Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987. Fréttir Stefnuyfirlýsing væntanlegrar ríkisstjómar: Stóðugt gengi krónunnar og hallinn jafnaður á 3 ámm „Helstu verkefni ríkisstjórnar- innar verða að stuðla að jafnvægi, stöðugleika og nýsköpun í efna- hags- og atvinnulífi, bæta lifskjör og draga úr verðbólgu." Svo segir í fyrstu málsgrein stefnuyfirlýsingar sem Sjálfstæðis- flokkur, Framsóknarflokkur og Alþýðuflokkur hafa náð samkomu- lagi um. Meginatriði í stefnu ríkisstjórnarinnar og þingmeiri- hluta hennar eru í stefnuyfirlýsing- unni talin upp þessi: „Gengi krónunnar verði haldið stöðugu, stefnt að hallalausum við- skiptum við útlönd og lækkun erlendra skulda í hlutfalli við þjóð- arframleiðslu. Jöfnuði í ríkisfjármálum verði náð á næstu þremur árum. Tekju- öflun ríkisins verði gerð einfaldari, réttlátari og skilvirkari. Útgjöld rikisins verði endurskoðuð þannig að gætt verði fyllsta aðhalds og sparnaðar og þau vaxi ekki örar en þjóðarframleiðsla. Skatttekjur nýtist sem best í þágu almennings. Eftirlit með framkvæmd skatta- laga verði bætt. Einföldun við öflun ríkistekna mun sjálfkrafa draga úr möguleikum til skattsvika og stuðla að sanngjarnari greiðsl- um einstaklinga og fyrirtækia til sameiginlegra þarfa. Stuðlað verði að eðlilegrí byggðaþróun í landinu og varð- veislu auðlinda lands og sjávar og skynsamlegri hagnýtingu þeirra. Fylgt verði byggðastefnu, sem byggist á atvinnuuppbyggingu, átaki í samgöngumálum, eftingu þjónustukjarna og bættri fjár- magnsþjónustu heima í héraði. Fylgt verður sjálfstæðri utanrík- isstefnu sem tryggir öryggi lands- ins og fullveldi þjóðarinnar. Stefnan mótast af þátttöku íslands í norrænni samvinnu, starfi Sam- einuðu þjóðanna og varnarsam- starfi vestrænna ríkja. í samvinnu við aðila á vinnu- markaði verður unnið að því að auka framleiðni þannig að unnt sé að stytta vinnutíma og bæta kjör hinna tekjulægstu. Kjör kvenna og aðstaða barna verði bætt og áhrif kvenna í þjóðlíf- inu aukin. Komið verði á samræmdu lífeyr- iskerfi fyrir alla landsmenn. Undirstöður samfélags mannúðar og menningar verða treystar, stuðl- að verður að jafnari skiptingu lífskjara og bættri aðstöðu aldr- aðra og fatlaðra. Fjárhagsgrundvöllur húsnæðis- kerfisins verði treystur þannig að sem flestir geti eignast húsnæði. Valfrelsi verði aukið í húsnæðismálum. Gerðar verða breytingar á stjóm- kerfi til að gera það virkara. Lagður verður traustur grunnur að samfélagi framtíðarinnar með því að efla íslenska menningu, menntun, rannsóknir og visindi.“ -KMU Kúfiskveiðiskipið Viili Magg í Reykjavíkurhöfn. DV-mynd S Kúfiskrannsóknir eru enn í gangi Kúfiskrannsóknir þær, sem hófust í vor, eru enn í gangi. Mikil og góð kúfiskmið fúndust í Faxaflóa og sömu- leiðis í Breiðafirði. Er talað um feiknarlega mikið magn á þeim slóðum sem rannsakaðar hafa verið. Nú em tvö sérhönnuð kúfiskveiði- skip hér á landi, Anna í Stykkishólmi og Villi Magg frá Suðureyri. Villi Magg var hér í Reykjavíkurhöfh í vik- unni og vakti hinn sérhannaði kúfisk- veiðibúnaður hans mikla athygli. Skipið var smíðað í Hollandi og kom til landsins í maí. -S.dór Enginn knapi öruggur enn Síðari dagur úrtöku fyrir heims- meistaramót í hestaíþróttum ís- lenskra hesta fer fram í dag i Víðidalnum í Reykjavík. Heims- meistaramótið verður haldið í Austurríki dagana 11.-16. ágúst í Austurríki. í Igær máttu knapar koma með þrjá'hesta, en í dag verða þeir að einskorða keppni sína við einn hest. Eftir fyrri keppnisdaginn var enginn knapi ömggur um að komast áfram því besti árangur báða dagana er lagður saman og þannig fundnir út sigurvegarar. Sendir verða sjö keppendur í landsliði ís- land og að auki fjögur kynbótahross sem verða að ná lágmarkseinkunn 7,90 stigum. Mótið hefst í dag með keppni í fjórum gangtegundum. Mikill taugatitringur er meðal knapa sem keppa að því að fara út og er mikið reiknað. Búast má við hörkukeppni og virðist áhugi áhorf- enda á mótinu vera mikill. Fiskverösdeilan á Vestfjörðum: Samkomulag um helgina? Talið er lfklegt að samkomulag um fiskverð á Vestfiörðum náist um helgina. Á mánudaginn kemur renn- ur út sá frestur sem sjómenn gáfu fiskverkendum til að endurskoða afetöðu sína til 10 % fiskverðs- hækkunar sem þeir ákváðu einhliða. Hafi samkomulag ekki tekist fyrir mánudag segjast sjómenn ekki róa. Allur flotinn kemur inn á sunnu- dag og mánudag vegna þess að mánudagar eru svo kallaðir „gáma- dagar“ á Jsafirði. Þá kemur skip og tekur þann fisk sem selja á út í gám- um. Talið er að fiskkaupendur ætli áfram að halda sig við 0,8 % kúrfuna í stað 0,5% sem sjómenn vilja fá aftur, en prósentuhækkunin átti sér stað um síðustu áramót. Þessi kúrfa, sem menn kalla svo, er sú verðlækk- un sem verður á fiski eftir því sem hann er minni miðað við ákveðna þyngd sem fiskverðið er miðað við. Ekki er vitað hvort sjómenn sætta sig við einhveija verðhækkun ef pró- sentutala kúrfimnar lækkar ekki. í gær hafði ekki verið boðað til fundar með deiluaðilum en búist er við að hann verði haldinn á sunnudag. — -S.dór Skuttogaramir gera það gott Regína Thorarensen, DV, Eskifirði: Skuttogaramir frá Eskifirði, Hólma- nes og Hólmatindur hafa, gert það gott sem af er þessu ári. Hólmanesið var komið með 2.030 tonn að landi í lok vertíðar. Brúttóverðmætið hjá Hólmanesinu er44 milljónir. Hólma- tindur hefur landað 1.960 tonnum og er brúttóverðmætið þar 43,8 millj- ónir og um 60% aflans er þorskur. Hólmatindur á eftir um 700 tonn af sínum þorskkvóta en Hólmanesið á um 800 tonn óveidd. Báðir togaram- ir veiða á sóknarmarki. Bráðabirgðalög væntanleg um nýja skatta: Leggja 10% sölu- skatt á matvöru - aðra en kjöt, mjölk, fisk, grænmeti og ávexti Með 10% söluskatti á matvöm, Auk matvörunnar fá ó sig 10% að þyngd, leggjast þvi 4.000 krónur. aðra en kjöt, mjólk, fisk, grænmeti söluskatt aðfóng veitingahúsa og Hækkun kjamfóðurgjalds um 4 og ávexti, hyggst væntanleg ríkis- mötuneyta frá 1. október og endur- krónur á kíló er ætlað að skila 80 stjóm innheimta 250 milljónir króna skoðendur og teiknistofur frá 1. milljónum króna í ór en 200 milljón- af landsmönnum fram að áramótum. september. um króna á árinu 1988. Þessari skattlagningu er ætlað að Þessum aukna söluskatti er ætlað Loksmunuhækkaðríkisábyrgðar- gefa 600 milljónir króna á næsta ári. að skila í kassann alls 605 milljónum gjald og lántökugjald af erlendum Skattheimtan, sem ráðist verður í króna fram að áramótum eða um lánum færa ríkissjóði 90 milljónir með bráðabirgðalögum þegar eflir 60% af hinni auknu skattheimtu. króna á þessu ári en 230 milljónir að hin nýja ríkisstjóm sest að völd- Næststærsti liðurinn verður bíla- króna á því næsta. um í næstu viku, ó að skila ríkissjóði skatturinn. Með honum á að inn- Á móti er gert ráð fyrir að 100 1.030 miUjónum króna fram að ára- heimta 200 mUljónir króna af milijónum króna verði varið til að mótumogyfir 3.000 miUjónum króna bifreiðaeigendum fram að áramótum hækka 'tryggingabætur og öðrum á árinu 1988. en 600 milljónir króna ó nsesta ári. 100 miUjónum til mUdandi aðgerða Fjórir liðir fá á sig 25% söluskatt. Lagðar verða 4 krónur á hvert vegna söluskatts á matvælum. Það eru tölvur, farsímar, auglýs- kíló bílsins en þó að hámarki 10.000 -KMU ingastofur og sólbaðsstofur. krónur. Á meöalbíl, sem er 1.000 kíló Aukafjárveitingum beitt með vafasömum hætti - Sverrir Hermannsson iðinn við kolann Aukafjárveiting til íslensku óper- unnar, sem veitt var að undirlagi Sverris Hermannssonar menntamála- ráðherra, hefur vakið athygli manna og umræður um hver tilgangurinn sé með heimildum til fjármálaráðherra um aukafjárveitingar. Þeim embættismönnum og alþingis- mönnum, sem rætt var við í gær, bar saman um að aukafjárveitingar væru heimilar ef um væri að ræða viðbót vegna breyttra forsendna, vanáætl- ana, leiðréttinga eða bráðnauðsyn- legra aðgerða. Staðreyndin er hins vegar sú áð ráð- herrar hafa, með tilstilli fjármálaráð- herra, notað heimildir til aukafjár- veitinga til fyrirgreiðslu til öflugra hópa eða stuðningsaðila. Þar er þessi ríkisstjóm engin undantekning. Sverrir Hermannsson menntamála- ráðherra hefur vakið sérstaka athygli fyrir að hafa beitt aukafjárveitingum nokkrum sinnum mjög hressilega og raunar, að því er margir telja, með nokkuð vafasömum hætti. Frægasta dæmið em kaup ráðher- rans á húseignum Mjólkursamsölunn- ar við Laugaveg fyrir Þjóðskjalasafn íslands. Raunar bámst af því fregnir að Þjóðskjalasafhið væri þegar búið að tryggja sér leiguhúsnæði og greiða fyrirfram í nokkum tíma en það virt- ist ekki breyta neinu. Þessi kaup ráðherrans vöktu óánægju, hversu þörf sem þau vom, og þótti mjög óeðlilegt að beita auka- fjárveitingum með þessum hætti. Alþingi hefúr fjárveitingavald á sinni hendi og ekkert þótti réttlæta að ráð- herrann fengi beitt heimild til aukafj- árveitingar í þessum tilgangi. Þá olli afgreiðsla ráðherrans á mál- efnum Kvikmyndasjóðs íslands mikilli gremju meðal fjárveitinganefndar- manna. í lánsfjárlögum fyrir 1987 var kveðið á um það að framlag til Kvik- myndasjóðsins skyldi vera mun lægra en gert er ráð fyrir í lögum um Kvik- myndasjóð. Þessi ókvörðun var umdeild og með- al annars kom Pálmi Jónsson, formað- ur fjárveitinganefiidar og flokksbróðir ráðherrans, fram í sjónvarpi og varði þennan mikla niðurskurð á ráðstöfún- arfé sjóðsins. Stuttu seinna bárust boð frá menntamálaráðuneytinu. Sverrir ákvað, með samþykki fjármálaráð- herra, að framlagið til Kvikmynda- sjóðs yrði margfalt það sem áður hafði verið ákveðið. Þetta kom flatt upp á fjárveitingamenn og þar á meðal Pálma sem nýlega hafði varið niður- skurðinn. Síðasta dæmið er svo íslenska óper- an sem öllum ber saman um að sé þarft verkefni en alls ekki eðlilegt við- fangsefhi varðandi aukafjárveitingar. Þessi þrjú dæmi kosta ríkissjóð hátt í tvö hundruð milljónir króna. í lista yfir aukafjárveitingar menntamálaráðuneytisins í ráðherra- tíð Sverris kennir margra grasa. Ein sú sérkennilegri er 8 milljóna króna aukafjárveiting til aðalskrifetofu menntamálaráðuneytisins sem skýrð er: „Greiðsluerfiðleikar á árinu 1986.“ Sverrir hafði oft uppi stór orð og fyrir- ætlanir um niðurskurð sem runnu stundum út í sandinn. Að lokum má benda á nýlega frétt í DV þar sem skýrt er frá því að ekki fáist aukafjárveiting til kaupa á björg- unargöllum fyrir áhöfn skipa Ha- frannsóknastofnunar sem kosta um 1 milljón króna. -ES

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.