Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.1987, Side 32
32 LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987. Messur Guðsþjónustur í Reykjavíkurpró- fastsdæmi sunnudaginn 9. ágúst 1987 Áskirkja: Við minnum á guðsþjón- ustuna í Laugarneskirkju kl. 11. Sóknarprestur. ' Bústaðakirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólafur Jens Sigurðsson messar. Organisti Jónas Þórir. Sóknarnefnd- in. Laugardaginn 15. ágúst fer Kvenfélag Bústaðasóknar í dagsferð í Þórsmörk. Þátttaka tilkynnist fyrir fimmtudag í síma 35575 og 32117. Dómkirkjan: Messa kl. 11. Dómkór- inn syngur. Organisti Helgi Péturs- son. Sr. Hjalti Guðmundsson. Elliheimilið Grund: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Organ- isti Árni Arinbjarnarson. Fimmtu- ^ dagur: Almenn samkoma kl. 20.30. UFMH Maríusvstur frá Noregi koma í heimsókn. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja: Samnorræn guðs- þjónusta kl. 11. Fredrik Grönning- sæter, biskup frá Bodö í Noregi, prédikar. Mótettukór Hallgríms- kirkju syngur. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudagur: Fyrirbæna- messa kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Organ- isti Orthulf Prunner. Sr. Tómas Sveinsson. Borgarspítalinn: Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifsson. Kópavogskirkja: Messa í Kópavogs- kirkju kl. 11. Sr. Árni Pálsson. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Pjetur Maack. Organisti Oddný Þorstein.;dóttir. Einsöngur Guðlaug- ur Viktorsson. Sóknarnefndin. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur. Neskirkja: Messa kl. 11. Sr. Frank. M. Halldórsson. Miðvikudagur: Fyr- irbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Seltjarnarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Sighvatur Jónasson. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Sameiginleg guðsþjónusta Fríkirkjunnar og Víði- staðasóknar verður að Hrafnistu við Skjólvang kl. 11. Organisti Örn Falkner. Sr. Einar Eyjólfsson. Þingvallakirkja: Guðsþjónusta verð- ur á sunnudag kl. 14. Rúnar Reynis- son, fyrrv. æskulýðsfulltrúi, predikar. Organleikari Einar Sig- urðsson. Sóknarprestur. Tilkynningar Guðsþjónustur í nýju postula- kirkjunni Hefur þú kynnt þér vitnisburð og kennslu nýju postulakirkjunnar?. Nk. sunnudag, 9. ágúst. verða haldnar guðsþjónustur kl. 11 og 17 í húsi kirkjunnar að Háaleitis- braut 58-60 (Miðbæ). Sérstakur gestur verður P. Esser. prestur frá New Ham- borg. Kanada, og mun hann þjóna. Allir velkomnir. Ráðstefna um alþjóðlegt tungumál og heimsfrið verður haldin laugardaginn 15. ágúst kl. 14 í menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Það er andlegt þjóðráð baháa á íslandi sem annast hefur undirbúning í náinni samvinnu við Esperantosamband íslands. Tilefnið er aldarafmæli alþjóðatungumáls- ins esperanto en það var árið 1887 sem höfundur þess, Pólverjinn Ludvik Zamen- hof, gerði verk sitt opinbert með því að gefa út fyrstu kennslubókina. Ráðstefnan fylgir í kjölfar heimsþings esperantista í Varsjá þar sem þúsundir esperantista frá öllum heimshornum, þar á meðal 15-20 Islendingar, komu saman til hátíðar vegna afmælisins. Frummælendur á ráðstefn- unni verða Hallgrímur Sæmundsson, formaður Esperantosambandsins, sem flytur erindi um esperanto sem lykil að alþjóðatjáskiptum. Andri ísaksson talar um alþjóðamál frá sjónarhóli alþjóða- stofnana. Andri á sæti í stjórn Unesco en á vegum þeirrar stofnunar hafa verið sam- þykktar yfírlýsingar til stuðnings esper- anto. síðast árið 1985. Finnur Lárusson háskólanemi talar fyrir hönd ungliða- hreyfmgar esperanto og Wendy Heller, rithöfundur frá Los Angeles í Bandaríkj- unum talar um viðhorf baháítrúar til alþjóðatungumáls og þátt þess í þróun til heimsfriðar. Wendy Heller er þekkt fyrir rannsóknir sínar á örlagasögu Zamenhof fjölskyldunnar. Til að gefa ráðstefnugest- um kost á að heyra hvernig málið hljómar hefur Kristinn Sigmundsson óperusöngv- ari tekið að sér að syngja við þetta tækifæri nokkur alþekkt íslensk sönglög við texta á ésperanto. Undirleikari á píanó er Jónas Ingimundarson. Fræöslufundur fyrir tungumálakennara Mánudaginn 10. ágúst kl. 15 verður hald- inn fræðslufundur í KHÍ, stofu 201, fyrir tungumálakennara. Á fundinum verða Q Salan á Hraðfiystihúsi Ólafsvíkun Ekki óeðlilegt að fyrir- tækið skuldi bæjarsjóði í DV í síðustu viku var sagt frá tilboði sem borist hefur í meirihluta hlutaíjár Hraðfrystihúss Ólafsvíkur. Þar var sagt að meirihluti hlutafjár væri í eigu manna sem ekki byggju í Ólafsvík. Guðmundur Bjömsson, forstjóri Hraðfrystihússins, segir þetta ekki rétt, í fimmtán til sextán ár hafi 70% hlutafjár verið í eigu manna sem búsettir em í Ólafsvík. I fyirnefndri frétt var sagt að heimamenn hefðu út á ýmislegt að setja í rekstri Hraðfrystihússins und- an farin ár, vom í því sambandi nefiid tvö dæmi. Annars vegar þegar togarinn Lárus Sveinsson var seldur frá Ólafsvík. Lóndrangar h/f áttu togarann Láms Sveinsson en Lón- dranga h/f átti Hraðfrystihúsið til helminga á móti tveimur fjölskyld- um í Ólafsvík. Guðmundur segir að meðeigendur .Hraðfrystihússins hafi óskað þess að Hraðfrystihúsið keypti þeirra hluta, það hafi verið gert, en til að það gæti orðið varð að selja skipið burt. Guðmundur sagði það hafa verið vegna þess hversu dýr viðgerð hefði farið fram á skipinu árið 1983 en viðgerðin varð töluvert dýrari en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá var í DV sagt frá því að Hrað- frystihúsið hefði á stundum skuldað bæjarsjóði Ólafsvíkur á annan tug milljóna. Þetta sagði Guðmundur að 'væri rangt. Hann viðurkenndi að Hraðfrystihúsið hefði oft skuldað bæjarsjóði miklar fjárhæðir en hann sagði jafnframt að hann teldi það alls ekki óeðlilegt þótt fyrirtækið skuldaði bæjarsjóði háar upphæðir. „Ég er ekki viss um að það væri neitt óeðlilegt þótt fyrirtækið skuld- aði bæjarsjóði á annan tug millj- óna,“ sagði Guðmundur Bjömsson. -sme A OLLUM ALDRI VANTARí EFTIRTALIN HVERFI AFGREIÐSLA Þverholti 11, sími 27022 Reykjavík Eiríksgötu Alfheima 2-26 Melabraut Seltjarnarnesi Mímisveg Glaöheima Skólabraut Seltjarnarnesi Ljósheima Hæðargarð 3ó-út ............................ Hólmgarð 32-út Sporöagrunn ******************************* Selvogsgrunn Ásenda Kleifarveg Básenda .**.****•***•**•****•*•*•*•• Garðsenda Grundarstig Rauöageröi Ingólfsstræti Amtmannsstíg Skeljagranda Bjargarstig .*..*..........*.***.**•*. Laugfásveg Siðumúla Miðstræti Suöurlandsbraut 2-18 Freyjugötu Háageröi Þórsgötu Langageröi Lokastíg Sörlaskjól Nýlendugötu Nesveg 21-út Tryggvagötu 1-9 Laugaveg oddatölur Bankastræti oddatölur Lindargötu Klapparstig 1-30 Frakkastig 1-9 Skipholt 35-út Vatnsholt Bolholt Furugeröi Seljugerói Viöjugerói kynnt verkefni sem eru örvandi fyrir fjöl- breytilega málnotkun nemenda. Leiðbein- endur verða Sallie Harkness og Steve Bell, lektorar við Jordanhill kennarahá- skólann í Skotlandi. Þau hafa haldið Qölmörg kennaranámskeið, bæði í heima- landi sínu og víðs vegar um heim. Þau eru stödd hér á landi vegna kennslu á nám- skeiði KHÍ fyrir grunnskólakennara í Þelamerkurskóla 4.-8. ágúst. Akstur strætisvagna Hlemmur - miðborg Þegar framkvæmdum við Laugaveginn lýkur, væntanlega þriðjudaginn 11. ágúst, hefst akstur sérstakra strætisvagna milli Hlemms og miðborgar, án gjaldtöku, á tímanum kl. 13-19 mánudaga til föstu- daga. Þrír vagnar verða í þessum ferðum og verða að jafnaði 6-7 mín. á milli vagna á hverjum viðkomustað (sjá meðf. kort). Vagnarnir hafa viðkomu á öllum bið- stöðvum á leiðinni: Hlemmui Laugaveg- ur - Bankastræti - Lækjargata - Vonarstræti - Suðurgata Aðalstræti Hafnarstræti - Hverfísgata - Hlemmur. Á Hlemmi hafa vagnarnir viðkomu Lauga- vegarmegin við áningarstaðinn. Á ofangreindum tíma aka aðrir strætis- vagnar ekki um Laugaveg. Vagnar á leiðum 2, 3,4, 5 og 15A aka þá án viðkomu frá Hlemmi að Lækjartorgi um Skúlagötu. Á öðrum tímum, þ.e. kl. 7-13 og 19-24 alla daga, aka þessir vagnar um Laugaveg. SVR væntir þess að þessi tilraunaakst- ur, sem fyrst um sinn mun standa til Tónleikar í Duus-húsi Ellen Kristjánsdóttir söngkona heldur tónleika í Heita pottinum í Duus-húsi sunnudagskvöldið 9. ágúst. Með Ellen leika Mezzforte-mennimir Eyþór Gunn- arsson, Friðrik Karlsson, Gunnlaugur Briem og Jóhann Ásmundsson, auk saxó- fónsleikarans Stefáns Stefánssonar. Á efnisskrá tónleikanna verður jass og blu- estónlist úr ýmsum áttum, frumsamin jafnt sem gömul. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Heyrn og tal rannsakað á Austfjörðum og Suðurlandi Einar Sindrason, háls-, nef- og eyrnalækn- ir, ásamt öðrum sérfræðingum Heyrnar- og talmeinastöðvar Islands, verða á ferð um Austfirði og Suðurland dagana 8. ág. til 14. ág. n.k. Rannsökuð verður heyrn og tal og útveguð heyrnartæki. Farið verður á eftirtalda staði: Fáskrúðsfjörð Breiðdalsvík Djúpavog Höfn í Hornafirði Kirkjubæjarkl. Vík 8. ágúst. 9. ágúst. 10. ágúst. 11. og 12 ágúst. 13. ágúst. 14. ágúst. Tekið á móti tímapöntunum á viðkom- andi heilsugæslustöð og er fólki bent á að panta tíma sem fyrst. Norræn leiklistar- miðstöðáhugafólks Norræna áhugaleikhúsráðið - NAR - hélt sinn 20. aðalfund í Lýðháskólanum í' Rómaríki í Noregi fyrir skömmu. Þar var samþykkt menningarstefnuskrá fyrir NAR, sú fyrsta í sögu ráðsins. í stefnu- skránni er lögð áhersla á að varðveita og þróa áhugaleikhúsið sem kraftmikla hreyfingu, þar sem allir geti verið með, óháð kyni, aldri, stöðu, uppruna og stjórn- málaskoðunum. Áhugaleikhúsið skipar núorðið þann sess í menningarlífi á Norð- urlöndum og í norrænni samvinnu að NAR mun í framtíðinni leggja meginá- herslu á að koma á fót norrænni leiklistar- miðstöð. í slíkri miðstöð kæmu allir þættir áhugaleikhússins saman en menntun og upplýsingamiðlun sætu þar í fyrirrúmi. Bandalag íslenskra leikfélaga hefur frá 1970 tekið virkan þátt í NAR og íslenskt áhugaleikhús hefur eflst mjög af því sam- starfi. Aðalfund NAR í Rómaríki, leik- smiðju og námskeið í tengslum við hann sóttu 23 íslendingar frá leikfélögum alls staðar af landinu. Formaður NAR er Ella Royseng frá Noregi en varaformaður Ein- ar Njálsson, Húsavík. Aukin þjónusta Arnarflugs Eftirfarandi skipulagsbreytingar tóku gildi hjá Arnarflugi þann 5. ágúst sl. Til þess að leggja verulega aukna áherslu á þjónustu félagsins við viðskipta- menn var sett á laggirnar sérstök þjón- ustudeild. Undir hana heyrir öll þjónusta við farþega, þ.e. afgreiðsla farseðla, ferðir til og frá flugvelli, þjónusta í flugstöðvum og um borð í flugvélum. Deildarstjóri þjón- ustusviðs er Halldór Sigurðsson. Vegna stóraukinna umsvifa í vöruflutn- ingum Amarflugs hefur einnig verið stofnsett sérstök vöruflutningadeild. Litið er á þessa aðgerð sem fyrsta skref í þá átt að aðskilja í framtíðinni vöruflutninga og farþegaflutninga félagsins. Einnig er stefnt að því að auka verulega kynningu á þessari starfsemi Arnarflugs en þjónusta félagsins á þessu sviði er þegar rómuð. Deildarstjóri vöruflutningasviðs er Arn- geir Lúðvíksson. Tilgangur þessara skipulagsbreytinga er síðast en ekki síst að bæta aðstöðu Arnarflugs til verulega aukinnar mark- aðssóknar. Deildarstjóri markaðssviðs er Magnús Oddsson. Hann er jafnframt staðgengill framkvæmdastjóra. Aðrar deildir starfa áfram samkvæmt eldra skipuriti, þ.e. stjómunarsvið undir stjóm Þórðar Jónssonar viðskiptafræð- ings og flugrekstrarsvið undir stjórn Þorsteins Þorsteinssonar flugvélaverk- fræðings. Bannsvæði út af Austfjörðum Ráðuneytið hefur gefið út reglu- gerð um bann við togveiðum út af Austfjörðum. Samkvæmt reglugerð þessari eru allar togveiðar bannaðar á svæði sem markast af línum milli eftirgreindra punkta: 1. 64°46’99 N - 12°43’66 V 2. 64°45’11 N - 12°15’03 V 3. 64°22’75 N - 12°39’25 V 4. 64°21’05 N - 12°49’30 V 5. 64°16’51 N - 13°14’17 V Reglugerð þessi kemur í stað tveggja reglugerða, sem gefnar voru út um miðjan maí sl. og opnast með henni suðurhluti bannsvæðisins. Breytingin tók gildi frá 18. júlí sl. Tapað - Fundið Peningaveski tapaðist í Kaup- stað Peningaveski tapaðist í versluninni Kaup- stað í Mjóddinni eða á bílastæðinu fyrir utan. I veskinu var ökuskirteini og fleira. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 51561. Ferðalög Útivistarferðir Sunnudagur 9. ágúst. Kl. 8.00 Þórsmörk, eins dags ferð. Stans- að 3-4 klst. í Mörkinni. Verð kr. 1000,-. Tilvalin ferð fyrir sumardvöl. Kl. 10.30 Botnssúlur. Gengið frá bænum Svartagili á Syðstu-Súlu sem er hæst (1095). Verð kr. 700,- Kl. 13.00 Jórukleif - Grafningur. Létt ganga. Skemmtilegt útsýni yfir Þingvalla- vatn. Verð kr. 600,- Hugað að berjum. Miðvikudagur 12. ágúst. Kl. 8.00 Þórsmörk, dagsferð. Einnig sum- ardvöl í Útivistarskálunum góðu í Básum. Kl. 20.00 Elliðakot - Selvatn. Frítt f. börn m. fullorðnum. Brottför frá BSl, bensín- sölu. Sjáumst, Útivist. Sumarleyfisferðir 1. Tröllaskagi, 9.-15. ágúst. Ný skemmti- leg ferð. Barkárdalur Tungnahryggur - Hólar (3 d.) og Sigluijörður Héðinsfjörð- ur - Ólafsfjörður (3 d.) Bæði bakpokaferð og dvöl á sama stað. Hús og tjöld. 2. Ingjaldssandur, 18.-23. ágúst. Kynnist áhugaverðum stöðum á Vestfjörðum, á skaganum milli Önundafjarðar og Dýra- fjarðar. Létt ferð, enginn burður. Berja- land. Gist í húsi. 3. Berjaferð í Isafjarðardjúp 20.-23. ágúst. Skoðunar- og berjaferð. Æðey Kaldalón Snæfjallaströnd - Króksfjörð- ur. 4. Núpsstaðarskógar, 27.-30. ágúst. 4 dagar. Tjöld. Uppl. og farm. á skrifst., Grófinni 1. símar 14606 og 23732. Sjáumst, Útivist. Ferðafélag íslands Sumarleyfisferðir Ferðafélagsins: 9.-16. ágúst (8 dagar): Hrafnsfjörður - Norðurfjörður. Gengið með viðleguútbúnað um Skorar- heiði í Furufjörð og áfram suður til Norðurfjarðar þar sem ferðinni lýkur og áætlunarbíll tekur hópinn til Reykjavíkur. 11. -16. ágúst (6 dagar): Þingeyjarsýslur. Á fjórum dögum verða skoðaðir markverð- ir staðir í Þingeyjarsýsium. Gist í svefn- pokaplássi. 12. -16. ágúst (5 dagar): Þórsmörk - Landmannalaugar. Ekið til Þórsmerkur að morgni miðviku- dags og samdægurs gengið í Emstrur, síðan áfram milli gönguhúsa uns komið er til Landmannalauga á laugardegi. 14. -19. ágúst (6 dagar): Landmannalaug- ar Þórsmörk. Gist í sæluhúsum. 19.-23. ágúst (5 dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk. AUKAFERÐ. Þessari ferð er bætt við áður skipulagða ferðaáætlun vegna mikillar aðsóknar. 21.-26. ágúst (6dagar): Landmannalaug- ar - Þórsmörk. ATH: Síðasta skipulagða gönguferðin í sumar frá Landmannalaugum til Þórs- merkur. Dagsferðir Ferðafélagsins: Sunnudagur 9. ágúst: 1) Kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 1000. 2) Kl. 10 Skorradalur - Eyri í Flókadal. F’immta afmælisgangan. Þetta er næstsíðasti áfanginn á leiðinni til Reykholts. Látið ykkur ekki vanta i afmælisgöngur Ferðafélagsins. 3) Kl. 13. Eldborgir - Ólafsskarð. Gengið um Ólafsskarð að Eldborgunum og síðan niður á Suðurlandsveg. Verð kr. 500. Miðvikudagur 12. ágúst: 1) Kl. 08 - Þórsmörk - dagsferð. Verð kr. 1000. 2) Kl. 20 Bláfjallahellar. Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austan- megin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir börn í fylgd fullorðinna. Ferðafélag Islands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.