Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Page 31
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987.
31
Skák
Þessi leikur Jóhanns mun vera ný
tilraun í stöðunni en hún ber ekki
árangur sem erfiði. Algengast er 6. d3,
eða 6. c3; athyglisvert er 6. Bc4!? (sem
hótar 7. Bxf7 + Kxf7 8. Dh5 + og Bc5
fellur) og nýjasta tilraunin er 6. Dh5
De7 7. d3 RfB 8. Dh4, sem Kuzmin
reyndi gegn Malanjúk í Evrópubikar-
keppni taflfélaga í fyrra.
6. - Re7 7. d3 c6 8. Bc4 d5 9. Bb3 0 0 10.
exd5 cxd5 11. Bg5 fB 12. Bf4 a5?
Vondur leikur þvf að nú myndast
veila á b5 sem Jóhanni tekst að not-
færa sér. Betra er strax 12. - Be6 og
svartur á þá mjög frambærilega stöðu.
13. a4 Be614. Ra3! g515. Bd2 Dd716. Rb5
Þama stendur riddarinn frábærlega
vel, þrýstir að svarta d-peðinu og
hindrar að svartur nái að stilla upp
liði til sóknar með því að setja biskup-
inn á skálínuna b8-h2.
16. - Bb6 17. Hfel Hf7 18. c4 dxc3 fr.hl.
19. Bxc3?!
Að líkindum er 19. bxc3 sterkara,
sem styrkir miðborðið og undirbýr 20.
Be3 til þess að ná enn betri tökum á
d4-reitnum.
19. - Hd8 20. h3 Rg6 21. Bd4
Um annað er vart að ræða því að
svartur er að byggja upp sókn kóngs-
megin. Textaleikurinn leiðir til
skemmtilegra sviptinga sem Jóhann
varð að reikna nákvæmlega.
21. - Rh4 22. De3
Ekki 22. De2, eða 22. Ddl, vegna 22.
- Bxd4 23. Rxd4 Bxh3! og rífúr upp
kóngsstöðuna.
22. - Rf5 23. Dxe6 Dxe6 24. Hxe6 Bxd4!
Hann leggur óhræddur á vit ævin-
týra þótt taflið virðist hanga á blá-
þræði. Lakara er 24. - Rxd4 25. Hxb6
Rxb3 26.Ha3 Rc5 27. Rd6 Hfd7 28. Rfo
KÍ7 29. d4 Re4 30. Hab3 og hvitur
þrýstir óþægilega á stöðu svarts.
abcde.fgh
25. g4 Bxb2 26. Hbl Rd4 27. Hd6!
Laglegur hnvkkur. Menn svarts
standa nú völtum fótum en samt finn-
ur hann leið til þess að halda taflinu
gangandi.
27. - Hxd6 28. Rxd6 Hd7 29. Bxd5+ Kf8
30. Hxb2 Hxd6 31.Bxb7 Re6 32. Be4 Rc5?
En eftir frækilega vöm leikur svart-
ur taflinu niður. Eftir skákina komust
Jóhann og Malanjúk að þeirri niður-
stöðu að með 32. - Hd4! ætti hann að
halda jafiitefli.
33. Hb5! Rxa4 34. Hxa5 Rc3
E.t.v. sást Malanjúk yfir að eftir 34.
- Rb2, á hvítur svarið 35. Ha2!, því að
þá strandar 35. - Rxd3 á 36. Hd2 og-
vinnur lið.
35. Bxh7
Tvö peð til góða og eftirleikurinn
er tiltölulega auðveldur.
35. - Re2+ 36. Kh2 Rf4 37. Ha2 Ke7 38.
Hd2 Ke6 39. Kg3 Ke5 40. h4 gxh4+ 41.
Kxh4 Hd4 42. Kg3 Ha4 43. Hb2 Hd4
44.KÍ3
Og í þessari stöðu lagði svartur nið-
ur vopn og gafst upp. Einhver hefði
barist áfram en hvítur ætti þó að vinna
létt á umframpeðunum. Ekki gengur
44. - Rxd3, vegna 45. Hb5+ Kd6 46.
Ke3 og riddarinn fellur.
-JLÁ
Minnstu munaði að Jóhanni Hjart-
arsyni stórmeistara tækist að krækja
sér í 2. sætið óskipt á alþjóðlega skák-
mótinu í Moskvu. I lokaumferð
mótsins var hann búinn að yfirspila
sovéska stórmeistarann Konstantín
Lemer, en ónákvæmni í úrvinnslu
varð þess valdandi að Sovétmaðurinn
náði að gmgga taflið og halda jafn-
tefli. Engu að síður náði Jóhann
frábærum árangri á mótinu - 7/4 v.
og þriðja sæti. Jóhann varð langefstur
erlendra keppenda á mótinu. Raunar
röðuðu Sovétmenn sér í átta efstu
sætin að Jóhanni einum undanskild-
Jóhann Hjartarson náði góðum árangri á skákmótinu í Moskvu og virðist til
alls líklegur á millisvæðamótinu i Szirak í Ungverjalandi sem hefst 17. þessa
mánaðar.
Sigurvegari varð Mikhail Gurevich,
27 ára gamall stórmeistari sem tefldi
frísklegast og best allra á mótinu, að
sögn Jóhanns. Gurevich þessi „sló í
gegn“ fyrir tveimur árum er hann varð
skákmeistari Sovétríkjanna en síðan
hefúr minna til hans spurst en efni
stóðu til. Þó er hann nú augljóslega
aftur farinn að láta að sér kveða sem
2. sæti á mótinu í Leningrad á dögun-
um og sigurinn nú í Moskvu er til
vitnis um. Þekktasti keppandi móts-
ins, að skákrefnum Efim Geller
undanskildum, Oleg Romanishin, varð
einn í 2. sæti og er sárt til þess að
hugsa að Jóhann skyldi ekki komast
upp að hlið hans. Einkum ef innbyrðis
skák þeirra úr 1. umferð mótins er rifj-
uð upp. Þar náði Jóhann slíku
kverkataki á stöðu Romanishins, sem
tefldi sérviskulegt afbrigði af spænsk-
um leik, að skákskýrandinn ætti ekki
önnur ráð til þess að lýsa taflinu en
orðin fleygu: „Jarðarförin auglýst síð-
ar“. En þrátt fyrir að Jóhann ætti
betri tíma var hann of bráður á sér
og lék af sér manni. Við lá að honum
tækist samt að halda jafntefli, sem er
Bridge
Norðurlandamótið á Hrafnagili:
Það borgar sig ekki
alltaf að taka slagina
Frammistaða íslensku sveitanna á
nýafstöðnu Norðurlandamóti yngri
spilara var frámunalega léleg eins
og kunnugt er af fréttum.
Eldri unglingamir unnu þrjá leiki
og töpuðu fimm, meðan þeir yngri
unnu aðeins einn leik af átta. Sann-
arlega umhugsunarefni fyrir bridge-
forystuna, því maður uppsker eins
og maður sáir.
í leik yngri spilara Danmerkur og
íslands sýndi danski unglingurinn,
Henrik Iversen, snilldartakta í vöm-
Bridge
eftirfarandi S spili.
92
KG52
ÁG642
DG
DG8 1054
943 ÁD106
K853 D97
953 K86
ÁK763
87
10
Á10742
Stefán Guðjohnsen
í lokaða salnum sátu n-s Ingólfur
Haraldsson og Gunnlaugur Karls-
son en a-v Röjel og Iversen. Þar
gengu sagnir á þessa leið:
Suður Vestur Norður Austur
ÍS pass 2T pass
3L pass 3G
Iversen spilaði út spaðafjarka, lítið
úr blindum og Röjel fékk slaginn á
gosann. Hann spilaði hjartaníu til
baka, gosinn og Iversen fékk slaginn
á drottninguna. Hann spilaði nú
meiri spaða og Ingólfur tók næstu
fjóra slagi á spaða. Þetta gaf Röjel
gott tækifæri til þess að sýna lengd
í laufí og hjarta með því að kasta
lægstu spilunum. Sagnhafi kastaði
einu hjarta og tveimur tíglum, með-
an austur kastaði tígulsjöi og hjarta-
sexi. Ingólfur spilaði nú litlu laufi á
drottninguna heima og á flestum
borðum drápu austurspilararnir á
kónginn. En Iversen var búinn að
hugsa málið. Hann GAF. Og þegar
gosinn kom, þá gaf hann aftur. In-
gólfúr gerði eins og hann gat með
því að drepa og spila austri inn á
laufkóng. En Iversen spilaði sig út
með tíguldrottningu sem Ingólfur
drap með ás. Síðan kom meiri tíg-
ull, Röjel drap á kónginn og spilaði
hjarta. Tveir niður eftir snilldarvöm.
Á hinu borðinu varð lokasamning-
urinn líka þrjú grönd. Siglufjarðar-
bræðumir, Steinar og Ólafur, stýrðu
vöminni en eftir að Steinar hafði
spilað út laufaníu í byrjun var erfitt
að hnekkja spilinu. Raunar vann
sagnhafi fjögur grönd og Danmörk
græddi 13 impa.
Jóhann
varð þriðji
í Moskvu
til marks um það, hve staðan var sterk
er mannslátið varð.
Margeir Pétursson hafnaði í 11. sæti
og getur kennt um slæmum kafla í
mótinu þar sem allt gekk á afturfótun-
um. Þá tapaði hann fjórum skákum í
röð en fleiri urðu tapskákir hans ekki.
Hann vann sovésku stórmeistarana
Vasjukov og Razuvajev - þann síðar-
nefnda eftir 130 leikja langlokuskák
og sá sigur hefur eflaust veríð á við
fjóra.
Þessi varð annars lokastaðan á
þessu sterka móti sem taldist af 12.
styrkleikaflokki FIDE:
1. M. Gurevich(Sovétríkin) 8 '4 v.
2. Romanishin (Sovétríkin) 8 v.
3. -5. Jóhann Hjartarson, Dolmatov og
Malanjúk(báðir Sovétríkin) 7'4 v.
6. Lemer (Sovétríkin) 7 v.
7. -8. Lputjan og Razuvajev(báðir Sov-
étríkin) 6'4 v.
9.-10. Geller (Sovétríkin) og Benjamin
(Bandaríkin) 6 v.
11. Margeir Pétursson 5'4 v.
12. -13. Vasjukov (Scfvétríkin) og Hodg-
son (Englandi) 5 v.
14. Ionescu (Rúmeníu) 4'4 v.
Þeir Jóhann og Margeir létu vel af
dvölinni í Moskvu, enda em þéttings-
mót sem þetta ákaflega lærdómsrík
Skák
Jón L. Árnason
og skákandrúmið sérstakt. Á Hotel'
Sport, þar sem þeir tefldu. ríkti sann-
kölluð skákstemmning. Teflt var
einnig í „B-flokki“. sem ber þó varla
nafn með rentu því að þar glímdu
skákmenn sem gerðu samanlagt
níunda styrkleikaflokk. Og kunnir
stórmeistarar vom daglegir gestir á
Hotel Sport og fylgdust með mótunum.
Þetta mun vera í fyrsta skipti. sem
tveir íslendingar tefla í sama mótinu
í Sovétríkjunum. Hins vegar hafa sov-
ésku stórmeistararnir. sem hér hafa
teflt á alþjóðlegum mótum. iðulega
verið tveir saman. Skákstjóri gerði
annars góð samskipti Islendinga og
Sovétmanna á skáksviðinu að umtals-
efni er hann, öllum að óvörum, sló
saman höndum á 17. júní og hélt hjart-
næma ræðu. Jóhann og Margeir tefldu
einmitt saman þennan dag, við blóm-
um skrýtt skákborð í tilefni þjóðhátíð-
ar.
Skoðum sigurskák Jóhanns við
Malanjúk sem tefld var í næstsíðustu
umferð. Skákin var hvort tvegggja í
senn, sérlega skemmtileg og eins réð
hún úrslitum varðandi lokaniðurstöðu
mótsins. Malanjúk, Gurevich og Ro-
manishin voru efstir fvrir umferðina
með 7 v„ Lemer hafði 6'4, en Jóhann
6 v. Á meðan Jóhann sneri Malanjúk
niðm- tókst Gurevich að leggja Geller
að velli og þar með hafði hann vinn-
ingsforskot á Malanjúk. Þeir tefldu
saman í síðustu umferð og Gurevich
fékk þá jafntefli eftir aðeins 10 leiki.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Malanjúk
Spænskur leikur
l.e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rd4
I mínu ungdæmi var ekki talið boða
gæfu að leika sama manninum oftar
en einu sinni í byijun tafls. Þetta af-
brigði er samt orðið vinsælt, einkum
meðal sovéskra skákmanna, eftir að
hafa legið í þagnargildi í ái'atugi.
Svartur vinnur leikinn von bráðar aft-
ur, því að hvíti biskupinn er skilinn
eftir í „lausu lofti“. Afbrigðið er ann-
ars kennt við enska bókarann Henry
Edward Bird sem lést um aldamótin
síðustu.
4. Rxd4 exd4 5. 0-0 Bc5 6. Df3