Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987.
7
Fyrirhugað er að fornleifauppgrefti á Bessastöðum Ijúki í lok þessa mánaðar. Fornleifafræðingar eru nú að grafa
við kirkjugaflinn þar sem vitað er að rústir Amtmannsbústaðarins er að finna. DV-mynd GVA
Fomleífauppgiöftur á Bessastöðum:
Um 200 kíló af dýra-
beinum og matarleHum
- hafa verið send til greiningar í Bandaríkjunum
Undanfama mánuði hafa staðið yfir
miklar fomleifarannsóknir á Bessa-
stöðum undir stjóm Guðmundar
Ólafssonar fomleifafræðings. Nú er
verið að rannsaka svæðið undir að-
keyrslunni að forsetasetrinu en hún
þótti orðin of lítil og er því fyrirhugaö
að stækka hana. Þegar gólfið í Bessa-
staðastofu var grafið upp fyrr á árinu
fannst Landfógetabústaðurinn og
hluti af Konungsgarðinum sem stóð á
Bessastöðum allt fram á átjándu öld.
Framhald Konungsgarðsins fannst
síðan á hlaðinu undir aökeyrslunni
að Bessastöðum.
Að sögn Guðmundar Ólafssonar
hafa ýmsir hlutir Mtiö dagsins ljós við
uppgröftinn á Bessastöðum. Má þar
nefna um 200 kíló af dýrabeinum og
matarleifum sem nú hafa verið send
til Bandaríkjanna til greiningar, yfir
1000 leirkerabrot og mikið af krítar-
pípubrotum, ásamt fjölmörgum
öðrum gripum.
Seinnipariixm í haust og í vetur er
fyrirhugað að unnið verði að frágangi
rústanna undir Bessastaðastofu en
þegar fram liða stundir er ætlunin að
opna minjasafn undir gólfinu í stof-
unni, þar sem ýmsir þeir hlutir verða
til sýnis sem fundist hafa við upp-
gröftinn.
-jme
Ársfundur Alþjóðabankans:
Jón og Jóhannes fWashington
Þeir Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra og Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri eru aðalfulltrúar íslands á
ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í Washington en
fundurinn er haldinn í þessari viku.
Norðurlöndin fimm starfa náið saman
í þessum stofnunum og er á þeirra
vegum flutt ein sameiginleg ræða um
starfsemi hvorrar stofnunar fyrir sig.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra
flytur ræðuna um sjóðinn en Palle
Simonsen, fiármálaráðherra Dana,
um bankann.
-JGH
Fréttir
Þyski fískmarkaðurínn:
Aftur á
uppleið
Svo virðist sem þýski fiskmarkaður-
inn sé byijaður að rétta viö eftir
ormafárið í sumar. Þrátt fyrir að boðaö
hafi verið að allmikið magn af fiski
verði á mörkuðunum í þessari viku
seldi Viðey RE fyrir þokkalegt verð í
gær.
Skipið seldi 165 lestir af karfa og
ufsa og fékk um 52 krónur í meðalverð
fyrir karfa, sem telst gott. Fyrir ufsa
fengust ekki nema 43 krónur sem
meðalverð en Viðey seldi mjög lítið
af ufsa.
Vilhjálmur Vilhjálmsson hjá Lands-
sambandi íslenskra útvegsmanna
sagði að svo virtist sem þýski markað-
urinn væri að byija að rétta við þótt
of snemmt væri að fullyrða um slíkt
vegna þessarar sölu Viðeyjar en verð-
ið væri athyglisvert vegna þess að
mikið framboð er boðað á mörkuðun-
um í vikunni.
Lítið hefur verið selt út í gámum
héðan til Þýskalands að undanfómu
en gámaútflutningur gæti hafist á ný
ef verðið helst áfram jafhhátt og það
er nú.
-S.dór
Fiskeldi á Sundunum:
„Engin mengun“
„Hér er engin mengun, við höfum
látið kafara kanna botninn undir
kviunum og það hefur sýnt sig að
fóðrið í fiskiim sest ekki á botninn,
sjórinn er eins hreinn og hann getur
verið, enda em það miklir straumar
hér á Sundunum," sagði Sveinbjöm
Runólfsson byggingaverktaki, einn
nokkurra sem er með fiskeldi undan
Gufunesbryggju skammt frá Geld-
inganesi, um það hvort sjórinn á
þessum slóðum væri mengaður
vegna fóðurs sem sest hefði á botn-
inn og úldnað.
Þrír em með fiskeldi á þessum
stað, Haflax hf„ íslenska fiskeldis-
félagið og Sveinbjöm Runólfsson.
Alls era sjókvíar þessara fyrirtækja
um 25 talsins. Tvö ár er síöan fi-
skeldi hófst þama. Reykjavikurborg
úthlutaði þessu svæði enda er það á
hafnarsvæði borgarinnar.
Heilbrigðiseftirlitið kannar enn-
fremur reglulega sjóinn á Sundun-
um, hvort hann sé mengaður eða
ekki.
-JGH
Hér er engin mengun segja (iskeldismenn á Sundunum.
Raðgreiðslur VfSA-, ódýr
og þægilegur greiðslumátí
Léttið greiðslubyrðina með mánaðarlegum raðgreiðslum VISA í allt að 12 mánuði
vegna stærri viðskipta eða við greiðslu eftirstöðva ferðakostnaðar.tryggingagjalda o.fl.
Raðgreiðslur eru ódýrari greiðslumáti en venjulegir afborgunarsamningar og til
muna þægilegri, bæði fyrir kaupanda og seljanda.
Með Raðgreiðslum VISA bjóðast þér ferðir og ferðalög, heimilistæki,
tryggingar, sportvörur, hljómtæki, húsgögn, byggingavörur, Ijósmyndavörur,
tölvubúnaður, skrifstofutæki, steypa og jafnvel bílar. Fleiri og fleiri fyrirtæki
bjóða nú þennan þægilega greiðslumáta.
Þægindi og þjónusta eru aðalsmerki VISA. Korthafar VISA þekkja eftir-
farandi hlunnindi. Ferðaslysatryggingu, sjúkratryggingu (erl.), viðlaga-
þjónustu (erl.), bankaþjónustu (erl.), hraðbankaþjónustu (erl.), gisti-
þjónustu, vildarkjör, tímaritið VILD.
Nú eiga korthafar VISA enn fleiri
kosta völ.
VISA:
Boðgreiðslur,
Raðgreiðslur,
Símgreiðslur. styrktaraðili úlympi'uliðs íslands
V/SA