Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987.
DV
Louis Vuitton á íslandi:
Það er ekki sannað að um
eftirlíkingar sé að ræða
Viðskiptí
Kúfiskur til
Kanans
Kúfiskvmnslan á Suðureyri gengur
vel, að sögn Amórs Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Bylgjunnar hf„
eina kúfiskvinnslufyrirtækisins á ís-
landi. „Bandaríkjamenn eru tilbúnir
til að kaupa af okkur allt sem við get-
um framleitt, en við erum óhressir
með verðið, sem um er talað, það er í
kringum dollara fyrir pundið, en við
þurfum að fá lágmark 1,20 dollara til
þess að vinnslan standi undir sér,“
segir Amór.
Kúfiskinn nota Bandaríkjamenn í
skelfisksúpur. Þeir veiða sjálfir mikiö
af kúfiski en Bylgjan á Suðureyri eyg-
ir möguleikann þar sem bandarísku
fiskimiðin em ekki jafngjöful og áður
og eins er mengun þar talsverð.
Að sögn Amórs er Bylgjan búin að
veiða um 200 tonn af kúfiski írá 25.
september er vinnslan hófst. „Afkasta-
getan er um 30 toim á dag. Nýtingin
er um 10 prósent, þannig að 30 tonnin
gefa af sér um 3 tonn af kúfiski.
Þaö er bandaríska fyrirtækið Cam
Intemational Trading Corporation
sem annast sölu á kúfiskinmn fyrir
Bylgjuna hf. í Bandaríkjunum. Þá hafa
prufusendingar verið sendar til Evr-
ópu og Japan, að sögn Amórs. -JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR Innlán óverðtryggð (%) hæst
Sparisjóösbækur ób. Sparireikningar 14-17 Lb.Úb Úb
3ja mán. uppsögn 15-19
6 mán. uppsögn 16-20 Úb.Vb
12 mán. uppsogn 17-26.5 Sp.vél.
18mán. uppsögn 25,5-27 Bb.lb
Tékkareikningar 6-8 Allir
nema Vb
Sér-tékkareikningar Innlánverðtryggð 6-17 Ib
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
6 mán. uppsögn Innlán meðsérkjörum 3-4 14-24,32 Ab.Úb Úb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 5,5-6,5 Ab.Vb
Sterlingspund 8,25-9 Ab.Úb, Vb
Vestur-þýsk mörk 2,5-3,5 Ab.Vb
Danskarkrónur 9-10.5 Ib
ÚTLÁNSVEXTIR Útlán óverðtryggð (%) lægst
Almennir vixlar(forv.) 28-29,5 Bb.Lb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) 30,5-31 eöa kge
Almenn skuldabréf 29,5-31 Lb
Viöskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) Útlán verðtryggo 30 Allir
_ Skuldabréf Útlán til framleiðslu 8-9 Lb
Isl. krónur 28-29 Vb
SDR 8-8.25 Bb.Lb, Úb.Vb
Bandaríkjadalir 8,5-8,75 Bb.Úb, Vb
Sterlingspund 11,25- 11.75 Sp
Vestur-þysk mörk 5,5-5,75 Bb.Sp, Úb.Vb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 42
MEÐALVEXTIR
óverötr. sept. 87 29,9
Verötr. sept. 87 VÍSITÖLUR 8.4%
Lánskjaravísitala sept. 1778 stig
Byggingavísitala 1 sept. 324 stig
Byggingavisitala 2 sept. 101,3stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. júli
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa (uppl. frá Fjárfestingarfélaginu);
Avoxtunarbréf 1,2588
Einingabréf 1 2,301
Einingabréf 2 1,356
Einingabréf 3 1,422
Fjölþjóöabréf 1,060
Gengisbréf 1.0295
Kjarabréf 2,322
Lífeyrisbréf 1,157
Markbréf 1,178
Sjóðsbréf 1 1,135
Sjóösbréf 2 1,097
Tekjubréf HLUTABRÉF 1,220
Söluverö að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennartryggingar 114 kr.
Eimskip 278 kr.
Flugleiöir 196 kr.
Hampiðjan 118 kr.
Hlutabr.sjóðurinn 119 kr.
lönaöarbankinn 143 kr.
Skagstrendingur hf. 182 kr.
Verslunarbankinn 126 kr.
Útgeröarf. Akure. hf. 160 kr.
„Þeir íjölmörgu sem hafa skoðað
vörumar em sammála um að það sé
mjög ólíklegt að um eflirlíkingar sé
að ræða, að ég hafi veriö svikinn. Það
hefur ekkert verið sannað og þegar
sannleikurinn liggur ekki fyrir er öll
umfjöllun um málið slæm. En fyrir-
tæki mitt hefur aldrei verið orðað við
svik eða pretti, þess vegna er ég að
láta skoða þetta mál ofan í kjölinn,"
sagði Steinar S. Waage framkvæmda-
stjóri en hann selur hinar heimsfrægu
Louis Vuitton-vörur á íslandi.
Steinar hefur endurgreitt tveimur
kaupendum Louis Vuitton-vara. „í
öðm tilvikinu var um að ræða konu
sem keypt hafði vöruna til þess að
gefa hana en eftir að búið var að læða
þeirri hugmynd að henni að um eftir-
líkingu gæti verið að ræða kom hún
og vildi fá vöruna endurgreidda."
Að sögn Steinars endurgreiddi hann
vöruna einungis vegna þess að viö-
komandi viðskiptavinir vom óánægð-
ir en ekki vegna þess að um svikna
vöm væri að ræða.
Steinar hefur keypt Louis Vuitton
vörumar frá dönsku fyrirtæki sem
aftur hefur keypt þær frá ítölsku fyrir-
tæki. Nú er verið að athuga hvort þetta
ítalska fyrirtæki hafi eitthvað óhreint
í pokahominu.
„Ég er nú að vinna að því að fá sölu-
umboð frá Louis Vuitton beint. Ég
vona að þaö takist," segir Steinar.
Um ár er síðan Steinar hóf að selja
Louis Vuitton-vörur. Louis Vuitton er
gamalgróið franskt fyrirtæki og fram-
leiðir langmest leðurtöskur og veski.
-JGH
Ottó selur
Skrifstofu-
vélar hf.
Ottó A. Michelsen, aðaleigandi
Skrifstofuvéla hf„ hefur selt fyrir-
tækið Gísla J. Johnsen sf. að
Nýbýlavegi 16 í Kópavogi. Skrif-
stofuvélar hf. verða áfram reknar
undir sama nafiii og á sama stað
og áður, að Hverfisgötu 33, og fyrir-
tækið Gísli J. Johnsen sf. verður
áfram rekið að Nýbýlavegi 16.
Eigendur Gísla J. Johnsen em
þeir Erling Ásgeirsson og Gunnar
Ólafsson. Þeir störfuðu um árabil
hjá IBM á íslandi, á þeim árum
sem Ottó A. Michelsen var for-
stjóri fyrirtækisins, en hann lét af
því starfi árið 1982.
Erling Ásgeirsson verður aðal-
framkvæmdastjóri Skrifstofuvéla
hf. en Gunnar Ólafsson verður
framkvæmdastjóri Gísla J. John-
sen sf. Ottó Á. Michelsen mun
gegna ráðgjafarstörfum fyrir fyrir-
tækin og hefur hann aðstöðu á
sama stað og áður, að Klapparstíg
27.
Verðbólgan
er 23
prósent
Verðbólgan á íslandi, miðað við
hækkun vísitölu framfærslukostn-
aðar, er nú um 23 prósent á ári.
Kauplagsnefnd hefur reiknað visi-
tölu framfærslukostnaðar miðað
við verðlag í byijun október og
reyndist hún hafa hækkað um 1,65
prósent frá því í byijun september,
eða á einum mánuði. Undanfama
þijá mánuði hefur vísitala fram-
færslukostnaðar hækkað um 5,4
prósent og jafngjldir sú hækkun
23,2 prósent verðbólgu á heilu ári.
-JGH
Guðmundur Hauksson, bankastjóri
Útvegsbanka íslands hf. Hann leggur
í dag fyrir bankaráðið skýrslu sem
sýnir góðan gróða bankans.
Jón Atli Kristjánsson, 44 ára hagfræðingur og nýráðinn forstjóri Olís.
DV-mynd KAE
Jón Atli Kristjánsson
ráðinn forstjóri Olís
„Óli ámálgaði það við mig fyrir
nokkru hvort ég hefði áhuga á að taka
við starfi hans sem forstjóra Olís. Ég
gaf mér eðlilegan umhugsunartíma en
á fóstudaginn var svo gengið frá ráðn-
ingu minni á stiómarfundi hjá 01ís,“
segir Jón Atli Kristjánsson, nýráðinn
forstjóri Olís.
Jón Atli er 44 ára hagfræðingur,
Reykvíkingur í húð og hár. Hann hef-
ur starfað hjá Landsbanka íslands, í
hagdeild, síðastliðin 20 ár. Jón er
kvæntur Maríu Þorgeirsdóttur og eiga
þau 2 böm.
- En óttast hann ekki að stýra Olís í
hinni hörðu samkeppni olíufélag-
anna?
„Ég hefði ekki gefið kost á mér í
þetta starf ef ég tryði ekki á fyrirtæk-
ið.“
Að sögn Jóns Atla telur hann það
ákaflega farsælt ef bankamir og at-
vinnulífið skipti á fólki eins og tíðkast
mikið erlendis. „Það er að mínu mati
einnig mjög gott ef bankamir fá fólk
út atvinnulífinu."
- En hyggst hann breyta einhverju í
rekstri Olís?
„Eins og kunnugt er hefur Óli í Olís
verið að vinna að ýmsum breytingum
hjá fyrirtækinu og ég mun fylgja þeim
eftir."
Jón Atli tekur við starfmu 1. nóv-
ember og verður með Óla í fyrstunni
hjá fyrirtækinu en Óli hefur lýst því
yfir að hann ætli sér að hætta sem
forstjóri Olís þann 1. desember.
Utvegsbankinn
(1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaukpa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = Otvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um peningamarkaö-
inn blrtast i DV á fimmtudögum.
rokgræðir
„Það er verulegur hagnaður af
rekstri bankans en ég get engar tölur
staðfest," segir Guðmundur Hauks-
son, bankastjóri Útvegsbankans, en
hann mun á bankaráösfundi í dag
leggja fram yfirlit um rekstur bankans
frá 1. maí, þegar hann tók til starfa,
til 31. ágúst. Hvort hagnaðurinn á
þessu tímabili sé 50 milljónir króna
vill Guðmundur ekki staðfesta.
„Það kemur margt til. Eigið fé bank-
ans var ákveðið einn milljarður og var
þaö hlutafé greitt inn. Þar með var
komin sterk fiárhagsleg staða. Enn-
fremur hefur orðið mikil aukning á
innlánum og er hún með þvi besta sem
gerist í bankakerfinu."
Guömundur segir að vegna þessarar
innlánsaukningar hafi tekist að borga
upp allar skammtímaskuldir við
Seðlabankann sem hafi numið á ann-
an milljarð króna þegar bankinn hóf
rekstur.
„Það hefur líka haft veruleg áhrif
fcÍTlUlÍÖ .4^
að verðbólga var meiri í upphafi ársins
en menn ætluðu að yrði og voru útl-
ánsvextir því of lágir. Þetta hefur
breyst, vextir hafa hækkað. Það er því
betri rekstrargrundvöllur fyrir bank-
ana núna.“
Loks neftiir Guðmundur þá ástæðu
fyrir velgengni Útvegsbankans hf. að
stór hluti af launahækkunum, sem
voru afturvirkar, hafi lent inn á reikn-
ingi gamla bankans.
-JGH