Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 29.09.1987, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987. 13 Neytendur Fjölbreytt, hagnýtt og skemmtilegt námsefni Námsefni í heimilisfræðikennslu í dag virðist vera bæði flölbreytt, skemmtilegt og fyrst og fremst hag- nýtt. Anna sýndi okkur námsskrá sem notuð er í skólanum og einnig kennslugögn úr grunnskólunum sem eru mjög smekklega unnin og til þess fallin að vekja áhuga nemenda. Við eigum því von á vel upplýstum þjóð- félagsþegnum í framtíðinni, vel upplýstum neytendum sem geta gert réttmætar kröfur. í virðulegum rektorsbústað Hússtjómakennaraskóh íslands er til húsa í virðulegu einbýlishúsi að Háuhiíð 9. Húsið var byggt sem íbúð fyrir rektor Menntaskólans í Reykja- vik á sínum tíma. Þetta er virðulegt hús upp á tvær og hálfa hæð. Skóla- stofur hafa verið gerðar úr svefn- herbergjum og húsið allt er hið vistlegasta. í kjallaranum er aðstaða fyrir verklega kennslu. Skólinn hefur verið til húsa í Háu- hlíðinni M haustinu 1958. Hússtjómarkennaraskólinn tók til starfa árið 1942. Áður þurftu þeir sem áhuga höfðu á hússtjórnakennara- námi að sækja menntun sina til útlanda og flestir stunduðu slíkt nám á Norðurlöndunum. Skóliim var til húsa í Háskólanum til ársins 1956 er hann flutti í núver- andi húsnæði. Síðustu hússtjómar- kennaramir vom brautskráðir vorið 1977 en alls vom 183 hússtjómarkenn- arar útskrifaðir úr skólanum. Þá hefur maMðsmannadeild starfað við skól- ann og brautskráð 4 maMðsmenn. Haustið 1977 var fyrst boðið upp á valgrein í hússtjóm í Kennaraháskóla íslands. Kennaranámið þar er skipu- lagt þannig að stúdentar stunda þriggja veM nám og öðlast að því lo- knu réttindi til þess að kenna við grunnskóla allar almennar greinar og að auki eina verklega grein ef þeir hafa vahð hana. Námið reiknast í heild sem 90 eining- ar sem skiptast í þrennt; 30 einingar kjamagreinar grunnskólans, 30 ein- ingar uppeldis og kennslufræði og 30 einingar valgreinar, annaðhvort ein verk- eða listgrein eða tvær bóklegar valgreinar. Þeir nemendur sem velja hússtjóm- arvalgrein stunda nám sitt í Kennara- háskólanum. Eins og áður sagði er ekki hægt að stunda nám sem veitir kennaramennt- un í hússtj ómargreinum á framhalds- skólastigi. Á sama tíma bjóða þó margir framhaldsskólar val í hús- stjómargreinum. ítaktvið tímann „Við reynum að fylgjast vel með tímanum og sníðum námsefnið eftir þvi sem við á á hveijum tíma,“ sagði Anna. Markmiðið með kennaranámi í hússtj ómarfræðum er aö veita kenn-' aranemum þá þekkingu og þjálfun sem nægir til þess að þeir verði færir um að kenna heimilisfræði á grunn- skólastigi og geti leiðbeint nemendum um búsýslu eins og námskrá grunn- skóla gerir ráð fyrir. Hvað varðar kennslu í matargerð er tekið mið af því sem efst er á baugi í manneldismálum hveiju sinni. Einnig er fjallað um mismunandi steftiur í jurtafæði. Kennt er hvemig á að matreiða rétti M öðrum löndum eins og t.d. rúss- neska súpu og blinis með rækjum og kavíar, kínverskan mat, ristaffel M Indonesíu, franska fiskisúpu, pítur og mousaka M Grikklandi og lasagne M Ítalíu. Auk þess er að sjálfsögðu kennd öll almenn innlend matargerð og einn- ig að flaka bolfisk. Loks sýndi Anna okkur nýja kennslubók sem notuð er í heimilis- fræðikennslu í 6.-8. bekk í grunnskóla. Bókin er gefin út af Námsgagnastofn- un og er einkar skemmtileg og gagn- leg. Eins og Anna benti réttilega á ætti þessi bók að vera til á hverju heimili, því í henni er að finna gagn- legan fróðleik um hvaðeina sem viðkemur heimilishaldi, næringar- fræði, matvælafræði, heimilisbúnaði og vinnuskipulagi, matreiðslu, fram- reiðslu og hreinlætisfræði. Bók þessi fæst í Skólavörubúðinni og kostar 1400 kr. -A.BJ. piiliit ■. -■ ; : t: Þrír ungir kennaranemar sem völdu sér hússtjórn sem valgrein. Þær eru að baka gerbrauð úr ýmsum tegundum af grófu mjöli. Nemamir eru f.v. Eyrún Valsdóttir, María Ósk Steinþórsdóttir og Álfheiður Jónsdóttir. Britax COMFY RIDER BARNABÍLSTÓLL HAUSTTILBOÐ Höfum fengið takmarkað magn af þessum viðurkenndu stólum á sérlega hagstæðu verði. Nú kr. 2.967 áður kr. 3.980 BENSÍNSTÖÐVAR SKEUUNGS H.F. © SKEUUNGSBÚÐIN SÍÐUMÚLA 33 n Jeep ri AMC Gíhirlegur verðmunur á íslensku kínakáli Gífurlegur verðmunur getur verið á vörutegundum milli verslana. í síðustu viku var íslenskt kínakál selt á 92 kr.í Hagkaup (á miðviku- dag) en síðar í sömu vikunm kostaði það 189 kr. kg. í Hólagarði (fóstudag). Við höfðum samband við Niels Marteinsson hjá Sölufélagj garð- yrkjumanna og spurðum um heild- söluverð á íslensku kínakáli. Það kostaði í gær 135 kr. kg., hækk- aði í síðustu viku úr 100 kr. kg. Hagkaupsmenn hafa því selt sitt kál undir heildsöluverðinu, en Hóla- garðsmenn lagt ríflega á. í síðustu viku var leyfður innflutn- ingur á spergilkáli en það íslenska er að detta út af markaðinum. Það er þó enn til í mörgum verslunum. Heildsöluverð á íslensku spergilkáh var 175 kr. en þá kostaði það inn- flutta 258 kr. í heildsöluþ Einnig er byijað að flytja inn rauða papríku Islenskt kínakál kostaði 92 kr. kg í Hagkaupi um miðja síðustu viku en síðar og er heildsöluverð hennar 20 kr. í vikunni kostaði það 189 kr. kg í Hólagarði hærra en þeirrar mnlendu. Rauð papríkan íslenska kostar í heildsölu íslensk papríka kostar 200 kr. í heild- 200 kr. kg. sölu en sú innflutta 220 kr. Græna -A.BJ. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI VARAHLUTIR - AUKAHLUTIR Eigum fyrirliggjandi mikið úrval original varahluta í AMC og Jeep bifreiðar. Einnig aukahlutir fyrir Wagoneer og Cherokee árg. '84-88, m.a. upphækkunarsett, toppgrind- ur, mottusett, vindskeiðar, sílsalistar, stokk- ar, útispeglar, varadekkspokar, safarígrindur að framan, stuðarahlífar, dráttarbeisli, aur- hlífar o.fl. o.fl. Ath. sérpantanir á ca 2-3 vikum án auka- kostnaðar. Hraðpantanir á ca 3 dögum. EGILL VILHJÁLMSSON HF., Smiðjuvegi 4, Kópavogi, símar 77200 - 77202

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.