Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987. Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÖNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÖNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð i lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Brestur í réttarkerfinu Á síðasta ári og reyndar allan veturinn þar á undan var fátt meira rætt manna á meðal en hið svokallaða Hafskipsmál. Var það að vonum. Bæði vegna þess að eitt stærsta fyrirtæki landsins var tekið til gjaldþrota- skipta, einn af hornsteinum bankakerfisins, Útvegs- bankinn, riðaði til falls og ýmsir af ábyrgðarmönnum Hafskips voru hnepptir í gæsluvarðhald um margra vikna skeið. Allt var málið hasarfengið og reyfarakennt og angar þess teygðust alla leið upp í ríkisstjórnina. Óþarft er að rifja þá sögu upp, svo alkunn sem hún er. Hitt hefur aftur á móti vakið athygli hvaða stefnu málið hefur tekið í höndum dómkerfísins. Sú sérkenni- lega staða kom upp að lögreglurannsóknin fór fram undir stjórn Hallvarðs Einvarðssonar rannsóknarlög- reglustjóra en þessi sami Hallvarður var síðan skipaður ríkissaksóknari og sem slíkur tók hann afstöðu til rann- sóknarinnar og lagði fram kröfur um refsingar í nafni ákæruvaldsins. Það fór líka svo að verjendur kröfðust þess að ákær- um skyldi vísað frá, þar sem saksóknari væri vanhæfur. Sú frávísun byggðist einkum á þeim rökum að óeðlilegt væri að einn og sami maðurinn hefði með höndum rann- sókn og ákæruvald. Þessu til viðbótar var bent á að bróðir ríkissaksóknara sat í bankaráði Útvegsbankans á sama tíma og bankastjórnin var sökuð um að van- rækja skyldur sínar gagnvart hagsmunum bankans. Frávísunarkrafan var tekin til greina í undirrétti og staðfest í Hæstarétti. Ríkissaksóknari var dæmdur van- hæfur og málinu vísað frá. Þessi niðurstaða hefur það í för með sér, að nú verður að skipa nýjan og sérstakan saksóknara, í þetta mál. Sá maður verður að hefja sjálf- stæða athugun á málskjölum og rannsóknargögnum og leggja fram kærur á nýjan leik. Allt tekur þetta sinn tíma og raunar liggur ekkert fyrir um hvort kærur verða samhljóða þeim sem áður hafa verið gerðar, hvort fleiri eða færri verða ákærðir eða þá hvenær málið verður dómtekið að nýju. Ekki verður þessi málsmeðferð ákæruvaldsins til að auka traust almennings á réttarkerfmu. Það hlýtur að vera mikið áfall og álitshnekkir þegar ríkissaksóknari er dæmdur vanhæfur vegna tengsla sinna við rannsókn málsins og skyldleika við persónur sem tengjast málinu beint og óbeint. Eftir á að hyggja er það óskiljanlegt mcð öllu að dómsmálayfirvöld og ríkissaksóknari sjálfur skyldu ekki koma auga á hættuna sem þessum tengslum fylgdi. Embætti ríkissaksóknara á að vera hafið yfir gagnrýni. Hver sá maður, sem tekur það starf að sér, má undir engum kringumstæðum gefa höggstað á sér. Hann varpar ekki aðeins rýrð á sjálfan sig heldur og á það traust sem embættið verður að njóta. Hafskipsmálið er ekkert venjulegt sakamál. Inn í það fléttast margvísleg hliðaráhrif, þjóðfélagsleg átök jafnt sem persónuleg örlög. Einmitt af þeim sökum er aldrei nógsamlega vandað til rannsóknar, málatilbúnaðar og ákæru. Vanhæfni ríkissaksóknara hefur spillt fyrir þessu öllu. Hér verður ekki farið fram á afsögn ríkissaksóknara í ljósi þessara mistaka. Þau verða að flokkast undir afglöp eða einfeldni. En einfeldni er dýrt spaug þegar afleiðingarnar eru þær að meintir sakborningar fá sjálft ákæruvaldið dæmt vanhæft og réttvísin missir niður um sig í einu allra stærsta og pólitískasta máli réttarsög- unnar. Ellert B. Schram Verslunarráðíð og verðbólgan í áliti Verslimarráðsins á stefiiu- yfirlýsingu ríkisstjómarinnar segir m.a.: „Verðbólgan verður á 20-30% stiginu næstu misseri og jafiivel meiri, ef ytri aðstæður versna. Vænta má gengissigs eftir næstu áramót." Það er meginatriði í stefhu ríkis- stjómarinnar að halda gengi krónunnar stöðugu og halda aftur af verðbólgu. Yrði horfið að nýju að daglegu sigi krónunnar eins og Verslunarráð boðar væri stöðugleik- anum, sem verið hefur veigamikil forsenda hagvaxtarins sem þjóðin hefur notið á undanfömum árum, kippt í burt. Á síðustu árum hafa lánsskuld- bindingar fyrirtækja í sjávarútvegi í vaxandi mæli orðið bundnar gengi, beint eða óbeint, og lækkun á gengi krónunnar væri af þeim sökum tví- eggjað sverð þar sem fyrirtæki í þessari grein eiga í hlut. Sjávarút- vegurinn hefur af þessum sökum og í ljósi reynslunnar ekki kallað eftir gengislækkun krónunnar. Á eigin ábyrgð Verslunarráðið segir fólk hafa „vanist þeirri hugsun að atvinnulíf gangi ekki nema til komi alls kyns aðgerðir með vissu millibili af hálfu stjómmálanna." Þó að þessu fari víðs fjarri virðist ekki örgrannt um að Verslunarráðið mætti sjálft venja sig af slíkri hugsun. Ríkisstjómin hefur einsett sér að brjóta þessa íjötra vanans af ís- lensku efnahagslífi og að forðast „alls kyns aðgerðir með vissu milli- bili“ en setja þess í stað efhahagslíf- inu almenna umgjörð sem aðilar verða að semja sig að. í þessu felst að efhahagslegar ákvarðanir, hverju nafni sem nefnast, em á ábyrgð þeirra sem þær taka. Ríkisstjómin hyggst ekki firra neina aðila ábyrgð á gerðum sínum, hvorki þá sem taka KjáUariim Ólafur ísleifsson efnahagsráðgjafi rikisstjórnarinnar ákvarðanir á hinum almenna vinnu- markaði né aðra. Atvinnulífið verður að standa á eigin fótum eins og Verslunarráðið tekur fram. Þjóðarsátt um hækkun lægstu launa Spásögn Verslunarráðsins er ekki ítarlega rökstudd en virðist m.a. ráð- ast af ugg ráðsins um að ráðstafanir ríkisstjómarinnar í skattamálum verði hvati að auknu víxlgengi kaupgjalds og verðlags. Það væri vissulega miður ef svo færi, en það er ekki sjálfsagt að skattahækkun, t.d. til að afla fjár til félagslegra ráð- stafana, sé nauðsynlega bætt í kaupi. Skattahækkun ríkisstjómarinnar er m.a. ætlað að standa undir þeirri hækkun tryggingabóta sem orðið hefúr á árinu. Markmið desember- samninganna var að bæta hag þeirra sem lægst hafa launin. Samhliða og sjálfsögð ráðstöfun af hálfu stjóm- valda var að bæta hag lágtekjufólks sem er utan vinnumarkaðarins, ýmist vegna aldurs eða örorku. Til þessa þurfti að afla fjár. Ekki verður um það deilt að þjóðarsátt ríkir um þessa ráðstöfun þó deila megi um einstakar tekjuöflunarleiðir. Kjarasamningarnir framundan Þeir aðilar, sem innan tíðar ganga til samninga um kaup og kjör á al- mennum vinnumarkaði, munu gera það í ljósi fastgengisstefhu ríkis- stjómarinnar og þess ramma sem hún setur ákvörðunum þeirra. Illa grundaðar spár um gengissig geta kynt undir væntingum um verð- bólgu og á þann hátt spillt fyrir því að sátt takist á vinnumarkaði. Það em sameiginlegir hagsmunir laun- þega og atvinnurekenda að gengið verði áfram stöðugt enda er fast- géngisstefhan besta kaupmáttar- tryggingin sem launþegar eiga völ á. Ólafur ísleifsson „Spásögn Verslunarráðsins er ekki ítar- lega rökstudd en virðist m.a. ráðast af ugg ráðsins um að ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar í skattamálum verði hvati að auknu víxlgengi kaupgjalds og verð- lags.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.