Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
11
Utlönd
Bandarikjamenn fjölga jafnt og þétt í flota sinum á Persaflóa og síðar I þessum mánuði bætast að minnsta kosti
tveir árásarbátar VÍð. Simamynd Reuter
Þingmenn snúa
sér til dómstóls
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, hélt því fram í gær
að engin hætta væri á að Bandaríkin
yrðu dregin inn í Persaflóastríðið.
Shultz sagði þó að ef Bandaríkjamenn
yrðu fyrir árás væri eftir að sjá hver
viðbrögðin yrðu.
Mikil andstaða er í bandaríska þing-
inu gegn veru Bandaríkjamanna á
flóanum og hafa hundrað þingmenn
úr röðum demókrata farið til dómstóls
til þess að fá úrskurð um að þingið
hafi rétt til að kalla heim bandarísku
hermennina.
Shultz kvaðst bjartsýnn á að banda-
menn Bandaríkjanna í Evrópu myndu
aðstoða við tundurduflaleit á Persaf-
lóa þrátt fyrir fyrri neitanir. Flestir
bandamenn taka diplómatískar leiðir
fram yfir hemaðarlegar til þess að
reyna að binda enda á stríðið.
Bandaríkjamenn hafa fjölgað tals-
vert í flota sínum á Persaflóa frá því
í maí er írakar skutu á bandarísku
freigátuna Stark, í misgripum að því
er sagt er, og drápu þrjátíu og sjö
bandaríska sjóliða. Fleiri skip og þyrl-
ur em á leiðinni til svæðisins til
tundurduflaleitar.
Bandarískir þingmenn em óánægðir
með að þyrlunum skuli ekki vera leyft
að fljúga frá bækistöðvum í vinveitt-
um löndum við Persaflóann. Bandarí-
skir embættismenn segja að ekki hafi
verið farið fram á slíkt. Sé það meðal
annars til þess að þau þurfi ekki að
svara neitandi. Verið gæti að þau ótt-
uðust hefndaraðgerðir írana.
Owen hættir formennsku
David Owen, leiðtogi flokks sós-
íaldemókrata í Bretlandi, skýrði frá
því í gær að hann myndi láta af for-
mermsku í flokknum eftir að félagar
hans samþykktu að binda enda á sex
ára sjálfstæða tilveru flokksins og
sameinast flokki ftjálslyndra.
Atkvæðagreiðsla meðal sósíal-
demókrata, sem staðið hefur í rúman
mánuð, sýnir að fimmtíu og sjö af
hundraði þeirra em fylgjandi því að
sameinast fijálslyndum en flokkam-
ir tveir buðu frarn sameiginlega í
síðustu þingkosningum.
Owen sagði í gær að hann myndi
láta af formennsku meðan samn-
ingaviðræður við fijálslynda stæðu
yfír. Hann hafði áður heitið því að
halda áfram að starfa sem sósíal-
demókrati og koma ekki nálægt
sameiningu.
Atkvæðagreiðslan undangenginn
einn mánuð náði til fimmtíu og átta
þúsund félaga í flokki sósíaldemó-
krata.
Sévardnadze ræðir
við Kampelman í Genf
Sévardnadze, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, og Kampelman, aðal-
samningamaður Bandaríkjamanna í
afvopnunarmálum, hittast í Genf í dag
til viðræðna um möguleika á samningi
stórveldanna um útrýmingu kjama-
vopna.
Báðir aðilar segja að ekki sé langt
í að samningar náist en Sovétmenn
vilja að Pershing kjamaoddamir 72,
sem Vestur-Þjóðverjar bera ábyrgð á,
verði teknir með í samkomulagið.
Bandaríkjamenn hafa yfirráð yfir
þessum kjamaoddum.
Sévardnadze hefúr sagt að deilan um
þá standi í vegi fyrir samkomulagi en
Kampelman kveðst ekki sömu skoð-
unar. Hann stendur fast við þá
ákvörðun Bandaríkjanna að semja
ekki um kjamaodda Vestur-Þjóðverja
eða einhvers annars aðila. Vonast
Kampelman til að Atlantshafsbanda-
lagið taki málið til athugunar á nýjan
leik.
Kampelman segist vongóður um að
bæði stórveldin fækki kjamavopnum
sínum um fimmtíu prósent áður en
fimm ár em liðin.
Ráðstefna fjörutiu þjóöa um afvopnunarmál er nú haldin í Genf og ávarpaði
Sévardnadze ráðstefnugesti í gær. simamynd neuter
Suður-Kóreumenn em roiðubúnir
til að ganga að tillögimi um að fleiri
greinar ólympfuleikanna á næsta ári
verði fluttar til Norður-Kóreu en
vilja í staðinn fá stjómvöld í Pyongy-
ang til þess að hætta að gera það
sem þeir kalla óraunhæfar kröfur. ::
Aðstoðamtanríkisráðherra S-
Kóreu, Park Soo-Oil, sagði við
fiéttamenn í gær að stjómvöld í Se-
oul, höfuðborg S-Kóreu, væm reiðub\
Kóreu ef þau gengju að tillögum forseta alþjóða ólympíuráðsins, Juan
Antonio Samaranch, um skipan leikanna.
Samaranch sagði nýverið að kóresku ríkin tvö yrðu að svara tillögum
hans fyrir 17. september eða nákvæmlega ári áður en leikamir eiga að hefj-
ast. Samkvæmt tillögum hans yrði keppni í borðtennis, bogfimi, knattspymu,
blaki kvenna og hjólreiðum karlá haldin að hluta eða fullu í Norður-Kóreu.
Sonurinn vill aðgerðir
Reza Pahlavi, sonur fyrrverandi
íranskeisara, sagði í gær að tími
væri til kominn að herða andstöðu-
aðgerðir gegn stjómvöldura í
Teheran og sameina hina ýmsu
flokka útiaga úndir sinni forystu.
Pahlavi, sem er tuttugu og sjö ára,
sagði á fréttamannafundi í gær að
hann: vari nú tilbúinn tii að taka
að sér forystuhlutverk eftir að hafa
unnið ! kyrrþei að nrálefnum stjóm-
arandstöðunnar í íran um átta ára
skeið.
Kvaðst hann h:da imnið að skipú*'
lagi stjpmarandstöðuhópa innan-
lands í íran.
Eldsprengja í ísrael
Tveir ísraelsmenn særðust í gær þegar palestínskir skæruliðar vörpuðu
eldsprengju inn í bifreið þeirra á herteknu svæðunum á vesturbakkanum,
að sögn heimilda innan ísraelsku lögreglunnar.
Sögðu heimildimar að ísraelsk kona hefði hlotið annars stigs bruna og
eiginmaður hennar hefði brennst lítiflega á haki í árásinnl
Israelskir hermenn settu þegar á útgöngubann á svæðinu og hófú leit að
tilræðismönnunum. Skömmu síðar handtóku þeir ungan Palestínumann en
ekki var ljóst hvort hann er ábyrgur fyrir sprengjuárásinni.
Árás þessi var gerð á svipuðum slóðum og ung ísraelsk kona og fimm ára
sonur hennar vom myrt með bensínsprengju í apríl síðastliðnum.
Kýla kakkalakka
Jap<mir geut nú fengið útrás fyrir
óviláígarðyfirmannasinnaánýjan
hátt. Hafin er framleiðsla á upp-
stoppuðum kakkalökkum, sem hægt
er að teikna á andlit hvers sem er.
Er leikfangið til þess ætlað að beija
á því, svívirða það og á annan hátt
£á útrés fyrir ofbeldishneigðar til-
finningar á því.
Þegar kakkalakkinn er barinn f
; höfúðið skriðurhnnn átram og emj ar
eymdarlega.
Framleiðendur kakkalakkanna
segjast hafa byrjað framleiðslu á
' þeim til að veita þeim sem þrúgaðir
om af sumarbitum og kröfum ósann-
gjamra yfirmanna útrás. Um tutt-
ugu þúsund hafa þegar verið seldir en búist er við að innan skamms verði
salan komin í hundrað þúsund stykki.
ítalska þingkonan flona Staller,
sem betur er þekkt undir nafiúnu
Cicciolina, hefúr greinilega ekki í
hyggju að láta þingstörf trufla aðal-
starfa sinn, æm er að koma fram
nakin og sýna kynlífstilburði á sviði.
Staller er að auki þekkt fyrir leik
sinn í klámkvikmyndum.
Þingkonan er nú á ftjrum til Sviss,
þar sem hún mun koma fram í kabar-
et og hafa þegar verið fest upp
auglýaingaspjöld í Lausanna í Svias
þar sem sýning hennar er vandlega
auglýst.
Ekki eru allir ítalir á sama máli
um landkynningargildi þess að þing-
menn taki þátt í opinberum kynlífs-
sýningum og hafa margir hópar
reynt að fá því framgengt að Ciccio-
lina verði svipt þingsæti sinu.