Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987. 5 dv Fréttir Slökkviliðið að störfum við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í fyrradag. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins. Eldurínn í Fjórðungssjúkrahúsinu: Loftræstingin í rannsókn - segir Gauti Amþórsson yfiríæknir Jón G. Haukssan, DV, Akureyii „Það verður rannsakað til íulls hvers vegna loftræstikerfið sló ekki sjálfkrafa út og lokaðist við að fá reykinn inn í sig. í kerfinu eru full- komnir skynjarar sem hefðu átt að fara í gang en um leið og menn áttuðu sig á hvað um var að ræða var loft- ræstingunni lokað með handafli," sagði Gauti Amþórsson, yfirlæknir Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, í gær um eldinn í þaki nýlegrar álmu sjúkrahússins fyrr í vikunni sem varð til þess að reykur komst m.a. á skurð- deildina og gjörgæsludeildina. Gauti sagði að engin hætta hefði verið á ferðum og að enginn skaði hefði orðið á tækjum og öðrum búnaði vegna þess reyks og vatns sem komst þama inn. Búið að hreinsa allan búnað „Það er búið að hreinsa allan búnað vandlega. Þetta er fullkomnasta skurðdeild landsins og við reiknum með að geta byrjað með aðgerðir aftur í dag eða á morgun." Eldurinn kom upp í þaki, skammt frá inntaki loftræstingarinnar, í um fimm ára gamalli álmu sjúkrahússins enjrar em skurðdeildin og gjörgæslu- deildin m.a. til húsa. „Ég vil taka það skýrt fram að ekki kviknaði í sjálfu loftræstikerfinu held- ur kom eldurinn upp á milli þilja uppi í þaki skammt frá inntakinu og reyk- urinn leitaði inn í það eftir að skilrú- mið var orðið fullt af reyk.“ Gauti sagði að reykurinn hefði ekki farið inn á aðrar deildir sjúkrahússins en þær sem væm í þessari álmu. „Reykurinn fór því alls ekki um allt sjúkrahúsið eins og sumir fjölmiðlar hafa greint frá.“ Tveir sjúklingar vom á gjörgæslu- deildinni og engin aðgerð stóð yfir þannig að sárafáir vom á ferli í álm- unni þegar reykurinn leitaði þar inn. Engin hætta þó að aðgerð hefði staðið yfir „Það var engin hætta á ferðum og hefði ekki heldur verið það þótt að- gerð hefði staðið yfir. Það hefði verið hægt að forða öllum strax auk þess sem reykurinn var margsíaður við að fara í gegnum loftræstinguna og því engar eituragnir í honum.“ Gauti sagði að þrátt fyrir að skynjar- ar í sjálfu loftræstikerfinu hefðu ekki farið í gang og lokað því hefðu reyk- skynjarar á sjálfum deildunum í þessari álmu farið í gang. -BTH OKKARVERÐ lambalæri 3,- kr. kg. ibahryggur 2,- kr. kg. ambaslög 0,- kr. kg. ibaframpartar 92,- kr. kg. mbasúpukjöt 127,- kr. kg. mbakótilettur 372,- kr. kg. ibalærissneiðar 497,- kr. kg. mbagrillsneiðar 294,- kr. kg. Lambasaltkjöt 345,- kr. kg. . askrokkar, 1. flokkur j 264,50 kr. kg. lægra en hjá öðrum Marineruð lambagrillsteik 325,- kr. kg. Marineraðar kótilettur 401,- kr. kg. Marineraðar lærissneiðar 548,- kr. kg. Marineruð rif 175,- kr. kg. Hangikjötslæri 420,- kr. kg. Hangikjötsframpartar, úrb. 321,- kr. kg. Hangikjötslæri, úrbeinað 568,- kr. kg. Hangikjötsframpartar 487,- kr. kg. Lambahamborgarhryggur 327,- kr. kg. Londonlamb 514,- kr. kg. KJOTMIÐSTOÐiN Laugalæk 2, s. 686511 kl. 7.00-16.00 laugardaga. Millj ónamærings enn saknað Leitin að óþekkta milljónamær- ingnum, sem saknað hefur verið síðan 16. maí síðastliðinn, hefur enn engan árangur borið. Þrátt fyrir ítrekaða eftirgrennslan og fyrirspumir í fjölmiðlum, hefur milljónamæringurinn ekki gefið sig fram. Um er að ræða karl eða konu, sem kom í verslun við Óðinstorg í Reykjavík iaugardaginn 16. maí síðastliðinn og keypti þar Lottó-miða klukkan 13:38, með tölunum 4, 22, 25, 26 og 29. Þess er enn farið á leit við við- komandi, að hann gefi sig fram á skrifstofu íslenskrar Getspár í Reykjavík og taki þar við 2.111.437,00krónum, sembíða hans þar. Margir hafa hugleitt hvernig vit- að sé hvar og hvenær umræddur milljónalottómiði var keyptur. Því er til að svara, að sölukeifi Lottósins er stjórnað af tölvu, sem lætur engar slíkar upplýs- ingar fram hjá sér fara. Þrátt fyrir hið fullkomna tölvu- kerfi er ljóst, að ástæða er til að brýna fyrir Lottóleikendum, að gæta vel kvittana sinna og láta ekki undir höfuð leggjast að bera þær saman við vinningstölumar. Upplýsingasími: 685111 Milljónir á hverjum laugardegi *^tÉSál532 KYNNINGARPJONUSTAN/SIA Millinn fer ennþá liuldu höfði. Auglýsing

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.