Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987. 9 Útlönd Fuglar í hreyflum urðu sprengjuþotu að grandi Taliö er aö fuglar hafl oröið til þess að B-lb sprengjuþota frá bandaríska flughemum fórst í suðausturhluta Coloradofylkis í gær. Þotan mun hafa flogið í gegn um fuglager og mun hafa sogað fugla inn í tvo af flórum þotu- hreyflum sínum. Að sögn fylkislögreglu i Colorado munu að minnsta kosti þrír af sex áhafnarmeðlimum þotunnar hafa bjargað sér í fallhlífum áður en hún hrapaði. Að sögn sjónarvotta virtist þotan verða alelda rétt áður en hún hrapaði á svæði þar sem mikið er um gæsir, endur og aðrar tegundir far- fugla sem á þessum árstíma flykkjast frá Kanada áleiöis suður til vetrar- dvalarsvæða sinna. Þotan, sem kostaði um tvö hundruð og áttatíu milljónir dollara í fram- leiðslu, var að æfa lágflug og það síöasta sem heyröist fiá áhöfn hennar var að báðir hægri hreyflar hennar væra alelda. Þetta er fyrsta B-lb þotan sem ferst fiá því þær voru teknar í notkun á síðasta ári. Mikil andstaða var gegn því að þotumar væru teknar í notkim á sínum tíma, meðal annars vegna þess að talið var að rafkerfi þeirra væri gallað. Patricia Schröder hættir við framboð Patricia Schröder hefur hætt við að taka þátt í keppninni um útnefningu demókrataflokksins sem forsetaefni flokksins. Ber hún því við aö hún treysti sér ekki til að ná upp allri þeirri skipu- lagningu sem á þarf að halda til þess að taka þátt í kapphlaupinu. Þessi ákvörðun hinnar fjörutíu og sjö ára gömlu þingkonu frá Colorado veldur miklum vonbrigðum þeirra stjómmálakvenna sem höfðu vonast til að Schröder yrði fyrsta konan til þess að keppa um útnefningu stórs flokks sem forsetaefni. Schröder hefur hvað eftir annað sagt að hún muni aðeins gefa kost á sér ef hún sæi möguleika á aö hijóta útnefn- ingu flokksins. Hún barðist við tárin í gær um leið og hún kvartaði undan því að keppnin um forsetaembættið hindraði mann- leg samskipti við kjósendur. Kvaðst hún hafa átt erfitt með að geta séð fyrir sér hvemig hún ætti að taka að sér að notfæra sér samband sitt við þátt og jafnframt halda sambandi við kjósendur með tilliti til að það gæti kjósendur. Sagðist hún ekki geta hugs- orðið gott myndaefhi. Bandariska þingkonan Patricia Schröder leitar huggunar i örmum eigin- manns síns James eftir ræðu þar sem hún tilkynnti að hún ætlaði ekki að sækjast eftir forsetaembættinu. Simamynd Reuter Fjölmenni á fagnað piparsvelnanna í Pajala Gurmlaugur A. Járaaan, DV, Luudi: Piparsveinamir í PgjaJa, sem er bær nyrst i Svíþjóð, höfðu boðiö kven- fólki ókeypis rútuferðir frá Stokk- hólmi til bæjarins í tileftú hátíöar- halda í bænum. Piparsveinamir uröu iyrir nokkr- um vonbrigðum er í Ijós kom að fréttamenn vora mun íjölmennari í rútunum er komu á staðinn heldur en ógiftar konur. Auglýsing piparsveinanna í Pgjala vakið mikla athygli á alþjóðavett- vangi og voru sjónvarpsfréttamenn frá Englandi, Vestur-Þýskalandi, ít- alíu og Spáni mættir á vettvang ásamt tugum sænskra fréttamanna. Þegar leiö á fyrsta dag hátíðarhald- anna flölgaði þó konunum í Pajala og vora margar þeirra langt að komnar, til dæmis frá Englandi, Hollandi og Þýskalandi. Þaö er skortur á kvenfólki i P^jala sem gerði það aö verkum að heima- menn gripu til þess ráös að halda vikulanga hátíð og kosta rútuferöir fýrir kvenfólk frá Stokkhóimi á há- tíðina í þeim tílgangi að reyna aö auðvelda heimamönnum aö ná sér fkvonfang, KomJð hefur fram að hárskerar í Pajaia hafa haft mikiö meira að gera áöur en kvenfólkið kom á vettvang. Enn er eftir að $já hver árangurinn verður. ÖRUGGARI jafnvægisstilling og fljótvirkari með fullkominni tölvustýrðri wheelforceI vél. VIÐ AUKUM ENN ÞJÓNUSTUNA MEÐ FULLKOMNARI TÆKJUM. ELDHRESSIR STAgFSMENN OKKAR TAKA VEL A MOTI ÞER. NORÐDEKK VINNU STOFAN HF RÉTTARHÁISI 2 S. 84008/84009

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.