Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987.
5
Fréttir
Islenskur listamaður
vekur athygli í Belgíu
Kiistján Beinburg fréttaiitaii DV í Belgíu;
Myndlistamaðurinn Pétur Bjarnason,
sem er á öðru ári í besta myndlista-
skóla Belgíu og jafiiframt þeim erfið-
asta, Hoger institute, sem er í
Antwerpen, hlaut í vikunni viður-
kenningarskjal og peningaverðlaun
frá skólanum. Það voru aðeins 12 nem-
endur sem fengu verðlaun og var
íslendingurinn einn af þeim og jafn-
framt eini útlendingurinn. Pétur er á
öðru ári og mun hann ljúka námi í
skólanum eftir eitt ár.
í Hoger Institute, sem er hluti af
stærri skóla, eru um 60 nemendur.
Eftir því sem best er vitað er Pétur
eini Islendingurinn sem sótt hefur
þennan skóla. Þess má geta að Pétur
kenndi við Myndlista- og handíðaskól-
ann í Reykjavík í tvö ár en fór síðan
í framhaldsnám til Þýskalands þar sem
hann stoppaði stutt við, aðeins eitt ár,
og hóf síðan nám í Antwerpen. Pen-
ingaverðlaun þau, sem Pétri voru
veitt, voru til minningar um De Gro-
ote og eru veitt úr klúbbi sem nefnist
Club XII og gefur árlega viðurkenn-
ingu til tólf nemenda. Pétur fékk
fallegt skjal með peningaverðlaunun-
um og voru þrjú verka hans sett á
sérstaka sýningu þeirra tólf nemenda
sem hlutu verðlaun. En undanfarið
hefur verið sýning í gangi með árs-
verkum nemenda skólans.
Þingholt er ekki stórt hús en kærkomin gjöf fyrir sextugt verkalýðsfélag
DV-mynd KAE
Afmælisgjöfin var hús
Fyrir um það bil ári átti Verkalýðs-
og sjómannafélag Tálknafjarðar sex-
tugsafmæli og var haldið upp á það
með pompi og prakt. Eins og venjan
er á slíkum merkisafmælum bárust
afmælisbaminu gjafir og ein gjöfin var
heilt hús. Það var Tálknafjarðar-
hreppur sem gaf húsið en það nefnist
Þingholt og var byggt fyrir 1950.
Þingholt var áður fyrr bóndabær og
hafði ekki verið búið þar um nokkum
tíma. A því áiá, sem liðið er, hefur
húsið verið endurbyggt að innan og
meira stendur til. Sagði Brynjólfur
Gíslason, sveitarstjóri á Tálknafirði,
að verkalýðsfélagið stefndi að því að
skapa í húsinu skemmtilega félagsað-
stöðu.
Galli á gjöf Njarðar
Sá galli er þó á gjöf Tálknarfjarðar-
hrepps að landið, sem Þingholt stend-
ur á, er væntanlegt byggingárland
hreppsins í framtíðinni. „Gjöftn er með
því fororði að húsið verði rýmt með
einhveijum fyrirvara ef byggt verður
þama og þá er einkum höfð í huga
kirkjubygging ef svo skyldi fara að
kirkja yrði byggð inni í bænum ein-
hvem tímann i ótilgreindri framtíð,"
sagði Brynjólfur.
Sláturhúsum fækkað
um 63 prósent?
„Afkastageta sauðfjársláturhús-
anna er of mikil miðað við þann fjölda
fjár sem fyrirsjáanlega verður slátrað
hér á landi á næstu árum. Sömuleiðis
er meirihluti húsanna á undanþágu-
leyfum frá yfirvöldum vegna ófull-
nægjandi ástands samkvæmt heil-
brigðiskröfum," em meginniðurstöður
nefhdar sem landbúnaðarráðherra
skipaði árið 1985 til að kanna rekstrar-
gmndvöll sláturhúsa og gera tillögur
um hagræðingu í rekstri þeirra.
Nefndin hefur skilað ítarlegri álits-
gerð til ráðuneytisins, sem byggð er á
tæknilegri úttekt á öllum sláturhúsum
á landinu. 1 niðurstöðum hennar kem-
ur einnig fram að kostnaður við að
koma þeim sláturhúsum í lag, sem em
í ófullnægjandi ástandi, sé slíkur að
þær fjárfestingar myndu ekki skila sér
í náinni framtíð. Fjöldi húsanna skapi
vandamál í heilbrigðisskoðun þar sem
dýralæknar em mun færri en húsin
og slátmn oftast á sama tima alls stað-
ar.
Nefndin gerir því þá tillögu að slát-
urhúsum verði fækkað úr 49 í 18 á 5
árum. Við það muni verða um 40%
aukning slátmnar í þeim húsum sem
áfram störfuðu og meðalnýtingartími
þeirra húsa lengjast úr 19 dögum í 26.
-JFJ
EskHjörður:
Borgar 37 krónur
fyrir þorskkílóið
Regina Thoraiensen, DV, Eskifirði:
Mikið athafnalíf er á Eskifirði en ekki
þrældómur eins og á árum áður þegar
verið var að byggja upp atvinnulífið,
þegar lífið á Eskifirði snerist um kart-
öflur.
Atli V. Jóhannesson byrjaði í fyrra-
vor að taka á móti fiski úr trillunum.
Hann var togarasjómaður og fór í land
og setti upp atvinnurekstur og gengur
vel. Hann borgaði í fyrra 27 krónur
fyrir þorskinn upp úr sjó og borgaði
jafnt fyrir smáfisk sem stórþorsk. Nú
borgar hann 37 krónur fyrir kílóið en
frystihúsið borgar talsvert minna. Þá
borgar Atli 16 krónur fyrir undirmáls-
fisk sem er minni en 50 sentímetrar
að lengd.
ATBURÐARÁS
KJÖRBÓKARINNAR ER
AUIAF JAFN SPENHANM:
KJÖRBÓKAREKENDUR
FENGU RÚMAR 60 MRJJÓNIR
NÚ UM MÁNADAMÓTIH
\
Kjörbókareigendur hafa gilda ástæðu til þess að
vera ánægðir með uppáhaldsbókina.
Nú um mánaðamótin fengu þeir greiddar rúmar
60 milljónir I uppbót á innstæður sínar fyrir síóustu
3 mánuði vegna verðtryggingar-
ákvæðis Kjörbókarinnar.
Auk þess lögðust vextir.við allar
Kjörbókarinnstæður 30. júní síðastliðinn.
Nafnvextir Kjörbókar eru 20% á ári.
1. þrep (16 mánuðir) 21,4%
2. þrep (24 mánuðir) 22%
Svo má ekki gleyma því
að Kjörbókin er óbundin.
Kjörbók Landsbankans er góð bók fyrir
bjarta framtíð.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna