Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987. 13 Veitingahús Jónas Kristjánsson skrifar um veitingahús: Aðalstað landsins fer aftur Ennfínni en fyrrum Arnarhóll hefur staðnað og raun- ar lítillega dalað upp á síðkastið, þótt veitingahúsið sé enn bezti eða annar af tveimur beztu matsölu- stöðum landsins. Hinn ytri umbúnaður í þjónustu og verðlagi er heldur fínni en áður og var þó afar fínn fyrir. En hornsteinninn sjálfur, matreiðslan, er ekki alveg á sama stigi og hún var, þegar Amarhóll hóf göngu sína. Hún er afar góð, en hefur fallið í allt of fastmótaðar klisjur. Kaffistofan inn af borðsalnum er orðin vistlegri en hún var upphaf- lega og líkari fordrykkjastofunni, í harðviðarstíl. Ýmis önnur atriði hafa verið lagfærð. Smjör er borið fram í sérstökum smjörskálum. Heitir réttir eru bornir fram undir hjálmi, sem upprunalega áttu að halda mat heitum, en eru nú eink- um notaðir til að magna helgisiði við framreiðslu aðalrétta á borð gesta, enda em réttirnir hér stund- um bara volgir undir hjálminum. Erlendis hafa skoðendur veit- ingahúsa stundum notkun slíkra hjálma til marks um hátt verðlag staðarins. Arnarhóll er trúr þeirri stefnu. Verðlagið hefur hækkað um 46% á einu ári í aðeins 20% verð- bólgu. Hefur staðurinn nú ein- dregna forustu í verðlagi veitinga- húsa hér á landi. Þetta er ekki sagt honum til hnjóðs, því að veitinga- salir eiga að vera misdýrir í samræmi við misjöfn gæði. Segja má þó, að fáir hafi efni á að borða hér, nema fyrir annarra fé, það er að segja fyrirtækja eða stofnana. Enda sýnist mér aðsóknin ekki vera umtalsverð. Og í sumar hefur meira að segja verið lokað í hádeg- inu, sem er þó hinn hefðbundni tími viðskipta-málsverða. Eðalvindlar og -vín Ein nýjunganna, sem Arnarhóll státar af, em vindlarnir Davidoff Chateau Mouton Rotschild, á tæp- lega 1.000 krónur stykkið. Þetta eru handvafðir Havanavindlar, af- greiddir úr virðulegum rakakassa. Davidoff er frægasta og dýrasta merkið af örfáum tegundum ekta Havanavindla. Hinir eru Monte- christo, Romeo et Juliet og Upman. Mér finnst þessir Davidoff-vindlar ekki nógu þétt vafðir og ekki eins góðir og hinir töluvert ódýrari Montechristo nr.l. Samt er framtak Amarhóls virðingarvert, því að í verkahring fínna og dýrra veit- ingahúsa er að hafa fína og dýra vindla á boðstólum. Önnur hliðstæð nýjung felst í nokkrum árgöngum af heimsfrægu víni, Torres Gran Coronas Black Label, á verði frá 2.600 krónum upp í rúmar 10.000. Sérfræðingur minn í borðvínum hefur prófað árgang- inn 1976, sem kostar 3.300 krónur flaskan, og segir vínið hið lang- bezta, sem fáanlegt sé í landinu. Það ilmar þungt og hefur mikla fyllingu og mýkt. Vín þetta er bruggað úr franskættuðum caber- net-vínberjum í héraðinu Penedes, sem er í Katalóníu nokkru sunnan við Barcelona, nálægt Costa Brava, er sumir sólarlandafarar þekkja. Þjónustan í Arnarhóli er enn sem fyrr í hæsta gæðaflokki. Um hana er raunar ekkert hægt að segja annað en, að hún er öðmm stöðum til fyrirmyndar að öllu leyti. Matseðill Arnarhóls hefur slakn- að með ámnum. Hann er orðinn fastur og prentaður til langs tíma í senn, svo að hann fer nærri ekk- Eigendur Arnarhóls, Guðbjörn Karl Kokkahúfur eru fyrir matreiðslu og blóm fyrir umhverfi og þjónustu, en krónupeningarnir tákna verðlagið. ert eftir framboði hráefna hverju sinni. Slíkt er oft haft til marks um, að þreytumerki séu komin á eld- húsið, og kemur í útlöndum í veg fyrir, að veitingahús teljist til mat- argerðarmustera. Fátt er um fisk Auðvitað er ekki auðvelt að bjóða upp á ætan fisk af föstum matseðli, því að fiskur er stundum til og stundum ekki. Þess vegna sést varla annar fiskur á matseðlin- um en ræktaður lax og regnboga- silungur í ýmsum myndum, afurðir, sem yfirleitt er unnt að fá árið um kring. Eina undantekningin eru ristuð kolaflök, sem óhjákvæmi- lega hljóta stundum að koma úr frysti. Með því að taka upp þetta úrelta fyrirkomulag neitar Arnar- hóll sér um að geta boðið gestum fjölbreytni í fiski og öðrum sjávar- Olafsson og Skúli Hansen. réttum, bezta hráefni landsins og um leið þeim mat, sem gefur kost á mestum tilþrifum í matreiðslu. Arnarhóll hefur tekið upp fasta matseðla, þar af einn langan, sjö rétta. Slíkir smakkseðlar tíðkast mjög í erlendum frægðarhúsum, en þá eru þetta undantekningarlaust seðlar dagsins, raðað saman eftir hráefnum dagsins. Sjö smárétta röð á prentuðum matseðli, sem liggur frammi mánuðum saman, líkist skopstælingu á upprunalegri hugs- un að baki slíkra smakkseðla eða jafnvel móðgun við hana. Og sam- tals býður Arnarhóll daglega nærri 40 mismunandi rétti, sem er ofviða hverju eldhúsi, þar sem menn reyna að vanda sig. Svona umfangsmiklir matseðlar urðu úreltir fyrir löngu. Eftir allar þessar kvartanir er nauðsynlegt að taka skýrt fram, að matur er yfirleitt mjög góður í Arnarhóli, mun betri en víðast hvar í landinu. Eina nýlega undan- tekningin, sem ég man eftir, voru nautalundir, sem greinilega höfðu verið hamraðar svo ákaft, að vöðvabyggingin var komin í graut. Slíkur groddagangur er raunar andstæður hinni venjulegu, fínlegu matreiðslu staðarins. Nýlega prófaði ég bragðsterka og afar góða laxahrognakæfu. Einnig mjög gott humarjukk, sem fólst í stórum humarbitum í rjómasósu, blandaðri blaðlauk og sveppum. Ennfremur sérstaklega góðan, kryddleginn lax, sem borinn var fram í næfurþunnum, víðáttumikl- um sneiðum, er þöktu diskinn. Og ágætan regnbogasilung, sem var reyksoðinn og borinn fram með kryddaðri eggjahræru og sýrðum rjóma, dillkrydduðum. Sömuleiðis ljómandi góða samsetningu á graf- DV-mynd JAK laxi og hörpudiski í smjöijukki. Sem og afbragðs humar, sítrónu- leginn. Og loks grásleppuhrogn, er höfðu þann frábæra kost að vera glær, en ekki svört eða ógeðslega bleik eins og hrognin í verzlunum. Þetta voru allt forréttir. Svartfugl og önd Svartfugl er einstaklega frábær aðalréttur í Arnarhóli, næstum alltaf nógu lítið steiktur og rauður að innan, síðast borinn fram með vínberjum og rifsberjum, svo og kartöflugratíni og léttsoðnum gul- rótum. Annar einkennisréttur staðarins, einnig kostulegur, er gljáð aliönd, sérstaklega meyr og ljúffeng, borin fram með sætri app- elsínusósu, gulrótarstrimlum og vínberjum. Einnig eru á seðlinum ágætis lambarif, þykkt söguð og fituskorin, og afar léttilega steikt. í fyrra fékk ég svo einu sinni fyrir- taks skarfa-unga og mjög góða hreindýrasteik. Af nýlegum eftirréttum man ég eftir góðri bananatertu með appel- sínuhjúp. Einnig ágætum jarðar- berjum, ferskum. Ennfremur karamelluhorni með þremur kraumísum, með kampavíns-, jarð- arberja- og kiwibragði. Og loks svonefndum Reykjavíkurvöfflum, fylltum jarðarberjum og rjóma, umflotnum jarðarberjasósu að hálfu og kiwisósu að hálfu, báðum sósum úr maukuðum ávöxtum. Þriggja rétta kvöldverðarveizla með kaffi, en án víns og vindla, kostar að meðaltali 2.449 krónur í Amarhóli. Veitingahús á því verð- lagi auglýsa ekki sérstaklega á matseðli, að þau bjóði upp á Blue Nun hvítvín. Jónas Kristjánsson Nýr matseðill 985 Nýr reyktur stór lax 1085 Ferskt sjávarréttaragout í rjóma-kampavínssósu 895 Grafinn regnbogasilungur með dillsósu 495 Rjómalöguð humarsúpa 355 Kjötseyði með ferskum graslauk 1395 Léttsoðinn lax með sítrónusósu 1035 Pönnusteikt regnbogasilungaflök með rj ómaheslihnetusósu 995 Léttsteikt hörpuskel með smjördeigsskel og earl gray sósu 915 Ristuð kolaflök með rækju-fricassé 1565 Gljáð aliönd með appelsínusósu 1450 Nautalundir með villtum steinasveppum 490 íslenzkir ostar 525 Vanillumousse í karamellusósu með ferskum jarðarberjum 375 Bananaterta með appelsínuhjúp 340 Sorbet árstíðarinnar 565 Fersk jarðarber eða bláber 375 Súkkulaðifrauð með koníaksbragði 445 Karamelluhorn fyllt með ís 675 Arnarhóls blandaðir eftirréttir 1125 Réttur dagsins: Léttsteikt lambarif með hvítlauk 2010 3ja rétta seðill: Reyksoðinn regnbogasilungur og fersk grá- sleppuhrogn með sýrðum rjóma. Léttsteikt svartfúglsbringa með sérrítrönuberjasósu. Karamelluhorn fyllt ískraumi árstíðarinnar. 2365 3ja rétta seðill: Ferskur spergill. Léttsteiktur lax með eggja- sósu. Nýir blandaðir ávextir í kampavíni. 2640 4ra rétta seðill: Laxahrognakæfa með dillsósu. Kampavíns- ískraum. Innbakaðar nautalundir í smjördeigi. Frönsk eplakaka með þeyttum rjóma. 3330 7 rétta seðill: Nýr lax og loðnuhrogn, kryddlegin í olífu- timjam legi með ferskri piparrót. Kjötseyði með steinsveppum. Blandað fuglapaté. ískraum árstíðarinnar. Snigla-ragout í rjóma- hvítlaukssósu. Léttsteikt lambarif. Arnarhóls blandaðir eftirréttir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.