Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1987, Page 36
' Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstlórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1987. Ástandið hríkalegt á hálendinu - afréttum þyifti að loka í£~— „Við eram nýkomnir úr ferð af hálendinu og um Kjöl og ástandið er vægast sagt hrikalegt. Það hefur mikið blásið upp að undanförnu, jarðvegurinn er geysilega þurr og mikil rofabörð. Og ekki batnar það þegar upprekstur sauðfjár er að hefj- ast á afrétti. Sumum afréttunum þyrfti hreinlega að loka því beitai'- þolið þar er alveg í lágmarki í svona slæmu tíðarfari," sagði Ingvi Þor- steinsson, deildarstjóri hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins, í samtali við DV. Afréttir sem Ingvi sagði að væra sérstaklega illa famir era m.a. Land- mannaafréttur í Rangárvallasýslu, sem enn er ekki búinn að jafna sig eftir öskufall frá Heklu árið 1980, og einnig Biskupstungnaafréttur. Á Norðurlandi er ástandið einna verst í Mývatnssveitinni. „Því miður virðist enn tapast meira en vinnst í landgræðslunni þótt sauðfjárbeit hafi minnkað síð- astliðinn áratug. Aukinn fjöldi hrossa er líka farinn að ógna all- veralega gróðri í byggð þar sem eyðing er orðin rnikil," sagði Ingvi. „Betri árangur hefði getað náðst með þjóðargjöfinni, sem var sérstök fjárveiting til landgræðslu á áranum 1974-’79, ef sauðfjárfækkunin hefði verið samhliða en hún varð ekki að ráði fyrr en of seint. Það stefnir í voða ef beitarálagið er ekki minnkað enn frekar og tillit tekið til land- gæða. Landið er tötrum klætt.“ -BTH Vigdís á Mön Forseti Islands, Vigdís Finnboga- dóttir, dvelst á eyjunni Mön í írlandshafi fram á þriðjudag sem heiðursgestur landstjómarinnar. Vigdís mun þar flytja ræðu við árleg hátíðarhöld þings eyjaskeggja, Tyn- wald. Til íslands er Vigdís væntanleg aftur á þriðjudag. Á miðvikudag stýrir hún ríkisráðsfundi þegar ríkis- stjóm Þorsteins Pálssonar tekur við völdum. -KMU ÓVENJU LÁGT VERÐ 0PIÐ TIL KL. 16.00 Á LAUGARDÖGUM LOKI Þurfti aö mana forseta til fararinnnar? Síðasta hindmnin loksins úr veginum: Jóhanna knúði í gegn kaupleiguna Jóhanna Sigurðardóttir, væntan- legur félagsmólaráðherra, knúði í gær í gegn möguleika fyrir sveitarfé- lög og félagasamtök til að hefja byggingu kaupleiguíbúða í stórum stíl. Þar með var frá síðasta deilu- mál flokkanna þriggja. Lokafrágangur á málefnasamningi fer fram í dag eða eins og einn al- þingismaðurinn orðaði það: „Það er bara finpússning eftir.“ Æðstu valdastofhanir flokkanna þriggja, flokksráð Sjálfstæðisflokks- ins, miðstjóm Framsóknarflokksins og flokksstjóm Alþýðuflokksins, hafa verið boðaðar til íundar í Reykjavík á morgun, sunnudag, klukkan 16, til að leggjablessunsína yfir stjómarsamstarfið. Ráðherra- listar Álþýðuflokks og Framsóknar- flokks ættu þá að liggja fyrir en val ráðherra Sjálfstæðisilokksins gæti dregist fram á mánudag. Jóhaxma Sigurðardóttir hafhaði í fyrrakvöld boði hinna flokkanna um 100 kaupleiguíbúðir á ári og 100 milljóna króna lán árlega til sveitar- félaga til þessara íbúða. í samkomu- laginu, sem tókst í gær, eru hins vegar engar tölur um fjölda íbúða eða lánsfjárhæðir. mun hins vegar ráðast af áhuga sveitarfélaga og félagasarataka en einnig mun félagsmálaráðherra geta haft þar áhrif. Opnað er fyrir kaupleigukerfið og því gefinn kostur á hliðstæðum !ána- kjörum og íbúðum í almenna kerfinu og félagsiega kerfinu. Fjöldí íbúða Sjálfetæðis- og framsóknarmenn telja hins vegar að þeim þörftun, sem kaupleiguíbúðakerfinu sé ætlað að mæta, sé þegar mætt í núverandi húsnæðiskerfi. -KMU/ES Valgeir Guðjónsson: Fót- brotnaði á gervi- grasinu „Það væsir svo sem ekki um mig hér. En þetta var alvörubrot svo ég verð að liggja fram yfir helgi,“ sagði Valgeir með vafinn fót í sjúkrarúmi á Borg- arspítalanum en hafði það að öðru leyti alveg ágætt. DV-mynd JAK „Ég var að spila fótbolta, á fullri ferð í hlutverki miðheija rétt fyrir framan mark andstæðinganna, þeg- ar við markmaðurinn skullum saman. Ég lenti svona illa á vinstri ökklanum við áreksturinn að hann brotnaði og liðbönd slitnuðu. Það þurfti að skera mig upp og festa þetta með skrúfum. Markmaðurinn slapp hinsvegar ómeiddur,“ sagði Valgeir Guðjónsson sem liggur nú á Borg- arspítalanum eftir slys sem hann varð fyrir á gervigrasvellinum í Laugaidal síðasta miðvikudag. „Ég er sannfærður um að gervi- grasið hefur haft þau áhrif að meiðslin urðu svona slæm, það er svo stamt að það er stórhættulegt að skrensa svona á því. Núna verð ég að liggja hér fram yfir helgi, og kemst líklega ekki á látúnsbarka- keppnina á morgun. Ég slappa bara af á meðan, það væsir ekki um mig hér.“ -BTH Tengsl milli laumufarþegans og stúlkuhvarfs? „Við viljum ekkert útiloka og könn- um allar leiðir sem stúlkan gæti notað til að komast út úr landinu. Það hefur nú áður gerst að skipshöfh hefur vilj- andi haldið vera laumufarþega á skipi leyndri. Leit verður gerð í Jamme Wehr, þegar það kemur til hafnar í Immingham á Englandi á sunnudag- inn, af þarlendum yfirvöldum," sagði Jónas Hallsson, varðstjóri á aðalstöð lögreglunnar, í gær. Verið er að kanna hugsanleg tengsl milli hvarfs 15 ára danskrar stúlku, Piu Jespersen, sem saknað hefur verið af Unglingaheimili ríkisins frá því á miðvikudag, og orð- róms um að laumufarþegi væri staddur um borð í þýska flutningaskipinu Jamme Wehr sem sigldi frá Reykjavík sama dag. „Stúlkan er nýlega flutt til landsins með foreldrum sínum og hefur sótt í að komast héðan aftur. Þótt skipveijar þvertaki fyrir að hún sé um borð verð- ur að ganga úr skugga um það um leið og flugferðir verða athugaðar. Það er þegar búið að útiloka önnur milli- landaskip sem sigldu sama dag,“ sagði Jónas. Þegar Pia sást síðast var hún klædd bláum gallabuxum, gallajakka með loðkraga og strigaskóm. Hún er 165 sm á hæð, feitlagin og með ljóst, stutt hár. -BTH Helgaweðrið: Skyjað helgar- veður - f ■ 12 Veðurguðimir verða með þung- brýnna móti um helgina. Hæg norðaustanátt og svalt norðvestan- lands en hæg, breytileg átt og fremur hlýtt í öðrum landshlutum. Víðast skýjað og skúrir á víð og dreif. & w v V V V v _ 12 >v Kjarvalsstaðir: Einar hættir 5 i i i i i \ i i i i i i i i i i Einar Hákonarson, aðstoðarfor- stöðumaður og listráðunautur Kjarv- alsstaða, hefur sagt upp störfum og verður uppsögn hans tekin fyrir á fundi stjómar Kjarvalsstaða á fimmtu- dag. Einar staðfesti að hann hefði sagt upp og sagði hann ástæðu uppsagnar- innar þá að starfið á Kjarvalsstöðum hefói reynst viðameira en hann hefði búist við. „Ég er fyrst og fremst mál- ari,“ sagði Einar, „en við það að vinna á Kjarvalsstöðum hef ég komist að raun um að þetta er mjög viðamikið starf og þama bíður fiöldi stórra verk- efha. Þetta tvennt gekk ekki saman og því sagði ég upp,“ sagði Einar. Einar réðst til Kjarvalsstaða í febr- úar síðastliðnum og hættir á komandi hausti. -ój i i i i i i i i I i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.