Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 30
30
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987.
Fréttir
Bensínhækkunin:
Orsökin erlendar
verðhækkanir
- segir formaður Verðlagsráðs
Bensín- og gasolíuhækkunin, sem varð
nú um mánaðamótin, stafar af erlend-
um verðhækkunum, samkvæmt
upplýsingum sem DV fékk hjá Sveini
Bjömssyni, formanni Verðlagsráðs.
Svo sem kunnugt er hækkaði lítrinn
af bensíni úr 30,60 krónum í 31 krónu
og gasolíulítrinn úr 7,70 í 8,20 krónur.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
fékk hjá Gunnari Þorsteinssyni hjá
skrifstofú verðlagsstjóra hefúr verðlag
verið að hækka erlendis á þessum
vörutegundum og verðhækkunin nú
væri meðalverð birgða sem til eru í
landinu. Mismunandi er hvað einstak-
ir farmar af bensíni og olíu kosta þegar
kaup eru gerð, en í innkaupi er miðað
við verð á Rotterdammarkaði. -ój
Akureyri:
„Stálfingurinn"
mætir til leiks
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
Margir sterkir munu taka þátt í
keppninni um hver sé sterkasti maðui'
Norðurlands sem hefst á Akureyri í
dag. Keppninni svipar að flestu leyti
til keppninnar um sterkasta mann
heims, nema auðvitað vantar Jón Pál,
enda er hann ekki Norðlendingur. En
Hluti krakkanna i unglingavinnunni á Patreksfirði ræður ráðum sínum hvernig
eigi að haga áframhaldi grænnar byltingar. DV-mynd KAE
Unglingavinnan
í fullum gangi
„stálfingurinn" svonefiidi, Gunnlaug-
ur Pálsson, Siglufirði, tekur þátt í
keppninni ásamt Flosa Jónssyni og
Emi Traustasyni sem er bróðir „heim-
skautabangsans" Víkings Traustason-
ar. í keppninni verður meðal annars
hlaupið upp kirkjustöppumar með 50
kílóa mjölsekk á bakinu.
„Það er æðislegt að vera í unglinga-
vinnunni héma og við verðum að
vinna hér í allt sumar,“ sögðu hressir
krakkar í unglingavinnunni á Pat-
reksfirði. Þeir sögðust tyrfa, slá, raka
og mála og gera yfirhöfuð allt sem til
félli í því augnamiði að gera bæinn
fegurri.
„Þeir sem eru 15 ára fá 178 krónur
á tímann en þeir sem em yngri fá 128
krónur og við vinnum frá 8-5 en stund-
um er hluti hópsins í sundi,“ upp-
fræddu krakkamir blaðamann DV.
Þeir sögðu starfið ekkert letilíf, nóg
væri að gera til að Patreksfjörður
gæti alltaf verið augnayndi allra sem
þar byggju eða kæmu og þau drógu
heldur ekki af sér við vinnuna.
-JFJ
„Ekki gat það verið verra“
Þegar Stefán Valgeirsson alþingis-
maður frétti að Þorsteinn Pálsson
væri búinn að fá umboð til þess að
mynda ríkisstjóm og hvemig verka-
skipting væri fyrirhuguð á milli stjóm-
arflokkanna þá er sagt að hann hafi
haft þetta að segja um niðurstöðuna:
Ekki gat það verið verra
valdið sett í hendur krata
og Þorsteinn Pálsson hæsti herra.
Hörmung hvað þeir Framsókn plata.
Flokksræðið á fremsta palli
frjálshyggjan ei kann sér læti.
Þeir sem hlýða hveiju kalli
komast nú í valda sæti.
Eskifjörður:
Gott handfærafiskirí
Regina Thoiarensen, DV, Eskifiröi:
Það hefur verið gott handfærafiskirí
í vor og sumar en langt á miðin,
tveggja tíma stím. Nú em fleiri en
Atli famir að taka á móti fiski, Ási
Elíasson og Gylfi Eiðsson, en þeir em
með sína móttökuna hvor. Ási var
búinn að fá 21 tonn í fyrradag, en
þeir fóm að taka á móti fiski seinni-
partinn í vetur. Þeir verka allt í
tandurfisk eins og Atli og má fara að
pakka fiskinum inn eftir 5 vikur. Svo
er fiskurinn sendur á brettum út og
fór fiskur frá þeim síðast í fyrradag.
Allur þorskurinn er verkaður í tandur-
fisk. Eg óska þessum ungu athafna-
mönnum allra heilla í starfi.
Hinhliðin
• Eirík Jónsson, fréttastjóra á Stjörnunni, langar til að eignast barn fyrir áramót.
„Kynntist konunni á
ritstjómarfundi eld-
snemma um morgun“
- segir Eiríkur Jónssonf fréttastjóri Stjörnunnar
Það var á fyrstu mánuðum
þessa sumars að menn hér á
ritstjómarskrifstofúm DV
tóku að greina breytingar á
venjulegu háttemi Eiríks
Jónssonar blaðamanns. Þessi
annars hressi og hugljúfi
penni gerðist ókyrr og dag-
legaa mátti lesa ný og ný
leyndarmál úr andliti piltsins.
Ekki leið á löngu þar til
ástæðumar lágu á borðinu.
Eiríkur hvarf úr blaðamanns-
starfinu á DV og var ráðinn
fréttastjóri á nýjustu útvarps-
stöð landsmanna, Stjömunni.
Eiríkur er gamalreyndur jaxl
í fréttamennsku og líflegar
fréttir Stjömunnar hafa þegar
vakið athygli margra og þeir
sem til þekkja kenna þar
handbragð Eiríks Jónssonar.
Þessi eldhressi fréttastjóri
sýnir lesendum DV á sér hina
hhðina að þessu sinni og fara
svör hans hér á eftir:
Fullt nafii: Eiríkur Jónsson.
Aldur: 34 ára.
Fæðingarstaður: Roskilde,
Danmark.
Maki: Katrín Baldursdóttir.
Böm: Hanna, 7 ára, og Lo-
vísa, 7 mánaða.
Bifreið: Lada Station, rauður
með laust framhjól.
Starf: Fréttastjóri.
Laun: Leyndarmál eins og hjá
ráðherrunum.
Helsti veikleiki: Feimni og
hvimleitt þunglyndi.
Helsti kostur: Meðfætt skop-
skyn og bjartsýni.
Hefurðu einhvem tímann
unnið í happdrætti eða því-
líku? Ég vann einu sinni
bangsa í tívolí en þurfti
Umsjón:
Stefán
Kristjánsson
að skilja hann eftir því hann
komst ekki inn í strætisvagn.
Uppáhaldsmatur: Kaffi, rún-
stykki og sígaretta.
Uppáhaldsdrykkur: Viskí í
hófi.
Uppáhaldsveitingahús: Da
Fino á Ítalíu.
Uppáhaldstónlist: Bandarí-
skir slagarar.
Uppáhaldshljómsveit: Big
Trouble.
Uppáhaldssöngvari: Dean
Martin.
Uppáhaldsblað: Politiken.
Uppáhaldstímarit: Þetta hjá
tannlækninum mínum.
Uppáhaldsíþróttamaður: Sig-
tryggur glímukappi.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Kristín Kvaran.
Uppáhaldsleikari: Robert
Mitchum.
Uppáhaldsrithöfundur: Dan
Turell.
Besta bók sem þú hefur lesið:
Hærverk eftir Tom Christ-
iansen.
Hvort er í meira uppáhaldi
hjá .þér, Sjónvarpið eða Stöð
2: Þægilegra að horfa á ríkis-
sjónvarpið þegar líður á kvöld
vegna þess að ég á ekki afr-
uglara.
Hver útvarpsrásanna finnst
þér best? Stjaman.
U ppáhaldssj ónvarpsmaður:
Helgi E. Helgason.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón
Axel Ólafsson, sá eini á
heimsmælikvarða.
Hvar kynntist þú eiginkon-
unni? A ritstjómarfundi hjá
DV, eldnemma um morgun.
Áhugamál: Mannlíf, dýralíf,
fjölskyldan og ég sjálfur.
Fallegasti kvenmaður sem þú
hefur séð: Konan mín seint á
kvöldin og snemma á morgn-
ana. Ég er ekki heima á
öðrum tímum.
Hvaða persónu langar þig
mest til að hitta? Dóttur mína
í kvöld.
Fallegasti staður á íslandi:
Höfnin á Reyðarfirði í logni.
Hvað ætlarðu að gera í sum-
arfríinu? Ég er búinn að fara
til Italíu í brúðkaupsferð.
Eitthvað sérstakt sem þú
stefhir að á þessu ári: Að gera
Stjörnufréttir.. .skínandi
fréttir.. .að ómissandi þætti í
daglegu lífi allra landsmanna
fyrir áramót. Svo langar mig
til að eignast nýtt bam með
konunni minni fyrir
áramót.. .hvaða mánuður er
núna... ?
-SK