Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987. Fréttir_______________________________________________■______pv Skiptar skoðanir á hús- iMftAieláiaLaifihn llCwwlwlCIIIClimwl llllli Fátt hefur vakið meiri athygli aíð- landinu bundið vonir sinar um úr- aði hrunið? Alexander Stefánsson, mannsonar. Jóhanna Sigurðardóttir anders Stefánssonar sem og tals- ustu dagana en tilkynning félags- lausn í húsnœðismálunum við þetta íyrrum felagsmálaráðherra, sá um gagnrýndi kerfið mjög sem alþingis- manna aðila vinnumarkaðarins og málaráðuneytisins um að núverandi nýja lánakerfi. Nú er það hrunið seg- framkvæmd lánakerfisins. Alþýðu- maður og sagði í vetur er leið að spurðist fyrir um oreök hrunsins og húsnæðislánakerfiværihrunið.Þetta irfélagsmálaráðuneytið.Hversvegna samband íslands og Vinnuveitenda- kerfið væri hrunið. Nú er hún félags- fara svör þessara aðila hér á eftir. kerfi fór í gang fyrir tæpu ári síðan hrundi kerfið? Hver ber ábyrgð á samband íslands komu kerfinu á málaráðherra og málið heyrir undir Svörin eru margvísleg og menn eru og hafa þúsundh fjölskyldna í því? Hver var bresturinn sem orsak- ásamt ríkisstjóm Steingríms Her- hana. DV leitaði til hennar og Alex- alls ekki sammála. Sjálfvirknin varð kerfinu að falli - segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðheira „Ég tel að sú sjálfVirkni sem er í kerfinu hafi orðið því öðru fremur að falli,“ sagði Jóhanna Sigurðar- dóttir félagsmálaráðherra, þegar hún var spurð að því hvað hún teldi hafa orðið húsnæðiskerfinu að falli. „Kerfið er þannig að ef fólk er í lífeyrissjóði, sem keypt hefur skulda- bréf húsnæðislánastofhunarinnar, getur það fengið lán hvort sem það á skuldlausa eign fyrir eða ekki. Það getur meira að segja fengið lán til að minnka við sig húsnæði eða jafh- vel til að kaupa íbúð númer tvö eða þrjú. Og það á rétt á láni á 5 ára fresti,“ sagði Jóhanna. Hún benti einnig á að áður en þetta lánakerfi komst á hafi mikil vandamál blasað við þeim sem þurfitu húsnæðislán og því hefði nýja kerfið vakið miklar væntingar hjá fólki og því hefðu svo margir sótt um lán sem raun ber vitni og biðröð myndast. Síðan hefði það gerst að þær forsendur sem menn gáfu sér þegar nýja lánakerfinu var komið á stóðust ekki. Jóhanna sagðist telja að strax á næsta ári, þegar mesta flóðið væri liðið hjá, gætu þær for- sendur sem menn gáfu sér staðist. Jóhanna sagðist hafa tekið þá á- Jóhanna Sigurðardóttir, télags- málaráðherra kvörðun að safna til sín öllum upplýsingum varðandi húsnæðis- lánakerfið til þess að hafa allan vandann fyrir framan sig og reyna þannig að átta sig á hve stór hann væri. Eftir það væri hægt að hefjast handa við að leysa vandamálið. Það sagðist hún staðráðin í að gera í samráði við aðila vinnumarkaðar- ins. „Það þarf að sníða alla verstu agnúana af kerfinu. Það gengur ekki að þeir sem eiga til að mynda 3ja milljóna króna íbúð skuldlausa geti fengið lán á meðan fólk sem er að byggja eða kaupa í fyrsta sinn er sett aftur fyrir. Ég ætla ekki að horfa upp á það að fólk geti fengið niður- greidd lán án þess að þurfa þeirra með meðan fólk sem sárlega þarf á láni að halda fær ekkert,“ sagði Jó- hanna. Hún sagði að fjórir af hverjum fimm sem leituðu til sín í félagsmála- ráðuneytið væri fólk sem ætti í vandræðum í húsnæðismálum. Þar væri bæði um að ræða fólk sem væri að missa aleigu sína vegna lá- namálanna og eins fólk sem þyrfti að leigja fyrir okurverð og næði ekki endunum saman þótt unnið væri myrkranna á milli. „Það eina sem ég get lofað þessu fólki sem og þeim sem nú bíða eftir lánsloforðum og þurfa á láni að halda er að ég mun beita mér af al- efli fyrir lausn þessa máls og hraða henni eftir því sem kostur er,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir félagsmála- ráðherra. -S.dór Held að ráðgjafinn hafi ráðið framsetningunni segir Alexander Stefánssonr fymim félagsmálarádherra „Mér þykir fúrðulega að þessari fréttatilkynningu félagsmálaráðu- neytisins staðið. Ég er á þeirri skoðun að Stefán Ingólfsson, ráð- gjafi félagsmálaráðherra í málinu, hafi ráðið hér of miklu og algerlega hvemig málið er nú sett fram. Ég efast um að nokkur í félagsmála- ráðuneytinu sé tilbúinn til að skrifa undir það sem í tilkynningunni seg- ir. Mér sýnist að hér sé verið að nota félagsmálaráðuneytið til að segja kerfið hrunið, kerfi sem ráðu- neytið ræður yfir,“ sagði Alexander Stefánsson, fyrrum félagsmálaráð- herra og sá sem séð hefur um framkvæmd húsnæðislánakerfisins síðan það komast á. Alexander sagði að það hefði kom- ið strax í ljós að aðsókn í lánin hefði verið meiri en reiknað var með þeg- ar nýja húsnæðislánakerfíð var sett á. Því hefði aðeins verið um tvennt að ræða; að fá meira fé í kerfið eða láta biðröð myndast. Hann sagði að ríkisstjómin hefði séð annmarkana á kerfinu en þeir sem að því stóðu hefðu viljað hafa það svona. Þeir hefðu viljað hafa það svo að allir sem í lífeyrissjóðunum væm gætu fengið lán. Nú væri komið í ljós að slíkt gengi ekki. „Það stóð til að semja við aðila vinnumarkaðarins í lok þessa árs um það hvemig staðið skyldi að húsnæðislánakerfi í framtíðinni og lagfæra galla þess. Það stóð einnig til að efla til muna verkamannabú- staðakerfið og fá sveitarfélögin til að koma meira þar inn í en til þess hafa þau verið treg að undanfómu," sagði Alexander. Hann sagði að lokum að það hefði komið sér á óvart hve óvönduðum vinnubrögðum væri beitt við upp- setningu þessarar fréttatilkynningar og að félagsmálaráðuneytið skuli notað til að koma henni á framfæri í stað þess að láta Húsnæðisstofnun- ina sjá um málið. -S.dór Alexander Stefánsson. Vildum breyta kerfinu en stjórnvöld neituðu - segir Bjöm Bjömsson, hagfræðingur ASÍ Alþýðusamband íslands var höf- uðaðilinn í að koma nýja húsnæðis- lánakerfinu á. Bjöm Bjömsson. hagfræðingur þess, var inntur álits á yfirlýsingu félagsmálaráðunejúis- ins um hmn kerfisins. „Ég hef enn ekki séð forsendur þessarar yfirlýsingar, aðeins lesið tilkynningu ráðuneytisins og get því lítið sagt. Okkur hefur aftur á móti lengi verið ljóst að lánakerfið var gallað og höfum átt viðræður við stjómvöld um breytingar á því en fengum þær ekki fram. Við vildum meðal annars breyta sjálfvirkni þess þannig að maður sem á 5 íbúðir geti ekki fengið lán fyrir þeirri 6. og að þeir sem vom að kaupa eða byggja í fyrsta sinn gengju fyrir. Því miður fengum við ekki þessar breytingar fram. Hitt er svo annað mál að ásóknin í lán sýnir best hvemig ástandið í húsnæðismálunum er,“ sagði Bjöm. Hann sagði nauðsynlegt að minnka sjálfvirknina í kerfinu og beita þannig stýringu að þeir sem. mesta þörf hafi fyrir lán verði látnir ganga fyrir. „Við erum tilbúnir til viðræðna um að sníða verstu agnúana af kerf- inu en málið er nú í skoðun hjá nýjum ráðherra og við bíðum eftir því að þeirri skoðun ljúki,“ sagði Bjöm Bjömsson. -S.dór Björn Bjömsson. Alltaf eftirspum eftir nidurgreiddu lánsfé - segir Þórarinn V. Þórarinsson, VSÍ Þórarin Þórarinsson Vinnuveitendasámband íslands var annar aðila vinnumarkaðarins sem kom húsnæðislánakerfinu á ásamt ríkisstjóm Steingríms Her- mannssonar. Þórarinn V. Þórarins- son, framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins, var spurður hvað að hans dómi hefði farið úrskeiðis sem olli hrani kerfisins? „Ég held að gegndarlaus umræða mánuðum saman um að húsnæðis- lánakerfið væri að hrynja hafi orsakað það að allir sem minnsta möguleika áttu á að fá lán hafi sótt um og þess vegna hafi þessi langa biðröð myndast. Meðan öll fjöl- miðlaurnræða snerist um slag Alberts Guðmundssonar og Sjálf- stæðisflokksins veit ég fyrir víst að umsóknir um lán minnkuðu. En um leið og Jóhanna Sigurðardóttir hóf áróðurinn fyrir því að kerfið væri að hrynja margfaldaðist fjöldi um- sókna um húsnæðislán. Ég fúllyrði einnig að fjöldi þeirra sem sótt hefur um lán til nýbygginga hefúr ekki fengið neinar lóðir til að byggja á. Fólk er fyrst og fremst að tryggja sér sæti á biðlista," sagði Þórarinn. Þórarinn benti einnig á að alltaf og alls staðar væri mikil eftirspum eftir niðurgreiddum lánum og að þannig muni það alltaf verða. Hann sagði að þeir sem stóðu að því að koma húsnæðislánakerfinu á hefðu gert sér fúlla grein fyrir því að bið- listi myndaðist, hjá því yrði aldrei komist. „Mitt álit er að eftir fyrstu hol- skefluna muni þetta jafna sig og þær forsendur sem við gáfum okkur standast. Síðan nýja kerfið komst á hefúr það nánast verið eins og við herkvaðningu hjá fólki að sækja um lán og skrifa sig á biðlista. Ég viður- kenni þó að í kerfinu e/ of mikil sjálfvirkni. Menn sáu ekki ráð við því að maður sem fengi lán gæti selt ári síðar og einhver sem ekki þarf á láni að halda væri þar með búinn að fá lán til 39 ára. Að lokum vil ég benda á að ég tel það fúllkom- lega óraunhæft að ætla að ríkið og lífeyrissjóðimir geti leyst til sín allar íbúðabyggingar í landinu. Aukið fjármagn í húsnæðislánakerfið tel ég vera hættulegt og ekki til annars en að auka enn frekar á þensluna frá því sem nú er,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.