Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Blaðsíða 28
40 FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. I gærkvöldi Ólafur Lárusson framkvæmdastjóri: Lok, lok og læs.. Klukkan 21.25 (nákvæmlega) birt- ist auglýsing frá Stöö 2 á imbanum minum, efnislega á þá leið aö nú væri búiö aö „læsa“ dagskránni en með japönsku undratæki (ég geri ráö fyrir að synir sólarinnar hafi fram- leitt það eins og allt annað á þessum síöustu og bestu tímum) væri hægt að „opna“ fyrir dýrðina. Af skömm- um mínum lét ég mig hafa það að staulast upp úr húsbóndastólnum (þ.e. stólnum mínum) og skipta yfir á Stöð 2. Viti menn, dagskráin var ótrufluð. En ég vissi betur. Jón Óttar og félagar hans myndu beita aust- rænu þekkingunni á okkur innan skamms og til einskis að rýna frek- ar. Ég verð að viðurkenna að dagskráin hjá Stöð 2, eftir að synir sólarinnar hafa farið um hana hönd- um, fer frekar iila í mig. Hef þó heyrt um fólk sem lætur sig hafa það að fylgjast með dagskránni eflir að lok- irm hefur verið settur á. Einhvers staðar á leið minni greip ég þann þekkingarmola að velflestir íslendingar væru fréttasjúkir. Eflir að hafa gleypt í sig morgunblöðin, svelgst á síðdegismiðlinum, nartað í nýjasta slúðrið (sem vikulega flytur okkur, saklausu fólkinu, fréttir af vonda fólkinu) setjumst við niður og neytum kvöldverðar undir ómiss- andi kvöldfréttum Gufunnar (sem ber af í okkar þjóðfélagi) og gætum þess að kvöldverðurinn teygist ekki fram yfir 19:19. Og ekki nóg með það, eins og þeir segja í Englandi: Replay kl. 20. Fyrir Allabaliana, vini mína, sem þráast við að tala íslensku (enn) og þykjast ekkert skilja i tungu Reagans, þá merkir orðið Replay: endurtekning. Mikif ósköp, það lá við að ég kæm- ist yfir þetta allt saman í gær. Og Kastljós í kjölfarið. Góður þáttur, Kastljós. Ergilegt að þegar fjörið er að hefjast, eför inngang (mislangur í þáttum sem þessum), þá er köttur úti í mýri. Kannast ekki einhver við tilfinninguna? Að öðru leyti voru umræður þess- ar gagnlegar. Niöurstöður einfcddar. Jón Baldvin verður að gera sér ferð yfir Melana og Grímsstaðaholtið, til Davíðs á Lynghagann, nú eða þá Davíð sömu leið á Vesturgötuna. Ég mæli ekki með því að þeir mætist á Olafur Lárusson. miðri leið, sem er gamfi kirkjugarð- urinn við Suðurgötu. Eftir Kastljós sagði dagskráin mér að næst væri Matlock á skjánum. Pass og sneri mér að tónlist Andreu Jónsdóttur. Aðlaðandi og skemmti- legur útvarpsmaður, hún Andrea, og smekkleg tónlist í lokin er áskorun til sjónvarpsins að byggja meira á innlendu dægur- efni, erlent léttmeti smýgur inn um annaö og út um hitt. Og ekkert bull um kostnað. Allt sem þarf er vilji og framkvæmd. Af góðu fólki eigum við nóg. Fréttir Dagsbmn mótmællr matarskattinum Jarðarfarir Björn Haraldsson bankafulltrúi verður jarðsunginn frá Dómkirkj- unni í dag, 16. okt., kl. 13.30. Útfor Kristins Jóhanns Árnasonar skipstjóra verður gerð frá Fossvogs- kirkju í dag, 16. okt., kl. 13.30. Óskar Ámason hárskerameistari verður jarðsunginn frá Bústaða- kirkju í dag, 16. okt., kl. 13.30. Guðmundur Björnsson, fyrrverandi veggfóðrari, Sunnubraut 22, Kópa- vogi, verður jarðsunginn frá Kópa- vogskirkju í dag, 16. okt„ kl. 15.00. Minningarathöfn um Guðfinn Þor- steinsson og Óla Kristin Sigurjóns- son, sem fórust með Hvítingi VE-21 2. sept. sl„ verður í Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 17. okt. kl. 14.00. » Útfor Einars Guðmundar Sturlaugs- sonar fer fram frá Stöðvarfjarðar- kirkju laugardaginn 17. okt. kl. 14.00. Tilkynningar „Die horen“ Eins og menn eflaust rekur mínni til var 3. hefti síðasta árgangs þýska bókmennta- tímaritsins „Die horen“ helgað íslenskum bókmenntum eftir seinni heimsstyrjöld. Ritið var prentað í 5500 eintökum og seld- ust þau upp á skömmum tíma. Er það fremur sjaldgæft á þýskum bókamarkaði. sem er ekki jafn bókmenntasinnaður og hann er stór. Enn fátíðara er þó tímarits- hefti af þessu tagi séu endurprentuð, en vegna mikillar eftirspurnar ákváðu útgef- endur ritsins í sumar að gefa það út aftur. , að þessu sinni í 2000 eintökum. Þau blöð og tímarit í Þýskalandi sem fjölluðu um íslandsheftið fóru um það mjög lofsamleg- um orðum. f Þýskalandi hefu: undanfarið vaknað mikill áhugi á norrænni menn- ingu. Um svipað leyti og fslandsheftið kom út endurprentað kom út 2. hefti '87 af „Die horen" (ritið kemur út ársfjórðungslega) og flutti sýnishorn skáldskapar frá hinum norðurlöndunum. Upphaflega var ekki áætlað að ísland flyti með í Norðurlanda- heftinu en vegna þess hve fslandsheftið hafði hlotið góðar mótttökur var ákveðið að hafa í því íslenska „deild". og lauk svo að hún varð tæpar 30 síður. Auk greinar um hreyfilistar-bræðurna Hauk og Hörð Harðasyni og grafíkmvndar eftir Ragn- heiði Jónsdóttur birtast þar þýdd ljóð eftir Guðberg Bergsson. Einar Braga. Stefán Hörð Grímsson. Þorsteinn frá Hamri, Snorra Hjartarson. Sigurð A. Magnússon. Baldur Óskarsson. Hannes Pétursson og Steinunni Sigurðardottur. Nýtt af nálinni heldur tólf námskeið víða um land. Á vegum klúbbsins Nýtt af nálinni. sem Vaka-Helgafell starfrækir. verða á næst- unni haldin tólf námseið í fatasaumi og prjóni á sex stöðum á landinu. Nýju af nálinni var hleypt af stokkunum síðastliðið vor og hefur klúbburinn verið afar vinsæll. Félagsmenn fá mánaðarlega tímaritið Nýtt af nálinni með fjölbreyttum uppskriftum. sniðum og klúbbfréttum en auk þess býður klúbburinn margþætta þjónustu í tengslum við efnið. Alla virka daga frá 9 17 geta félagsmenn notfært sér ókeypis leiðbeiningaþjónustu klúbbsins og í hverjum mánuði er klúbbfélögum gef- inn kostur á ýmsum hagstæðum vöru- kaupum. Þá geta félagsmenn sótt námskeið klúbbsins sem nú eru að hefjast. Hvert námskeið tekur fimm vikur og eru uppskriftir-úr tímaritinu Nýtt af nálinni notaðar sem námsefni. en námskeiðin nýt- ast jafnt byrjendum sem lengra komnum. Á hverju námskeiði kenna reyndir handa- vinnu- og textílkennarar. Skráning á námskeiðin hófst hjá Nýju af nálinni um miðjan ágúst og hefur eftirspurn reynst gífurleg og fleiri námskeið þegar í undir- húningi. Námskeiðin, sem nú eru að byrja, eru á Egilsstöðum, Keflavík, Akureyri, ísafirði, Akranesi og í Reykjavík. Tvö námskeið eru haldin á hverjum stað: í fatasaumi og í prjóni. Þátttakendur mæta einu sinni í viku, þrjá tíma í senn, en vinna heima- verkefni þess á milli. 5 Kennarar á námskeiðunum eru þær Sig- urlaug Jónasdóttir, Guðný Marinósdóttir. Sara Þorsteinsdóttir, Unnur Ólafsdóttir, Magdalena Sirrý Þórisdóttir, Eygló Gunn- arsdóttir, Ásdís Jóelsdóttir og Ásta Kristín Siggadóttir. Yfirumsjón með námskeiðunum hafa starfsmenn Nýs af nálinni, þær Ragna Þórhallsdóttir handavinnukennari, rit- stjóri tímaritsins Nýtt af nálinni, og Ásdís Jóelsdóttir textílkennari. Opnunartími Stjórnarráðsins Starfsdagur í Stjómarráðinu færist aflur í fyrra horf yfir vetrarmánuðina. Verða því skrifstofur Stjómarráðs Islands opnar kl. 9-17 mánudaga til föstudaga frá og með 1. október nk. Vetrarstarf Félagsmálaskól- ans að hefjast Vetrarstarf Félagsmálaskóla Alþýðu er að hefjast um þessar mundir. Fyrsta önn skól- ans verður í Ölfusborgum 11.-24. október nk. Félagsmálaskólinn er rekinn af Menn- ingar- og fræðslusambandi alþýðu og eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum ASÍ rétt á vist í skólanum. Tvær annir skólans verða fyrir áramót, sem hver um sig stend- “ur í hálfan mánuð, en eftir áramótin er auk fyrri anna gert ráð fyrir þriðju önn skólans. 1 Félagsmálaskólanum sitja hag- nýtar greinar í fyrirrúmi. Auk fræðslu í helstu greinum, sem snúa að launa og kjaramálum, er Félagsmálaskólinn dýr- mætur vettvangur fyrir launþega innan ASl til umræðu um sín mál og tækifæri gefast til að ræða við forystumenn í laun- þegahreyfingunni á hverri önn skólans. Á dagskránni eru einnig menningar- og skemmtikvöld, heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir eftir því sem tími gefst til. Þeir sem áhuga hafa á skólavist í Félagsmála- skólanum, eru beðnir um að hafa -amband við skrifstofu MFA s. 84233 eða verkalýðs- félag sitt. Umsóknir um 1 önn skólans þurfa að berast fyrir 8. október. Bækur Á bókamarkaðinn frá Bókrúnu Hjá Forlaginu Bókrún hf. verða tvær Ijóðabækur á markaði fvrir jólin. Bókin Utan vegar. eftir Steinunni Eyjólfsdóttur. 50 blaðsíðna kilja með teikningum eftir Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur og Andlit í bláum vötnum. 73 ljóð eftir Ragnhildi Ófeigsdóttur. í október kemur út Minnis- bók Bókrúnar 1988. um 200 blaðsíðna almanaksbók með fróðleik við hvern dag um konur og viðfangsefni þeirra. I bókinni eru 12 heilsíðu Ijósmyndir og efri frá fimm konum á jafnmörgum síðum. auk annars efnis til skemmtunar og fróðleiks. N'ú er ritverkið Úr ævi og starfi íslenskra kvenna I III eftir Björgu Einarsdóttur fáanlegt í sérhannaðri gjafaöskju. Samhliða þessu safnriti hefuf forlagið gefið út þrjú póst- kort og eitt veggspjald. Hverjum klukkan glymur Út er komin hjá Máli og menningu þriðja útgáfa bókarinnar „Hverjum kh kkan glymur“ eftir Emest Hemingway. Þetta er ein þekktasta skáldsaga höfundarins, gerist í Borgarstyrjöldinni á Spáni þar sem Hemingway barðist sjálfur með lýðveldis- sinum gegn fasistum. Söguhetja bókarinn- ar eru ungur Bandaríkjamaður sem fær það verkefni að sprengja brú. Sagan fylgir honum gegnum þrjá sólarhringa og æsi- lega atburðarás þar sem hættur leynast við hvert fótmál og bregða skugga yfir mannleg samskipti. Islensk þýðing Stefáns Bjarman kom fyrst út árið 1951. Árið 1980 hafði hún verið ófáanleg um langa hríð og var þá endurútgefin en seldist upp von bráðar og því sér þriðja útgáfa nú dagsins ljós. Guðjón Ketilsson hafði veg og vanda af gerð kápu en Prentstofa G. Benedikts- sonar annaðist prentun. Bókin er 426 bls. að stærð. Steingrímur fyrir Sakadóm Kynferðisaíbrotamanninum Steingrími Njálssyni var gert að mæta fyrir Sakadóm Reykjavíkur í morgun. Sakadómur birti honum ákæru, gögn í málinu voru lögð fram og Steingrímur valdi sér verj- anda. Verjandi Steingríms verður sem fyrr Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður. Ragnar "ér erlendis og verður ákveðinn frestur í máli Steingríms þar tíl Ragnar kemur til landsins. Hjörtur Aðalsteinsson sakadómari sagði í gær að hann gæti ekki sagt til um hvað fresturinn yrði langur. Hann sagði að málinu yrði hraðað eftir föngum. -sme Trúnaðarráð Verkamannafélagsins Dagsbrúnar varar ríkisstjórnina við að leggja 10% söluskatt á landbúnað- arvörur. Segir í ályktun ráðsins að skattur þessi le®st þyngst á tekjulitlar bama- fjölskyldur. Segir ennfremur í álykt- uninni „að verkalýðshreyfingin muni ekki horfa aögerðalaus á að þeim tekjulægstu verði íþyngt frekar en orðið er“, eins og segir orðrétt í álykt- un félagsins. -S.dór Mikið stórvirki Aðalatriðið á tónleikum Sinfóníu- hljómsveitar íslands í gærkvöldi var frumflutningur píanókonserts eftir Áskel Másson. Það var mikill við- burður sem lengi hafði verið beðiö eftir. Ástralski píanistinn Roger Woodward var mættur til leiks en konsertinn er sérstaklega saminn fyrir hann. Woodward er heims- frægur samkvæmt efnisskránni, gott ef ekki arftaki Rubinsteins og Richters. Já, einmitt það. En hvað sem því líður hlýtur að vera mikih innblástur ungum manni að fá til liðs við sig svona stórmenni. Enda lét andinn ekki á sér standa og ent- ist hátt i þrjú kortér. Að vísu þótti undirrituðum það helst til langt. Verkið er í fjórum þáttum og hefði hans vegna gjaman mátt sleppa mið- þáttunum. Þannig hefði samt fengist úr þessu góður hálftími. Bestur er fyrsti þátturinn og þó er hann lang- lengstur. Það er að visu ekki tiltak- anlega létt yfir honum og stundum em hugmyndimar heldur óljósar. Píanóparturinn er feikna erfiður á allan hátt og áreiðanlega á fárra færi að skila honum jafnglæsfiega og Woodward gerði. En þar er tal- svert um ofhlæði og í fljótu bragði heyrt tilgangslausan gauragang sem veikir þráðinn. Og hann er óskap- lega venjubundinn miðað við margt sem komið hefur frá Áskeli áður. Þrátt fyrir þetta og ýmislegt annað sem fór i taugamar við fyrstu heym er ekki að efa að þessi konsert Áskels Mássonar er mikið stórvirki sem býr yfir meir en venjulegum áhrifa- mætti, hvemig svo sem á því stend- ur. Stjómandinn, Diego Masson frá Frakklandi, er víst næstum alveg eins frægur og Woodward, gott ef ekki alveg eins frægur og líklega arftaki Boulez? Hann virtist ekki í neinum vandræðum með píanókon- sertinn og reyndar ekki með neitt svo heitið gæti. Nema þá helst hljóm- sveitina, sem spilaði upphafsverk tónleikanna, Parísarsinfóníu eftir Tórúist Leifur Þórarinsson Mozart (nr. 31), óvenjulega illa. Þar bólaði eiginlega hvergi á fallegri Askell Másson tónskáld músiseringu, eins og tækifærin em þó mörg. Lokaverkinu, hljómsveit- arútgáfu á Myndum á sýningu Mússorgskís eftir Ashskenazy (ekki Raval), hefði mátt sleppa. Það er alls ekki yfir meðallagi sem skólaæfing í faginu. LÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.