Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.1987, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 13. OKTÓBER 1987. Menning_____________________________________________________x>v íslensk bíómynd til sólu Friðrik Þór Friðriksson í spjalli um Skyttumar Friðrik Þór Friðriksson býr á annarri hæð í stæðilegu húsi við Tjömina. Á stofuborð- inu heima hjá honum stendur forláta tölva. Friðrik notar hana til að skrifa handrit að nýrri kvikmynd sem á að flalla um ástir ellilífeyrisþega, en þess á milli fæst hann við að selja síðustu mynd sína, Skytturnar, til sýninga erlendis. Þegar við sækjum hann heim á vætusömum laugardegi er erindi okkar einmitt að fræðast um gengi Skyttnanna og spyrja Friðrik út 1 hvemig reynsla það sé að selja útlendingum íslenska kvikmynd. Fyrst er hann spurður hvað hafi ýtt honum út 1 þessa sölumennsku. Friðrik Þór Friðriksson: „Sumar kvikmyndahátíðir eru gagnslausar." DV-mynd S. „Skyttumar voru frumsýndar hér heima síðastliðið vor og sannast sagna var aðsóknin hrikaleg. Það sáu aðeins 7 þúsund manns myndina sem er örugglega ein minnsta að- sókn sem íslensk mynd hefur fengiö frá upphafi. Þannig komu til dæmis samtals 200 manns síðustu 45 sýn- ingardagana. Aðgangseyririnn fór allur í það að borga leigu á bíósölum. Þegar svona nokkuð gerist verður maður að hugsa aðallega um erlend- an markað ef maður ætlar að bjarga höfðinu á sér. Það er einfaldlega ekki um annað að ræða en að storma á erlendar kvikmyndahátíðir og markaði." Hvemig reynslu höfðu íslendingar af slíkum hátíðum áður? „Ég held að þeir hafi tekið þær allt of hátíðlega. Sumir þeir íslend- ingar, sem höfðu reynt þetta, sögöu að það væri mgl að ætla sér að fara út með íslenska kvikmynd til að selja hana. Það svaraði ekki kostnaði. Eg hef hins vegar komist að því gagn- stæða. Ef maður hefur í fórum sínum sögu sem útlendingar „fíla“ þá er þessi hátíöarbransi alveg tilv- alinn. Það er bara ekki sama hvert maður fer.“ Þú fórst fyrst til Cannes? „Já, kvikmyndahátíðin þar er lík- lega einhver mikilvægasti hluturinn í þessum kvikmyndabransa. Þangað koma aliir sem ætla sér að selja myndir. Og jafnvel þótt menn selji ekki kynnast þeir fólki sem ef tíl vill er tilbúið að fjármagna næstu mynd.“ MARKAÐSTORG KVIKMYNDANNA „Annars má skipta hátíðinni í þrennt. í fyrsta lagi er lokuð keppni, í öðm lagi er margþætt dagskrá í gangi og loks em sýndar myndir utan dagskrár. Það var það sem ég gerði með Skyttumar. Ég hafði reynt að koma myndinni inn í dagskrána en var ansi seinn til.“ Getur hver sem er sýnt mynd þama utan dagskrár? „Já, svo gott sem. Þetta er í sjálfu sér ekkert annað en markaöstorg þar sem menn era að selja sína vöm. Það er þess vegna út í hött þegar fjöl- miðlar hér heima em aö slá því upp ef einhver íslerisk mynd er sýnd á almennum sýningum í Cannes. Þama em sýningar frá morgni til kvölds, samfleytt í tíu daga. Alls em sýndar yfir 500 myndir, af öllum gerðum og í öllum gæðaflokkum. En hvað kemur þá út úr þessum sýningum í Cannes? „Myndir í keppninni er nokkuð öraggt að seljast vel, en ef maður er með mynd í dagskránni eða á al- mennum sýningum er árangurinn að miklu leyti undir manni sjálfum kominn. Skyttumar vom sýndar á tveimur almennum sýningum í Cannes. Á þá fyrri komu 60 manns en 120 á þá síðari. Þetta telst víst nokkuð gott, miðað við að á sumar kvikmyndir frá Norðurlöndum koma kannski 4 til 5 áhorfendur. Máliö er aö auglýsa sig nógu vel upp. Ég fór með kon- unni minni og vinkonu hennar út og við þöktum bæinn með plakötum og límmiðum. Því var að margir könnuðust við að þama væri verið aö sýna íslenska mynd.“ DUGLEGUR AÐ TRANA SÉR „í framhaldi af þessu sýningum komst ég samband við ýmsa aðila og fékk meðal annars boð um aö taka þátt í kvikmyndahátíðinni í Locamo í Sviss. Það er nefnilega ekki aðeins að til Cannes komi kau- pendur að ná í myndir heldur velja aðrar kvikmyndahátíðir myndir tO sýningar þaðan. Svona hleður þetta smátt og smátt utan á sig. Maður verður bara að vera duglegur við að trana sér fram. Ef maður situr uppi á hótelherbergi og heldur að sér höndum getur maður alveg eins se- tið heima.“ Segðu okkur örlítið frá hátíðinni í Locamo. „Áður en ég kom til Cannes hafði ég sett stefnuna á Locamo. Þaö vom allir sammála um að það væri rétta hátíðin fyrir þessa mynd. Hátíðin er í rauninni keppni og til hennar vora aðeins valdar átján myndir. Þama vom aðstæður líka allt aðrar en í Cannes. Ég þurfti ekki að vera á þönum um allan bæ með plaköt né eltast við þá sem ég vildi hitta. Hátíð- in fékk mikla og góða kynningu í fjölmiðlum, tekin vom viðtöl við mig í blöð, útvarp og sjónvarp, auk þess sem sýnt var úr Skyttunum í sérs- takri heimildamynd sem gerð var um hátíðina. Þama var líka stöðugt haldið aö manni fólki. í Cannes komst ég bara í einhver sér partí fyrir Noröurlandabúa en í Locamo var mér boðið í öll samsæti og kynnt- ist þar fjölda fólks.“ Þama fengu Skyttumar líka sér- staka viðurkenningu. Hvaða gildi hafði hún? „Þessi viðurkenning var eins kon- ar fjórða sætið í keppninni og vissulega mjög ánægjuleg. Það er líka staðreynd að myndir seljast oft út á svona viðurkenningar. Á hinn bóginn valda verðlaunin því að það er erfiðara að taka þátt í hátíðum hér eftir. Það er hörð samkeppni milli hátíðanna og menn vilja helst ekki fá myndir á hátíðir sem búið er að verðlauna annars staðar. VANTAR 5 MILUÓNIR „Af þessum sökum veröa menn að velja sér hátíðir af kostgæfni. í raun- inni ætti kvikmyndasjóður að hafa sérfræðing á sínum snærum sem hefði þekkingu til að markaössetja íslenskar myndir erlendis. Sumar þessar kvikmyndahátíðir, sem em haldnar þama úti, em nefnilega gagnslausar meðan aðrar, sér í lagi hátíðin í Cannes, skipta sköpum." Nú hefur þú verið á þönum I allt sumar við að kynna Skyttumar fyr- ir útlendingum. Hver er árangur- inn? „Eins og málin standa í dag vantar mig 5 miiljónir til að Skyt- tumar standi á sléttu. Það sem hefur gerst hingað til er að fjöldi fólks út um allan heim veit af þessari mynd og er að pæla í henni. Mér hafa til dæmis borist fyrirspumir frá Japan, Ástralíu og flestum Evrópulöndun- um. Nú í haust á að frumsýna myndina á Norðurlundunum og það bíða margir eftir því að sjá hvemig henni reiðir af þar. Ef hún gengur þokkalega geri ég fastlega ráð fyrir að hjólin fari aö snúast annars stað- ar. Hingað til hef ég einkum verið að gæla viö að geta selt myndina í bíó. Sjónvarpsstöðvar borga nefnilega betur fyrir mynd ef búið er að sýna hana i bíóum í viðkomandi landi áður. Á hinn bóginn hefur þýska sjónvarpið þegar ákveðið að kaupa myndina til sýningar og það er alveg ljóst að ég þarf ekki að gera nema tvo slíka sjónvarpssamninga til að ná upp í þennan kostnað. Gallinn er bara sá aö mér er farið að liggja svolítiö á þessum peningum. MYNDIR HJÁLPA HVER ANNARRI „Annars er árangur af svona kynningu margþættur. íslenskar myndir geta til dæmis hjálpað hver annarri. Þannig hefur þetta starf mitt hjálpað strákunum sem em að vinna að Foxtrot. Fylgja því ekki einhverjir sérstakir erfiðleikar að selja útlendingum ís- lenska kvikmynd? „Á vissan hátt er það kraftaverk að selja islenska kvikmynd til sýn- ingar erlendis. Það má likja þessu við það þegar eskimói tekur upp á því að selja svaladrykk. Maður er að selja eitthvað sem er framleitt mikiö af í heiminum en það dettur engum í hug að það sé framleitt hér. Við erum ekki nema 250 þúsund og fyrir útlendinga er sprenghlægilegt að við skulum vera framleiöa kvik- myndir á okkar eigin máli. Það fer ekki þjá því aö maður mæti vissum fonlómum af þessum sökum. Áðan var ég að tala um að íslensk- ar myndir gætu hjálpað hver annarri en þetta er auðvitað tvíbent; íslenskar myndir geta líka eyðilagt hver fyrir annarri. Þannig hef ég fundið að Danir era fordómafyllri gagnvart íslenskum myndum en til dæmis Hollendingar eða Englend- ingar og það vil ég fyrst og fremst rekja til íslenskra sjónvarpsleikrita sem sýnd hafa verið á Norðurlönd- unum á undanfómum árum. Þessi leikrit hafa ekki einu sinni fengið gagnrýni í blöðum heldur ummæli á borð við: Enn einu sinni hefur ís- lenska sjónvarpinu tekist að eyði- leggja kvöldið fyrir dönsku þjóðinni. KYNNING Á ÍSLENSKRIMENNINGU „En það þýöir ekkert að láta þessa fordóma buga sig. Maður verður að trúa á það sem maður er aö gera. Aðalvandamálið fyrir mig hefur því veriö að fá fólk til að sjá Skytturnar. Sú tortryggni, sem ég hef mætt, bráðnar venjulega eftir að fólk hefur horft á myndina. Og að sjálfsögöu er þetta ekki bara spuming um pen- inga. Með íslensku kvikmyndunum erum við fyrst og fremst að kynna íslenska menningu. Hingað til höf- um við verið algjörir þiggjendur á sviði kvikmynda en það ætti að vera okkur metnaðarmál aö gefa eitthvað til baka.“ Nú á að fara endursýna Skyttumar hér á landi. Hvað er svo framundan hjá þér? „Eftir hátíðina í Locamo hafa ýmsir haft samband við mig og beð- ið um að Skyttumar yrðu endur- sýndar hér heima, en vegna fyrri reynslu á ég tæplega von á að fleiri sæki þessar sýningar en þeir sem höfðu samband. Ég held að sjálf- sögðu áfram að vinna í þessum málum úti enda er ljóst aö allar tekj- ur, sem koma ixm fyrir þessa mynd, koma erlendis frá. Þessa dagana er ég svo á nám- skeiði í handritagerð sem Daniel nokkur Martin heldur hér á landi á vegum Kvikmyndasjóðs. Svo er ég auðvitað að ’vdnna að þessu nýja handriti." Hvenær gerir þú þér vonir um að geta ráðist í gerð þeirrar myndar? „Um leið og ég fæ styrk frá Kvik- myndasjóði. Ég geri að vísu fastlega ráð fyrir að fá hlutafjármögnun er- lendis frá, en ég hefst ekki handa fyrr en ég fæ styrk hér heima. Það er bijálæði að fara út í gerð myndar án styrks frá sjóðnum. Ég hef reynt það tvisvar og tala því af reynslu. Það er hins vegar á huldu hvenær þessi styrkur kemur. Nú heyrast raddir um að það eigi að lækka fram- lag til sjóðsins, en slíkt væri eins og hnefahögg í andlitíð fyrir okkur sem erum að burðast við að framleiöa íslenskar kvikmyndir." -jkh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.