Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Blaðsíða 9
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987.
9
Ferðamál
Þegar þú ert
í Rom...
„Þegar þú ert í Róm skaltu gera
eins og Rómverjamir,“ er gamal-
þekkt orðtæki. Þetta getur hins
vegar orðið nokkuð kostnaðarsamt
ef ferðalangar fara að dæmi inn-
fæddra og leggja bílum sinum
ólöglega.
Sektir hafa verið þrefaldaðar til
þess að koma í veg fyrir að bílum
sé lagt ólöglega. Þoir sem láta það
sem vind um eyru þjóta eiga á hættu
að verða sektaöir um 36 þúsund lírur
sem jafhgildir rúmlega 1000 kr. ís-
lenskum.
Það er nú kannski hægt að lifa
það af en verra er ef bíllinn þinn er
dreginn í burtu, Þá verðurðu að
endurheimta hann frá lögreglunni
og greiða nærri 4,500 kr. lausnar-
gjald. -A.BJ.
Hvert liggur leiðin
í sumarfríinu?
Aðalsumarleyfistíminn stendur
yfir núna. Við forvitnuðumst um fyr-
irætlanir fólks um hvað það ætlaði
að gera í sumarfríinu. Sumir líta til-
veruna björtum augum og auðga þá
sem í kringum þá eru. Aðrir eru dauf-
ir í dálkinn og sjá fátt eitt nema
leiðindi. En hvernig er hægt annað
en að vera glaður og kátur í dásam-
lega góðu veðri? Við hittum þessa
vegfarendur á Lækjartorgi í sólinni.
DV-myndir S/-A.BJ.
Kristín Pétursdóttir garðyrkjufræð-
ingur: Ég ætla að halda vestur á firði
og skoða Vestfirðina. Nei, ég ætla
ekki með ferðafélagi, fer með nokkr-
um vinum og ætlum við að ferðast á
jeppa. Ætli þetta verði ekki svona
hálfsmánaðarferð.
Eysteinn Jónsson, fyrrverandi ráð-
l'erra: Það er óráðið hvert halda
s íal. En það verður innanlands þeg-
ar farið verður. Já, með einhverjum
úr fjölskyldunni, ég fer eitthvað með
þeim, þetta er svo stór fjölskylda.
Helgi Ásmundsson, gerir ekki neitt,
en er ellilífeyrisþegi: Ég ætla ekki að
fara neitt, ekki nokkurn skapaðan
hlut. Jú, ég náttúrlega labba eitthvað
um bæinn.
Þórunn Eliasdóttir, vinnur í blóma-
verslun: Ef ég á annað borð tek
sumarfrí ætla ég ekki að fara neitt,
bara slappa af og gera ekki neitt.
Ég skipti nefnilega um vinnu á árinu
og fæ því ekki launað sumarfrí að
þessu sinni.
Kristján Þorsteinsson framreiðslu-
nemi: Ég er búinn að fara í sumarfrí,
fór með nemendum Hótel- og veit-
ingaskólans í 24 daga til Thailands.
Það var ótrúlegt ævintýri og mjög
gaman að upplifa Austurlönd. Jú,
þar eru margir stórkostlegir veit-
ingastaðir sem við heimsóttum,
meðal þeirra voru t.d. Oriental og
Shangrila.
„Langir“
föstudagar í Beriín
Yfirvöld í Berlín hafa ákveðið að
leyfia verslunum að hafa opið lengur
en vanalega á fóstudögum í sumar.
Þannig eru verslanir nú opnar til
kl. 21 alla fóstudaga fram til 11. sept-
ember.
Er þetta gert í tilefni af 750 ára
afinæli borgarinnar. Þar fyrir utan
eru allar verslanir borgarinnar opn-
ar til kl. 18 fyrsta laugardaginn í
hverjum mánuði eins og er venja þar
í borg.
Kannaki gætu íslenskir verslunar-
menn tekið sér þá reglu til fyrir-
myndar?
-A.BJ.
SUMARTILBOÐ
SOLHUSIÐ
Sólbaðsstofa
Astu B. Vilhjálms,
Grettisgötu 18, sími 28705 og 16552
Tilboðið
verður
dagana
4/7-11/7
VERIÐ VELKOMIN
ÁVALLT HEITT Á
KÖNNUNNI
Loksins
Hin mikið
eftirspurðu
LOFTNET
fyrir sjónvarp og útvarp á minni báta, hjóihýsi og húsbíla loksins kom-
in. Innbyggður magnari, 15 db. Fáanleg 12 eða 24 volt. Verð kr. 10.950.
Sjónvarpsmiðstöðin h/f
Síðumúla 2 - Ath. Nýtt símanúmer 68-90-90