Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 36
/>A
F R E T
A S K O T I Ð
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskoíum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
. _.... i _.. rtíh.
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
Lífeyrissjóðiniir:
Vaxtahækkun
verður
að koma til
I morgun hófust viðræður fulltrúa
lífeyrissjóðanna í landinu annars
.y^vegar og húsnæðismálastjórnar og
fjármálaráðuneytisins hins vegar um
skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna til
fiármögnunar húsnæðislánakerfis-
„Ég er nokkuð bjartsýnn á að sam-
komulag takist en til þess að svo
megi verða þurfa vextir af skulda-
bréfunum að hækka í 7,5 % til 8,5 %,
sem eru þeir vextir sem ríkið býður
þeim sem kaupa ríkisskuldabréf,"
sagði Pétur Blöndal, framkvæmda-
stjóri Landssambands lífeyrissjóða, í
samtali við DVrí morgun.
I fvrra þegar lífeyrissjóðimir
keyptu skuldabréf og fjármögnuðu
húsnæðislánakerfið var samið um
6,25 % vexti af þeim bréfum. Þeir
,vextir eru svo greiddir niður af rík-
inu þegar húsnæðislán em veitt því
lánin bera 3,25 % vexti. -S.dór
Fisksölukæran:
Ekkert heyrst
frá Interpol
Kæra, sem dómsmálaráðuneytið
sendi til Interpol vegna svika sem
Islendingur var beittur við sölu á
ferskum fiski, hefur sennilega engan
árangur borið. Samkvæmt upplýs-
*ingum sem DV fékk hjá dómsmála-
ráðuneytinu í gær hefur ekkert
heyrst írá alþjóðalögreglunni um
málið.
Þorsteinn A. Jónsson hjá dóms-
málaráðuneytinu sagði að ekki væri
víst að fréttir af málinu væm komn-
ar hingað þó svo að leit að þeim
grunaða hefði borið árangur þar sem
leitað væri erlends manns. -sme
Innbrotíð í KÁ:
Dæmdurívarðhald
Rannsóknarlögregla ríkisins ósk-
aði þess að maður sá, sem hand-
tekinn hefur verið og hefur játað
aðild að innhrotinu í Vöruhús KÁ á
wj3elfossi, yrði dæmdur til að sitja í
gæsluvarðhaldi til 19. ágúst. Saka-
dómur Reykjavíkur hefur nú fallist
á beiðni Rannsóknarlögreglunnar.
Ekki hefur en tekist að hafa uppi
á þeim sem stóðu að innbrotinu
ásamt hinum handtekna. -sme
LOKI
Fögur er hlíðin ...
og fer ég nú hvergi!
Þorsteinn Pálsson og Jón Helgason kvaddlr til yfirheyrslu í
Eg fer hvergi
- segir forsætisráðherra
„Ég hef ekki verið kvaddur fyrir
neina dómstóla í Bandaríkjunum.
Ég hef ekki fengið nein plögg um
þetta og þetta er það fyrsta sem ég
heyri um málíð. Ég held sattað segja
að þetta hljóti að vera einhver della
þó ég sé alveg áhyggjulaus yfir þvi
þó einhverjir dómstólar í Bandarflcj-
unum vilji 'hafa tal af mér. Ég færi
hvergi þó slík kvaðning kæmi,“
sagði Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra er hann var spurður hvort
hann og Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra hafi verið kvaddir til að
mæta til yfírheyrslu í Connectícut
vegna þyrluslyssins í Jökulfjörðum
1983.
Það munu vera lögmenn Sikorsky
þyrlufyrirtækisins sem viíja fá vitn-
isburð Þorsteins og Jóns i máli
íslenska ríkisins gegn Sikorsky
verksmiðjunum en þessi málaferli
eiga rætur að rekja tíl slyssins er
TF-RÁN hrapaði í Jökulfjörðum
með áhöfh 1983.
í kvaðningunni mun Jóni Helga-
syni, fyrrverandi dómsmálaráðherra,
og Þorsteini Pálssyni, fyrrverandi
ij ámiá laráðhcrra, vera gert að mæta
til yfírheyrslu 18. þessa mánaðar.
Kvaðningin mun ekki hafa verið
send ráðherrunum sjálfum heldur
lögmanni Landhelgisgæslunnar í
Conneetícut.
-ATA
Salmonellan á ættarmótinu:
Tekst ekki að einangra sýkilinn
„Okkur hefur ekki tekist að ein-
angra sýkilinn enn þar sem við
fundum ekkert í sýnum sem tekin
voru á svínabúinu sem leit grunsam-
lega út. Salmonella er erfiður sýkill
og því er ekki hægt að útiloka neina
leið eins og nú stendur," sagði Sig-
urður Sigurðarson yfirdýralæknir.
Eins og áður hefur komið fram
sýktust um 40 aðilar, sem staddir
voru á ættarmóti að Laugum í Sæl-
ingsdal, af salmonellu. í leit að
uppruna sýkingarinnar kom í Ijós
að hana var að finna í svínakjöti sem
slátrað var hjá Sláturfélagi Suður-
lands. Samdægurs þeim svínum sem
sýkillinn fannst í, var slátrað svínum
frá 8 bæjum. Tekin voru sýni frá
þeim öllum og einungis sýni frá ein-
um bæ var grunsamlegt.
„Þó að það hafi í fyrstu verið talið
líklegt og sýni grunsamleg þá finnst
ekkert á búinu sjálfu við nánari
rannsókn. Því er ekki hægt að stað-
festa að sýkillinn sé upprunninn frá
þessum bæ frekar en öðrum,“ sagði
Sigurður. -JFJ
Veðrið á morgun:
Léttskyjað
sunnan- og
suðvest-
anlands
Það verður hæg norðaustanátt á
landinu á morgun. Skýjað verður
um norðan- og austanvert landið
en víða léttskýjað sunnan- og suð-
vestanlands. Hiti verður á bilinu 7
tíl 16 gráður.
^ ib
ísafjarðaritirkja:
Ekki hægt að
útiloka íkveikju
Þegar verið var að vinna við gamlan bil í Vökuporti um miðjan dag í gær barst logi frá suðutæki í bensín
og olíur með þeim afleiðingum að eldur komst í þrjá gamla bíla til viðbótar. Slökkvibill frá Árbæjarstöð-
inni kom fljótt á vettvang og réð niðurlögum eldsins á skömmum tíma. Engin slys urðu á mönnum við
óhappið. Samkvæmt upplýsingum, sem DV fékk hjá Slökkviliðinu í Reykjavík, vill óþarflega oft verða
laus eldur í porti Vöku. -sme/DV-mynd S
Samkvæmt upplýsingum frá Rann-
plysmgum
sóknarlögreglunni á Isafirði er ekki
hægt að útiloka að um íkveikju hafi
verið að ræða þegar Eyrarkirkja á
ísafirði eyðilagðist í eldsvoða fyrir
skömmu. Rannsóknarlögreglan lagði
áherslu á að eldsupptök væru ókunn
og beðið yrði þar til sýni, sem tekin
voru úr rústunum, hefðu verið rann-
sökuð.
Gunnlaugur Jónasson, formaður
sóknamefhdar, sagði í samtali við DV
í morgun að lögð hefði verið fyrir-
spum til bæjarstjómar ísafjarðar um
hugsanlega lóð fyrir nýja kirkju. Sú
lóð sem hæst ber er autt svæði á upp-
fyllingu fyrir neðan nýja sjúkrahúsið.
Gunnlaugur sagði að 'kanna þyrftí
burðarþol lóðarinnar ásamt fleirir at-
riðum áður en hugað yrði að lóðinni
að alvöru. Gunnlaugur sagði að einnig
kæmi til greina að byggja nýja kirkju
á stað þeirrar gömlu reyndist ekki
hægt að endurbyggja hana. I Hnífsdal
er kapella sem sambyggð er skólanum
þar og notast söfhuðurinn við hana
nú. Gunnlaugur sagði að gott væri að
hafa kapelluna þó hún kæmi ekki í
stað kirkjunnar.
-sme
Jóhann enn
efstur
Nú er spennan í hámarki á milli-
svæðamótinu í Szirák. I gær hafði
Jóhann Hjartarson hvítt á móti Salov
frá Sovétríkjunum, sem er í öðm til
þriðja sæti á mótínu, en þeir sömdu
um jafntefli eftír ellefú leiki.
Þrjú önnur jafntefli vom samin í
fimmtándu umferð: Totorcevic og Ad-
orjan sömdu um jafntefli, Nunn og
Beliavsky, og Ljulwjevic og Anders-
son. Bouazez vann hins vegar Milos,
Benjamin vann De La Villa og Port-
isch vann Christiansen, en skák þeirra
Flear og Marin var ólokið þar sem
Flear var þó sennilega með tapaða
stöðu.
Enn er Jóhann einn efstur á þessu
gífurlega sterka mótí, með ellefu vinn-
inga. Salov og Portisch em í öðm til
þriðja sæti með tíu og hálfan vinning,
Nunn er í fjórða sæti með tíu vinninga
og biðskák, Beliavsky er i fimmta
sætí með níu og hálfan vinning.
Síðustu tvær umferðimar verða
tefldar á morgun og mánudag. Á morg-
un hefur Jóhann svart á mótí Allan,
sem er með lægstu mönnum á mótinu,
en á mánudaginn teflir hann við Bel-
iavsky sem nú er í fimmta sæti. Búast
má við því að Beliavsky leggi allt sitt
af mörkum til að vinna þá skák.
-KGK
4
5
S
f
\4
4
Bæjarráð Hafnarfjarðar:
Ákvörðun um
áfiýjun frestað
Bæjarráð Hafnarfjarðar ræddi dóm
bæjarþings Hafnaríjirrðar í Thors-
plansmálinu svokallaða á fúndi sínum
í gær. Bæjarráðið ákvað að fresta
ákvörðun um það hvort áftýja skyldi
dómi bæjarþings til Hæstaréttar. Á-
kvörðun um áfrýjun verður að öllum
líkindum tekin á næsta bæjarráðs-
fundi.
Svo sem frá hefúr verið skýrt var
bæjarsjóði gert að greiða Landsbanka
íslands, sem eignaðist allar eignir
Kveldúlfe hf. 1973, rúmar 37 milljónir
króna vegna eignarupptöku á lóð
Kveldúlfe sem kölluð hefur verið
Thorsplanið.
-ATA
4
4
4
4
4
4
4
4
í
4