Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Síða 16
16
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
Spumingin
Ertu ánægð(ur)
með skattinn?
Ari Jóhannesson: Já, ég er ánægður,
þetta er allt í lagi.
Margrét Hallgrímsdóttir: Nei, mér
finnst ég hafa komið illa út úr þessu.
Ég var búin að borga mikið fyrirfram
og fannst ég ætti ekki að fá neitt.
Gunnlaugur Skaftason: Já, ég er
ekkert óánægður.
Laufey Lúðvíksdóttir: Hann var
nokkuð hár, allavega hærri en ég
reiknaði með.
Dagbjört Gunnarsdóttir: Er nokkur
ánægður? Ég er mjög óánægð en ég
fékk það sem ég reiknaði með.
Kristján Guðfinnson: Ég er mjög
ánægður, þetta var alveg það sem
að ég reiknaði með.
Lesendur
Virðingarleysi Hrafns
1955-0990 hringdi:
Kona, sem hafði samband við blað-
ið í gær, sagði að margar spumingar
hefðu vaknað hjá sér eftir að hún
tók þátt í töku myndar Hrafhs
Gunnlaugssonar, í skugga hrafrisins.
Sagðist hún sjaldan eða aldrei
hafa upplifað annað eins virðingar-
leysi gagnvart mönnum, skepnum
og náttúnmni yfirleitt, en hún sagð-
ist hafa verið staðgengill í atriðinu
sem tekið var við Gullfoss.
„Fyrst langar mig til að spyija;
hvar og hvemig er það fólk tryggt
sem tekur þátt í myndinni, ég tala
ekki um þegar um áhættuatriði er
að ræða, eins og var þama við Gull-
foss? Nú segir framkvæmdastjóri
kvikmyndarinnar að það séu Svíar
sem standi að myndinni. Hafa þeir
til þess tilskilin leyfi? Er þeim ekki
skylt að borga umsamin lágmarks-
laun í landinu? Þeir sem tóku þátt
í atriðinu við Gullfoss vom látnir
mæta í rútu hér í Reykjavík kl. 02:30
og var ekki komið i bæinn íyrr en
23:30. Fyrir þetta fengu þeir, sem
taka vildu við, kr. 900 íyrir 21
klukkutíma.
Hvað segir Hollustuvemd ríkisins
við því þegar fólki er haldið blautu
og hröktu úti, án þess að komast í
afdrep, svo ekki sé minnst á salemis-
aðstöðu, sem var engin. Svo má
bæta því við að við fengum ágætis
morgunverð, sæmilegan hádegis-
verð, en eftir það fengum við hvorki
vott né þurrt.
Ekki er hestaat nýtt af nálinni i kvikmyndum.
Hver gaf leyfi til þess að friðlandið
við Gulifoss yrði notað til kvikmynd-
unar og hver átti að hafa eftirlit með
því? Eftir þau blaðaskrif sem urðu
um daginn, hvers vegna var ekki
farið með hestana til dýralæknis?
Þessar og fleiri spumingar hafa
komið upp hjá mér eftir að ég varð
vitni að því sem þama gerðist. Hvað
segja leikarasamtökin við því að á
meðan fjöldi þeirra gengur atvinnu-
laus skuli vera fengið fólk til þess
að taka þátt í þessari mynd á smán-
arlaunum? Svo ég komi aftur inn á
tryggingar fólksins, þá var það ekki
Hrafni Gunnlaugssyni að þakka að
ekki varð slys þegar graðhestur
mddist á fólk og hestamir fældust
eftir atið. Og þvílíkt virðingarleysi
fyrir mannslífum, þegar graðhestur-
inn hljóp að hópnum kallaði Hrafh
til fólksins: Standið fyrir hestunum.
Að lokum vil ég segja þetta; af
hverju gefa aðstandendur myndar-
innar ekki dýravemdunarsamtök-
uunum upp lista yfir það fólk sem
þama var þannig að þau geti kannað
þetta hlutlaust?
Með virðingu fyrir lífinu.
Manna- og dýravinur.
Tívólí:
Trampólínið traust tekjulind
Magnús skrifar:
Ég fór ásamt fleirum í Tívolíið í
Hveragerði um helgina. Þar em nokk-
ur leiktæki sem gleðja böm á öllum
aldri.
Það var tvennt sem boðið var upp á
sem vakti undrun mína. Annað er
trampólín eitt mikið. Aðgangur að því
kostar einn miða eða 80 krónur. Hver
sem kaupir sér aðgang að þessu hopp-
tæki má hoppa í tvær mínútur. Við
hopptækið stendur að mest megi þrír
hoppa samtímis en þá verði hver að
greiða einn miða fyrir.
Með fullri nýtingu nást því um sjö
þúsund krónur á klukkustund, bara á
þetta annars ómerkilega tæki.
Draugahúsið er einn brandari. Að-
gangur að því kostar 160 krónur, eða
tvo miða. Aðvörunarskilti er fyrir utan
en á því stendur að þeir sem em yngri
en tíu ára fái ekki aðgang nema í fylgd
með fullorðnum, einnig em hjartveikir
varaðir við. Þegar ég fór í „draugahú-
sið“ ásamt sjö og tíu ára bömum var
margt fólk að reyna ósköpin. Svo mik-
ið er víst að enginn hlaut skaða af.
Labbið í gegnum „draugahúsið" tók
eitthvað nærri fimm mínútum og svo
mikið er víst að engum brá, hvað þá
meira. Beinagrindur og fleira sem
komu á móti fólki þama inni vom svo
gervilegar að það nær ekki neinu tali.
Verðlag á aðgangi að hopptækinu
og „draugahúsinu“ er með því furðu-
legra sem ég hef kynnst. Það má vera
að forsvarsmenn Tívólísins séu það
hjartveikir að þeir treysti sér ekki í
labbitúr um „draugahúsið" en ég
skora samt á þá að telja í sig kjark
og skreppa inn til að sjá hvað þeir
bjóða gestum sínum uppá fyrir 160
krónur. Því bágt á ég með að trúa að
þeir sem verðlögðu labbitúrinn hafi
nokkum tíma komið þar inn. Eins
væri gaman að vita hvort trampolínið
hafi kostað meira en það sem fæst inn
á það á einni klukkustund.
Látið Laugaveginn í friði
Vegmóður skrifar:
Hvenær kemur að því að þessum
svokölluðu endurbótum á Laugaveg-
inum lýkur? Það er aldeilis stórfurðu-
legt að einn fjölfamasti vegarspotti
landsins skuli mánuðum og árum sam-
an vera sundurtættur og svo torfær
að annað eins þekkist ekki nema á
erfiðustu §allvegum.
Ef þetta á að halda svona áfram hlýt-
ur öll verslun við Laugaveginn að
leggjast af enda augljóst að fólk leggur
miklu frekar leið sína í Kringluna eft-
ir að hún opnar en að ætla sér að
brjótast Laugaveginn á enda.
Strætisvagnaferðir þama um em
allar svo úr lagi gengnar að við liggur
að fólki sé ekið í fjarlæga borgarhluta
ef það tekur sér far með vögnum sem
áður gengu frá Hlemmi og niður á
Lækjartorg. Það er því ekki að undra
þótt margur sé orðinn þreyttur á þess-
ari endaleysu og vilji fá akfæra leið
um Laugaveginn á ný.
Þegar menn fá sér falskar er
ekki nema sjáifsagt aö þeir ráðf
litnum sjálfir.
Gular
tennur
Einn reiður skrifar:
Þannig er að ég fór til tannlækn-
is hér í borg til að ia mér tennur,
sem kannski er ekki i frásögur
færandi, nema hvað mér láðist að
spyrja um efni tannanna. Ég hafði
haft postulínstennur áður og það
hvítar.
Nú kemur að því að ég sæki
tennumar og borga fyrir þær kr.
36.300. Nú kemuri Ijós að tennum-
ar em úr plasti og þar að auki
gular. Látum það vera að þær séu
úr plasti en að þær skuli vera gul-
ar, líkar mér alls ekki. Ég kvartaði
yfir litnum en það varð heldur fátt
um svör.
Ég hefði haldið að tannlæknar
ættu að gefa viðskiptavinum sín-
um kost á því að velja bæði lit og
efiii. Tannlækninum var í lófa lag-
ið að fara eftir lit eldri tannanna,
nema aðeins hafi verið um einn lit
að ræða.
Laugavegurinn er nú loks aö komast í samt lag.
Hringið
í síma
27022
milli kl.
13 og 15,
eða skrifið.