Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. Utlönd Ekki búist við stórfréttum af fúndi utamíkisráðherranna Vorfundir utanríkisráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins vekja að jafhaði fremur litla athygli enda sjaldgæft að á þeim séu tekin til af- greiðslu afdrifarík mál. Sú venja mun ríkjandi að utanríkisráðherr- amir noti fundi þessa til óformlegra viðræðna, sýni sig og sjái aðra, en taki ekki af verulegri alvöru á mál- efnum bandalagsins. Á vorfúndi ráðherranna hér i Reykjavík nú síðar í vikunni má þó búast við að nokkur af hitamálum innan NATO komi til umræðu. Þar ber auðvitað hæst afvopnunarmál. Má búast við að ráðherramir ræði tillögur bæði Bandaríkjamanna og Sovétmanna um samdrátt í meðal- drægum og skammdrægum kjam- orkuvopnum í Evrópu, sem og þá nauðsvn sem talin er á endurnýjun hefðbundins vígbúnaðar NATO í kjölfar hugsanlegs samkomulags stórveldanna um kjamorkuvígbún- að. Þá er ekki ólíklegt að deilur Grikklands og Tvrklands. tveggja aðildarríkja bandalagsins. undan- farna mánuði komi til umræðu. Hversu mikil þessi umfjöllun verð- ur og hvort vænta má einhverra afgerandi yfirlýsinga er hins vegar George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur áður komið við á íslandi. Hér ræðir hann við þá Steingrim Hermannsson og Geir Hall- grimsson í nóvember siðastliðnum. Utanrikisráðherrarnir eru flestir vel kunnugir innbyrðis. Hér ræðast þeir við Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Bretlands (til hægri), og Leo Tindemans, utanríkisráðherra Belgiu (til vinstri), á fundi utanrikis- ráðherra rikja Efnahagsbandalags Evrópu i mars síðastliðnum. Joe Clark, nú utanrikisráðherra Kanada, leiddi framfarasinnaða íhaldsmenn á sinum tima til sigurs yfir Pierre Trudeau og frjálslynd- um. fylgilið þeirra og starfslið og verður hótelið og nánasta umhverfi þess lokað almenningi meðan á fundinum stendur. Verður svæði þetta undir öryggisvörslu sem meðal annars verður í höndum víkingasveitar ís- lensku lögreglunnar sem undanfarið hefur verið á miklum æfingum í Saltvík. Ráðherramir sem koma til lands- ins eru: Belgía: Leo Tindeman Kanada: Joe Clark Danmörk: Uffe Ellemann-Jensen Frakkland: Jean Bemard Raim- ond Þýskaland: Hans Dietrich Genc- her Grikkland: K. Papoulias Ítalía: Giulio Andreotti Luxemburg: Jacques F. Poos Holland: H. van den Broek Noregur: Thorvald Stoltenberg Portúgal: P. Pires de Miranda Spánn: Fransisco Femandez- Ordonez Tyrkland: Vahit Halefoglu Bretland: Sir Geoffrey Howe Bandaríkin: George Shultz Gestgjafi fundarins er svo Matthí- as Á. Mathiesen, utanríkisráðherra íslands. Hans-Dietrich Genscher hefur gegnt embætti utanrikisráðherra lengst af þeim sem hingað koma til fundarins, liðlega þrettán ár. Hér er hann iklæddur boxhanska til þess að minna á pólitískan slagkraft sinn. Uffe Ellemann Jensen, utanríkis- ráðherra Danmerkur, brá sér í veiðitúr á íslandi í heimsókn sinni árið 1984. Ekki ber á öðru en ráð- herrann hafi verið sæmilega fengsæll. Giulio Andreotti hefur verið atkvæðamikill i itölskum stjórnmálum um langt skeið. Hann er kristilegur demókrati og hefur auk utanríkisráð- herraembættisins gegnt embætti forsætisráðherra lands síns. Matthías Á. Mathiesen, utanrikisráðherra íslands, er gestgjafi vorfundarins hér í Reykjavík. óljóst. Raunai' má telja það næsta ólíklegt því haustfúndir ráðherr- anna hafa að jafnaði þjónað veiga- meira hlutverki í slíkum efhum en vorfundimir. Mikill viðbúnaður er í Reykjavík vegna komu ráðherranna fimmtán til landsins. Hótel Saga hefur verið tekin algerlega undir ráðherrana,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.