Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1987, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 1987.
28
Sviðsljós
Ölyginn
sagði...
Karl Bretaprins
ku hafa staðið sig með miklum
sóma við virðulega athöfn þar
sem hann var útnefndur heið-
ursdoktor í bókmenntum við
háskólann í Bologna á Ítalíu.
Prinsinn, sem er mikill bók-
menntaunnandi, hélt langa og
hjartnæma ræðu sem fjallaði
m.a. um starfsemi ítölsku and-
spyrnuhreyfingarinnar í seinni
heimsstyrjöldinni og þótti hún
flutt af mikilli ræðusnilld. Á
myndinni má sjá prinsinn þar
sem hann flytur ræðuna af
áhersluþunga og með alvöru-
svip.
Mario Oliver
heitir hann sá sem þessa dag-
ana er að slá sér upp með
Stefaníu Mónakóprinsessu.
Hann er 37 ára næturklúbb-
seigandi í Los Angeles og fer
alveg óstjórnlega í taugarnar
á föður unnustunnar, Rainier
gamla fursta. Rainier er enda
fyrir löngu búinn að fá sig
fullsaddan af skrautlegum
karlamálum örverpisins endá
eru þau búin að vera helsta
umfjöllunarefni slúðurdálka
um allan heim undanfarin ár.
Þær sögusagnir ganga einnig
að Stefanía sé ekki kona ein-
sömul og eigi Mario heiðurinn
af því. Mario neitar því hvorki
né játar en fer undan i flæm-
ingi. Hann segist ekkert vilja
staðfesta vegna tillits til hugs-
anlega tilvonandi tengdaföð-
ur.
Andy Ridgeley,
fyrrum annar helmingur
hljómsveitarinnar Whaml,
hefur látið fara lítið fyrir sér
eftir að hljómsveitin hætti.
Nýjustu fréttir herma að hann
eigi nú við mikið þunglyndi
að stríða eftir að kærastan,
Donia Fiorentino, gaf hann
upp á bátinn. Heyrst hefur að
kappinn ætli að yfirgefa Eng-
land og reyna fyrir sér annars
staðar. Þannig sé húsið hans
í London komið á sölu og
hann í þapn veginn að festa
kaup á villu í Hollywood sem
áður var m.a. I eigu Gary Coo-
per.
Þotu-
liðið
þaut
norður
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Helsta fyrirfólk í flugini^ brá sér
með þotu Flugleiða. Heimfara. norð-
ur til Akurevrar á hátíðarfund
Flugleiða sem haldinn var í tilefni
af fimmtíu ára atvinnuflugi á Islandi
þann 3. júní sl. Yfir hundrað manns
kornu með þotunni og tók ferðin
norður ekki nema 25 mínútur. Sem
kunnugt er var þetta tíðindamikill
hátíðarfundur. kvittað var undir
kaup á tveimur nýjum 158 sæta Bo-
eing-þotum og jafnframt tryggður
kaupréttur á tveimur til viðbótar.
Bæjarstjórn Akurevrar hélt myndar-
legt hanastél fvrir gestina og urn
kvöldið var snæddur afmælismatur
og skálað fyrir fimmtíu árunum.
.
^ ::
Steingrímur Hermannsson og kona hans, Edda Guðmundsdóttir, stigu fyrst frá borði við komuna til Akureyrar.
Hitt þotuliðið fylgdi fast á eftir.
Kaupin innsigluð með traustu handtaki.
Borge Boeskov, framkvæmdastjóri Boeing í Evrópu, og Siguróur Helgason,
forstjóri Flugleiða, kvitta fyrir kaupin. Móðir Borge er íslensk og ólst hannn
upp í Mosfellssveit til 10 ára aldurs. Siðan er hann altalandi á íslensku.
Hjónin Sveinn Sæmundsson, sölustjóri Flugleiða, og María Jónsdóttir ræða
við hjónin Sólveigu Ólafsdóttur og Hannibal Valdimarsson. Hannibal var
einmitt samgönguráðherra þegar Flugfélag ísland og Loftleiðir sameinuðust.
TF-Örn var fyrsta flugvél Flugfélags Akureyrar sem síðar varð Flugfélag
islands sem aftur varð hluti af Flugleiðum. Þar með er hún fyrsta flugvél
Flugleiða. Örn Ingi, myndiistarmaður á Akureyri, málaði þetta frábæra
málverk af TF-Erni. Akureyrarbær gaf Flugleiðum málverkið á hátíðarfundin-
um.
Gunnar Jónasson, en hann var annar þeirra sem smíðuðu flugvélina Ögn-
ina árið 1933, hlustar hér á Hörð Sigurgestsson, forstjóra Eimskips og
stjórnarmanna í Flugleiðum.
Hressilegt háloftalið, Kristin Ingimundardóttir, Borge Boeskov, fram-
kvæmdastjóri Boeing i Evrópu, og hjónin Ingibjörg Olsen og Kristinn Olsen.
Kristinn er sem kunnugt er einn af frumkvöðlum flugsins á íslandi og stofn-
andi Loftleiða.