Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Side 15
ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. 15 Kennaraskorturinn áfengið kk Frá einum útsölustaða ÁTVR. „Ríkið“ heldur áfram að vera til, hver svo sem veitir því forstöðu - segir í greininni. „Þaö er reyndar hart að fólk, sem hefur aflað sér menntunar og reynslu á ákveðnum sviðum, skuli ekki 1 reynd eiga neitt meiri möguleika til að fá störf við hæfi en aðrir.“ Ég er einn þeirra sem eiga skjal, undirritað af menntamálaráðherra, þar sem því er lýst yfir að ég hafi heimild tú að nota starfsheitið fram- haldsskólakennari. Ekki amalegt, gæti einhver hugsað, hann þarf þá ekki að kvíða atvinnuleysinu, þessi. En svona er nú gæðunum misskipt að ég'bý við það sem kalla mætti skort á kennaraskorti því að hér á landi er enginn skóh sem hefur þörf týrir kennara í þeim greinum sem ég kerrni. Reynsla sniðgengin... Mitt sérsvið er sem sagt áfengi, matur og framreiðsla þess ama. Reyndar kemur þetta svo sem ekki að sök því að ég starfa við bókhald og reikningsskil og hef gert í rúman áratug og líkar það bærilega. En viti menn: Dag nokkum seinnipart sum- ars sá ég auglýst starf sem ég hélt að væri þess eðlis að þekking mín og reynsla gætu komið að gagni. Þetta var starf útsölustjóra ÁTVR á Akureyri. Ég áleit sem sagt að ég hefði ýmsa þá eiginleika til að bera sem slíkur maður þyrfd að hafa, þ.e.a.s. talsverða þekkingu á vínum, brennivínum, áfengisblöndum, áfengislögunum, bókhaldi og tölvu- vinnslu og hafði þar að auki unnið í áfengisverslun, svo að ég sló til og sóttá um starfið. í ljósi framansagðs áleit ég að ég hlyti að eiga góða möguleika á að hreppa hnossið, í það minnsta ef fag- leg sjónarmið yrðu látin ráða. Þannig átti þetta nú samt ekki eftir að ganga fyrir sig því að ráðherra mat það svo að í starfið væri heppi- legt að ráða máimiðnaðarmann sem hefur ef til vill aðeins verið vegna þess að enginn gleriönaðarmaður sótti um. Að sjálfsögðu hefur ráð- herra leyfi til að ráða hvem sem honum sýnist enda gerði hann það. ... og einnig fagleg menntun Af og tíl, síðan starfið var veitt, hafa birst greinar í blöðum um veit- inguna. Á þeim flestum hefur mátt skilja að aðeins Akureyringar séu hæfir til að gegna starfinu og ein- göngu ef þeir hafa áður starfað hjá ÁTVR. Þama er svona óbeint verið að gefa í skyn að 17 eða 18 óhæfir ein- staklingar hafi sótt um starfiö, þó svo að enginn þeirra sem skrifa kunni deili á þeim. Raunar er heldur Kjallajinn Guðmundur Axelsson skrifstofumaður ekkert í þessum skrifum að finna sem gefur til kynna að umræddir Akureyringar og starfsmenn ÁTVR hafi einhveija þá eiginleika til að bera sem geri þá hæfari til að gegna starfinu en aðra. Ég er þess fullviss að flestir, ef ekki allir, umsækjendur em hæfir til að gegna starfinu og þeim sem fékk óska ég gæfu og geng- is. Ef til vill lítur ráðherrann þarrnig á máhð að þegar allt kemur til alls skipti ekki svo miklu máli hver sé valinn því að „ríkið“ heldur áfram að vera til, hver svo sem veitir því forstöðu, og séu viðskiptavinimir ekki ánægðir með þá skipan mála, sem er, beina þeir viðskiptunum ekki svo glatt í næstu búð. Það er reyndar hart að fólk, sem hefur aflað sér menntunar og reynslu á ákveðnum sviðum, skuli ekki í reynd eiga neitt meiri mögu- leika til aö fá störf við hæfi en aðrir. En það viröist sem sagt greinilegt að fyrir utan ráðherrastarfið þarf að minnsta kosti ekki faglega menntun til að gegna starfi útsölustjóra ÁTVR, að mati þeirra sem stjóma þjóðfélaginu. Kannski það verði nóg í framtíð- inni að kenna bömunum okkar bara fyrsta stafinn í stafrófinu! Guðmundur Axelsson Dagvistarmál, enn og aftur Sjaldan eða aldrei hefur ástandið í dagvistarmálum borgarbúa verið jafnslæmt og nú. Dagvistarheimilin era alltof fá og þeim er ekki hægt að halda opnum vegna skorts á starfsfólki. Fóstrumar flýja hver sem betur getur og fara í betur laun- uð störf sem nóg framboð er af, enda fómarlund þeirra nú loks endanlega ofboðið. Byijunarlaun fóstra em nú um 38.000 kr. á mánuði og hafa, mið- að við aðra hópa, sjaldan verið eins lág. Hverjir bera ábyrgðina? Það er viðtekin skoðun innan flestra stjómmálaflokka að það sé og eigi að vera hlutverk ríkis og sveitarfélaga að sjá foreldrum fyrir tryggri og góðri dagvistun fyrir bömin, enda hagur þjóðfélagsins að njóta vinnuframlags sem flestra hér í fámenninu. Undanfarin ár hefur meirihlutinn í borgarstjóm Reykja- víkur sýnt vítavert kæruleysi með því að vanrækja gróflega að uppfylla þessar skyldur sínar. Smám saman hefur því sigið á ógæfuhliðina, bið- listar hafa lengst og launakjör starfsfólks versnað og er nú svo komið að neyðarástand ríkir í dag- vistarmálum. Hlutverk foreldrasamtakanna Það olh mér nokkrum vonbrigðum aö sjá nú fyrir stuttu að foreldrasam- tökhi virðast hafa gefist upp á að þrýsta á stjómvöld og heina nú kröftum sínum að því að leita nýrra leiða í dagvistarmálum. Ansi er ég hrædd um að það hafi einmitt verið tilgangur borgarstjómarmeirihlut- ans með áhugaleysi sínu að velta ábyrgðinni af eigin herðum og yfir á foreldrana sjálfa. Að vísu em sumar hugmyndanna um nýjar leiðir kannski góðra gjalda verðar, eins og til dæmis sú að stór- atvinnurekendur sjái sjálfir um rekstur dagvistar fýrir böm starfs- KjaHaiirin Sigríður Sigurðardóttir heimilistæknir og fóstra fólks síns. Það yrði auðvitað að gera sömu gæðakröfur til slíkra heimila og þeirra sem hið opinbera rekur. Ennfremur hefur komið fram sú hugmynd að lagður yrði sérstakur skattur á atvinnurekendur sem not- aður yrði heint til reksturs dagvist- arheimila, enda hagsmunir atvinnurekenda ekki síst í húfi nú á tímum vinnuaflsskorts. En sú hugmynd, að foreldrar og/ eða fóstrur taki sig saman og stofni og reki sín eigin heimili, er fráleit. Pláss á slíkum heimilum yrðu svo dýr að aðeins efnafólk gæti nýtt sér þau. Síðan myndu böm frá efna- minni heimilum fá inni á heimilum hins opinbera. Einkareknu heimilin myndu yfirhjóða hin, í launalegu til- liti, fóstrumar myndu hópast þangað, en á heimilum hins opin- bera myndi starfa ófaglært fólk nær eingöngu. Slíkt hlyti alltaf að koma niöur á starfseminni. Að vísu hefur komið fram sú hugmynd að hækka mætti bamabætumar svo foreldrar Aó tryggja góöa dagvistun fyrir börnin er hlutverk ríkis og sveitarfélaga - segir t greininni. - A góöviörisdegi við barnaheimili. árangur af starfi þessarar nefndar sem allra fyrst. „En sú hugmynd, að foreldrar og/eða fostrur taki sig saman og stofni og reki sín eigin heimili, er fráleit“. gætu keypt dýrari dagvistun. En ef ríkið treystir sér til að hækka bama- bætumar, af hveiju í ósköpunum treystir það sér þá ekki alveg eins til að auka framlög til sveitarfélaga svo þau geti rekiö fullnægjandi dag- vistun? Foreldrasamtökin era í eðli sínu þannig að þau ættu, með góðri skipulagningu, að geta verið mjög öflugur þrýstihópur. Þjóðfélagið get- ur ekki án vinnuafls alls þessa fólks verið. Þessum kraftí sínum ættu samtökin að beita af alefli til þess að krefja borgarstjóm um skýr svör og aðgerðir strax. Ennfremur ættu samtökin að þrýsta á að ríkisvaldið kæmi inn í myndina í auknum mæh, t.d. með því að bifreiðaskattur- inn nýi yrði látinn renna óskiptur til sveitarfélaganna og þau skylduð til að nota hann til uppbyggingar og reksturs dagvistarheimila. Þaö er gleðiefni að nú í vikunni var sett á laggimar nefnd á vegum borgarinnar til að kanna með hvaða hætti má fá fólk til starfa á dagvistar- heimilin á ný. Vonandi sjáum við Ráðhúshneykslið Það er reginhneyksli og til hábor- innar skammar að borgarstjóri skuh á næstu tveimur árum ætla að verja sjö hundrað og fimmtíu mihjónum króna til byggingar ráðhúss en hunsa um leið frumþarfir borg- arbúa. Ástæðan fyrir þessu frum- hlaupi borgarstjóra er auðvitaö sú aö hann sér fram á hrun síns flokks í næstu borgarstjómarkosningum og vih reisa sér veglegan minnis- varða áður en hann neyðist til aö hverfa úr valdastóh. Þessu kyngjum við foreldrar ekki þegjandi og hijóða- laust. Beitum nú öhum okkar samtakamætti og kreflumst þess að ríki og sveitarfélög taki sig nú á og sjái bömunum okkar fyrir nægum og góðum dagvistarheimilum. Sigríður Sigurðardóttir : . .1.11: ! .noaaatógfaV nBÍ.'Hfe

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.