir kosningar. Kjósendur hafa því haft heila viku til að ákveða sig og í gær var hinn friðhelgi dagur en kosningaáróður er bannaður í tuttugu og fjórar stundir fyrir opnun kjörstaða. Norskir prestar vilja fækka hátíðis- dögum Björg Eva Eilendsdóttir, DV, Osló: Norska prestastéttin hefur komið fram með tillögu um að leggja niður fimm hátíðisdaga á ári. Þessir fimm hátíðisdagar sem prestamir vilja gera að vinnudögum em annar í jólum, annar í páskum, annar í hvítasunnu, skírdagur og uppstigningardagur. Prestamir vilja ekki að fridögum fólks fækki með þessum aðgerðum heldur vilja þeir safna þessum dögum saman og bæta viku við sumarfríið eða vetrarfríið. Ástæðumar sem þeir gefa upp fyrir tillögu sinni em tvær. Önnur er sú að um þessar löngu helgar, sérlega um páska og hvítasunnu, tæmast bæimir og prestamir sitja eftir í tómum kirkj- um svo ekki er hægt að segja að trúarlífið blómstri á stórhátíðum. Hin er sú að prestarnir telja að þessi breyt- ing mvndi hafa góð áhrif á atvinnulíf- ið. Tillagan mvndi ekki bara hafa heppileg áhrif á trúar- og atvinnulíf heldur slyppu prestai'nir við messu- gjörðir á þessum dögum og þyrftu ekki lengur að standa og tala yfir auðum bekkjum þegar aðrir em í ftíi og á ferðalögum. Atvinnurekendur telja hugmyndina athyglisverða en almenningur virðist vera á móti þessu. Margir telja nauð- smlegt að hafa þessa föstu frídaga dreifða um árið. ef þá vantaði yrði til- veran hversdagsleg. Ekki finnst fólki heldur að hægt sé að leggja hátíðis- daga og venjulega frídaga að jöfnu því að þó að fólk fari ekki til kirkju em ýmsar hefðir tengdar hátíðunum sem ekki er hægt að leggja niður allt i einu. Umsjón: Halldór Valdimars- son og Ingibjörg Bára Sveinsdóttir SÞ bindi enda á Persaflóastríðið Margaret Thatcher, forsætisráöherra Breta, kvaddi Feneyjar i gær og flýtti sér heim i kosningabaráttuna. Simamynd Reuter Leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims gáfú út yfirlýsingu um steínu í utan- ríkismálum i gær í Feneyjum. Var hún fyrst og fremst nokkurs konar svar við beiðni Reagans Bandaríkjaforseta um að halda opinni siglingaleið á Persaf- lóa. Fóru leiðtogamir fram á aðgerðir af hálíú Sameinuðu þjóðanna til þess að reyna að binda enda á stríðið milli Irans og Iraks sem varað hefur í sjö ár. Studdu leiðtogarnir þá ákvörðun Reagans að vernda siglingaleiðina sem einn þriðji hluti olíu Vesturland- anna er fluttur um. I yfirlýsingunni var lögð áhersla á að hryðjuverkamönnum og stuðnings- mönnum þeirra yrði ekki sýnd nein miskunn. Var samþykkt að stöðva flug til landa sem veittu hryðjuverkamönn- um skjól. Lýst var yfir velþóknun yfir tillögum um að fækka öllum kjamaflaugimi nema skammdrægustu bandarísku og sovésku flaugunum frá Evrópu. Það var þó tekið fram að Vesturlönd ættu áfram að reiða sig á kjamorkuvopn til fælingar. Leiðtogamir ákváðu einnig í gær að marka sameiginlega stefnu í efna- hagsmálum. Með P iQ| um hringveginn SUÐAUSTURLAND Aukablað með: Einföldum og þægilegum ferðakortum - Getraun fyrir alla Skemmtilegum fróðleik o.fl. Aukablað um hringveginn kemur út næstu 3 fimmtudaga. Á MORGUN

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.