Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987. 3 Fréttir Bíllinn varð alelda á svipstundu og var hann ónýtur þegar tekist hafði að slökkva eldinn. DV-mynd Helgi Akranes: Bíllinn alelda Alþýðusamband Vestfjarða: Vilja viðræður í héraði „Það hefur verið oftar en ekki að Alþýðusamband Vestfjarða hafi samið sér og hvað sem öliu samstarfi innan Verkamannasambandsins líður mun- um við að þessu sinni óska eftir samningaviðræðum heima í héraði. Þaö er líka mitt álit að þeir sem eru að senya fyrir fiskvinnslufólkið í landinu verði að óska eftir beinum viðræðum við fuUtrúa fiskvinnslunn- ar innan Vinnuveitendasambandsins þar sem mér finnst skorta á skilning æðstu ráðamanna þess á öUu sem að fiskvinnslufólkinu snýr,“ sagði Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestftarða, í samtaU við DV. Hann sagði að í desembersamning- unum í fyrra hefðu 7% tU 9% hrein- lega verið tekin af launum fisk- vinnslufólks. Aðrar stéttir fengu þá loforð um fastlaunasamning en fisk- viimslufólk ekki og þar með hefði það dregist svona aftur úr. Þegar búið væri að leiörétta þetta þá fyrst væri hægt að fara að tala um nýja samn- inga með viömiðun við aðrar stéttir. Pétur sagði aö af viðræðum sínum við ráðamenn í fiskvinnslu virtist sér sem hjá þeim ríkti fúUur skUningur á því sem gera þyrfti fyrir fiskvinnslu- fóUtið. Aftur á móti sagðist hann hafa orðið var við skilningsskort á þeim málum á fundi með æðstu mönnum Vinnuveitendasambandsins á fimmtudaginn var. Því teldi hann nauðsynlegt að forráðamenn þeirra verkalýðsfélaga sem væru að semja fyrir fiskvinnslufóUtið fengju að gera það beint við fiskverkendur. -S.dór á svipstundu Það óhapp átti sér stað að eldur kom upp í bU skömmu eftir að hann kom úr Akraborginni uppi á Akranesi. Að sögn lögreglunnar á Akranesi var bíliinn, sem var nýleg Cortina, nýkomihn út úr Akraborginni og ekki búið að aka honum nema nokkur hundruð metra frá skipinu þegar skyndUega kom upp eldur í honum. Ökumanninum tókst að koma sér út úr bUnum í tíma en á svipstundu varð bíllinn aielda og stóð í ljósum logum á meðan kallað var á hjálp. Slökkviiið kom á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn en talið er að bUiinn sé ónýtur eftir eldsvoð- ann. Ekki er með vissu vitað hvað olli brunanum en nokkuð víst er talið að kviknað hafi í út frá rafmagni. Cortin- an var að koma frá Reykjavík og var skrásett í höfuðborginm. ATA _____________________Viðtalið Höfum greiðan aðgang að okkar þingmönnum - segir Rúnar Sigurður Birgisson „Hugur er stjómmálahreyfing ungs fólks innan Borgaraflokksins og félag- ið kemur til með að starfa á stjóm- málalegum og félagslegum grund- veUi,“ sagði Rúnar Sigurður Birgisson sem kjörinn var fyrsti formaður Fé- lags ungra horgara í Reykjavík á stofnfundi sem haidinn var laugardag- Um 19. september. „í félaginu geta allir orðið félagar sem era á aidrinum 16-32 ára. Þeir era þegar orönir um fimm hundruð og þeim á eftir að fjölga mikið á næstu vikum og mánuðum. Við höfum að leiðarljósi að koma á framfæri við þingmenn flokksins mál- efnum unga fólksins, eins og til að mynda húsnæðismálunum og lána- málum námsmanna. Við höftim mjög gott og opið samhand við þingmenn flokksins, eins og til dæmis við Guð- mund Ágústsson sem beinlínis er okkar fuUtrúi á þingi. Og það er auð- velt að nálgast okkar þingmenn og ræða máiin við þá, enda eru þeir ekki lokaðir inni í glerbúrum eins og við teljum þmgmenn hinna flokkanna vera. Hugur mun ekki aöeins starfa á stjómmálasviðinu heldur stefnum við að því að vinna að málum sem snerta alla.“ Rúnar er búinn að starfa innan Borgaraflokksms frá stofnun hans og skipaði meðal annars 11. sætiö á fram- boðsUsta flokksins í Reykjavík. Þá hefur hann starfað í ýmsum nefndum flokksins 1 sumar, meðal annars nefndinni sem undirbjó landsfundinn og nefnd sem vann að samræmingu málefhagrundvaUarins sem ræddur var á landsfundinum. „Það var ótrúlegt að fylgjast með flokknum verða til í vor. Bara á tveim- ur dögum varð þetta sem við geröum fyrst í stað ráð fýrir að yrði sérfram- boð í Reykjavík að breiðfylkingu sem bauð fram um aUt land.“ Rúnar er 27 ára gamaU. Hann fædd- ist á Blönduósi en ólst að mestu upp í Reykjavík. Frá því hann kom út á vinnumarkaðinn hefur hann að mestu unnið að auglýsinga- og markaðsmál- um fyrir ýmis fyrirtæki. Hann rekur nú sína eigin stofu og um þessar mundir er hann meðal annars að vinna fýrir fyrirtækið Myndvarp. „Ég á mér ýmis áhugamál og hoppa Rúnar Sigurður Birgisson, nýkjörinn formaður Félags ungra borgara i Reykjavík. DV-mynd BG gjaman á miUi þeirra. Ég hef gaman af ljósmyndun og er alæta á bækur. Ég hef komið nálægt ýmsu og var til dæmis útgefandi plötunnar Hjálpum þeim en mér þótti mjög vænt um að fá að starfa að þeim málum. Um þess- ar mundir er áhugámál númer eitt, tvö og þijú stjómmál og hefur Htið annað komist að undanfama mánuði," sagði Rúnar. Rúnar er ókvæntur en á fjögurra ára gamlan son, Brynjar Smára. -ATA OmSdlMGTl5 Skólavörðustig 1 Sími: 22966 101 Reykjavik. AUKIN SNERPA, BETRIAFKÖST Ef þú sefur illa og ert úrillur ó morgnana, lœfur umferðina fara í faugarnar ó þér, ótt erfitt með að einbeita þér að verkefnum dagsins, skaltu líta við í Heilsuhúsinu. Við leiðum þig í allan sannleikann um GinSdMGTl5

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.