Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 32
44
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Donna Rice
Ijósmyndafyrirsætan sem
■pekkt er fyrir samband sitt viö
Gary Hart segir í nýlegu sjón-
varpsviðtali að þegar hún
kynntist Gary hafi hún ekki
haft neina hugmynd um að
hann væri giftur. Ekki sagðist
hún heldur hafa vitað að hann
væri frambjóðandi. Hún segist
hafa haldið að hann væri í
skemmtibransanum en annað
hafi svo komið á daginn eins
og frægt er orðið. í umræddu
sjónvarpsviðtali þykir hún
hafa mildað viðmót almenn-
ings til sín. Hún hafi verið
sakleysið uppmálað og bjarg-
að sér fyrir horn í bili. Oðru
máli gegnir um Gary Hart
'p'sjálfan sem líklega bíður þess
aldrei bætur að hafa vingast
við dömuna.
Michael
Jackson
hefur fengið sent uppsagnar-
bréf frá Pepsi-framleiðendun-
um. Pilturinn hefur í nokkurn
tíma leikið aðalhlutverk í aug-
lýsingum fyrirtækisins og
hafði gert geysistóran samn-
ing við það fyrir skömmu.
Ástæðan fyrir uppsögninni er
sú að Michael þykir orðinn
alltof kvenlegur í auglýsing-
arnar. En hann gerist æ
kvenlegri eftir því sem plast-
skurðaðgerðunum fjölgar. Því
er ekki nema von að fólk
spyrji hvort pepsi sé einhver
sérstakur karlmennskudrykk-
Sylvester
Stallone
fór í meiri háttar megrun á
dögunum. Hann hafði bætt á
sig fimm kílóum síðan hann
lék í sinni síðustu mynd. Því-
líkt og annað eins er auðvitað
engan veginn hægt að líða
þar sem hans lifibrauð er
skrokkurinn. Sem og verður
að vera í pottþéttu standi.
<J5ylvester var farinn að borða
of mikið af spaghetti og la-
sagna sem er hans uppáhalds-
fæði. Hveitifæðið minnkaði
hann til muna og um leið fuku
aukakílóin. Það er ýmislegt
sem menn verða að neita sér
um vilji þeir vera Rambo.
Hjónaleysin t fylgd með Ronald og Nancy Reagan þegar allt virtist ganga vel.
Leyndarmál Gitte
Skilnaður Silvester Stallone og dönsku fyrir-
sætunnar Gitte Neilson stefnir í það að verða
með athyglisverðari skilnuðum þessa árs. Hún
mun ekki hafa verið par hrifin af því að bind-
ast einum manni og því fór allt í vitleysu.
Nú er það helst að frétta að stuttu eftir að
þau giftu sig leigði stúlkukindin sér fína íbúð
á Hollywoodhæðum. Þar hefur hún lifað lífinu
eins og hún helst kýs að því sé lifað. Eigin-
maðurinn hefur ekki vitað hið minnsta um
uppátækið. En það sem þykir svívirðilegast við
þetta er það að hún hefur sjaldnast dúsað ein
í íbúðinni. Hún hefur dregið til sín íjölda frægra
manna sem henni hefur þótt ákjósanlegur fé-
lagsskapur í hvert sinn.
Á meðal þeirra sem vitað er að hafi verið
reglulegir gestir skvísunnar eru Dieter Bohlen,
liðsmaður hljómsveitarinnar Modern Talking,
og leikararnir Mel Gibson og Eddie Murphy.
Þá hafa verið uppi raddir um að Gitte hafi átt
í ástarsambandi við einkaritara sinn, Kelly
Sahnger. Þar með var öllum nóg boðið, ekki
síst Silvester sjálfum. En hann kvað að mestu
niður þann orðróm þegar hann tilkynnti opin-
berlega að Gitte væri langt frá því að vera
kynferðislega brengluð.
Þá vitum við það.
Gitte í fylgd einkaritara sins, Kelly Sahnger. Þaer eru sagðar
hafa átt í ástarsambandi.
Þessir eru á meðal þeirra sem sagð-
ir eru hafa átt „sérlega vingott" við
Gitte: Dieter Bohlen, Mel Gibson og
Eddie Murphy.
Edward prins
kominn meö kærustu
Augu alheimsins beinast nú að
Edward prinsi, litla bróður Charles
og Andrews. Hann er orðinn tuttugu
og tveggja og sá eini þeirra sem enn
er ógiftur. Því er ekki nema eðlilegt
að fólk sé farið að fylgjast með hon-
um og hans fylgifiskum. Hann sést
nú æ oftar í fylgd með Ulriku Jons-
son, sænskri nítján ára stúlku. Þessi
tíðindi urðu breskum almenningi
miklar gleðifréttir og er nú fylgst
með gangi mála af mikilli spennu.
Skötuhjúin kynntust í samkvæmi
í Windsor kastalanum. Þar dönsuðu
þau saman fram á rauðan morgun.
Strax daginn eftir var þessari frétt
slegið upp á forsíðu breskra blaða.
En mælirinn fylltist þegar þau sáust
fara saman í leikhús nokkrum kvöld-
Ulrika er að vonum ekkert í skýj-
unum yfir öllum þessum uppslætti
og er hún nú umkringd ljósmyndur-
um við hvert fótmál. Hún hefur búið
með móður sinni rétt fyrir utan Lon-
don síðan hún var átta ára gömul
og starfar nú fyrir sjónvarpsstöð.
Af prinsinum er það að segja að
hann er hæstánægður með lífið en
fyrir skömmu lét hann það flakka í
útvarpsviðtali að honum gengi illa
að finna sér góða stúlku. En eins og
segir virðist eitthvað vera að rætast
úr því. Það er aldrei að vita nema
að fljótlega verði tilkynnt um nýtt
kóngabrúðkaup sem allir hafa svo
gaman af. Við verðum að bíða og
sjá. Þangað til - til hamingju Ed-
ward!
Edward prins á Bretlandi er nú loksins kominn með kærustu. Hann hefur
vandað valið því hún er af norrænu bergi brotin. Stúlkan er sænsk og
heitir Ulrika Jonsson.
Á tíu ára afmæli Victoriu, krónprinsessu Svía, var mikið um að vera í
Svíþjóð. Hér keyrir hún um með fjölskyldu sinni og brosir til fólksins
sem var samankomið til að hylla hana. Alltaf munur að vera prinsessa.
Svíaprinsess-
an tíu ára
Það hefur alltaf þótt munur að vera prinsessa, ekki síst þegar maður
á afmæli. Victoria, krónprinsessa Svía, átti tíu ára afmæli á dögunum.
Haldin var þessi líka gríðarveisla þar sem samankomnir voru vinir og
vandamenn nær og fjær.
Þetta var merkur dagur í lífi litlu prinsessunnar. Þegar hún vaknaði
voru henni færðar gjafir og dýrindis kræsingar í rúmið. Að lokinni þeirri
athöfn að pakkar voru opnaðir fór Victoria með foreldrum og systkinun-
um tveimur út á íþróttaleikvanginn í Borgholm. Þar var samankominn
sænskur almenningur til að hylla prinsessuna. Að leikvanginum var
keyrt í gömlum glæsivagni. Eins og í sögubókunum steig prinsessan úr
vagninum eftir öllum kúnstarinnar reglum. Hún þótti mjög glæsileg, í
hvítum kjól með bláum röndum, hvítum skóm og með hárið tekið aftur.
Á íþróttaleikvanginum voru henni færðar gjafir og heillaóskir frá helstu
mönnum Svíaríkis.
Að því búnu var haldið aftur til hallarinnar þar sem hin rómaða veisla
var haldin.