Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Side 28
40
FÖSTUDAGUR 7. ÁGÚST 1987.
Jarðarfarir
Áslaug Sigríður Sæmundsdóttir,
Suðurgötu 85, Akranesi, lést á heim-
ili sínu þann 27. júlí sl. Jarðarförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sveinn Anton Stefánsson, Hólma-
grund 12, Sauðárkróki, verður
jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 8. ágúst kl. 16.
Útför Gunnþórs Björnssonar,
Firði, Seyðisfirði, fer fram frá Seyðis-
fjarðarkirkju í dag, 7. ágúst, kl. 14.
Útför Oktavíu M. Gísladóttur, sem
lést þann 31. júlí, verður gerð frá
Hnífsdalskirkju laugardaginn 8.
ágúst kl. 11.
Hermann Österby, Hrísholti 17,
Selfossi, andaðist í Borgarspítalan-
um aðfaranótt 1. ágúst. Jarðarförin
fer fram frá Selfosskirkju laugardag-
inn 8. ágúst kl. 13.30.
Héðinn Sveinn Ásgrímsson, Hóla-
vegi 35, Sauðárkróki, verður jarð-
sunginn frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 8. ágúst kl. 14.
Útför Kristmundar Stefánssonar
frá Grænuhlíð fer fram frá Blönduós-
kirkju laugardaginn 8. ágúst kl. 14.
TOkynningar
Trúnaðarbréf afhent
Hinn 31. júlí aíhenti Ólafur Egilsson
sendiherra Ibrahim Babangida, forseta
Nígeríu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
fslands í Nígeríu með aðsetur í London.
Fræðslufundur fyrir
tungumálakennara
Mánudaginn 10. ágúst kl. 15 verður hald-
inn fræðslufundur í KHÍ, stofu 201, fyrir
tungumálakennara. Á fundinum verða
kynnt verkefni sem eru örvandi fyrir íjöl-
breytilega málnotkun nemenda. Leiðbein-
endur verða Sallie Harkness og Steve
Bell, lektorar við Jordanhill kennarahá-
skólann í Skotlandi. Þau hafa haldið
fjölmörg kennaranámskeið, bæði í heima-
landi sínu og víðs vegar um heim. Þau eru
stödd hér á landi vegna kennslu á nám-
skeiði KHÍ fyrir grunnskólakennara í
Þelamerkurskóla 4.-8. ágúst.
Norræn leiklistar-
miðstöðáhugafólks
Norræna áhugaleikhúsráðið - NAR - hélt
sinn 20. aðalfund í Lýðháskólanum í
Rómaríki í Noregi fyrir skömmu. Þar var
samþykkt menningarstefnuskrá fyrir
NAR, sú fyrsta í sögu ráðsins. í stefnu-
skránni er lögð áhersla á að varðveita og
þróa áhugaleikhúsið sem kraftmikla
hreyfingu, þar sem allir geti verið með,
óháð kyni, aldri, stöðu, uppruna og stjórn-
málaskoðunum. Áhugaleikhúsið skipar
núorðið þann sess í menningarlífi á Norð-
urlöndum og í norrænni samvinnu að
NAR mun í framtíðinni leggja meginá-
herslu á að koma á fót norrænni leiklistar-
miðstöð. í slíkri miðstöð kæmu allir þættir
áhugaleikhússins saman en menntun og
upplýsingamiðlun sætu þar í fyrirrúmi.
Bandalag íslenskra leikfélaga hefur frá
1970 tekið virkan þátt í NAR og íslenskt
áhugaleikhús hefur eflst mjög af því sam-
starfi. Aðalfund NAR í Rómaríki, leik-
smiðju og námskeið í tengslum við hann
sóttu 23 Islendingar frá leikfélögum alls
staðar af landinu. Formaður NAR er Ella
Royseng frá Noregi en varaformaður Ein-
ar Njálsson, Húsavík.
BIFREIÐA-
VARAHLUTA-
VERSLUN
Við höfum
opið á morgun,
laugardag,
frá 9.00 til 12.00.
VARAHLUTAVERSLUNIN
SlMAR: 34980 op 37273
AUGLÝSING
um styrki Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) á sviði heilbrigðisþjónustu árin 1988 og 1989.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur til
ráðstöfunar nokkurt fé til styrktar starfsfólki á sviði
heilbrigðismála. Lögð er áhersla á að styrkir komi að
notum við eflingu á heilsugæslu og við forvarnir sjúk-
dóma í samræmi við langtímamarkmið um heilbrigði
allra árið 2000.
Umsóknareyðublöð fást í heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu og á skrifstofu landlæknis.
Umsóknir sendist ráðuneytinu eigi síðar en 15. sept-
ember 1987.
6. ágúst 1987,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Lausar stöður dýralækna:
héraðsdýralæknis í Norðausturlandsum-
héraðsdýralæknis í Barðastrandarum-
3. Staða dýralæknis hjá Sauðfjárveikivörnum á Keld-
um.
Laun eru samkvæmt hinu almenna launakerfi starfs-
manna ríkisins.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir 20.
september 1987.
6. ágúst 1987,
Landbúnaðarráðuneytið.
1. Embætti
, dæmi.
2. Embætti
dæmi.
.BlíKfAtö
OLLUM
ALDRI
VANTARí
EFTIRTALIN
HVERFI
AFGREIÐSLA
Þverholti 11, sími 27022
Reykjavík
Eiríksgötu Mimisveg Arahóla Álftahóla Melabraut Seltjarnarnesi Skólabraut Seltjarnarnesi
Laugaveg oddatölur Ljósheima Hæðargarð 30-út
Bankastræti oddatölur Sporðagrunn Selvogsgrunn Hólmgaró 32-út
Lindargötu Ásenda
Klapparstíg 1-30 Kleifarveg Básenda
Frakkastíg 1-9 Garósenda
............................... Grundarstig Rauóagerði
Skiphoit 35-út Ingólfsstræti
Vatnsholt Amtmannsstíg Álfheima 2-26
Bolholt Bjargarstíg Glaóheima
Furugeröi Seljugerði Viójugeröi Laugfásveg Mióstræti
Háageröi Langagerói ******************************** Sörlaskjól Nesveg 21-út Freyjugötu Þórsgötu Lokastíg •••*•*••**•••••**••***•••*****•* Nýlendugötu Tryggvagötu 1-9
Norrænt þing skjalavarða á
Laugarvatni 6.-9. ágúst
Hinn 6. ágúst sl. hófst á Laugarvatni XV.
norræna skjalavarðaþingið, en þing nor-
rænna skjalavarða eru haldin reglulega á
þriggja ára fresti. Er þetta í fyrsta sinn
sem þingið er haldið á Islandi og er undir-
búningur þess í höndum Þjóðskjalasafns
Islands.
Þátttakendur eru alls staðar að af Norð-
urlöndum og eiga Grænlendingar og
Færeyingar þar sína fulltrúa. Aðsókn að
þinginu er geysimikil og verður það fjöl-
sóttara en síðasta þing sem háð var í
Danmörku árið 1984 en skráðir þingfull-
trúar nú eru um 160 talsins.
Á þinginu verða til umfjöllunar þrjú
ineginviðfangsefni. Endurgerð horfinna
skjalasafna þar sem fjallað verður um það
hvemig endurskapa megi skjalasöfn sem
nú eru að mestu glötuð. Á þetta vel við á
íslandi og má nefna sem dæmi skjalasöfn
lögmannsembættanna fornu og skjalasafn
Norðuramtsins.
Annað meginefni þingsins fjallar um
skjalasöfn sveitarstjórna, hvernig nota
megi þau við rannsóknir og almennt um
stjómun þeirra. Þriðja viðfangsefnið er
skjalasöfn sem taka til mikils magns upp-
lýsinga t.a.m. persónuupplýsinga og helstu
vísindalegra nota sem hafa má af slíkum
söfnum. Ennfremur er fjallað um vanda-
mál sem snerta varðveislu slíkra skjala-
safna en hér er einmitt um að ræða þau
gögn sem safnast saman í tölvuskráningu
í nútímasamfélagi.
Samstarf norrænna skalasafna er víð-
tækt og hafa íslendingar notið góðs af því
í ríkum mæli. Nú síðast margs konar ráð-
gjöf varðandi endurskipulagningu Þjóð-
skjalasafnsins og hinna nýju húsakynna
þess að Laugavegi 162.
Akstur strætisvagna
Hlemmur - miðborg
Þegar framkvæmdum við Laugaveginn
lýkur, væntanlega þriðjudaginn 11, ágúst,
hefst akstur sérstakra strætisvagna milli
Hlemms og miðborgar, án gjaldtöku, á
tímanum kl. 13-19 mánudaga til föstu-
daga. Þrír vagnar verða í þessum ferðum
og verða að jafnaði 6-7 mín. á milli vagna
á hverjum viðkomustað (sjá meðf. kort).
Vagnamir hafa viðkomu á öllum bið-
stöðvum á leiðinni: Hlemmur - Laugaveg-
ur - Bankastræti - Lækiargata -
Vonarstræti - Suðurgata - Aðalstræti -
Hafnarstræti - Hverfisgata - Hlemmur. Á
Hlemmi hafa vagnamir viðkomu Lauga-
vegarmegin við áningarstaðinn.
A ofangreindum tíma aka aðrir strætis-
vagnar ekki um Laugaveg. Vagnar á
leiðum 2, 3,4, 5 og 15A aka þá án viðkomu
frá Hlemmi að Lækjartorgi um Skúlagötu.
Á öðrum tímum, þ.e. kl. 7-13 og 19-24 alla
daga, aka þessir vagnar um Laugaveg.
SVR væntir þess að þessi tilraunaakst-
ur, sem fyrst um sinn mun standa til
áramóta, verði til að létta á umferð á mið-
borgarsvæðinu. Eru eigendur einkabíla
einkum hvattir til að leggja bílum sínum
á jöðmm svæðisins (m.a. við Faxaskála)
og nota strætisvagnana til að ferðast um
miðborgarsvæðið. Á þetta ekki síst við um
starfsfólk sem sækir vinnu á þessar slóðir.
Aukin þjónusta Arnarflugs
Eftirfarandi skipulagsbreytingar tóku
gildi hjá Amarflugi þann 5. ágúst sl.
Til þess að leggja verulega aukna
áherslu á þjónustu félagsins við viðskipta-
menn var sett á laggirnar sérstök þjón-
ustudeild. Undir hana heyrir öll þjónusta
við farþega, þ.e. afgreiðsla farseðla, ferðir
til og frá flugvelli, þjónusta í flugstöðvum
og um borð í flugvélum. Deildarstjóri þjón-
ustusviðs er Halldór Sigurðsson.
Vegna stóraukinna umsvifa í vömflutn-
ingum Arnarflugs hefur einnig verið
stofnsett sérstök vöruflutningadeild. Litið
er á þessa aðgerð sem fyrsta skref í þá átt
að aðskilja í framtíðinni vöruflutninga og
farþegaflutninga félagsins. Einnig er
stefnt að því að auka vemlega kynningu
á þessari starfsemi Arnarflugs en þjónusta
félagsins á þessu sviði er þegar rómuð.
Deildarstjóri vömflutningasviðs er Arn-
geir Lúðvíksson.
Tilgangur þessara skipulagsbreytinga
er síðast en ekki síst að bæta aðstöðu
Amarflugs til verulega aukinnar mark-
aðssóknar.
Deildarstjóri markaðssviðs er Magnús
Oddsson. Hann er jafnframt staðgengill
framkvæmdastjóra.
Aðrar deildir starfa áfram samkvæmt
eldra skipuriti, þ.e. stjómunarsvið undir
stjóm Þórðar Jónssonar viðskiptafræð-
ings og flugrekstrarsvið undir stjórn
Þorsteins Þorsteinssonar flugvélaverk-
fræðings.
Tapað - Fundið
Kvenmannsgullúr tapaðist
síðdegis í gær, líklega neðarlega á Há-
teigsvegi. Úrið er af Pierpont gerð.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma 15847.
Fundarlaun.
Lyklarfundust
2 lyklar á blárri kippu fundust við Fella-
skóla. Upplýsingar í síma 75977.
Kettlingur fannst í Suöurhlíð-
um
Svartur kettlingur, ca 6-8 mánaða, fannst
í Víðihlíð um sl. helgi. Hann er mjög gæf-
ur og með svarta hálsól með bjöllu.
Upplýsingar í síma 39830.
Gullstuldur, fíkniefnabvot, falsanir og fleira:
Þrír dæmdir til
fangelsisvistar
- sá fjórði hlaut skilorðsbundinn dóm
„Allir hinna ákærðu voru sakfelldir
samkvæmt ókærunni að undanskildu
þvi að einn var sýknaður af ákæru
um þjófnað á handsmíðuðum gítar og
litlum peningakassa," sagði Ágúst
Jónsson sakadómari.
Eins og áður hefur komið fram í DV
voru fjögur ákærð fyrir fjársvik,
skjalafals, ávísanamisferli, fíkniefha-
brot, hylmingu og fjölda innbrota þar
sem meðal annars var brotist inn til
tannlæknis og stolið 550-600 grömm-
um af tanngulli. Tengdust þó ekki allir
öllum atriðum ákærunnar.
Dómar þriggja hljóðuðu upp á 4, 7
og 12 mánaða fangelsi en einn fékk 6
mánaða fangelsisdóm skilorðsbundinn
í 3 ár en sá aðili er í fyrsta skipti að
komast í kast við lögin. í öllum tilvik-
um kemur gæsluvarðhald að fullu til
frádráttar refsingunni.
„Afbrotin voru flest framin í ágúst
1985 og í millitíðinni brutu tveir hinna
ákærðu af sér og voru dæmdir í 6 og
12 mánaða fangelsi. Þannig er þessi
dómur hegningarauki við eldri dóma
og bætist við fangelsisvist þeirra,"
sagði Ágúst.
Auk fangelsisvistar eru tveir hinna
ákærðu dæmdir til skaðabótagreiðslu
að upphæð 400.000 krónur. Hins vegar
voru hin ákærðu sýknuð af skaðabó-
takröfum er námu 1,6 milljónum vegna
þess að kröfur þóttu óljósar. Var um
milljón kr. krafa frá tryggingafélagi
nokkru. Kröfu tannlæknisins um
500.000 króna miskabætur var vísað
fró. -JFJ