Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Side 16
16 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987. ArenA Vigdís forseti er mikil blómakona: FERÐ UM ÍSLAND 1987 ★Hveragerði, við Hótei Örk, laugar- dag, 4/7, og 5/7 kl. 16.00 og 20.00. ★ Hvolsvelli 6/7 kl. 20.00. ★ Vík 7/7 kl. 20.00. ★ Höfn 9/7 kl. 20.00. ★ Breiðdalsvík 10/7 kl. 16.00. ★ Eskifirði 11/7 kl. 16.00 og 20.00. ★ Egilsstöðum 12/7 kl. 16.00 og 20.00. ★ Seyðisfirði 14/7 kl. 20.00. Vigdis með blágresið á Þingvöllum. „Mér finnst sumarið ekki komið fyrr en ég hef séð blágresisbreiðurnar.“ Þessa fallegu mynd og forsíðumyndina tók Ijósmyndari DV Gunnar Andrésson. „Skemmtilegt að lesa blóm með börnunum“ „Mér finnst sumarið ekki vera komið fyrr en ég er búin að sjá blá- gresið. Mér þykir svo ákaflega vænt um þetta blóm,“ sagði Vigdís Finn- bogadóttir forseti er hún gaf sér tima á Þingvöllum fyrir stuttu og skoðaði blómin þar. „Mér finnst blágresið vera júlíblóm íslands og það er hátíð á hverju sumri að fá að upplifa blá- gresisbreiðurnar á Þingvöllum eða í heiðarlöndum. Alveg eins og berja- lyngið er jurt ágústmánaðar. Ég er mikil blómakona og hef alltaf verið og það var móðir mín sem kenndi mér það,“ sagði Vigdís ennfremur. Eins og allir vita hefur Vigdís gróð- ursett trjáplöntur á þeim stöðum sem hún hefur heimsótt og báðum við hana að segja okkur tákn þeirra: „Ég gróðurset alltaf þrjú tré. Fyrst hjálpa drengirnir mér að gróðursetja eitt tré og það er þeirra eign. Síðan hjálpa stúlkumar mér að gróðursetja annað tré og við höfum sérstakan stað á milli þeirra tveggja og þar setjum við öll saman niður tré sem er fyrir börn- in sem enn eru ófædd. Drengirnir eiga að passa sitt tré og stúlkurnar sitt og síðan eiga þau að líta eftir þriðja trénu saman. Þetta er mjög skemmtilegt því að börnin fá metnað fyrir að varðveita trén. Ég gróðurset alltaf birki því það eru þau tré í nátt- úrunni sem eiga bestu lifsmöguleik- ana. Stundum hefur þetta orðið upphaf að gróðurreit eða fólkvangi." - Gróðursetur þú í þinn garð? „Ég er með garð sem ég rækta, bæði heima á Bessastöðum og við gamla húsið mitt í Reykjavík. Einnig er ég með alla glugga fulla af blóm- um. A sumrin hef ég nær eingöngu blóm sem blómstra.“ - Tíndir þú bíóm handa móður þinni sem barn? „Já, það gerði ég. Móðir mín kenndi mér að lesa blóm. Á sumrin skreyti ég alltaf borðin á Bessastöð- um með blómum úr náttúrunni. Við höfum gaman af því heima á Bessa- stöðum að raða saman blómum sem vaxa yfir sumarmánuðina." - Veist þú hvað öll blómin í náttúr- unni heita? „Nei, ekki get ég státað af því, en ég held að ég þekki allar algengustu jurtir okkar með nafni, þó nú væri. Við eigum auðvitað öll að þekkja þær. Það er eitthvað það skemmti- legasta sem maður gerir að lesa blóm. Á gamalli og góðri íslensku er það kallað að lesa blóm þegar þau eru tind eða þeim er safnað. Að fara með börnin og lesa blóm og kenna þeim að pressa þau í bókum og þurrka þau. Ég gerði það þegar ég var lítil og ég geri það með dóttur minni og vinum hennar. Maður verður bara að gæta þess að setja dagblað utan um blómið svo vökvinn úr því skemmi ekki bókina. Ég uppgötvaði það í vetur að í fyrrasumar, er ég fór um landið, var ég með bækurnar Landið þitt með mér og þær voru allar fullar af blómum eftir ferðina. Allt blóm sem uxu í Borgarfirðinum í lok júlí í fyrra, maríustakkur, blá- gresi, lyfjagras, silfurmura og fleira.“ - Heldurðu að fólk, sem á sína eigin garða, hafi frekar áhuga fyrir blóm- um en þeir sem ekki hafa slíkar aðstæður? „Nei, við eigum náttúruna saman á Islandi til að njóta hennar. Það er einmitt svo skemmtilegt við þetta allt saman að þegar náttúran lifnar á vorin taka börnin eftir því að það er fallegt. Þá vilja þau gefa þeim sem þeim þykir vænst um, mæðrum sín- um eða öðrum, það fallegasta sem þau sjá.“ - Hefur dóttir þín gefið þér blóm úr náttúrunni? „Að sjálfsögðu. Hún gerði það núna síðast um daginn og skrifaði ljúflega með: Til þín frá mér.“ -ELA Berðu ekki við tímaleysi Það ert sem situr undir stýri. mÉUMFERÐAR Í22£s£l\ UrÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.