Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. 5 pv___________________________Stjómmál Ólafur Ragnar vill afdráttarlaus svör um gengismál: Ríkisstjómln leggi líf sitt að veði Snarpar umræöur urðu utan dag- skrár á Alþingi í gær um efnahagsaö- gerðir og fjárlagafrumvarp ríkis- stjómarinnar. Lauk þeim ekki fyrr en undir miðnætti. Ólafur Ragnar Grímsson, sem nú situr á Alþingi sem varaþingmaður, hóf umræður. Hann sagði óhjákvæmi- legt að knýja forsætisráðherra til að lýsa því yfir afdráttarlaust að ríkis- stjómin ætlaði ekki að fella gengið. Skrifleg fyrirheit, sem gefin hefðu ve- rið launafólki í landinu, hefðu verið svikin með söluskatti á matvæli. Loks sagði hann óhjákvæmilegt að fá skýr svör við því að hve miklu leyti fiár- lagafrumvarpið nyti stuðnings í stjómarflokkunum. Ólafur Ragnar krafðist þess að for- sætisráðherra lýsti því yfir að ríkis- sfiómin mundi fara frá ef gengið yrði fellt. Ekkert minna dygöi. Ef forsætis- ráðherra ekki lýsti því yfir að líf ríkisstjómarinnar yrði lagt að veði yrði ályktað að um blekkingarvef væri að ræða. Hann taldi ljóst að fiárlagafrum- varpið nyti ekki stuðnings Framsókn- arflokksins. Vitnaði hann í yfirlýsing- ar Jóns Helgasonar landbúnaðarráð- herra og ýmissa annarra framsóknarmanna. Sagði hann að í venjulegum lýðræðisríkjum þyrfti ráðherra, sem ekki styddi einn af homsteinum fiárlagafrumvarpsins, annaðhvort að segja af sér eða ríkis- stjómin segði af sér. í staðinn væri ágreiningnum vísað í nefnd. Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra sagði að sanngjamt hefði verið af Al- þýðubandalaginu að leyfa Sigríði Stefánsdóttur frá Akureyri, keppinaut Ólafs Ragnars um formannssæti í Al- þýðubandalaginu, að koma inn á þing og tala jafnlengi og Ólafur Ragnar. Þorsteinn sagði aö vegna nýrra að- stæðna og nýrra upplýsinga um horfur í efnahagsmálum hefði þótt nauösynlegt að stíga fastar á brems- umar en áður hefði verið ráðgert. Meö því hefði verið mörkuð stefna sem gæfi mönnum trú á að gengi krón- unnar gæti haldið. Öll tvimæh hefðu verið tekin af um að ríkisstjómin ætl- aði sér að fylgja eftir fastgengisstefn- unni. Hann sagði að ráðstafanimar fælu ekki í sér brigð viö kjarasamninga. Kaupmáttur væri eftir sem áður meiri en að hefði verið stefnt. Steingrímur Hermannsson utanrik- isráðherra lagði áherslu á að Fram- sóknarflokkurinn styddi fiárlaga- frumvarpið. Ekki væri óeðlilegt þótt landbúnaðarráöherra hefði gert at- hugasemdir við einn þátt þess og vildi leita leiða til að rétta hlut landbúnað- arins. Albert Guðmundsson, formaður Borgaraflokksins, gagnrýndi Þorstein Pálsson og sagði það engin svör fyrir þjóðina að vera með dylgjur um inn- anílokksmál Alþýðubandalagsins. Hann sagði að sannleikurinn hefði ekki sigurmöguleika í samkeppni við ríkisstjórnina. Spurði hann hvort ekki væri nauðsynlegt fyrir stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins að setja lögbann á forystu sína. Jón Baldvin Hannibalsson fiármála- ráðherra sagði að með samræmdum aðgerðum væri ríkisstjómin að renna stoðum undir fastgengisstefnuna og visa á bug kröfum sumra atvinnurek- enda um gengisfellingu. Greindi hann frá viðræðum sem hann hefði átt við forystumenn verka- lýðshreyfmgarinnar. Bauðst hann til þess að fresta gildistöku söluskatts á matvæli gegn þvi að heildarsamkomu- lag tækist viö verkalýðshreyfmguna um launastefnu á næsta ári. Kristín Halldórsdóttir, Kvennahsta, lýsti athöfnum ráöherra síðustu vikur sem hringlandahætti sem ekki væri tíl þess fahinn að auka thtrú fólks á Hækkað bílverð: Eftirspurn svipuð og fýrir hækkun Bhaumboðin hafa htiö orðið vör við það að fólk hafi hætt við að kaupa nýja bha eftir að þeir hækkuðu í verði á mánudaginn. „Það hefur enginn samdráttur orð- ið og engir kaupendur hafa hætt við. Ég held að það sé vegna þess að fólk metur það þannig að bhveröið eigi enn eftir að hækka og telji jafnvel gengisfelhngu yfirvofandi um ára- mótin. Því sé það að bíða það sama og að tapa,“ sagði Júlíus Vífih Ingv- arsson hjá Ingvari Helgasyni í samtali við DV í gær. Ingimundur Sigfússon, forsfióri Heklu, sagði í gær að eftirspurnin væri nú svipuð og fyrir hækkun en þó bjóst hann við þvi að samdráttur yrði í sölu nýrra bha þegar fram í sækti. Annars sagði hann að það væri tæpast nógu langur timi hðinn frá hækkun bílverðsins th þess að hægt væri að álykta um sölu á næst- unni. Þá gat Ingimundur þess að mikh umframeftirspum hefði verið á nokkrum gerðum bha og væri af- greiðslufrestur á þeim aht fram í febrúar á næsta ári. Ásgeir Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Veltis, sagði að enginn þeirra sem ættu bha pantaöa hefðu hætt við en sagði að of fljótt væri aö mæla það hvort samdráttur hefði orðið í eftirspum. Kvaðst hann telja að þegar th lengdar léti þýddi hækk- unin samdrátt í bhasölu og þá einkum á dýrari geröunum. „Mín tilfinning er sú að næstu daga fari að draga úr eftirspurn,“ sagði Ás- geir. -ój aðgeröir ríkissfiómarinnar. Hún sagöi matarskattinn siðlausan og í hróplegu ósamræmi við hræsnisfuhar yfirlýs- ingar um umhyggu fyrir láglauna- fólki. Jón Helgason landbúnaðarráðherra lýsti þvi yfir að hann teldi ekki fært að afgreiða fiárlagafrumvarpið frá Al- þingi án þess að breyting yrði gerð á nokkrum hðum. Þessi orð Jóns Helgasonar sagði Sva- var Gestsson, formaður Alþýðubanda- lagsins, þýða í raun að Framsóknar- flokkurinn myndi ekki styðja frumvarpið ef greidd yrðu um það at- kvæði nú. Þar með væri það ekki stjómarfrumvarp. Stefán Valgeirsson, þingmaður Sam- taka um jafnrétti og félagshyggju, sagði að ekki gæti veriö meirihluti fyrir þessu frumvarpi. -KMU ENSKA ÞÝSKA FRANSKA SPÆNSKA DANSKA PORTÚGALSKA ÍTALSKA ÍSLENSKA fyiir útlendinga Uppl. i símum 10004/21655/11109 Mímir AMERÍSKIR HYDRA-SPA NUDDPOTTAR Acrýlefni, 2x2m, 5-6 manna Litur blár Verð með loftdælu kr. 108.000 HERKULES Sími 666066 frá kl. 10-14 daglega. BILASYNING NISSAN NIS5AN - SUBARU ra M 1957-1987 V; 130 i ára /If Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17 RT Jj_ INGVAR HELGASON HF. Sýningarsalurinn/Rauðagerði, sími 33560.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.