Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1987, Side 17
FÖSTUDAGUR 16. OKTÓBER 1987. 17 Lesendur Frá stríðinu við Persaflóa. Persaflóastríðið Að friðarborðinu Konráð Friðfinnsson skrifar: Eins og öllum ætti að vera kunn- ugt, sem fylgjast með fréttum berjast írakar og íranir af miklum eldmóði, og hafa gert undanfarin sjö ár. Hve oft höfum við ekki heyrt, eða lesið um, áð annar hvor aðihnn gerir öfluga eldflaugaárás á andstæðinginn. Svo og svo margir fallnir og þar með búið að hefna fyrir viliimannlega árás hins. Hvað gerist svo? Auðvitað svarar kúlnaþolandinn í sömu mynt. Á þann veg hafa málin gengið sl. sjö ár. En um hvað snýst ófriður landanna tveggja og hver er að sækjast eftir hveiju? Um það hef ég ekki hina minnstu hugmynd. Hallast hins vegar helst að því að hinir sprengjusjúku menn fái bara svona mikið út úr því að heyra hveliinn frá byssum sínum. Hvaða ástæða önnur gæti legið að baki? Hvor aðilinn hóf þessa baráttu, er annar hvor þeirra „vondi“ aðilinn? í sumar birtust svo stóru sjálfskip- uðu alþjóðagæslumennimir með sín fullkomnu herskip og hugðust skakka leikinn við Persaflóa. Og þá fauk tapp- inn úr flöskunni. Þar er nú nápast allt á suðupunkti og ástandið aldrei jafnógnvekjandi. Hvernig þetta ófriðarbál endar veit enginn. Friðelskandi þjóðir heims verða afdráttarlaust að taka höndum saman og reyna alvarlega að koma írönum og írökum að friðarborðinu til að útkljá sín mál með pennann ein- an að vopni. - Penninn verður ávalit farsælasta lausnin, raunar sú eina, þegar öllu er á botninn hvolft. íslendingar ættu hiklaust að styðja slíka viðleitni. Eða það sem betra er, eiga frumkvæðið. Ég er þeirrar skoð- unar að þessi úlfúð sé ekki einkamál Khomenis eða klerkanna né heldur andstæðinga þeirra. Margnefnd deila snertir alia heimsbyggðina. Hugsið ykkur alla þessa ungu menn sem fómað er til einskis. Fólk má ekki líta undan þvílíkri smán sem stríðs- hijáðir þegnar þessara ríkja mega þola. Þrætur leysast eigi með vopna- skaki. Sagan mælir ei í þá veru. Eða nefnið mér eitt dæmi. Takmarkanir á starfsráðningum? Útivinnandi húsmóðir hringdi: sem komið á vissan aldur, segjum störf sín, eiumitt með þeim hætti Ég tek undir með þeim er skrifar um og yflr fimmtugt, sé bent kurteis- sem hér er rætt um? í lesendadálkDVumofangreintefni. lega á að segja störfura sínum Hvað raig varðar þá færi ég aldrei Ég hef einmitt dæmi um þetta frá lausum vegna þess eins að fyrirtæki aftur í störf hjá fyrirtæki sem hefði sjálfri mér. Ég er enn á góðum aldri vilji ekki hafa fólk á þessum aldri í þá stefnu að segja fólki upp störfum hvað viövíkur flestum störfum á störfum! erþaðkemstyfirmiðjanaldur.Þetta hinum fijálsa vinnumarkaði. En skyldu þeir hafa í huga sem nú eru hversu ftjáls er þessi vinnumarkað- Nú er kvartað mikiö um fólkseklu aö ráöa sig til starfa og lita á starf ur? hér á landi en er ekki litiö fram hjá sitt sem einhverja framtíðarstöðu. Það eru mörg dæmi þess að fólki, þeim stóra hópi sem hefur yfirgefið VERSLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR FRAMBOÐSFRESTUR Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur um kjör fulltrúa á 16. þing Landssambands íslenskra verslun- armanna. Kjörnir verða 88 fulltrúar og jafnmargir til vara. Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verslunar- mannafélags Reykjavíkur, Húsi verzlunarinnar, fyrir kl. 12 mánudaginn 19. október nk. Kjörstjórn Bifreiðar með afturdrifi á ónegldum snjóhjólbörðum hafa betri aksturseiginleika með farg yfir afturöxli. Sandpokar afhentir í bækistöðvum gatnamálastjóra við Meistaravelli, Sigtún, Grensásveg og Sævar- höfða. Gatnamálastjóri ðlfS á íslandi - alþjóðleg fræðsla og samskipti heldur upp á 30 ára afmæli félagsins laugardaginn 17. október: ★ Kl. 16.30 Hátíðarfundur í Norræna húsinu ★ Kl. 19.30 Árshátíð AFS á íslandj í Þórscafé (,,Norðurljós“) Miðasala á skrifstofu. Verð kr. 1500,- AFS-arar, fjölmennið og takið með ykkur gesti! Stjórnin Úrval Tímarit fyrir alla HENTAR ÖLLUM ALLS STAÐAR - Á FERÐALAGINU JAFNT SEM HEIMA Skop 2 • Sjálfsvíg unglinga 3 • Saga ræktuöu perlanna 10 • Persónuleikapróf 14 • Draumar - tilgangur svefnsins 21 • Eyrnanudd - leið til betri heilsu 27 • Nítján stundir í „Frystikistu fjandans" 30 • Úrvalsljóð 36 • í leit að lífselixír 38 • Eitt sinn var ég vændiskona 41 • Táknfræói kossins 49 • Einstaklingsbundin orkukreppa 54 • Hugsun í orðum 60 • Þegar Ólöf á Stórhamri gekk aftur 62 • Faðir minn Lincoln og ég 71 • Sagan af Skugga 75 • í kjölfar ísbrjóts við tónlist eftir Tsjaíkowskí 84 • Villt dýr og borgir 89 • Völundarhús 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.