Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1987, Blaðsíða 33
FOSTUDAGUR 7. AGUST 1987.
Lamast
Elisabeth
Við segjum að kötturinn hafi níu
líf en Elisabeth Taylor virðist hafa
enn fleiri. Hún hefur lent í meiri
óhöppum á lífsleiðinni en flest annað
fólk. Þrjátíu sinnum hefur hún feng-
ið alvarlega sjúkdóma og suma af
þeim jafnvel lífshættulega. Nítján
sinnum hefur hún þurft að gangast
undir skurðaðgerð.
Sjálf segist hún eiga lífi sínu að
þakka að hún búi yfir óvenjulegum
lífskrafti. Alltaf hefur hún verið stað-
ráðin í því að lifa af hvert það
óhappið sem hefur hent hana.
Óhappaferill hennar byrjaði árið
1943 þegar hún lék i bíómynd um
hundinn Lassie. Þá datt hún og fót-
brotnaði illa. Síðan hefur hvert
óhappið á fætur öðru elt hana. Einna
alvarlegast er slys sem hún varð fyr-
Taylor?
ir þegar upptökur á myndinni
„National Velvet" stóðu yfir. Þá
varð hún fyrir mænuskaða. í gegnum
árin hafa áhrif þess skaða blossað
upp en síðan lagast af óskiljanlegum
ástæðum. Oft á tíðum hefur þetta
gengið kraftaverki næst.
En nú í sumar hefur stjörnunni
brugðið fyrir í hjólastól og er ástæð-
an sú að áhrif mænuskaðans eru víst
að láta á sér kræla enn einu sinni.
Læknar eru tvístígandi og þykir eitt-
hvað benda til þess að í þetta sinn
muni lífsvilji Elisabethar ekki duga
til. Þeir hafa látið hafa eftir sér að
málið sé mjög alvarlegt. Jafnvel
þannig vaxið að ekki verði séð fram
á annað en að leikkonan muni lam-
ast og verða bundin við hjólastól.
Gæti verið að Elisabeth Taylor ætti eftir að verða bundin við hjólastólinn?
„Við höfum alltaf verið góðir vinir og eigum vel saman,“ segir Melanie
Griffith sem á næstunni gengur upp að altarinu við hlið draumapilts þús-
unda stúlkna, Don Johnson.
Don Johnson
að altarinu
Þá er öll von úti - stúlkur haldið
ykkur. Hjartaknúsarinn Don Jo-
hnson ætlar á næstunni að ganga í
það heilaga. Sú sem hreppir hnossið
og mun verða ein öfundaðasta kona
heims er sænskættaða Melanie Grif-
fith. Og það sem meira er, hún er
gömul kærasta piltsins. Fyrir tólf
árum síðan væru þau nærri gift en
svo slitnaði skyndilega upp úr sam-
bandinu. í nokkur ár voru þau þó í
„haltu mér - slepptu mér“ sambandi
sem lauk þegar Melanie giftist öðr-
um.
Það hjónaband entist ekki lengi
og tóku þau Don upp þráðinn að
nýju fyrir ári síðan. Og nú er það
hjónabandið sem blasir við. Brúð-
guminn tilvonandi segir að Melanie
sé einmitt rétta stúlkan fyrir sig,
hress og skemmtileg og hugsi um
margt annað en útlitið.
Skötuhjúin kynntust fyrst sem
krakkar þegar Melanie gætti yngri
systkina Dons. Hann hefur því vand-
að valið; veit alveg að hverju hann
gengur.
Hún er ánægð með sig, hin tuttugu og niu ára gamla Eve Jackson.
Enda hefur hún ærna ástæðu til. Hún er fyrsta manneskjan sem flýgur
i fisléttri flugvél frá Englandi til Ástraliu. Ferðin tók fimmtán mánuði og
fóru þrjú hundruð klukkustundir i flug. Hér sést hún rétt eftir lendinguna
i Sidney; brosir til Ijósmyndara og segir að ferðin hafi gengið vel.
Eftirlíking af grísku skipi
Undanfarna mánuði hefur sú iðja rutt sér mjög til rúms að byggja eftirlík-
ingar af fornum skipum. Nú síðast eru það verkfræðingar og aðrir sérfræðing-
ar í Bretlandi, sem byggt hafa nákvæma eftirlíkingu af skipi sem talið er
að Grikkir hafi notað fyyrir um tvö þúsund árum. Ræðarar sátu á þrem
hæðum í iðrum skipa þessarra og eins og sjá má af meðfyljgandi mynd var
þröngt setinn bekkurinn þar. Enginn skortur mun hafa verið á ungum Bret-
um til að taka sæti á róðrarbekk.
45
Sviðsljós
Ólyginn
Ursula Andress; '
sem er 51 árs er nú búin að
finna hamingjuna og ástina hjá
manni sem er 30 árum yngri en
hún. Það er hinn 21 árs gamli
ítali, Fausto Fagone, sem hefur
fangað hjarta Ursulu. Þau hitt-
ust fyrir 9 mánuðum og hafa
verið óaðskiljanleg síðan. Nú
vilja þau giftast en mamma hins
unga laganema er alfarið á
móti slíkum áformum. Hún er
sjálf 46 ára og finnst Ursula
vera helst til gömul sem tengda-
dóttir. Þau skötuhjú reyna að
láta ekki illt umtal hafa áhrif á
sig og berjast fyrir ást sinni.
Sarah Ferguson
Það er nú altalað að von sé á
fjölgun I hinni bresku kóngafjöl-
skyldu. Sagt er að nú eigi Fergie
hin rauðhærða von á barni.
Hertogaynjan hefur aflýst öllum
opinberum skyldum frá og með
1. nóvember og ætlar að taka
það rólega um óákveðinn tíma.
Fram að þessu hefur hún verið
iðin við móttökur, veislur, heim-
sóknir og aðrar slíkar skyldur
sem fylgja konungsfjölskyl-
dunni svo að nú eru allir vissir
um að barn sé á leiðinni. Fergtp'
hefur margsinnis sagt að hún
óski þess að eignast þrjú börn
svo það er bara eins gott fyrir
hana að fara að byrja.
Kalli og Di
eiga víst í einhverjum hjóna-
bandsörðugleikum um þessar
mundir. Þess er skemmst að
minnast er Kalli hitti ítalska
blómarós á laun á italíu ekki
alls fyrir löngu og nú var það
Di sem var óþekk og varð skot-
in í bankamanninum Philip
Dunne. Rætnisfullar rægitung-
ur segja þau oft hafa hist á laun
og það finnast sjónarvottar aíf
kossaflangsi þeirra. Breska
þjóðin stendur á öndinni og
ásakar Di fyrir að vera of lífs-
glaða og unga fyrir Kalla gamla
og að þau fjarlægist hvort ánn-
að mikið sökum mismunandi
áhugamála.