Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. Iþróttir John Barnes seldur til Uverpool fýrir 55 milljónir Loksins tók Liverpool af skarið og keypti John Bames frá Watford. Eftir langar og strangar viðræður við kappann var loksins gengið frá samningnum í gær. Kaupverðið var 55 milljónir kr. (900.000 pund). Bar- nes hefur leikið 31 landsleik fyrir England og verður honum ætlað það hlutverk að skerpa sókn Liverpqol sem aldrei þessu vant vann ekki til neinna verðlauna í ár. „Það að leika með Liverpool mun bæta mig sem leikmann og auka möguleika mína á alþjóðavett- vangi,“ sagði Bames sem hafði • John Barnes mun klæðast Liver- poolbuningnum á næsta ári. lengst af mestan áhuga á því að leika á meginlandi Evrópu. -SMJ DV-lið 3. umferðar • Þorjírímiu- Þrá- insson. Val. vam- nrmaður # Þórfínnur Hjaitason. KA. markvörður • Heimir Guö- mundsson. ÍA. vamarmaður • Ólafur bóröar- Bon. ÍA. miöjumaö- ur Omwíev míöjú- maðiu* # Guóni Burgs (2). Vái, vamarmaður )4 • Magni Blöndal {2). Valmiöjumaö- ur • Andri Mar- teinsson. KR. miöjumaður • PóturPúturaaon • Jón Grútar (2). KR, sóknar- Jónason (2), Val. maður sóknarmaöur Viðar sigraði annað anð i roð - vann Biynjar í úrslitum íslandsmótsins í snóker • Viðar Freyr Viðarsson með meist- aratitilinn góða. DV-mynd JAK Sigur hjá IBV Vestmannaeyingar sigruðu Fylkismenn 2-1 í Mjólkurbikarn- um í gærkvöldi. Fylkismenn urðu fyrri til að skora og var þar að verki Baldur Bjarnason á 10. mín- útu. Elías Friðriksson jafnaði síðan á 25. mínútu með öruggri vítaspymu. í seinni hálfleik var jafhræði með liðunum en Bergur Ágústsson skoraði sigurmarkið á 75. mínútu eftir þunga sókn. Leik- urinn var mikill þaráttuleikur og sást gott spil inn á milli. -SMJ Viðar Freyr Viðarsson, 23 ára Akur- eyringur, varð Islandsmeistari í snóker annað árið í röð í gær. Þá sigraði hann Brynjar Valdimarsson, 6-1, og komu yfirburðir Viðars á óvart því fyrirfram var Brynjari spáð sigri. „Sigurinn kom mér í sjálfu sér ekk- ert á óvart því að ég hef æft mjög vel og skipulega að undanfömu,“ sagði Viðar eftir sigurinn. Hann segist æfa 4 tíma á dag fyrir mót og er fyrsti maðurinn til að vinna mótið tvö ár í röð. Ekki vildi hann viðurkenna að sigurinn væri óvæntur. „Ég og aðrir Akureyringar áttum alveg von á þessu, annað en sigur kom ekki til greina.“ Þess má geta að Viðar flaug suður til Reykjavíkur um morguninn til að keppa og síðan aftur norður samdægurs með titilinn góða. -SMJ Stapleton tilAjax Ajax hefur nú fundið arílaka Van Basten sem nýverið var seldur til AC Mílanó. Er það enginn ann- ar en írski landsliðsmaðurinn Frank Stapleton sem nú er orðinn 31 árs. Stapleton hefúr leikið með Manchester United á undanföm- um missemm en ekki haldið sinu striki á allra síðustu leikárum. Að öllum líkindum mun Stapleton undirrita tveggja ára samning við Ajax. -JÖG • Trausti Ómarsson var einn besti maður einn Þróttarann. Á þeirri innfelldu fagnar - Unnu Þrótt % Víkingur vann Þrótt í 2. umferð Mjólkur- bikarsins í gær og var sá sigur sanngjarn. Víkingar vom ákveðnari og skæðari og samleikur þeirra var með því besta sem undirritaður hefur séð hjá annarrar deild- arliði á þessu vori. Víkingar tóku forystuna í leiknum um miðjan fyrri hálfleik. Var Trausti Ómars- son þar að verki en hann átti eftir að koma meira við sögu áður en yfir lauk. í síðari hálfleik skoraði hann nefnilega tvívegis, í fyrra skiptið af stuttu færi og í það síðara úr víti. Eina mark Þróttar gerði hins vegar Atli Helgason og var það sérlega glæsilegt, þéttingsfast skot upp í þaknetið utan úr vítateig. Bestir Víkinga vom þeir Trausti og Atli Einarsson. Þá var Jóhann Þorvarðar- son kvikur í vöminni og jafnan fastur fyrir. Atli Helgason var hins vegar bestur Þróttara. Vinna Þórsarar aftur í Reykjavík? - fjórða umferðin hefst í kvöld Fjórða umferðin á Islandsmótinu í knattspymu hefst nú í kvöld með þremur leikjum. Á Hlíðarendavelli í Reykjavik mætast Valsmenn og Þórsarar og hefst viðureign liðanna kl. 20. Valur hefur enn ekki tapað leik á mótinu og er liðið nú í efsta sæti deildarinn- ar. Þórsarar hafa ekki beðið lægri hlut í Reykjavík það sem af er þessu leikári, hafa raunar aðeins spilað þar einn leik, gegn Islandsmeisturum Fram. Þann leik unnu norðanmenn sannfærandi, 3-1. Norðan heiða taka KA-menn ó móti Hafnfirðingum. FH-ingar verma nú botnssætið en em þó til alls líklegir. KA hefur enn ekki sigr- að frammi fyrir áhangendum sínum en hefur hins vegar unnið það afrek í Garðinum gegn Víðismönnum. Leikurinn á Akureyri hefst kl. 20 með sama lagi og rimma þeirra Vals- manna og Þórsara. Á Skaganum glíma heimamenn við Keflvíkinga. Þessi lið eru jöfh að stigum og því er um visst uppgjör að ræða. Bæði hafa unnið tvívegis en beðið lægri hlut einu sinni það sem af er. Þessi leikur hefst kl. 19. -JÖG Stórleikur á Hlíðarenda í kvöld kl. 20.00. VALUR-ÞOR i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.