Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987. 25 Sandkom Bylgjan -um daginn hitabylgjan, nú stuttbylgjan. Stuttbylgjan Nýju útvarpsstöðvarnar eru vinsælt umræðuefni ennþá enda er nýjabrumið ekki farið af þeim. Talsvert er hlustað á þær þótt sumir þykist vera orðnir leiðir á öllu gaulinu sem er þar að auki alveg eins eða svo gott sem á báðum nýj- ustu stöðvunum og nauðah'kt og á rás 2. Smámunasamir hlustendur hafa sér það nú helst til dundurs að telja allar dellurnar sem koma upp í tækni og tali stöðvanna. Að svo komnu máli virðist Bylgj- an slá þar öll met. Sérstaklega eru tæknimistökin tíð, bæði í flutningi á tónlist og fréttum, ekki síst fréttunum. Saman- burður við Stjörnuna er að vísu erfiður í þessu efni þar sem hún er alveg nýfædd og hefur ekki flutt neinar fréttir fram að þessu. Stjarnan virðist hins vegar ná öllu lengra um landið með útsendingu sína en Bylgjan. Að minnsta kosti hverfur Bylgjan á Hellisheiði á meðan Stjarnan endist talsvert aust- ur um Suðurland. Ferðalang- ar á þessum slóðum hafa því fundið nýtt nafn á Bylgjuna og kalla hana Stuttbylgjuna. I strikamynd Fréttir í sjónvarpinu eru meðal vinsælasta fjölmiðla- efnisins eins og fyrri daginn. Langa lengi voru fréttaþulir til þess að lesa fréttirnar og voru yfirleitt svo illa lýstir að undarlegir skuggar léku um þá frammi fyrir alþjóð. Nú koma rendur þvert yfir skjá- inn frá innskotsmyndunum og yfir andlit fréttamannanna sem nú lesa fréttirnar. Það fer svona eftir því hvað þeir eru háir og hvernig þeir sitja hvar þessar rendur lenda. Einna lakast er þegar efri röndin fer fyrir augu fréttamannsins sem verður þá heldur óaðlaðandi fyrir áhorfendur og tæplega mjög ábyggilegur ásýndar. Samkomulag Viðræður um stjórnarmynd- un hér á Islandi eru daglegt fréttaefni og það oft á dag. Fréttamenn eiga auðvitað í > mestu vandræðum með að flytja fréttir af viðræðum sem snúast um það sama aftur og aftur á meðan ekki fmnst grundvöllur til raunverulegr- arstjórnarmyndunar. Því er hvert einasta hálmstrá vel þegið og jafnvel þótt það sé varla nema stúfur. Þá er þekk- ing fréttamannanna á því hvað í rauninni er að gerast afskaplega mistraust og sumir þeirra sjá fréttir í atburðum sem eru nákvæmlega ekkert. Þannig var margsinnis sagt frá því á dögunum að þríflokk- arnir hefðu náð samkomulagi í utanríkis- og umhverfismál- um og mátti helst skilj a það svo að þar með væri að bresta ánýríkisstjóm. Gallinn er sá að enginn vissi til þess að neinn ágreiningur sem máli skipti væri á milli þessara þriggja flokka um þessi málefni. Þar að auki hafa þeir ekki gert samkomu- lag um eitt né neitt. Fréttin var því í rauninni sú að flokk- unum tókst ekki að verða - ósammála um utanríkis- og umhverfismál. Ólafur - ekki maður sem hleypur uppognlður stiga. Hraparekki Hvað gerir Ólafur? Þessi spurning hefur verið ein af þeim sem fjölmiðlar hafa spurt út um allar koppagrundir síð- ustu daga pg jafnvel vikur. Já, hvað gerir Ólafur, ætlar hann að setjast á skrifstofu Sturlu eða ætlar hann ekki að setjast á skrifstofu Sturlu? Svörin hafa allt fram til þessa verið loðin enda er Ólafur Guð- mundsson maðúr sem ekki hleypur upp né niður stiga. Það þýðir ekkert að reyna að gera honum hverft við. Hann myndi nefnilega taka sér um- hugsunarfrest til þess að bregðast við. Þetta vita þeir sem þekkj a Ólaf Guðmunds- son og þeim kemur ekkert á óvart þótt hann sé lengi á leið- inni frá Egilsstöðum til Akureyrar, ekki síst þar sem hann lagði lykkju á leið sína til Reykjavíkur. Ólafur var talinn rauðliði á sokkabandsárum sínum í Kópavogi en hægt og hljótt var hann síðan orðinn ritstjóri kjördæmisblaðs sjálfstæðis- manna á Austurlandi. Þetta er að vísu ekkert óvanalegur þroskaferill hér á landi en nú getur verið að þessi pólitísku tengsl Ólafs við Sverri menntamálaráðherra reynist óyfirstíganlegur þröskuldur á Fræðsluskrifstofu Norður- lands eystra. Kirkjukjallari til leigu Félagsmálaráð og bæjarráð Akureyrar hafa kpmist að þeirri niðurstöðu að útilokað sé að leigja kjallara Glerár- kirkju fyrir dagvist þar sem byggingarnefnd kirkjunnar hafi sett upp allt of háa leigu. Kjallarinn er 790 fermetrar, fokheldur og því óinn.réttaður. Talsmenn bæjarins gefa ekki upp leigukröfu kirkjunnar manna en láta í veðri vaka að þær séu uppi í skýjunum og algerlega óraunhæfar. Þess vegna er nú verið að leita að öðrum kostum. Byggingarnefnd Glerár- kirkju virðist samkvæmt þessu hafa hlaupið yfir þann kafla í Biblíunni þar sem Kristur biður menn að leyfa börnunum að koma til sín og banna þeim það ekki. Kristur minntist áreiðanlega hvergi á neina gjaldskrá í þessu sam- bandi. En það er að vísu orðið dálítið langt síðan Kristur var uppi og líklega vonlaust að hann hafi séð fyrir að kirkja myndi rísa í Glerárhverfi á Akureyri, hvað þá að hún yrði til leigu. Umsjón: Herbert Guðmundsson BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA BÍLAMARKAÐUR DV er nú á fullri ferð Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði. Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum- boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt úrval bíla. Auglýsendur athugið! Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgarblað þurfa að berast fyrir kl. 17 föstudaga. Síminn er 27022. Tilkynning til launa- skattsgreiðenda Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að ein- dagi launaskatts fyrir mánuðina mars og apríl er 15. júní nk. Sé launaskattur greiddur eftir eindaga skal greiða dráttarvexti til viðbótar því sem vangreitt er, talið frá og með gjalddaga. Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn- heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti. Fjármálaráðuneytið Hár- snyrting fyrir alla fjölskv HÁRSNYRTISTOFA LAUGAVBGI27 • S. 26850 on Lru /h i ki BOÐSMOT TAFLFÉLAGS REYKJAVÍKUR 1987 hefst að Grensásvegi 46, mánudag 15. júní kl. 20.00. Tefldarverða sjö umferðireftir Monrad-kerfi þannig: 1. umferð mánudag 15. júní kl. 20.00 2. umferð föstudag 19. júní kl. 20.00 3. umferð mánudag 22. júní kl. 20.00 4. umferð miðvikudag 24. júní kl. 20.00 5. umferð föstudag 26. júní kl. 20.00 6. umferð mánudag 29. júní kl. 20.00 7. umferð miðvikudag 1. júlí kl. 20.00 Öllum er heimil þátttaka í boðsmótinu. Umhugsunartími er 1 'A klst. á fyrstu 36 leikina en síðar Vi klst. til viðbótar til að Ijúka skákinni. Engar biðskákir. Skráning þátttakenda fer fram í síma Taflfélagsins á kvöldin kl. 20.00-22.00. Lokaskráning verður sunnu- dag 14. júní kl. 20.00-23.00. Taflfélag Reykjavíkur, Grensásvegi 44-46, Reykjavík. Símar: 8-35-40 og 68-16-90. SUMARSKÓR Laugavegi 1 — Sími 1-65-84

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.