Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987. 31 Sandkom Söngleikir eins og My Fair Lady hafa gengið mjög vel hjá Leikfélagi Akureyrar og er það nú oröinn ár- viss viöburóur aö LA Ijúki leikárinu meö slíku verki. Fiðlarinn á þakinu í vor Þaðmásegjaaðþaðséorö- in regla hjá Leikfélagi Akureyrar að enda starfsárið hverju sinni með söngleik. Sýningar félagsins undanfar- in ár hafa enda gefist mjög vel og einnig skilað vel í kass- ann í lok leikárs. Er skemmst að minnast sýninga LA á My Fair Lady, Edith Piaff og Ka- barett sem félagið hefur sýnt undanfarin ár. Nú er von á enn einum söngleiknum en það er Fiðlarinn á þakinu sem frumsýndur verður í mars eða apríl. Eins og und- anfarin ár er reiknað með þvi að Reykvikingar muni fjöl- menna norður, skreppa á skíði, á ball og í leikhús en þessi blanda hefur notið vax- andi vinsælda höfuðborg- arbúa undanfarin ár. Stjömur Ingimars Nú styttist óðum i frum- sýningu á skemmtidag- skránni „Stjömur Ingimars í 25 ár“ én þar koma fram margir þeirra sem leikið hafa með hinum síunga Ingimar Eydal í Sjallanum í gegnum tíðina. Æfmgar hafa staðið yfir af fullum krafti að und- anfómu og stíga nú margjr á fjalimar eftir nokkra fiar- vem. Ekki er einungis um tónlistarflutning að ræða, þótt tónlistin sé að sjálfsögðu í öndvegi, þvi bmgðið er upp skemmtilegum sögum sem hent hafa á löngum starfs- ferli Ingimars og hljómsveit- arinnar. Þær ku vera æði skondnar sumar hveij ar en eiga það flestar sameiginlegt að hafa ekki farið hátt fram tilþessa. Fengu ekki niðurfellingu Golfklúbbur Akureyrar og Knattspymufélag Akureyrar fengu synjun við erindi sínu til bæjairyfirvalda um niður- fellingu fasteignaskatta á húseignumsínum en málið var nýlega afgreitt í bæjar- stjóm. Á sama fundi bæjar- stjómarinnar var einnig rætt um bréf frá Tannvemdarráði sem starfar á vegum heil- brigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins. I þvi bréfi kom fram: „að fjöldi sölutuma og óheppileg staðsetning þeirra sé ein af ástæðunum fyrir því h ve fæðuval og matarvenj ur okkar em slæmar". í um- ræðu á fundinum kom fram að KA-menn hafa selt veiting- ar og meðal annars sælgæti í félagsheimili sínu og kom fram sú skoðun að þvi væri enn síður ástæða til að fella niður fasteignaskatt hjá fé- laginu! Urnfram- lömbinsettá Ef marka má frétt í blaðinu Feyki, sem gefið er út á Sauð- árkróki, er það ætlun fjöl- margra bænda að setja á í haust þau lömb sem þeir eiga umfram fullvirðisrétt sinn. Virðist ljóst samkvæmt þessu að bændur hafa leyft hrútum sínum að „starfa með fullum aíköstum" síðastliðinn vetur og sitja nú uppi með alltof mörg lömb. Treysta þeir nú á að hægt verði að selja þau á fæti en sem kunnugt er þarf að slátra 40 þúsund 5 ár vegna riðuveiki í landinu. Þá segir Feykir..að það sé von margra að á næstu árum verði hægt að vinna bug á offramleiðslunni, annað- hvort með stórfelldri fækkun bænda eða jafnvel útflutn- ingj' ‘. Ekki var útskýrt nánar i blaðinu hvað átt væri við í Hrútarnir störfuóu meó fullum af- köstum síóastliöinn vetur og því sitja bændur uppi meö alltof mörg lömb. blaðinu með þessum síðustu orðum. Það skyldi þó aldrei vera...? Vottar og Oddfellowar Vottar Jehóva hafa reist sér glæsilegt hús við Byggðaveg á Akureyri og vakti athygli hve vel þeir gengu frá húsinu að utan og lóðinni um leið. Þar iðka þeir nú trú sína af kappi en ekki mun líða á löngu áður en þeir fá nýja nágranna. Á næstu lóð munu nefnilega vera að hefjast byggingarframkvæmdir Oddfellowhreyfingarinnar í bænum. Það hefur oft verið rætt um að innan þeirrar hreyfingar fari einnig fram athafnir trúarlegs eðlis þann- ig að væntanlega verða trúmál ofarlega á blaði á þessum slóðum þegar fram liðastundir. Umsjón: Gylfi Kristjónsson Merming Skondnir útúrdúrar Hér á landi hafa auðvitað verið haldnar alls kyns hönnunarsýningar. Ég held þó samt að Sigurður Örn Brynjólfsson, SÖB, sé fyrsti íslending- urinn sem heldur yfirlitssýningu á grafískum hönnunarverkefnum sín- um einvörðungu. Þessi sýning hefur nú staðið yfir í Listasafni ASI og lýkur þann 4. októb- er næstkomandi. Myndlist Aðalsteinn Ingólfsson SÖB er fjölhæfur hönnuður með sér- stakan, á köflum sérkennilegan, stíl. Oftar en ekki gengur sá stíll út á kími- leg tilbrigði og skondna útúrdúra við grafalvarlegustu málefni. Þetta er ekki svo galið hjá SÖB því oft er gott að muna hið broslega. Ég hugsa til dæmis að margir krakkar hafi tekið meiri nótís af plakötum SÖB, þar sem varaö er við reykingum, heldur en öðrum og alvarlegri um- vöndunum á almannafæri. Yfirleitt notar SÖB hin breiðu spjót- in í grafiskri hönnun sinni, kýlir á meginatriði í hveiju máli en lætur allt nostur og smámunasemi liggja á milli hluta. Þessi vinnubrögð bera kannski best- an ávöxt í plakatahönnun SÖB sem þarf fyrir alla muni aö vera bein- skeytt, sjá áðumefndan andreyking- aráróður, og plaköt gegn sprengjunni, en sömu taktar bera ekki eins góðan árangur í bókakápum eða matarum- búðum. Þar ber dáldiö á ofhlæði, svona eins og SÖB sé ekki alveg viss um hvemig hann eigi aö selja þessi pródúkt, láti þá allt flakka, og lái honum hver sem viIL Sýning SÖB í ASÍ SÖB, ásamt einu plakata sinna. Eg hef hins vegar mest gaman af hreinum kómískum uppákomum SÖB, eins og þær birtast í myndlýsing- um í blöðum, bæklingum og tímarit- um. SÖB hefur nefnilega komið sér upp teiknimyndafigúrum sem hafa ýmis- legt markvert að segja um tíðarand- ann á hveijum tíma. Allt um það er það bæði gott og hugað af SÖB að efna til þessarar sýn- ingar. Hún ætti að minna okkur á það stóra hlutverk sem grafisk hönnun leikur í lífi okkar nútímamanna. Nóta bene: mætti ekki veita viðurkenningar fyrir grafiska hönnun, til dæmis á bókakápum, einu sinni á ári? -ai Barn sem situr í barnabílstól getur sloppið við meiðsl í árekstri! UÉUMFERÐAR Urað Nauðungaruppboð sem var auglýst í 55., 62. og 71. tbl. Lögbirtingablaðsins 1987, á eigninni Ölduslóð 46, Hafnarfirði, þingl. eig. Vilhjálmur Ölafsson o.fl., fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. íd. 14.00 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Upp- boðsbeiðandi er Guðjón Á. Jónsson hdl. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð sem var auglýst í 90., 99. og 101. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á eign- inni Víðivangi 3, 1.h.103, Hafnarfirði, þingl. eigandi Magnea Ingibjörg Ölafsdóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. kl. 15.00 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild Landsbanka islands. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð sem var auglýst í 11., 17. og 24. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Hjallabraut 5, 2,h.C, Hafnarfirði, þingl. eigandi Aðalheiður Árnadóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. kl. 16.00 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttar- ins. Uppboðsbeiðendur eru Guðjón Steingrímsson hrl. og Bjarni Ásgeirsson hdl. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð annað og síðara, sem var auglýst í 41., 47. og 54. tbl. Lögbirtingablaðsins 1986 á eigninni Hamarsbraut 3, Hafnarfirði, þingl. eigandi Þórhildur Guðna- dóttir, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. kl. 15.15 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun upp- boðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Valgeir Kristinsson hrl. og Veðdeild Landsbanka islands. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði Nauðungaruppboð annað og síðara, sem var auglýst í 163. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 og í 2. og 5. tbl. þess 1986 á eigninni Skógarlundi 10, Garðakaupstað, þingl. eigandi Hafsteinn Alfreðsson, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. kl. 15.45 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Gjald- heimtan í Garðakaupstað, Sveinn Skúlason hdl„ Eggert Ölafsson hdl., Útvegsbanki íslands, Friðjón Örn Friðjónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykja- vík, Ölafur Gústafsson hrl., Anna Theódóra Gunnarsdóttir hdl., Hlöðver Kjartansson hdl., Guðjón Steingrímsson hrl. og Hróbjartur Jónatansson hdl. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á eigninni Aratúni 21, Garðakaupstað, þingl. eign Sæv- ars Þórs Carlssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 2. október nk. kl. 13.00. Bæjarfógetinn í Garðakaupstað Nauðungaruppboð sem var auglýst í 55., 62. og 71. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1987 á eigninni Smáratúni 7, Bessastaðahreppi, þingl. eigandi Árni Snorrason, fer fram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstudaginn 2. október nk. kl. 14.15 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Upp- boðsbeiðandi er Sigurður G. Guðjónsson hdl. Sýslumaðurinn i Kjósarsýslu Nauðungaruppboð þriðja og siðasta á eigninni Brekkutanga 18, Mosfellsbæ, þingl. eign Ás- geirs Sigurðssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 2. október nk. kl. 15.30. Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu Nauðungaruppboð annað og siðara, sem var auglýst í 105., 109. og 111. tbl. Lögbirtingarblaðs- ins 1986 á eigninni Tjarnarbóli 14, 2.h.C, Seltjarnarnesi, þingl. eigandi Sigtryggur Hallgrímsson, ferfram á skrifstofu minni að Strandgötu 31 föstu- daginn 2. október nk. kl. 14.30 og verður því síðan fram haldið eftir nánari ákvörðun uppboðsréttarins. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki islands, Sigurður G. Guðjónpson hdl., Þorvaldur Lúðvíksson hrl., Árni Pálsson hdl., Valgarður Sigurðsson hdl., Verslunarbanki íslands, Tryggingastofnun ríkis- ins, Jón Finnsson hrl., Róbert Árni Hreiðarsson, Iðnaðarbanki íslands og Útvegsbanki islands. Bæjarfógetinn á Seltjarnarnesi Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á fasteigninni Þjóðbraut 11, þingl. eigandi Vísir hf„ fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 2. okt. 1987 kl. 11.15. Uppboðsbeiðendur eru Utvegsbanki íslands, Ingólfur Friðjónsson hdl. og Akraneskaupstaður. Bæjarfógetinn á Akranesi Nauðungaruppboð þriðja og síðasta á fasteigninni Jaðarsbraut 37, miðhæð, þingl. eigandi Sverrir Sverrisson, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 2. okt. 1987 kl. 14.15. Uppboðsbeiðendur eru Landsbanki islands, Iðnaðarbanki íslands hf„ Verslunarbanki islands hf„ Skúli Bjarnason hdl„ Ólafur Axelsson hrl„ Akraneskaupstaður og Reynir Karlsson hdl. Bæjarfógetinn á Akranesi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.