Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. 7 dv___________________________________________________________________Atvmnumál Fiskeldisstöðvum fjölgar ört: Þrjátíu nýjar skráðar á árinu Fiskeldisstöðvum á íslandi hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Fyrstu eiginlegu eldisstöðvamar voru reistar um 1950. Fram til ársins 1970 voru mest 10 til 15 stöðvar og klakhús starf- andi í landinu. í öUum þeim stöðvum voru aðaUega framleidd laxaseiði fyrir flskirækt. Fáeinar stöðvar stunduðu þó UtiUega hafbeit og matfiskeldi. Þessar upplýsingar og fleiri má flnna í skýrslu eftir Ama Helgason um framleiðslu í íslensku fiskeldi á árinu 1986. Á áttunda áratugnum tekur stöðv- unum að fjölga. 1979 vom þær orðnar um tuttugu. Árið 1984 má segja að bylting hafi orðið í fjölgun stöðvanna. Á því ári fjölgaði þeim um níu. Árið 1985 fjölgar þeim um tuttugu og tvær og 1986 um þrjátíu og eina. Það sem af er þessu ári hafa verið skráðar um þrjátíu nýjar stöðvar. Verðmæti afurða í fyrra varð heildarverðmæti í fisk- eldi 266 milljónir króna. Þar af var verðmæti laxeldisafurða um 234 millj- ónir króna og silungsafurða 32 millj- ónir. Sjötíu og fimm prósent verðmætanna komu úr seiðaeldi, eða um 200 milljónir króna. Mesta aukningin í seiðaeldi Á undanfómum árum hefur fjölgun stöðva verið mest í seiðaeldi og eru þær nú tæpur helmingur allra fiskeld- Fiskvinnslan: Hægt að spara milljarða - með aukinni tæknivæðingu Starfshópur á vegum Rannsókna- ráðs ríkisins, undir forystu dr. Péturs Maack, hefur gert úttekt á vanda fisk- vinnslunnar á íslandi. Hefur hópurinn komist að þeirri niðurstöðu að þörf sé á mjög aukinni tæknivæðingu í fisk- vinnslunni og muni hún kosta 150 til 200 miUjónir króna á ári næstu 3 árin. Segir í skýrslu Rannsóknaráðs ríkis- ins um málið að sá vandi sem blasi við fiskvmnslunni sé lítil framleiðni, hörð samkeppni um hráefni, lág laun og mannekla en nægir markaðir. Ekk- ert nema aukin tæknivæðing geti leyst þessi vandamál. í skýrslunni segir ennfremur að með aukinni tæknivæðingu í fiskvinnslu sé hægt að spara milljarða króna í vinnslukostnaði. Þar þurfi að koma til aukin sjálfvirkni og sérhæfing í vinnslustöðvunum. Talað er um að mikið breytingaskeið standi yfir í sjávarútvegi hér á landi. Með ákveðinni opinberri stjómun fiskveiða, vaxandi vinnslu og fryst- ingu afla um borð í veiðiskipum, auknum ísfiskútflutningi og tilkomu innlendra fiskmarkaða hafi nýjar að- stæður skapast. Þá er bent á að enda þótt hagur fiskveiðanna hafi batnað verulega sé staða fiskvinnslunnar enn erfið. Varðandi þær 150 til 200 mjlljónir króna árlega, næstu 3 árin, telur starfshópurinn að þriðjungur þess fjár eigi að koma frá opinberum aðilum, en tveir þriðju frá atvinnufyrirtækj- unum sjálfum. Hefur Rannsóknaráð ríkisins hefur ritað ríkisstjóriiinni bréf vegna þessa og lagt til að á fjárlögum verði veittar 60 milljónir króna árlega næstu 3 árin til þessa verkefnis. -S.dór INNRÖMMUN 22 SÍMÍ 31788 isstöðva í landinu. Fjöldi hafbeitar- stöðva hefur lítið breyst undanfarin þrjú til fjögur ár. Strandeldis- og kvía- eldisstöðvum hefur fjölgað talsvert. Aðeins UtiU hluti starfandi eldis- stöðva setti afurðir á markað á árinu 1986. Skýringamar á því em að fram- leiðslan tekur langan tíma. Það liða til dæmis um 20 mánuðir frá því að hrogn era tekin og þar til gönguseiði era til- búin til sölu. Það liða 16 til 30 mánuðir frá því byrjað er að ala gönguseiði þar til slát- urfiskur er tilbúinn á markað. Af þeim sökum er ljóst að þær fjölmörgu stöðv- ar, sem hafa hafið rekstur á allra síðustu árum, hafa fæstar lokið einu framleiðslutímabili. ísnó og Laxalón með mesta framleiöslu 1986 . Laxalón framleiddi mest af seiðum á árinu 1986, eða 550 þúsund smá- seiði. ísnó í Kelduhverfi framleiddi mest af sláturlaxi, eða 80 tonn. Laxeld- isstöð ríkisins var með mesta fram- leiðslu í hafbeit, eða 39 tonn. í Reykjavík era 7 stöðvar. Þar vora framleidd alls 565 þúsund seiði. í Reykjaneskjördæmi era 11 stöðvar. Þar vora framleidd 445 þúsund seiði og 54 tonn í hafbeit. Á Vesturlandi era 11 stöðvar. í þeim vora framleidd 266.500 seiði, 19 tonn af sláturfiski og 6,5 tonn í hafbeit. Á Vestfjörðum era 12 stöðvar. Þar vora framleidd 221.500 seiði, 10,1 tonn af sláturfiski og hálft tonn af því í hafbeit. Á Norðurlandi vestra era 4 stöðvar. Þær framleiddu 602 þúsund seiði og 4 tonn af slátur- fiski. Mesta framleiðslan á Norðurlandi eystra Á Norðurlandi eystra era 8 stöðvar. Þar vora framleidd 754.500 seiði, 90 tonn af sláturfiski og 4 tonn í hafbeit. Á Austurlandi var ein stöð. Hún fram- leiddi ekkert á síðasta ári. Á Suður- landi era 19 stöðvar. Þar vora framleidd 584 þúsund seiði. -sme REYKJAVÍK OOOO 009 O © 0®8. REYKJANES Jooo^ VESTRA VESTFIRÐIR _ O _ o or jío 0*0 #L OO OOo ° © o®v ° A (NORÐURLA ND UOROURLAHD ^ o©o °® VESTURLAND _ © o© ->/ SUÐURLAND oA o® oo austfirðir SUÐURLAND O ÖO°Q°0 QQ o Fískeldisstöðvar á íslandi 1986 REYKJAVÍK 1. Eldisstöðin við Elliðaár 2. Laxalón v/Vesturlandsveg 3. islenska fiskeldisfélagið 4. Borgareldi 5. Haflax 6. Fiskeldisst. ívars Friðjónssonar 7. Sveinbjörn Runólfsson REYKJANES 1. Eldi hf. 2. Fiskeldi 3. Sjávargull 4. íslandslax 5. Atlantslax 6. Sjóeldi 7. Silfurgen 8. Kinnaberg 10. Atlantslax 11. Vogalax 12. Silfurlax 13. Lindarlax 14. Pólarlax 15. Fiskeldisstöðin Selskarð 16. Eldisstöð SVFR 17. Seleldisst. Hilmars Sigurðssonar 18. Laxeldisst. ríkisins 19. Laxalón hf. VESTURLAND 1. Fiskeldisf. Strönd 2. Klakeldisst. Ferstiklu 3. Klakst. Fosstún 4. Fiskræktarst. Vesturlands 5. Seiðaeldisst. Húsafell 6. Hafeldi 7. Látravík 8. Snælax 9. Dalalax 10. Eldisst. Kverngrjóti 11. Hafbeitarst. Kleifum VESTFIRÐIR 1. Silfursíli 2. Klak- og eldisst. Seftjörn 3. Vesturlax 4. Lax hf. 5. Þórslax 6. Eldisst. Búðareyri 7. Hafbeitarst. Botni 8. Hafbeitarst. Djúplax 9. Laxeldisst. Hveravík 10. íslax 11. Blælax 12. Dragás 13. Eldisst. Drangsnesi NORÐURLAND VESTRA 1. Hafrún 2. Hólalax 3. Fljótalax 4. Miklilax NORÐURLAND EYSTRA 1. Fiskeldi 2. Klakstöðin 3. Óslax 4. Ölunn 5. Norðurlax 6. Árlax 7. ísnó 8. Seljalax 9. Fiskhaldsst. Naustin AUSTURLAND 1. Strandalax 2. Mánalax SUÐURLAND 1. ísnó hf. 2. Klakhúsið Ytrahrauni 3. Eldisst. Vík í Mýrdal 4. Eldisst. Fellsmúla 5. Búfiskur 6. Vatnagull 7. Eldisst. Sumarliðabæ 8. Eldisst. Króki 9. Laxeldisst. Stokkseyri 10. Bakkalax 11. Vatnarækt 12. Fiskeldisst. Tungufelli I 13. Seiðaeldisst. Spóahólum 14. Laugarlax 15. Fjallalax 16. Veiðifélag Árnesinga 17. Klakhúsið Þurá 18. Laxalón sf. (Fiskalón) 19. Silfurlax (Núpum 3) 20. ísþór 21. islenska fiskeldisfélagið 22. Eldisst. að Núpum 23. Stórlax hf. DV - kort: JRJ'

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.