Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. 45 Líbanir mótmæla Líbanir, sem örkumlaðir eru af völdum borgarastyrjaldarinnar í landinu, efiidu nú í vikunni til mót- mælaferðar um landið og lauk henni í gær. Mikill mótmælahugur mun nú vera í Líbönum yfirleitt enda hefúr tólf ára styijaldarástand tekið sinn toll af heilsu þeirra og lífskjör- um. Litia myndin að neðan er dæmigerð fyrir viöskipti í landinu í dag þar sem stóra stafla af seðlum þarf til að greiða fyrir hluti eins og flugfarseðla. Gagnsókn kynþáttastefnu Stjómvöld hvítra í Suður-Afríku hafa skorið upp herör til þess að kynna sín sjónarmið varðandi kynþáttaaðskilnaðarstefnu þá sem enn er framfylgt í landi þeirra. Kynningarherferðinni er meðal annars beint að fuiltrúum á ráðstefnu ríkja breska samveldisins í Vancouver í Kanada. Byggja s-afrísk stjómvöld herferð sína á því að svartir í S-Afríku geti ekki án hvítra lifað og nota sem samiikingu sebradýrið: Svörtu rendumar á því munu láta lífiö ef þær hvítu em skotnar. Hvort þessi samlíking þykir eiga við um kynþáttamisrétti er svo önnur saga. Erlend myndsjá Ókennilegur fylgihlutur Þegar visindamenn í Chile vom að skoða fjarlæga súpemóvu í stjömu- kíki fyrr á árinu sáu þeir ókennilegan hlut tíl hliðar við nóvuna. Ekki er vit- að hvað þetta var og ekki hefur það sést síðan en til er ljósmynd af fyiir- bærinu svo það var augljóslega til. Sérfræðingar reyna nú að spá í hvað þetta var en óvíst er að nokkur svör fáist. Fíkniefna- brenna í Thailandi Mikil fíkniefnabrenna var haldin í Thailandi í gær og var þar brennt allt að fimmtíu og sex tonnum af marijúana. Brenna þessi var þáttur í mikilli herferð gegn fíkniefnum sem yfirmaður deildar þeirrar hjá Sameinuðu þjóðunum, sem fer með baráttu gegn fíkniefnum, hefúr yfir- umsjón með. Undanfama mánuði hefur mikið verið reynt til þess að fá stjómvöld til að herða viðurlög við fíkniefna- brotum og hefur einkum náðst árangur í Austurlöndum fjær þar sem stjómvöld hafa tekið upp þunga fangelsisdóma, jafnvel dauðarefsing- ar, við fíkniefnasmygli og -sölu. í Flóttamenn á heimleið Þúsundir flóttamanna frá E1 Salva- dor em nú á leið heim til sín frá flóttamannabúðum í Honduras þar sem þeir hafa dvalist um nokkurt skeið, eftír að hafa flúið borgarastyij- öldina í heimalandi sínu. Flóttamenn- imir vonast væntanlega tíl þess að friðvænlegar horfi nú heima við eftír friðarsáttmála þann sem leiðtogar fimm Mið-Ameríkuríkja gerðu með sér í sumar. Alls komu um fjögur þús- und og fimm hundmð flóttamenn til E1 Salvador um síðustu helgi og bíða þess nú að komast til heimila sinna. Sýknaður John Zaccaro og eiginkona hans, Geraldine Ferraro, hafa fulla ástæðu til að brosa þessa dagana því í gær var Zaccaro sýknaður af ákærum um mútustarfsemi og fjárþvinganir. Ásakanir um starfsemi af þessu tagi komu fram 1984 þegar Ferraro var í framboði sem varaforsetaefni demókrata og er nú fyrst að sjást fyrir endann á því. Talið er að málið hafi hugsanlega haft áhrif á þaö hversu illa hún og Mondale, forseta- efnið, töpuðu fyrir Reagan og Bush. Dómsátt í málaferlum vegna brjóstastærðar Bandarísk unglingsstúlka vann í gær sigur í málaferlum gegn skóla sínum og varð yfirstjóm skólans að senda henni formlegt afsökunarbréf. Stúlkan hafði raunar farið fram á eina miHjón dollara í skaðabætur en í dómsáttinni vart. ~ ekkert minnst á’ peninga. Mál sitt höfðaði stúlkan vegna þess að kennari við skólann neitaði henni um að verða klappstýra þar sem hún væri með of stór bijóst. Ráðlagði kennarinn stúlkunni að fara í bijóstaminnkunaraögerð en það taldi hún hina verstu móðgun og fékk sér lögfræðing. Málinu lauk svo, eins og fyrr sagði, giftusamlega, fyrir stúlkuna að minnsta kosti. Það lendir síðan á spjöldum sögunnar sem gott dæmi um það hversu málshöfðunarglaðir Banda- ríkjamenn em orðnir og hversu litið tílefiú þeir þurfa til þess að leita á náðir dómstóla.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.