Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
3
Fréttir
Forsætisráðherra um álit Verslunarráðsins:
Er að panta gengisfellingu
,,0kkur er vel kunnugt um ákveðin
hættumerki í efnahagslífinu. Þess
vegna gripum við til þessara ráðstaf-
ana nú. Það er auðvitað aldrei sjálfgef-
ið að við munum búa við stöðugt
verðlag. En við hljótum að leggja þá
ábyrgð á aðila vinnumarkaðarins að
þeir semji sín á milli, með hliðsjón af
þvi meginmarkmiði að verðlagi og
gengi verði haldið stöðugu," sagði
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
þegar blaðamaður DV bar undir hann
álitsgerð Verslunarráðsins um aðgerð-
ir og stefnuyfirlýsingu ríkisstjómar-
innar.Spáir ráðið 20-30% verðbólgu á
næstu misserum og gengisfellingu eftir
áramót.
„Mér virðist það því miður skína í
gegnum álitsgerð Verslunarráðsins að
þar sé verið að panta gengisfellingu
vegna væntanlegra kjarasamninga en
ég hafði nú satt best að segja vonast
til að slíkur söngur heyrði sögunni til
enda á hann að gera það,“ sagði for-
sætisráðherra ennfremur.
„Gagnrýni Verslunarráðsins lýtur
því íyrst og fremst að atvinnulífinu
sjálfu. Treystir það sér ekki til þess
að búa við stöðugt gengi og halda
útgjöldum sínum niðri í samræmi við
þá meginstefhu? Það er stóra spum-
ingin.“ -KGK
Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra
Tískufatnaður en hermannagalli engu
að síður. Unnar Eyjólfur heitir maður-
inn og er frá Akranesi.
DV-mynd JGH
DV á Siglufirði:
Rambó á
Sigló
Jón G. Haukssan, DV, Akureyii
„Það hafa margir kallað mig
Rambó,“ syaraði Unnar Eyjólfur Jens-
son, 21 árs Akumesingur, þegar DV
hitti hann á Siglufirði og spurði hann
um Rambónafngiftina. Ef fólk vissi
ekki betur gæti það haldið að skollin
væri á styijöld þegar þeð sér Unnar,
slík er múnderingin.
Hann segist bregða sér í hermanna-
gallann endrum og eins. „Fólk verður
alltaf jafnhissa þegar það sér mig í
þessum fötum.“
samlokurnar
Einu
semþúgetur
farið með
í 5 daga
ferðalag
Mjólkursamsalan