Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Qupperneq 19
18
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
íþróttir
• Trausti Ómarsson lék vel með Vikingum í gærkvöldi og skoraði mark
úr vítaspyrnu. DV-mynd Brynjar Gauti
Víkingar settu
upp homin
- sigruðu Siglfirðinga, 2-0
Víkingar unnu loks leik eftir all-
nokkrar hrakfarir i síðustu umferðum
í annarri deild. Andstæðingar Víkinga
í Laugardalnum í gærkvöldi voru Sigl-
firðingar, KS. Náðu þeir ekki að svara
mörkum Atla Einarsson og Trausta
Ómarssonar.
Með þessum sigri komust Hæðgerð-
ingar á topp annarrar deildar, hafa
þeir nú 22 stig eftir 13 leiki.
„Ég er ákaflega ánægður með að
vinna á nýjan leik,“ sagði Jóhann
Þorvarðarson, fyrirliði Víkings, í gær-
kvöldi. „Eins og málin standa nú
tökum við aðeins einn leik fyrir í einu
en markmiðið er vitanlega það sama
og í upphafi. Við ætlum upp í fyrstu
deildina. í dag lékum við vel en nýttum
ekki færin sem skyldi. Ég tel þó að
þetta sé allt að ganga saman hjá okk-
ur.“
I upphafi leiksins í gær sóttu liðin á
vixl en þegar á leið tóku Víkingar
völdin. Áttu þeir Qölmörg færi sem
ekki nýttust. Gestimir voru þó jafiian
hættulegir í skyndisóknum.
Fjrra mark sitt gerðu Víkingar und-
ir lok fyrri hálfleiks, þá skoraði Atli
Einarsson af stuttu færi.
Eftir hléið sóttu Víkingar ákaft en
höfðu ekki erindi lengst af. Leikurinn
var að jafhast nokkuð er Trausti
Ómarsson skoraði úr viti á 75. mínútu.
Eftir það var allur vindur úr Siglfirð-
ingum og sanngjam sigur Víkinga
kom á daginn.
Maður leiksins: Jóhannes Sævarsson,
Víkingi. -JÖG
Framdagur
Framdagurinn er á sunnudaginn.
Kaffiveitingar verða í höndum
Framkvenna í nýbyggingu Fram-
heimilisins frá kl. 14. Leikir yngstu
flokka knattspymudeildar verða á
á sunnudag
félagssvæðinu frá kl. 13.15. Leikur á
vegum handknattleiksdeildar verður
við Álftamýrarskóla kl. 14.00. Eru
stuðningsmenn félagsins og aðrir
velunnarar hvattir til að fjölmenna.
Svar til Ómars
-vegna bvéfs hans í DV í gær um „hú$aleigumálið“
Vogna fullyrðinga sem fram koma
á íþróttasíðu DV í gær í bréfi Ómars
Einarssonar, framkvæmdastjóra
íþrótta- og tómstundaráðs Reykja-
víkur, vilja ímdirritaðir blaðamenn
taka eftirfarandi fram:
Ómar segir í bréfi sínu að fullyrt
hafi verið í DV að íþróttafélögin í
Reykjavík séu kúguð af borgaryfir-
völdum vegna okurhúsaleigu sem
félögin þurfa að greiða. í dálkinum
„Muggur á mánudegi" í síðasta
mánuði var þetta fullyrt. Rétt er að
taka fram að „Muggur“ er ekki skrif-
aður af íþróttafréttariturum DV og
því er þessi umrædda fullyrðing, sem
deila má um hvort rétt sé eða röng,
ekki frá okkur komin.
• Ómar segir einnig í bréfi sínu
að „Fréttamaður DV heldur því fram
að íþróttafélögin í Reykjavík séu að
gefast upp.“ Hið rétta er að þeir fjöl-
mörgu aðilar sem DV hefur rætt við
vegna þessa máls hafa verið á einu
máli um að félögin hér í Reykjavík
séu mjög illa stödd fjárhagslega. Og
við höfum mikla vissu fyrir því að
það er rétt, hvað sem ómar Einars-
son og Morgunblaðið segja.
• í lok bréfeins frá Ómari er væg-
hendur okkur þar sem það skal
vera stefna blaðamanna hveiju
sinni, þegar greint er ftá málum,
að sjónarmið beggja aðila liti
dagsins Ijós. Sú fuliyrðing Ómars
að við höfum aðeins kynnt okkur
málin frá miðpunkti með augum
dómarans er alröng og bcinb'nis
ósönn. t umfjöilun okkar um
„húsaleigumálið“ höfum við birt
fjölmörg viðtöl við aðila sem sitja
beggja vegna borðsins í þessu
máli. Nægir þar að nefna gjald-
kera Handknattleiksráðs
Reykjavikur, formann hand-
knattleiksdeildar Víkings, ritara
í stjóm Handknattleikssam-
bands íslands og gjaldkera
handknattleiksdeildar Ármanns
annars vegar og hins vegar Júl-
íus Hafstein, formann Iþrótta-
bandalags Reykjavíkur, og auk
hans aUa aðra fuUtrúa í iþrótta-
og tómstundaráði Reyfrjavíkur.
Aldrei höfúm við klæðst dómara-
búningnum í þessu máU enda er
það ekki hlutverk okkar. Hafi
Ómar á annað borð fylgst með
umfjöllun DV um „húsaleígu-
málið“ þá verður að gera þá
ast sagt vafasöm fullyrðing. Þar kröfú til framkvæmdastjóra
segin „...en um leið verður að gera íþrótta- og tómstunda, sem viU
þá kröfu til virtra fjölmiðla sem vilja láta taka sig alvarlega, að hann
láta taka sig alvarlega að þeir láti ekki frá sér í ffamtiðinni
kynni sér málin frá báðum hlið- órökstuddar og beinlínis ósannar
arlínum en ekki einungis frá fúUyrðingar sem þessar.
miðpunkti með augum dómar- Stefán Kristjánsson,
ans.“(leturbreyting DV). Hér er Jón Kristján Sigurðsson,
um alvarlega ásökun að ræða á íþróttafréttamenn á DV.
DV
Framarar búa ekki yfir
sama krafb ogValsmenn,
KR-ingar og Þórsarar
- þeir hafa aðeins skorað 3 mörk á síðustu 30 mín. í leikjum sínum í 1. deild
Köflóttir Ieikir íslandsmeistara
Fram hafa vakið mikla athygli að
undanförnu. Meistaramir hafa klúðr-
að unnum stöðum og máttu sætta sig
við jafntefli, 4-4, gegn Skagamönnum
og síðan tap, 2-3, gegn KR. I báðum
þessum leikjum vom Framarar búnir
að ná tveggja marka forskoti, 3-1 og
2-0. Framliðinu skortir ekki þrek til
að ljúka 90 mín. leikjum en aftur ú
móti er greinilegur skortur á réttu
hugarfari og keppnisskapi hjá liðinu.
Það sést best á því að í tólf leikjum
liðsins hafa leikmenn ekki skorað
nema þijú mörk á síðustu 30 mín.
Þegar Framarar léku gegn Völsungi
vom þeir komnir yfir, 5-0, á 56. mín-
útu en þá duttu þeir ofan í sömu
gryfruna. Þeir áttu í erfiðleikum með
að skora. Höfðu greinilega ekki skap
til að halda áfram.
Það er annað upp á teningnum hjá
toppliðinum þremur, Val, KR og Þór.
Leikmenn þessara liða skora mikið,af
mörkum undir lok leikja sinna. Vals-
menn, sem hafa skorað 22 mörk í
deildinni, hafa skorað átta af þeim á
síðustu 15 mínútunum, Þórsarar hafa
skorað sjö og KR-ingar einnig sjö
mörk á síðustu 15 mínútunum, þar af
fjögur á síðustu fimm mín. Þórsarar
eru sókndjarfastir í deildinni á loka-
mínútunum. Þeir hafa skorað ellefu
af 23 mörkum sínum á síðustu 25 mín.
leikja sinna.
Á töflunni hér á síðunni sést að
Skagamenn skora jafnt og þétt í leikj-
um sínum. Skagamenn hafa skorað
þrjú mörk á fyrstu 10 mín. í leikjum
sínum. Það hafa Þórsarar einnig gert.
FH-ingar eru aftur á móti ákveðnastir
í upphafi leikja. Þeir hafa skorað sex
af þrettán mörkum sínum á fyrstu 16
mínútunum.
Framliðið er það lið sem byrjar
seinni hálfleikinn í leikjum sínum best.
Framarar hafa skorað átta af þeim
ellefú mörkum sem þeir hafa skorað í
seinni hálfleik á fyrstu ellefu mín.
hálfleiksins. Aftur á móti eru Þórsarar
lengur að kóma sér af stað því að þeir
hafa ekki skorað mark á fyrstu 10
mín. í seinni hálfleik, eins og sést á
töflunni. Hitt Akureyrarliðið, KA, og
Víðir og Völsungur eru einnig sein í
gang. Þessi þrjú lið hafa aðeins skorað
eitt mark ú fyrstu 20 mín. í seinni
hálfleik.
Valsmenn hafa ekki skorað mark á
fyrstu 10 mín. í leikjum sínum og þeir
hafa aðeins skorað eitt mark á fyrstu
10 mín. í seinni hálfleik.
Hér á töflunni má sjá á hvaða mínút-
um mörkin 176 í 1. deildar keppninni
hafa verið skoruð. Flest mörk hafa
verið skoruð á 76. mín. til 85. mín., eða
25. Markamínútan í deildinni er 87.
mínúta en á henni hafa verið skoruð
sex mörk. Fimm mörk hafa verið skor-
uð á 16., 32., 55., 56., 73., 82. og 86.
mínútu.
-sos
FYRRI HÁLFLEIKUR SEINNI HÁLFLEIKUR
1.-10. m. 11.-20. m. 21 .-30. m. 31 .-40. m. 41.-45. m. 46.-55. m. 56.-65. m. 66.-75. m. 76.-85. m. 86.-90. m. Samtals mörk
Fram 2 2 3 4 1 5 3 1 0 2 23
Þór 3 1 2 2 2 0 2 4 6 1 23
Valur 0 2 2 6 0 1 3 0 6 2 22
KR 1 0 1 3 3 3 2 2 3 4 22
Akranes 3 2 2 1 2 2 2 2 3 1 20
Keflavík 0 4 1 1 1 2 1 3 3 2 18
KA 0 2 2 2 0 1 0 4 1 2 14
FH 4 2 1 1 0 1 2 2 0 0 13
Völsungur 1 2 2 0 1 1 0 1 2 1 11
Vlðir 1 1 0 2 2 0 1 2 1 0 10
15 18 16 22 12 16 16 21 25 15 176
• Trevor Francis.
Francis til Rangers
Enn heldur Graeme Souness áfram
að kaupa leikmenn til Glasgow Ran-
gers. Þó að skoski titillinn hafi verið
í höfh á síðasta ári dregur hann ekki
af sér við kaupin. I gær keypti hann
hinn 33 ára gamla Trevor Francis frá
Ítalíu. Það er nokkuð síðan ljóst var
að Francis léki ekki meira á Italíu en
nú loksins voru kaupin gerð og þurfti
75.000 pund til. Francis, sem er góður
vinur Souness, er mikill hrakfalla-
bálkur og byijar tímabilið samkvæmt
venju, meiddur.
• Áfram halda leikmenn að streyma
til Skotlands. í gærkvöldi var Peter
Nicholas seldur frá Luton til Aberdeen
fyrir 350.000 pund (20.000.000). Nichol-
as, sem er 27 ára, sagði að það væri
sorg i hjarta sínu en hann langaði að
leika í Evrópukeppni og því hefði hann
flutt sig.
• Bryan Robson kom öllum á óvart í
gær þegar hann reyndi að afeaka Di-
ego Maradona fyrir mark það sem
hann skoraði gegn Englendingum í
fyrra með „hendi guðs“. „Ég ásaka
Maradona ekki fyrir að skora þetta
mark,“ sagði Robson um leið og hann
skellti skuldinni á dómarann. Bobby
Robson landsliðsþjálfari tók undir
þessi orð fyrirliða síns.
-SMJ
• Kristján Olgeirsson.
Tveir Völsungar
í leikbann
Leikurinn gegn Fram verður Völs-
ungum dýrkeyptur. Tveir af lykil-
mönnum Völsungs eiga nú yfir höfði
sér leikbönn. Það eru þeir Kristján
Olgeirsson, sem var rekinn af leik-
velli, og Birgir Skúlason, vamarmað-
urinn sterki, sem fékk að sjá fjórða
gula spjaldið sitt í sumar.
Kristján og Birgir leika því ekki með
Völsungi í þýðingarmiklum leik í fall-
baráttunni gegn Víði í Garðinum 16.
ágúst.
-sos
Kóreumenn kaghýddu Svía
Það er skemmst frá því að segja
að Suður-Kóreumenn möluðu lið
Svía í fyrrinótt á hraðmótinu í Seo-
ul, 36-26.
Sænskir héldu í við „sirkuspilt-
ana“ í fyrri hálfleik og var jafht í
leikhléi.
í þeim síðari tóku heimamenn hins
vegar öll völd og var munurinn tíu
mörk þegar upp var staðið.
Skærasta stjama Kóreumanna,
Kang, gerði ekki færri en 16 mörk.
Voru félagar hans, rneð sama lagi
og hann sjálfur, ákaflega kúnstugir
í sóknaraðgerðum sínum - glöddu
gemingar þeirra ákaflega augu.
Athygli vakti hins vegar hversu
fáir fylgdust með þessum afrekum
heimamanna. Ólympíuhöllin í Seoul
tekur fimm þúsund manns í sæti og
var fremur tómlegt á pöllunum.
-JÖG
Afhverjuekkil Nú er ljóst að ekkert íslenskt lið mun taka þátt í Evrópukeppni fé- Evrópukeppni? alls ekki að bera kinnroða fyrir evr- ópskum andstæðingura sínum. Þá
lagsiiða í körfuknattleik. Er það ætti lið eins og TJMFN að eiga fullt
miður að íslensku liðin hafa ekki erindi í þessa keppni. Láðið hefur
metnað til að vera með í þessari haft þvílíka yfirburði hér heima á
keppni því siðast þegar íslenskt lið tók þátt í keppninni stóð það sig síðustu misserum að metnaður for- ráðamanna og leikmanna liðsins
með sóma. Frammistaða Hauka fyrir ætti að ýta liðinu í Evrópuképpni.
tveim árum gegn sænska liðinu T&by -SMJ
Basket sýndi að íslensk lið þurfa
FÖSTUDAGUR 7. ÁGTJST 1987.
31
Jazzballett í ágúst
3ja vikna4xíviku
90 mín. tímar
Kennari
Bára Magnúsdóttir
Coca Cola-mótið
Síðasta stigamót kylfinga fer fram
nú um helgina þegar Coca Cola-
mótið fer fram á Leiruvelli á
Suðumesjum. Verða leiknar 72 hol-
ur fyrir stigamenn á laugardegi og
sunnudegi. Jafhframt stigamótinu
verður opið punktamót á laugaideg-
inum. Er það opið öllum en skráning
fer fram á staðnum.
-SMJ
DV-lið 8. umferðar
Eins og kunnugt er lauk 8. umferð en nú en til glöggvunar fylgja með
ekki fyrr en á miðvikudagskvöldið úrslit úr þessari umferð:
þegar loksins náðist að leiða saman Fram - V ölsungur........ 6-0
lið Fram og Völsungs. Leikurinn var KA - Þór......................1-2
settur á 5. júlí en vegna vólarbilunar FH - ÍBK...................2-1
komust Húsvíkingar ekki suður. Vfðir-ÍA......................0-0
Vegna þessa var að sjálfsögðu ekki Valur-KR...................1-1
hægt að velja lið 8. umferðar fyrr
• Jón Páll Sigmarsson.
Er Jón Páll
sterkastur?
Keppni um sterkasta mann á íslandi 1987 fer
fram í miðbæ Reykjavíkur á morgun og hefet
keppnin kl.10.00 fyrir hádegi. í þessari keppni |
taka þátt allir okkar sterkustu menn.
• Keppni í að draga vörubíla fer fram fyrir
framan Alþingishúsið, bíladráttur fer fram |
neðst í Bankastræti, rafgeymalyfta í Austur-
stræti, trédrumbalyfta á Austurvelli. Þrjár |
síðustu greinamar fara fram í Hljómskálagarð-
inum en það er að velta tveimur bílum á sem |
skemmstum tíma, lyfta bobbingum og að síð-
ustu henda 25 kg lóðum yfir rá.
• Keppendur verða Jón Páll Sigmarsson,
Torfi Ólafsson, Hjalti Ámason, Magnús H.
Hauksson frá Keflavík, Flosi Jónsson frá Akur-
eyri og Njáll Torfason frá Tálknafirði.
-JKS
Landskeppni
við Lúxaia
íslendingar heyja landskeppni í frjálsíþróttum
við Lúxemborg í Laugardal nú um helgina.
Keppt verður laugardag og sunnudag og hefst
keppni báða daga kl. 14. Keppt verður í karla-
greinum og verða tveir keppendur frá hvorri
þjóð í hverri grein. Jafiiframt keppa gestir í
hverri grein, m.a. keppir besti spjótkastari Svía,
Peter Borglund og þriðji besti kringlukastari |
Svía, Göran Svenson, og kemur hann sérstak-
lega til að reyna við lágmarkið á heimsmeist-
aramótið í Róm en til þess þarf hann að kasta I
65 metra. Þá keppa þeir islenskir frjálsíþrótta-
menn sem næst standa landsliði í flestum
greinum. Og til þess að hífa mótið upp enn frek-
ar verður keppt í kvennagreinum báða dagana
og verða allar bestu frjálsíþróttakonur landsins
þar á meðal.
Þess má geta að í tilefni 40 ára afinælis FRÍ, I
sem er 16. ágúst, verður ókeypis inn á keppnina |
og er fólk hvatt til að nýta sér þetta kostaboð.
Fjögurliðvantar
enn þjálfara
- í úrvalsdeildinni í köifuknatdeik
Aðeins fimm lið af þeim níu sem koma til I
með leika í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á
næsta ári hafa ráðið þjálfara. Pálmar Sigurðs-
son verður með Hauka, Gunnar Þorvarðarson |
með ÍBK, Valur Ingimundarson með UMFN,
Einar Bollason með ÍR og Jon West með Val.
Aðeins Pálmar er nýliði í þessum hópi en hinir |
voru allir með sín lið í fyrra.
KR, UBK, UMFG og Þór eiga öll eftir að I
ráða til sín þjálfara en vitað er að Grindvíking-
ar hafa hug á að fá Bandaríkjamann til sín og
eru að leita fyrir sér hvað það varðar. Reyndar
þurfa liðin ekki að flýta sér svo mjög við að
finna þjálfara því íslandsmótið byijar seinna
en vant er eða 16. október með leik UMFN og
ÍR. Er þessi seinkun vegna þátttöku íslendinga
í Evrópukeppninni.
-SMJ
íþróttir
Japanir bitu
heiftariega
frá sér
- íslenska liðið vann með einu marki, 22-21
íslenska landsliðið í handknattleik
lagði lið Japans að velli í Seoul í fyrri-
nótt. Skoruðu okkar menn 22 mörk
en Japanir 21.
Leikið var í ólympíuhöllinni í Seoul
en sú þykir afar glæsileg. Það mann-
virki var sérstaklega reist vegna
handknattleikskeppninnar en hún
vekur sífellt meiri athygli á ólympíu-
leikum. Glíma þar enda fremstu
kempur veraldar í íþróttinni.
Eins og úrslitin í rimmu íslands og
Japans gefa til kynna var hart barist.
íslendingar leiddu í leiknum lengst af,
höfðu þeir yfir, 11-7, í hléinu.
Er á leið jafiiaðist hins vegar leikur-
inn og bitu Japanir heiftarlega frá sér
undir lokin. Náðu þeir að jafna þegar
10 mínútur lifðu af leik, 18-18. Var þá
allt í jámum og gekk hvorki né rak.
Þegar örskammt var til loka sigldu
Japanir síðan framúr, var staðan 21-20
þeim í vil og staða okkar pilta orðin
óvænleg. íslendingar réttu hins vegar
úr kútnum á elleftu stundu og skoruðu
síðustu tvö mörk leiksins - mörk sem
dugðu til sigurs.
Mörkin gerðu þessir leikmenn:
Kristján 8, Alfreð 6, Þorgils Óttar 4,
Guðmundur, Þorbergur, Karl og Atli
1 mark hver.
Að sögn Steinars J. Lúðvíkssonar,
eins fararstjóra íslenska liðsins, sat
flugþreyta í mönnum. Náðu þeir aldrei
að sýna sitt rétta andlit af þeim sökum.
Japanir voru hins vegar mjög frískir
að sögn Steinars. Sagði hann þá í góðu
leikformi um þessar mundir enda er
stefnan tekin á ólympíuleikana. Spila
Japanir í svonefndri Asíukeppni irrnan
tíðar en verðlaunasæti þar veitir rétt
til þátttöku í Seoul.
Aðbúnað allan kvað Steinar J. Lúð-
víksson góðan en taldi hann leikmenn
enn hálfráðvillta vegna tímamismunar
heima og ytra, nemur sá tíu klukku-
stundum.
íslenska liðið leikur við lið S-Kóreu
á morgun og verður sú rimma erfið.
Kóreumenn eru gífúrlega sterkir og
til alls vísir bæði þú og á ólympíuleik-
unum sjálfom.
„Við getum sigrað Kóreumenn,"
sagði þó Steinar í spjallinu við DV.
„Með því að leika agað og af yfirvegun
getum við unnið þetta sirkuslið.“
-JÖG
DV
SÚÐAVÍK
Nýr umboðsmaður frá 1.8. er Daníel Magnússon,
Aðalgötu 2, sími 94-4939.
UMSÓKNIR UM FRAMLÖG
ÚR FRAMKVÆMDASJÓÐI
ALDRAÐRA 1988
Sjóðstjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir
umsóknum um framlög úr sjóðnum 1988.
i umsókn skal vera nákvæm lýsing á húsnæði, fjölda
vistrýma, sameiginlegu rými, byggingarkostnaði, fjár-
mögnun og verkstöðu. Eldri umsóknir óskast end-
urnýjaðar.
Sérstök umsóknareyðublöð liggja frammi í heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytinu.
Umsóknir skulu hafa borist sjóöstjórninni fyrir 20.
september nk., Laugavegi 116, 105 Reykjavík.
6. ágúst, 1987.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra.
ísíma 83730 frá kl. 09-1
Jazzballettskóli Báru.
Ragnar Mar-
geireson, Fram,
sóknarmaður
Guðmundur
Fram, sóknare
maður
Ólafur Dani-
valsson, FH,
míðjumuður
,'VM
Ian Fleming,
FH, (2) vamar-
maðiu-
Sævar Leifeson,
Víði, vamar-
maður
Sig-
hvatsson, Val,
miðjumaður
Janus
laugsson, Fram,
(3) vamarmað-
Júlíus Tryggva-
son, Þór,(2)
varaarmaður
Pétur Ormslev,
Frara, (8) miðju-
maður