Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1987, Qupperneq 15
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1987. 61 Kvikmyndir fMMM Vittorio og Paolo Taviani snúa hér bökum saman og leikstýra Vincent Spano (t.v.) og Joaquim de Almeida (t.h.) viö töku myndarinnar „Good Morning, Babylonia“. Bandarískir leikarar á faraldsfæti Það er ekkert nýmæli að bandarískir leikarar fari út fyrir land- steinana og leiki undir stjóm erlendra leikstjóra. Marlon Brando lék í „Last Tango in Paris“ undir stjóm Bemardo Bertoluccis, Will- iam Hurt lék í „Kiss of the Spider Woman“ undir stjóm Hector Ba- benco og við íslendingar fengum að fylgjast með Jack Lemmon í Makkaróní eftir Ettore Scola á ný- liðinni kvikmyndahátíð. Dæmin eru í sjáifu sér óteljandi en eigi að síður hafa menn greint ákveðna aukningu í þessum „útflutningi" bandarískra leikara að undanfómu og þykir mörgum það forvitnileg þróun. Ástæður þess að erlendir kvik- myndaleikstjórar vilja nú nota bandaríska leikara em bæði efna- hagslegar og hstrænar. Þeim leik- stjómm, sem gera myndir með ensku tali, fer fjölgandi enda hefur komið í ijós að með því að láta leik- arana mæla á enska tungu aukast mjög möguleikarnir á alþjóðlegum markaði. Þetta er staðreynd sem menn hafa orðið að kyngja hvort sem þeim líkar betur eða verr. Þessu höfum við íslendingar fengið að kynnast og nú er svo komið að víða um heim tíðkast að gera tvær útgáfur af hverri mynd, annars vegar með innlendu tah og hins vegar ensku. Því má spyrja: Em menn búnir að gefast upp fyrir heimsvaldastefnu bandarískrar menningar? Þá má ekki gleyma þeirri veigamiklu ástæðu að nafn á frægum bandarískum leikara gefur mynd oft á tíðum mikla og ódýra auglýsingu. Lægri laun skipta engu En það er ekki bara að erlendir leikstjórar leiti til bandarískra William Hurt og Raul Julia I „Kiss of the Splder Woman“. Kvikmyndir Sigurður Már Jónsson leikara heldur sækjast leikarar frá Bandaríkjunum eftir því að losna undan áhrifavaldi Hohywood og kynnast nýjum leikstjórum. Hafa' leikaramir látið sig htlu skipta þó að þeir hafi orðið að lækka laun sín verulega. Það er meðal annars frammistaða Wihiams Hurt undir stjóm Babenco sem hefur orðið til að kveikja þennan áhuga banda- rískra leikara. Hurt fékk óskarinn fyrir frammistöðu sína en ekki vakti síður athygli að það skyldi vera brasilískur leiksljóri sem stjómaði þessum frábæra leik Hurts. í kjölfar þess hafa margir „miðlungsþekktir“ bandarískir leikarar séð fram á aukna þroska- möguleika með því að leika í erlendum myndum. „Good Moming, Babylonia" og „Un homme amoureux“ („A Man in Love“) em dæmigeröar fyrir þessa þróun. „Un homme amour- eux“ var leikstýrt af Diane Kurys og notaöi hún leikarana Peter Coy- ote, Jamie Lee Curtis og Peter Riegert í myndinni. Þaö em hinir ítölsku Taviani bræður sem leik- stýra „Good Moming, Babylonia" og nota þeir Vincent Spano og hinn portúgalskættaða Joaqinm de Al- meida í myndinni. Báöar myndim- ar vom frumsýndar í Cannes í sumar og fengu misjafna dóma en þó vom flestir á einu máh um að leikaramir hefðu fyllilega staðið fyrir sínu. Leikgleði vaknar Þessir fjórir bandarísku leikarar höfðu frá mörgu athyghsverðu að segja eftir töku myndanna. Riegert, sem meðal annars hefur leikið í „Local Hero“ eftir Skotann BUl Forsyth, „Le Grand Camaval" eftir Frakkann Alexandre Arcady og „Stranger“ eftir Argentínumann- inn Adolfo Aristarain, hefur eftir- farandi aö segja um reynslu sína: „Undir stjóm erlendra leiksljóra nýtrn- maður meiri „leikgleði" og án þess að slegið sé af hstrænum kröfum hverfa peningaáhyggjur sem sífeht hanga yfir manni í Bandaríkjunum. Þá verður sögu- þráðurinn oftast öðmvísi. Meira er hugsað um að þjóna anda sögunnar en hvað áhorfendur vilja.“ Sjálf- sagt muna margir eftir Riegert í myndinni „Animal House". Þeir Almeida og Spano hafa frá annarri reynslu að segja. „Þetta er mikil breyting frá bandarískum leikstjórum, ekki síst vegna þess að Taviani bræðumir em tveir menn sem hugsa eins og einn. Þeir skiptast á um að stjóma tökum á myndum sínum og á meðan heldur hinn bróðirinn sig í fjarlægð,“ segir Almeida sem meðal annars hefur sést í myndinni „Beyond the Lim- it“ með Richard Gere. Og hann bætir við: „Tavianis bræður em nyög rökrænir í myndum sínum. Þeir em yfirleitt búnir að skipu- leggja ahar tökur fyrirfram og vita nákvæmlega hvar þeir ætla að hafa myndatökuvélina og hvaöa atriði þeir ætla að nota. Bandarískir leik- stjórar hafa þetta öðmvísi því þeir þurfa yfirleitt að prófa sig lengi áfram þar til þeir finna rétta töku. Aðferð Tavianis bræðranna gerir það að verkum að þeir hafa lengri tíma fyrir leikarana.“ En hvað fmnst evrópsku leik- stjórunum um bandarísku leikar- ana? Bandarísku leikararnir eru hugmyndarikari „Þeir hafa skarþari tilfinningu fyrir hlutverki sínu en evrópskir leikarar,“ sagði Diane Kurys. „Þá em þeir hugmyndaríkari og virð- ast einfaldlega taka leikinn alvar- legar." Það er því greinilegt að báöir aðil- ar virðast vera hæstánægðir með þetta fyrirkomulag og er hald manna að þessi samskipti eigi eftir að aukast enn frekar í framtíðinni. Er nú bara og bíða og sjá hvort Dustin Hoffmann, Robert De Niro eða einhver álíka frægur leikari stingiu: upp kollinum hér á klakan- um og leikur í íslenskum hangi- kjötsvestra. -SMJ/Byggt á Herald Tribune Peter Coyote og Jamie Lee Curtis I „A Man In Love“.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.