Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. 13 Framtíð eyðni •> W ! ~ * ' •* - ^ '• !f!V » ^ ^ -•» -»»- í. ■ 5örnA^AÐ' Bg£H^sT’ sórx^mÞS>' Sr^mSV „Tvennt virðist þó næsta vist um framtíð eyðni fyrir íslendinga: Margir eiga eftir að drepast og íhaldssemi í kynferðismálum á eftir að aukast. Og dauð- inn verður ekki lengur ellisjúkdómur heldur raunverulegur möguleiki fyrir unga sem aldna,...“ Nú virðast eyðni-hræðsluöldumar vera famar að lægja nokkuð. Tími er kominn til að skoða málið í lang- tímasamhengi og að spá í framtíðina. Hvað getur minnst gerst í þessu máli og hvað mest? Hugarfarsbreyting Fyrir rúmum áratug gekk hin svo- kallaða „kynlífsbylting" yfir Vest- urlönd. Fólst hún í viðhorfsbreyt- ingu sem gmndvallaðist m.a. á betri getnaðarvömum sem auðvelduðu kynlíf utan hjúskapar. Nú hefur þjóðfélagsþróunin alið af sér aðra > nýjung sem viðkemur kynlífi, en í þetta sinn til takmörkunar fremur en til framdráttar frjálsum ástum. Er það eyðni, veirusjúkdómsafbrigð- ið sem er oft banvænt og berst með kynfæravökvum og blóðgjöf milli fólks. Þarf nú enn viðhorfabreytinga við. Nýlega var gerð víðtæk könnun í Bretlandi á áhrifum áróðursherferð- ar stjórnarinnar í fjölmiðlum um eyðni. Var undirritaður viðstaddur fyrirlestur stjómandans hérlendis, fjölmiðlafræðings í boði félagsvís- indadeildar H.í. Kom þar fram að í kjölfar eyðniáróðurs hafði kynlíf flestra lítið breyst nema hvað trú fólks hafði aukist á að vandinn tak- markaðist mest við kynhverfa. (Óx sá ásetningur að ef stofnað væri til nýrra kynlífssambanda væri reynt að forðast kynhverfa. Um leið óx velvilji til kynhverfra.) Hér var sem sagt merki um lítil viðbrögð almennings, bæði við áróðrinum og smithættunni. Fyrir- lesarinn sló því fram þeirri tilgátu að e.t.v. myndi almenningur sætta sig við dauðsföll af völdum eyðni KjáUaiinn Tryggvi V. Líndal þjóðfélagsfræðingur mótaðgerðalaust líkt og við aðrar óhjákvæmilegar áhættur nútímalífs, svo sem bílslys. Þótt hér við sitji í bráð er þó ljóst að skaðinn er stórkostlegur þvi kom- inn er fram nýr drápsvaldur á fólki í blóma lífsins. Og þótt tiltölulega fáir hafi sýkst á Vesturlöndum hefur stór hluti af borgarfólki í sumum a-afrískum borgum sýkst. Því er ljóst að þar getur orðið mannfellir sem skiptir sköpum fyrir ríkisstjómir, atvinnugreinar og landsvæði, líkt og getur gerst með mannfall af öðr- um sökum svo sem drepsóttum, stríðum og hallærum. Það versta sem getur gerst er að sjúkdómurinn eigi eftir að hljóta stórfelldari útbreiðslu. Ólíkt stríð- um, hallærum og flestum drepsóttum er eyðni langvarandi og ólíkt bíl- slysatíðni færist eyðni alltaf í vöxt, nema eitthvað verði að gert. Það er sjálfgefið að fyrr eða síðar verði eyðni heft með þvi að fólk hætti kynmökum utan hjúskapar ef ekki koma til sögu lyf eða dugandi getnaðarvamir. Trúlega yrði það þó ekki fyrr en flestir misstu einhverja sem þeir þekktu. En þá gæti líka verið kominn svo mikill mannfellir að afleiðingamar fyrir þjóðfélagið jöfhuðust á við kjölfar stríðs. Líklegast verður þó að telja að það verði helstu áhættuhópamir sem fá í hlut flest dauðsfóllin og vamarað- gerðimar. En þeir em, talið frá hinum helstu til hinna síðustu: Vændiskonur í A-Afríku, viðskipta- vinir þeirra, eiturlyflasprantusjúkl- ingar, vændisfólk, kynhverfir. lauslátt fólk og svo allir hinir. Erfitt er að greina fómarlömb eftir efnahagsstéttum. en þó er ljóst að evðni er útbreiddari í fátækari lönd- um heims og þar em einnig minni efni á fræðslu. greiningu og meðferð. Tvennt virðist þó næsta víst um framtíð evðni fvrir Islendinga: Marg- ir eiga eftir að drepast og íhaldssemi í kynferðismálum á eftir að aukast. Og dauðinn verður ekki lengm- bara ellisjúkdómur heldur raunvemlegur möguleiki fi.TÍr unga sem aldna líkt og áður gerðist á tímum drepsótta. sultar og stríða. Nema læknavísind- in finni bráða bót á. Tryggvi V. Líndal. „Fyrirlesarinn sló því fram þeirri tilgátu að e.t.v. myndi almenningur sætta sig við dauðsföll af völdum eyðni mótaðgerða- laust, líkt og við aðrar óhjákvæmilegar áhættur nútímalífs, svo sem bílslys.“ - Tjáningarfrelsi Ég hef oft hugleitt það hveijir það eru sem lesa kjallaragreinamar og hversu margir þeir em. Em það ef til vill aðeins ættingjar og vinir þeirra sem greinamar skrifa sem nenna að lesa þær eða em þær al- mennt vel lesnar. I heimi skoðana- kannana og félagsvísindalegra athugana væri ef til vill kominn tími til að gera úttekt á kjallaragreinum DV og öðrum slíkum tækifærum hins almenna borgara til að tjá sig um menn og málefni. Fróðlegt væri að sjá hverjir lesa greinamar, hversu oft, kynferði lesenda, af hverju þeir lesa þær. Hrífast menn af fyrirsögn- um, myndum sem fylgja greinunum eða jafhvel málefhinu? En það er ef til vill aðalatriðið að hér skuli ríkja frelsi til tjáningar, frelsi til þess að viðra eigin hug- myndir og hljóta andsvör i rituðu máli, en ekki með fangelsun eins og því miður víða er raunin. Upplýs- ingaöldin er mnnin upp og styrjöld nútímans stendur hæst um hugi manna og em vopnin margvísleg til að ná hylli þinni sem þetta lest. Gervihnattasjónvarp, útvarp, fundir og hið ritaða mál. Hið ritaða mál mun að mínu mati verða hinn end- anlegi sigurvegari í baráttunni, því flestir menn vilja frið og ró, frið og frelsi þegar erfiðum vinnudegi lýkur og mettun á mötunaríjölmiðlunum er orðin algjör. Því verða prentuð blöð ávallt til staðar til að grípa í til einbeitingar á huganum. Dæmi- sögur em ávallt góðar og mun ég til nánari staðfestingar á gildi hinna frjálsu fjölmiðla grípa til nokkurra í þessari grein. Dæmisaga Hér kemur sú fyrsta. Mikið hefur breyst síðan árið 1968, en einmitt það ár réðu örlögin því að ég var staddur í Austur-Berlín um vikutíma í boði vestræns sendierindreka er þar bjó á þeim tíma. Ég var ekki með „vísa“ í passanum, en með réttum sambönd- um komst ég þó í gegnum „Check- point Charlie“, þannig að vegabréf mitt var tekið og daginn eftir fékk KjaJlariim Friðrik Ásmundsson Brekkan blaðafulltrúi Menningarstofn- unar Bandarikjanna ég það útstimplað á þremur blaðsíð- um í allra handa litum stimplvmi og leyfi til þess að vera í eina viku i borginni sem örlögin höfðu ákveðið að yrði tvískipt. Það vildi til að á þriðja degi dvalar minnar var fimm- tán ára afmæli Berlínarmúrsins. eða „Die Freiheitsmauer" - „Frelsis- múrsins", eins og hann var þá nefndur. Ef til vill heitir hann það ekki lengur nú á tímum „Glasnost- urs“ og blíðu, en svona var þetta samt sem áður. Dagurinn rann upp og allir í fríi, veifandi fánum og klappandi fyrir hermannasknið- göngum, ungliðasveitir í skrúðgöll- um fögnuðu hermönnum og hermennimir fögnuðu unglingummi og allir klöppuðu fyrir frelsismúm- um, sem hafði með tilvera sinni tekist að halda óæskilegum áhrifum frá því að berast austur fyrir í frelsis- paradís verkamanna og bænda. Það er efni í aðra grein að segja frá öllu sem skeði á „hátíðisdag- inn“, mörg voru frægu andlitin og margt furðulegt að sjá þegar litið var aðeins undir og á bakvið heið- ursstúkuna við Alexanderplatz og mun ég ef til vill setja saman skop- sögu um það síðar. Gefa sterka innsýn í ríkjandi ástand En við ætluðum að tala um tján- ingaidrelsi og nú kem ég að einu af litlu atriðuniun sem maðm' verður fyrir í lifinu og gefa sterka innsýn í ríkjandi ástand. þótt atvikin og per- sónuleg kynni séu oft stutt. Ég var staddur í Pergamonsafninu. einu frægasta safninu í Austur-Ber- lín. þar voru frægar styttur og leifar af veggjum Babýlónsborgar. Mörg söfn eru í Austur-Berlín og gæti maður evtt mörgum vikum í að skoða þau. en ég tók þau á hrað- hlaupi. eins og oft vill verða. I Pergamonsafninu vai’ hægt að leigja sér segidband með leiðsögu- spólum, þannig að þú gekkst um safnið imi fimmtíu skref í einu og þá átti maður að staðnæmast hjá skilti og kveikja þar á segulbandinu og líta til hægri eða vinstri eftir því sem röddin á segulbandinu sagði þér að gera. Margir voru með slík tól. en ekki hafði ég þolinmæði i að evða finmi til sex tíimmi í sama safninu á þessum áram. enda stóð vfir „blóma- tíminn" á Vesturlöndimi og það var þá í tísku að vera óþolinmóður. En á göngu minni í safninu stað- næmdist ég hjá dreng á núnum aldri sem heldur á segulbandi og er auk þess að skrifa af miklum eldmóði í stílabók. Ég heilsa honum, hann slekkur á segulbandinu óg leggur pennann inn í bókina og kynnir sig, segist vera í kennaraháskóla rétt hjá Dresden. Ég spyr hvort megi ekki bjóða honum í kaffistofu safnsins. en hann vildi það ekki og leit jafn- fi-amt vel í kringum sig af innbyggð- um ótta við „eftirlitið". I sanuæðum okkar kom eftirfai-andi í ljós. Hann var kennaraefhi og átti að kenna nokkram bekkjardeildum í æfinga- skólanum að hausti og hafði. eftir að hafa sótt um tvisvar. fengið að njóta þess „heiðurs" að fá le\ffi til þess að heimsækja Austur-Berlín á kostnað skóla\ffirvalda. sem greiddu rútuferð fyrir hann auk 10 marka eyðslufjái'. En kvaðirnar vora þær að hann sýndi allar kvittanir. seðil fyrir leigu á segulbandinu. ríitimúða, matarkvittun, gistikvittun. auk þess að hann vrði að leggja fyrir skóla- nefndina hreinskrift af athugasemd- mn síniun og öðra sem hann punktaði niðui' í ferðum sinum á söfnin og sýna fram á hvemig hann ætlaði sér að leggja upp kennsluplan í hinimi \tiisu tímum. sem hann kæmi til með að kenna bekkjardeild- uniun. Skólavfirvöld höfðu greini- lega tímasett heimsókn unga mannsins til Austur-Berlínar. því hann tók að ókyrrast þegar við vor- um búnir að tala saman í hálftíma, því þá var klukkutími í lokun og hann átti eftir að fara í gegnum eitt þúsund ár í mannkynssögunni. Kvaddi ég því þennan eftirminnilega mann og hugleiddi hugmyndaheim þann sem hann bjó í og örlög um stund. Ég gat í frelsi mínu gengið út og kíkt augnablik á hinn heims- i fræga vegg frá Babýlon. en hann ' þrælaði sér í gegnum alla þætti sögu j hans. Ég öfundaði hann að vissu : leyti fvrir þessa stórkostlegu yfirferð. j en samt er hér lítil dæmisaga lun i frelsi til athafna. frelsi til að ákveða ! sjálf og tjá okkur að vild án skipu- j legrar íhlutunar. þótt hún sé ekki i illa meint eins og vai' að nokkru leyti í þessu tilfelli. „Frelsi“ Þá kemui- upp í huga minn fjöl- skylda sem fluttist hingað til lands og bjó um nokkun'a ára skeið. Þau komu til íslands eftfr átta ára dvöl í einu af Afríkm'íkjimimi sem fóra kollsteypu eftir að það öðlaðist „frolsi". Eim’æðislegt stjómarfirír- komulag var tekið upp og nokkurra i manna gerepillt valdaklíka ætlaði að gera allt firír alla á nokkrtmi i mánuðum. Raunin varð sú að ekkert var gert fyrir neinn og landið hrandi næstum því til granna. A þessum stað var og er aðeins eitt dagblað. Stundum kemur „dagblað" þetta út vikulega og ef dísilvélar raforku- stöðvanna era gangfærar þá má he\Ta útvarpsfréttir þær sem stjóm- in skammtar. eins og þær hljóta að vera uppörvandi. Til þess að gera langa sögu stutta. þá var fróðlegt að fi'lgjast með þess- ari fjölskvldu ganga í fyrsta sinn niður Laugaveginn og Austurstræt- ið og hevra köll blaðsöludrengja. sjá Óla hlaupa með blaðsölupokann sinn og hevra glymjandi tónlist úr bílaútvörpum og komast í bókabúð og sjá það geysilega úrval sem hér er fyrir hendi. Þessar tvær dæmisög- ur sýna okkur að við megum passa okkur að verða ekki ófrjáls í hugan- um í öllu frelsinu og úrvalinu og gleyma að hugsa með samanburð í huga. Stærstur hluti mannkyns nýt- ur ekki þess tjáningarfrelsis sem við þekkjum hér á landi og við verðum ávallt að hafa hugfast að fljóta ekki að feigðarósi og glata ef til vill frels- inu vegna sinnuleysis. Friðrik Ásmundsson Brekkan „Hið ritaða mál mun að mínu mati verða hinn endanlegi sigurvegari í báráttunni, því flestir menn vilja frið og ró, frið og frelsi þegar erfiðum vinnudegi lýkur. . .“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.